Þjóðviljinn - 18.03.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.03.1978, Blaðsíða 1
 MOÐVHMN Laugardagur 18. mars 1978 — 43. árg. 57. tbl. 1 ‘M • - 3U_ „Við vinnum ekki kauplaust fyrir atvinnurekandann”, sögfiu þessir tveir öldnu hafnarverkamenn i gær- morgun. Ljósm. —eik. Kristján Thorlacius, formadur BSRB: „Þetta er fjarstæðá 55 Þó hefur ríkisstjórnin heykst á því aö draga frá tvöfalt yfirvinnukaup „Þetta þýðir að rikisstjórnin hefur valiðþá leið að draga af rikisstarfsmönnum, sem þátt tóku i vcrkfallinu 1. og 2. mars sem svarar y firvinnukaupi, en ríkisstarfsmenn hafa f>0% álag á dagvinnukaup fyrir yfir- yinnu”, sagði Kristján Thor- lacius, formaður BSRB i gær um þá ákvörðun stjórnarinnar að draga 8% af föstum launum vegna eins dags fjarvistar og 16% fyrir báða dagana. — Þetta þýðir ennfremur að rikisstjórnin hefur heykst á þeirri fyrirætlan að draga tvö- falt yfirvinnukaup áf verk- fallsfólkinu og tel ég það vera vegna eindreginna mótmæla samtaka launafólks, sagði> Kristján. — Ég tel það hins vegar fjarstæðu að draga af fólki meira en sem nemur dag- vinnukaupi. Eins og margoft hefur verið bent á eru öll for- dæmi fyrir frádrætti vegna skyndiverkfalla einstakra starfsmannafélaga eða stéttarfélaga rikisstarfs- manna á þann veg að annaö- hvort hefur ekki verið dregið af starfsmönnum eða þá ein- falt dagvinnukaup. —ekh Hafnarverkfall í tvo tíma Öll vinna lá niöri við höfnina i tvær klukku- stundir í gærmorgun# þegar hafnarverka- menn mótmæltu með verkfalli kjaraskerð- ingarlögum ríkisstjórnarinnar. Þessa mynd tók Ijósmyndari Þjóðviljans,— eik,í Sundahöfn i gærmorgun/ þar sem menn sátu í kaffistofunni í tvo tíma. Á borðum lá dreifimiði sem á stóð: //Hverju tapar þú? Eins og atvinnurekendur greiða nú kaup, færð þú 38 klst. laun fyrir 40 klst. dagvinnu á viku. Með öðrum orðum: Þú vinnur tvær klukku- stundir á viku kauplaust fyrir atvinnurekand- ann. Þú vinnur 40 klst. Færð borgaðar 38 klst. Þetta er aðeins miðað við dagvinnu. Hve margar yf irvinnustundir vinnur þú kaup- laust fyrir atvinnurekandann? Þetta gerist á sama tima og allt verðlag fer daglega hækkandi." Fleiri myndir og viðtöl eru á baksíðu Stefán Jónsson um fullyröingar Ingvars Gíslasonar Linka með skrekk en ekki skortur á góöum vilja A forsiðu Timans i gær heldur Ingvar Gislason, alþm. þvi fram að Stefán Jónsson, alþm. hafi fariö með rangfærslur og ósann- indi i sambandi við tregðu þing- manna Noröurlandskjördæmis eystra viðað bera fram frumvarp um úrbætur i atvinnumálum Þórshafnarbúa. Af þessu tilefni innti Þjóðviljinn Stefán cftir þvi hvort hann hefði komið i veg fyrir að flutt yrði sameiginlegt frum- varp allra þingmanna kjör- dæmisins um kaup rikisins á Þórshafnarverksmiðjunni. Nei. Siður en svo. Og klauf mig ekki út úr hópnum á þingmanna- fundi kjördæmisins i neinu öðru en þvi, aö segjast mundu flytja frumvarpið einn, eins og Þórs- hafnarbúar fóru fram á — ef þeir hinir vildu ekki standa að frum- varpinu með mér, sagði Stefán. En þeir neituöu? Nei. Þar skakkar i fyrirsögn Þjóðviljans i gær. Þeir töldu bara tormerki á þvi, að þeir gætu staöið að sliku frumvarpi, — i fyrsta lagi vegna þess að það samrýmdist varla fyrri vinnu- brögðum þeirra i sambandi við ' lausn á vandamálum Þórshafnar og yrði málinu e.t.v. ekki til framdráttar — og i öðru lagi vegna þess að sjávarútvegs- ráðherra yröi tæpast hrifinn af slikum málatilbúnaði. Ég baö þá meðþingmenn mina að leita álits þingflokka sinna i málinu eigi að siður, hvort þeir gætu ekki staöiö að frumvarpinu ásamt mér, en sagðist vilja leggja frumvarpiö fram fyrir páskahlé. Nú hafði ég ekki frétt neitt frá þeim félögum á miövikudags- kvöld og lagöi þvi frumvarpiö fram. A fimmtudagsmorgun hitti Stefán Jónsson, alþingismaður. ég Ingvar Gislason af tilviljun og sagði honum frá þvi,að nú væri ég búinn að leggja fram frumvarpið einn. Hann óskaði þess aö ég drægi það til baka og að hægt yrði að ná samstöðu um sameiginlegt Framhald á 18. siðu Hrafn ráðinn leiklistar- ráðunautur sjónvarpsins Á fundi útvarpsráðs i gær var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur að mæla með ráön- ingu Hrafns Gunnlaugssonar i starf „dramatúrgs”, leiklistar- ráðunautar, við sjónvarpið. Leynileg atkvæðagreiðsla var höfð um málið en leiöa má likur að þvi að það hafi veriö fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. og Stefán Júliusson, fuiltrúi Alþýðuflokks- ins, sem mynduðu meirihiutann. Framhald á 18. siöu Réttí listmn verdi birtur Hafa upplýsingar um reikningseigendur verið notaöar til fjárkúgunar! Ljóst er aö listi sá sem dreift hefur verið, og er meö nöfnum 51 reikningseiganda i Finansbank- en, af um það bil 70, hefur valdiö gifurlegu fjaörafoki i stjórnkerf- inu. Viðuriög við birtingu trúnaðarmála er að finna I 136. gr. aim. hegningarlaga og eru 1- 3ja ára fangelsi, cftir starfi þess sem trúnað brýtur. Rannsóknarlögreglan hefur enn ekki komist að þvi hvaöan listinn er né heldur hver gerði það. Ekki er ljóst hvers vegna ekki voru birt nöfn allra 70 reikningseigendanna, en svo virðist sem nöfnin sem birt hafa veriö séu ekki valin af handahófi. Dagblaöið birti i gær nöfn flestra þeirra, sem eru á lista þeim sem nú er I umferð og hefur viðtöl við allmarga reikningseig- endur sem misjafnlega vel gera grein fyrir máli sinu Einn þeirra sem ekki er rætt við i Dagbl. kom að máli við Þjóðviljann og bað um að blaðið kæmi þeirri kröfu á framfæri að Seðlabankinn.gjald- eyrisdeild, birti alla nafnarununa vegna þess sem orðið er. Þá taldi hann að þeir reikningseigendur sem á lista þeim erusem dreift hefur verið ættu að snúa sér til yfirvalda með kröfu um birtingu nafna allra reikningseigenda upphæða á reikningum hvers og eins og þeirra skýringa sem gefn- ar hafa verið á inneigninni. Þórir Oddsson hjá rannsóknar- lögrl. rikisins sagði að lögreglan gæti ekki og mundi ekki svara nemum spurnmgum vegna rann- sóknar á þvi hvers vegna og hvernig umræddur listi hefði komist i umferð,fyrr en rannsókn væri lengra komin. Er það rétt að rúm vika sé siöan rannsóknar hafi verið krafist á málinu? Er það rétt að Seðlabankinn hafi krafist þeirrar rannsóknar vegna gruns um aö vitneskja um það, hverjir reikningseigendur væru, væri notuö til fjárkúgunar? Hafa einhverjir þeir embættis- menn, sem um listann hafa farið höndum, verið hreinsaöir af öll- um grun um aö hafa valið nöfn til dreifingar? Er ekki fyllsta sanngirni I þvi fólgin að birta réttan lista með ýtarlegum upplýsingum, þegar hluta upplýsinga um reiknings- eigendur hefur veriö dreift og ekki er i raun og veru vitað hvort þau nöfn eru þeirra,sem reikning eiga eða hafa átt i Finansbanken og fjöidi alnafna þeirra sem á listanum er liggja að ósekju undir grun um lagabrot? \\/_______úþ FELAGSFUNDUR í Alþýðubandalaginu á þnðjudag Alþýðubandalagið í Reykjavík heldur félagsfund þriðjudaginn 21. mars kl. 20:30 i Tjarnarbúð niðri. Dagskrá: 1. Ákvörðun um framboðslista til borgarstjórnar Reykjavíkur 2. Umræða um bar- áttumál kosninganna i vor. Nánar auglýst í þriðju- dagsblaði. Kaffiveitingar — Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.