Þjóðviljinn - 23.10.1977, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 23.10.1977, Blaðsíða 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. október 1977 Alþýðubandalagið i Reykjavik auglýsir fundaröð um samvinnustarf og sósialisma. Fundir verða haldnir að Grettisgötu 3 kl. 20.30 á eftirtöldum dögum. Fundirnir eru öllum opnir. 26. okt. miðvikud.: Starf fyrstu kaupfélaganna og stofnun SÍS.Gunnar Karlsson. 27. okt. fimmtud.: Skipulag samvinnuhreyfingarinnar og starfsemi KKON.Jóhann Kristjánsson. 1. nóv. þriðjud.: Tengsl samvinnuhreyfingar og stjórnmálaflokka. Magnús H. Gislason. 3. nóv. fimmmtud.: Samvinna og ágreiningur samvinnuhreyfingar og verkalýðshreyfingar. Eysteinn Jónsson og Benedikt Daviösson. 8.nóv. þriðjud.: Samvinnustarf og sósialisk barátta.Sigurður Magnús- son og Engilbert Guðmundsson. Alþýðubandalagið i Reykjavik. Starfshópur Aiþýðubandalagsins iReykjavik um efnahags- og atvinnu- mál heldur fund mánudaginn 24. október kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 3og er öllu áhugafólki opinn. Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn mánudag- inn 24. október kl. 20.30 i Þinghól. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Aðalfundarstörf: kosning stjórnar og blaðanefndar og fulltrúa i kjördæmisráð. 3. Kosning fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins. 4. Rabb — fyrirspurnum svarað: Gils Guðmundsson, alþingismaður. 5. önnur mál. Stjornm. Flóamarkaður Kvenstúdentafélagsins er í dag kl. 14 að Hallveigarstöðum Margt góðra muna Fjáröflunarnefndin Áhugafólk um söng Vetrarstarfið er hafið og við óskum eftir söngfólki. Upplýsingar i simum 40410, 42274, 41674 og 41719. Samkór Kópavogs. Félag j árniðnaðarmanna Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 25. okt. 1977 kl. 8.30 e.h. i Tjarnarbúð, uppi. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. önnur mál 3. Erindi: ,,Um eiturefni og hættuleg efni á vinnustöðum”. Eyjólfur Sæmundsson efnaverkfr. flytur og svarar fyrirspurn- um. Mætið vel og stundvislega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. GARY KVARTMILLJÓN i kvöld, uppselt. Fimmtudag kl. 20,30. SAUMASTOFAN Miðvikudag kl. 20,30. Laugardag kl. 20,30. SKJALDHAMRAR Föstudag kl. 20,30 Miðasala i Iðnó kl. 14-20,30 Simi 1-66-20. Sendill óskast Sendill á vélhjóli óskast hálfan daginn, fyrir hádegi. Djoovnj/m Simi: 81333 Andleg heilsa Bandaríkjamanna 20% eiga við geðræn vandamál að stríða Sérstök nefnd um geðheilsu sem Bandaríkja- forseti hefur skipað, telur að fleiri Bandaríkjamenn eigi við geðræn og sálræn vandamál að striða en hingað til hef ur verið talið. Skýrslan telur að 20—32 miljón- ir Bandarikjamanna þurfi á ein hverskonar geðlækningaaðstoð að halda á hverjum tima. Embættismenn sem aðstoðuðu nefndina við að setja saman skýrslu þessa telja jafnvel, að upplýsingar hennar séu frekar „ihaldssamar”. Sé eins liklegt að um fjörutiu miljónir Bandarikja- manna eða um 20% þjóðarinnar, gangi með geðtruflanir sem hægt sé að greina. Hin opinbera skýrsla telur að fjórðungur landsmanna sé undir alvarlegu andlegu álagi eins og það er orðað. A siðastliðnum tveim áratugum hefur kostnaður hins opinbera af geðlæknirigum tifaldast og nemur nú sautján miljörðum dollara á ári. Tala þeirra sem með einum eða öðrum hætti starfa að geðvernd og geðlækningum hefur þrefaldast — nú eru um 350 þúsundir manna við þau störf. (IHT) Munió verólaunasamkeppnina. Sendiö tillögur i pósthólf 7040 Reykjavík fyrir 31.október — Ég legg til að kýrin heiti: og mjaltakonan: Nafn sendaruia: Hcimili: Sírni: Kaupsiaður/Sýsla: Þyrla sem getur lent á sjónum. Hún er að koma meö nýjan vita- vörð, þvi vitavörðurinn á fri til að heimsækja fólk, af þvi það er svo einmanalegt I vitanum. Vitavörðurinn þarf lika að versla fyrir sjálfan sig. Ofan á vitanum er pallur; þar geta þyrlur lent ef vont er I sjóinn. Kafbátur, hvalur og hraðbátur. Járnbrautariestir: Efri lestin er af nýrri gerð. Aftasti vagninn með stóra glugganum er veitingavagninn. Þetta er hraðlest. Neðri lestin er gömul og kynt með kolum. Hún er með mörgum vögnum. Svona lest getur fariö útaf 'teinunum. Bófi er að reyna að ræna lestina, þvi að aftasti vagninn er bankavagn eða pen- ingaflutningsvagninn er bankavagn eða peningaflutningsvagn. Löggan er búin að handtaka ræningjann. — Það er ágætt að ferð- ast með svona lest þó hún fari ekki eins hratt og hin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.