Þjóðviljinn - 21.10.1978, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 21.10.1978, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. október 1978 þlOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýös- hreyfingar og þjóðfrelsis Ltgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Kramkvæmdastjóri: EiBur Bergmann Kitstjorar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Afgreiðslustjóri: Filip W. Franksson BlaBamenn: ÁlfheiBur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig- urBardóttir, GuBjón FriBriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson. Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta- fréttamaöur: Asmundur Sverrir Pálsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Eögnvaldsson. C'tlit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson. Sævar GuBbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur, Blaöaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar, óskar Albertsson. SafnvörBur: Eyjólfur Arnason. Auglýsingar: Rúnar Skarphéöinsson, SigriBur Hanna Sigúrbjörnsdóttir Skrifstofa: GuBrún GúBvarBardóttir, Jón Asgeir SigurBsson. AfgreiBsla: GuBmundur Steinsson. Kristin Pétursdóttir. Slmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, SigrlBur Kristjánsdóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: SIBumúla 6. Reykjavik, slmi 81333 Prentun: Blaöaprent h.f. Norrœna húsiö Norræna húsið hefur starfað í tíu ár. Það er sjálfgert að nota tilef nið til að ítreka þakkir við alla þá sem f undu upp á því snjallræði að reisa slíka menningarmiðstöð hér i Reykjavík. Húsið hefur beint hingað miklum fjölda ágætra gesta úr hinum ýmsu greinum lista og fræða,og stjórnendur hússins hafa borið gæf u til að skapa í kring- um það andrúmsloft sem ræðst af víðsýni um leið og menn eru örvaðir til nýrrar forvitni og umræðu. Á afmælinu munu margir Ijúka upp munni um að án Norræna hússins væri Reykjavík sýnu fátæklegri borg og leiðinlegri, og það er ekki nema satt og rétt. Um leið er eðlilegt að nota tækifærið til að minna á norrænt menningarsamstarf, sem fram fer eftir ótal leiðum, svo mörgum, aðtil eru þeir sem hrista höf uð sitt og telja, að íslendingar séu að lokast inni á of litlu og þröngu menningarsvæði. Þessar áhyggjur, sem sumar eru fyrirsláttur manna sem hatast við Skandinava af pólitískum ástæðum, eru reyndar alveg óþarfar. Vita- skuld er það brýn nauðsyn að íslendingar hafi augun galopin í menningarmálum og sjái til allra átta. En stað- reyndin er hinsvegar sú, að við höfum lengi búið við mjög sterk og einhliða áhrif engilsaxneskra f jölmiðla og enskrar tungu. Menningarsamband við Norðurlönd, bók- menntir og kvikmyndir þeirra landa, kennsla í tungum Norðurlanda, — þetta er það eina sem getur í raun orðið okkur veigamikið mótvægi gegn ensk-bandarískum vitundariðnaði. Þau tengsli ein geta komið í veg f yrir að enska verði í vitund uppvaxandi kynslóðar eina erlenda tungumálið, þau tengsli eru helsta lifandi áminningin um að í heiminum er margra kosta völ. Um leið eru tengslin við Norðurlönd að sjálfsögðu þau eðlilegustu sem Islendingar eiga völ á, vegna sögulegrar fortíðar og vegna skyldleika þeirra viðfangsefna sem Norðurlanda- þjóðir glíma við í samtímanum. Landsfundur her- 'stöðvaandstœðinga í dag hefst í Reykjavik Landsfundur Samtaka her- stöðvaandstæðinga. Landsf undurinn mun vafalaust skipta miklu máli um f ramtíð samtakanna, því þar verð- ur bæði f jallað um hugmyndir sem f ram hafa komið um breytta skilgreiningu á verkefnum herstöðvaandstæð- inga og svo um leiðir til að vekja nýja athygli á málstað þeirra, fjölga þeim að miklum mun sem gera í fullri alvöru upp við sig röksemdir gegn herstöðvastefnunni. Það er Ijóst að Samtökum herstöðvaandstæðinga er ærinn vandi á höndum. Þar með er ekki átt við ágreining um málefnaskrá eða starfsaðferðir, né heldur er átt við málflutning hinna ótvíræðu herstöðvasinna, sem vilja hafa hér bandarískan her vegna pólitískrar sann- færingar sinnar eða einhvers hagnaðar af hermangi. Langsamlega erf iðast er að vinna bug á því sem kalla mætti hina duldu aronsku. Þar er átt við það fólk, sem aldrei mundi kannast við það að vilja hafa hér her, eða vilja taka af honum leigugjöld. En hugsar sem svo, að úr því herinn er hér á annað borð, þá gæti vera hans gefið okkur ávísun á bandaríska fyrirgreiðslu hvenær sem einhver slys koma fyrir einhæft íslenskt atvinnulíf. Með öðrum orðum: við það hernám hugarfarsins sem hefur breitt úr sér hægt og bítandi, hefur sjálfstraust stórs hluta þjóðarinnar smám saman rýrnað. Og þetta fólk hefur einhverstaðar niðri í vitund sinni gert sér banda- ríska herinn að einskonar varafiskistofni, sem grípa mætti til ef að loðna bregst ásamt síld og þorski. Þetta er sú þróun sem einna hættulegust hefur orðið íslensku sjálfstæði, svo hættuleg, að jafnvel mætir menn eru farnir að tala hálfvegis í þeim eymdartón sem algengur var nálægt aldamótum meðal þeirra (slendinga sem 1öldu það alltof áhættusamt og dýrt að segja skilið við Dani. Gegn þessari þróun þurfa herstöðvaandstæðingar aðbeina orku sinni og hugviti sem mest þeir mega. —ób Fótbolti og vinstrimennska íslendingar eru yfirleitt ekki sérlega duglegir viB aö glima viö hinar fræöilegu hliöar málanna. Til dæmis dettur okk- ur hér um bil aldrei i hug aö setja iþróttamál i pólitiskt samhengi, nema hvaö þaö er almenn lenska hjá vinstrafólki aö lýsa andúö á stjörnuiþróttum og keppni. en stuöningi viö almenningsfþróttir, og er ekki nema gott um þaö aö segja svo langt sem þaö nær. Víöa annarsstaöar fer fram hörö umræöa um félagslegar og pólitiskar hliöar vinsælustu iþróttagreina, til dæmis fótbolt- ans. Blaö SF i Danmörku, Socialistisk Dagblad, birti til dæmis langa grein um „knatt- spyrnu og verkalýösmenningu” i sarnbandi viö landsleik milli Danmerkur og Englands. Höfundur greinarinnar haföi bersýnilega sett sér þaö mark- miö aö kveöa niöur ýmislegt af þvi sem hann reiknar vinstri- sinnum til fordóma i garö knatt- spyrnunnar. Hann leggur til dæmis mikla áherslu á þaö aö fótbolti hafi alltaf skipt mjög miklu máli i breskri verka- mannamenningu, og þar eö félögin hafa lengstaf veriö tengd ákveönum borgum og hverfum, hafi fótboltinn haft mikla þýöingu i þvi aö bræöa saman samheldni fólks, fá menn til aö skynjasigsem ,,viö”andspænis „þeim”. En hann neitar þvi ekki, aö meö atvinnumennsk- unni og flakki leikmanna á milli liöa, hafi mjög dregiö úr þvi lif- andi sambandi sem áöur var milli félags, leikmanna og áhorfenda. Gegn fordómum um sport Greinarhöfundur telur þaö einnig ýmsum vinstrisinnum til fordóma, aö þeir hengi meö einstrengingslegum hætti hatt sinn á stjörnudýrkun knatt- spyrnunnar og svo á þaö, aö þaö geri áhorfendur óvirka aö sitja og glápa á fótbolta. Hann segir aö féiagslegt inntak knattspyrn- unnar nái langt út fyrir svonefnda stjörnudýrkun. Hann heldur þvi og fram, aö þaö sé einkennandi fyrir áhorfendur knattspyrnuleikja, aö þeir séu menn sem eru eöa hafi veriö mjög virkir sjálfir, þetta eru menn sem eru komnir til aö sjá þaö, sem þeir sjálfir leika sér aö, á nýju þróunarstigi. Þeir eru og mjög vel aö sér sem áhorfendur og fylgjast meö af lifi og sál — „fótboltinn hefur fyrir löngu gert aö veruleika þá þátttöku áhorfandans sem ýms- ir leikhúshópar láta sig dreyma um”. segir hann. Greinarhöfundur segir og, aö ýmsir sósialistar geri tilveru sina leiöinlegri en hiin ella væri, meö þvi aö einblina af þröng- sýni aöeins á þá þætti félags- og menningarlifs sem taldir eru bjóöa upp á jákvæöa möguleika til aö efla pólitiska vitund — þar meö belgi þeir sig út meö fordómum um sportiö sem þeir telja fyrirfram vera á valdi andskotans. Myndasögur og félagsfrœði Svarthöföi, Jóhann Hjálmars- son og fleiri höfundar hafa ööru hvoru hent gaman aöþvi, aö rót- ■“l tækir félagsfræöingar hafa gert úttekt á þeim hugmyndaheimi og lifsskilningi sem felst á bak viö ævintýri einfeldningsins Andrésar Andar. En reyndar þarf hvorki rót- tæklinga né heldur félags- fræöinga til þess aö sjá hvernig framleiöendur myndasagna ýmiskonar, sem velta gifurleg- um upphæöum, spekúlera bæöi meö útbreidda fordóma I þvi samfélagi sem höföaö er til og svo meö ýmsar breytingar á viöhorfum. Þaö getur I senn veriö spaugilegt og óhugnanlegt aö fylgjast meö þvl hvernig þeir gera hvert þaö fyrirbæri sem athygli vekur sér aö féþúfu, banallsera þaö, sjúga úr þvi allan merg og blóö. Jafnrétti og ofurkvendi Ofurmenni ýmiskonar, Súpermenn, hafa lengi veriö vinsælt efni myndasagna. Þeir hafa áratugum saman klussaö margskonar illþýöi til andskot- ans meö yfirnáttúrlegum kröftum sinum og notiö I staö- inn aödáunar fallegra og undir- gefinna vinkvenna sinna. En siöan koma þeir timar, aö jafn- réttishreyfing er á allra vörum, og auövitaö veröur iönaöurinn aö bregöast viö henni. Hann gerir þaö meö þvi aö búa til ofurkvendi, skjaldmeyjar sem fljúga um loftin blá og sjá i gegnum holt og hæðir, og slá hvern karlfausk i klessu af mik- illi gleöi. Meö þessum brjósta- miklu skvisum er i senn brugöist viö hugmyndum jafn- réttisbaráttunnar og þær af- skræmdar og teygöar á allan hátt: i myndasögunum um medusu, Rauöu Sonju, Shanna og fleiri heldur grimmri valda- streitu milli kynjanna meö sadistískum undirtónum áfram af fullum krafti— munurinn er aöeins sá aö nú hefur veriö skipt um formerki. Súperman er kominn meö útlinur Raquel Welch. — áb.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.