Þjóðviljinn - 21.07.1979, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 21.07.1979, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. júll 1979. Islensk fyrirtæki á sjávarútvegssýningu i London lok júni. Þau voru: Vélsmiðjan Völundur hf., Vestmannaeyjum, Þrjú íslensk fyrirtæki tóku þátt i sjávarútvegssýningunni Euro- Catch, sem var haldin I London I sem sýndi fiskiflokkunarvél. Vél- tak hf., Hafnarfiröi, sem sýndi reknetahristara og sildartunnu- valtara, og Tækjabúnaöur hf„ Reykjavik, sem sýndi oliunýtni- mæli. Arangur fyrirtækjanna var yf- irleitt mjög góður. Þannig fékk Tæknibúnaöur hf. pantanir fyrir um 200 miljónir króna í oliunýtni- mælinn auk fjölda fyrirspurna. Vélsmiöjan Völundur hf„ sem hefur hafið útflutning á fiski- flokkunarvél þeirri, sem þeir framleiöa, bæöi til Færeyja og Bretlands, náöi góöum árangri á sýningunni. Bæði var um beina sölu að ræöa og auk þess barst fjöldi fyrirspurna. Véltak hf. fékk margar fyrir- spurnir um framleiðsluvörur sin- ar. Hengingar Framhald af bls. 3. henni vegna þess aö ofbeldisglæp- um og hryðjuverkum fari fjölg- andi. Fyrir siöustu þingkosningar beittu ihaldsmenn sér fyrir þvi aö harðari refsingar yröu upp tekn- ar. Hins vegar reyndist stjórnar- flokkurinn klofinn í málinu þegar til kastanna kom og jafnvei rikis- stjórnin var ekki á einu máli. Þannig greiddi Margaret Thatch- er forsætisráöherra atkvæöi meö þvi að hengingar, hin hefðbundna aftökuaöferö Breta, yröu inn- leiddar á ný, en William Whitelaw innanrikisráöherra var á móti'. Raforkumál Framhald af bls. 6. f jármagnskostnaöar vegna Bessastaöaárvirkjunar, en 160 m.kr. lánaöar gegnum Orkusjóö til Orkustofnunar vegna rann- sókna á Jökulsá i Fljótsdal, gegn skilyröi um endurgreiöslu i þágu Nöfn þeirra sem létust í umferöar- slysunum Nöfn konunnar, sem fórst i bil- siysinu i Oddsskaröi og drengs- ins, sem fórst i slysinu á Artúns- höfða voru Laufey Helga Maria Sveinsdóttir frá Raufarhöfn, 66 ára að aldri^og Þorsteinn Pétur, 7 ára, sonur hjónanna ólafs Þor- steinssonar og Vilhelminu Þor- steinsdóttur, Kleppsvegi 118, Bessastaöaárvirkjunar, er þörf kreftir. Þá hafa meö nýlegri viöbótar- lánsf járöflun til orkufram- kvæmda fengist 90 m.kr. til mæl- inga á Suöausturlinu og Raf- magnsveiturnar hafa gert tillögu um fjármagn til byrjunarfram- kvæmda við linu frá Skriödal um Djúpavogtil Hafnar í Hornafiröi á næsta ári. Sérstakur starfshópur á vegum ráöuneytisins vinnur nú aö undir- búningi langtimaáætlúnar um meginframkvæmdir til aö tryggja raforkuöflun samkvæmt áætlaöri raforkuþörf á næstu ár- um ogáratugumeins og kveöið er á um i samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna, jafnframt þvi sem stefnt er aö nýrri Lands- virkjun. Mun i þessu sambandi m.a. veröa fjallað um úrlausn i orkumálum Austanlands til skemmri og lengri tima.” Allar konur Framhald af 19. siðu. Stjórnin er nú þannig skipuð: Maria Pétursdóttir form., Sigur- veig Siguröardóttir, Selfossi og Margrét Einarsdóttir, Reykjavik. Ritstjóri Húsfreyjunnar er Sig- riöur Thorlaclus og starfsmaöur leiöbeiningastöövarinnar er Sig- riöur Haraldsdóttir. — ká Útvarpið Framhald af bls. 24. fréttir og veðurfregnir á morgn- ana, forystugreinar dagblaöa og landsmálablaöa, þularrabb og tónlist i morgunútvarpi, alla poppþætti og Lög unga fólksins (um 30% hlustun), Daglegt mál, Islenskt mál, Um daginn og veg- inn, Aöur fyrr á árunum, A vinnustaönum og barnatimann ,,AÖ leika og lesa”. Sigilda tónlistin sker sig alger- lega úr aö þvi leyti til, hve litiö er á hana hlustaö. A miðdegistón- leika þessa viku hlustuöu 1,4%- 2,8%. Trió fyrir fiölu, selló og pianó: 0,5%. Sembalkonsert: 0,0%. Fiölusónata: 0,9%. Tónleik- ar Sinfóniuhljómsveitar Islands I Háskólabiói: 1,9%. Kammertón- leikar: 0,5%. óperettutónlist: 0,0%. Morguntónleikar: 1,9-6,0%. Frá hallartónleikum: 0,0%. Ein- söngur: 1,9%. Adagio og allegro I As-dúr: 0,0%. Eftir á aö koma I ljós hvort for- ráöamenn Rikisútvarpsins taka mark á þessum athyglisveröu niöurstööum og breyta dag- skránni til samræmis viö þær, eöa hvort áfram verður hjakkaö I sama farinu. — eös Aukatekjur Framhald af bls. 2(4. slðan i ágúst 1976. Þorsteinn Geirsson skrifstofustjóri I fjár- málaráöuneytinu sagöi aö þessu heföi veriöbreyttvegna þrýstings frá tekjuhæstu bæjarfógetunum. „Ég hef aldrei haft minnstu á- hrif á þá hluti og aldrei skipt mér af þvi, enda hef ég haft öðrum hnöppum að hneppa en aö standa I sllku,” sagöi Friöjón um þessa breytingu. ,,Ég hafði ekki einu sinni hugmynd um þessa breyt- ingu. Ég á þar engan hlut aö, en ég geri ráö fyrir að stjórn Dóm- arafélagsins hafi haft þarna ein- hver áhrif.” Friðjón sagöi að umsvif em- bættisins hefðu aukist ár frá ári, málum færi sifellt fjölgandi og upphæöirnar hækkuðu hrööum skrefum. „Mér finnst þetta vera oröið of mikiö núna,” sagöi hann um aukatekjurnar, ,,en annaö mál er þaö, aö ég heföi ekki unað þvi aö vera i þessari stööu svona lengi ef hún væri ekki vel borg- uö.” Lausafjáruppboöin gefa af sér hæstu aukatekjurnar hjá embætt- inu i prósent- og krónuvis. Þau faraoftastframum helgarogeru framkvæmd af öðrum borgarfó- getum. „Þetta skiptir miljón- um”, sagöi Friöjón aö lokum þeg- ar hann var enn inntur eftir tekj- um embættisins af uppboöunum. Rikissjóðstekjur, sem borgar- fógetaembættið innheimti áriö 1978,námu 703,6 miljónum króna. Aukatekjurnar af þeirri upphæö eru 800 þúsund, enda er inn- heimta rikissjóöstekna mjöglitill póstur I umsvifum borgarfógeta. —eös Blikkiðjan Asgaröi 7, Garöabæ önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verötiiboö SIMI 53468 UNGT PAR bæði við nám með eitt barn, óska að taka á leigu 3ja herb. íbúð frá 15. ágúst — helst i Háaleitishverfi. Reglusemi og góðri um- gengni heitið. Einhver fyrirframgreiðsla möguleg. Upplýsingar i sima 75933 eftir kl. 4. húsbyggjendur ylurinn er " "*"r Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi — föstudags. Afhendum vöruna á byggingarstað, viðskiptamönnum að kostnaðar lausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. kwöld os helgartimi 93 7355 Reykjavik. Sumatferð ABR 29. júlí: BORGARFJÖRÐUR KALDIDALUR - Sumarferö Alþýðubandalags- ins I Reykjavik verður aö þessu sinni farin sunnudaginn 29. júll I Borgarfjörö og Kaldadal. Farið veröur frá Umferöar- miöstööinni kl. 8 og ráögert er aö koma afturí bæinn kl. 20. Ek- iö veröur um Þingvelli, Kalda- dal, uppsveitir Borgarfjaröar sunnan Hvitár og um Hestháls, Draga og Hvalfjörö til baka. Stoppaö veröur I Bolabás, viö Viögelmi I Hallmundarhrauni, aö Hiísafelli, viö Hraunfossa, I Reykholti og viö Botnsskála. Lengsta stoppiö veröur I skóg- inum I Húsafelli, en I Reykholti mun m.a. Björn Þorsteinsson prófessorflytja ræöu um Snorra Sturluson. Efnt verður til glæsilegs happdrættis I feröinni og veröa vinningar um 80 talsins. Stærsti vinningurinn er Júgóslavfuferö á vegum Samvinnuferöa-Land- sýnar aö verömæti 200 þús. krónur, en aðrir vinningar eru m.a. bækur, málsverðir á veit- ingahúsum, viöleguútbúnaður og rafmagnsvörur. Aöalleiösögumaöur feröar- innar veröur Páll Bergþórsson veöurfræöingur, en hann er ætt- aöur frá Fljótstungu i Hvltár- slöu. Lögö veröur áhersla á aö fá úrvals leiösögumenn I hvern einasta bil og hafa eftirtaldir menn m.a. verið tryggöir til þess: Arni Bergmann ritstjóri, Björn Th. Björnsson listfræö- ingur, Björn Þorsteinsson próf- essor, Engilbert Guömundsson hagfræðingur, GIsli Pétursson kennari, Guömundur Hlugason fræðimaöur, Gunnar Karlsson lektor, Haraldur Sigurösson bókavöröur, Iljalti Kristgeirs- son hagfræöingur, Silja Aöal- steinsdóttir bdkmenntafræöing- ur, Þór Vigfússon borgarstjórn- arfulltrúi og Þorbjörn Brodda- son lektor. Forsöngvarar veröa I hverjum bil m.a. Kristin ólafs- dóttir, Jakob S. Jónsson og Hjördis Bergsdóttir. Skrifstofan að Grettisgötu 3 er opin daglega frá kl. 14-19 og er fólk hvatt til aö láta skrá sig sem fyrst. Siminn er 17500. Ferðin kostar 6000 krónur fyrir fulloröna en 3000 krónur fyrir börn. ÚR VALS LEIÐSÖGUMENN - JÚGÓSLA VÍUFERÐ í HAPPDRÆTTI - LÁTIÐ SKRÁ YKKUR STRAX - SÍMINN ER 17500 FRAM-dagurinn Hinn árlegi Fram-dagur verður haldinn sunnudaginn 22. júli á Félagssvæöi Fram viö Safamýri. Að venju fara fram margir kappleikir I ýmsum aldursflokk- um. Framarar fá i heimsókn fjölda iþróttafélaga m.a. danskt knattspyrnulið i 3. flokki. Harö- jaxlarnir úr KR koma I heim- sókn, og keppa viö „old-boys” Bragöarefi úr Fram. Yngstu knattspyrnumenn Fram, 6. . flokkur, stendur i ströngu þennan dag, en þeir taka þátt i hraömóti fjögurra félaga þ.e.a.s. KR, Vals, Vikings og Fram. Keppt veröur um bikar, sem gefinn er I tilefni Fram-dagsins. Þá munu Fram-konur sjá um kaffiveiting- ar i Félagsheimilinu frá kl. 15:00. Dagskrá Fram-dagsins verður annars sem hér segir: Knattspyrna. kl. 13:00-13:35 6. fl. karla. Fram-KR Grasvöllur Valur-Vikingur, Malarvöllur kl. 13:35-14:25 4. fl. karla Fram-lA.Malarvöllur kl. 13:35-14:50 3. fl. karla Fram-Bröndby (Danm), Grasvöll- ur kl. 14:50-15:25 6. fl. karla Valur-KR Malarvöllur Fram-Vikingur. Grasvöllur kl. 15:25-16:25 Bragðarefir Fram Haröjaxlar KR Grasvöllur kl. 15:25-16:25 2. fl. karla Fram-Þróttur Malarvöllur kl. 16:25-17:00 6. fl. karla Fram-Valur. Grasvöllur Vikingur-KR.Malarvöllur Handbolti. kl. 14:15-14:40 4. fl. karla Fram-Valur kl. 15:00-15:25 3. fl. kvenna Fram-FH Knattspyrnufelagiö Fram von- ar aö sem flestir velunnarar fé- lagsins sjái sér fært aö lita við á Félagssvæðinu viö Safamýri á sunnudaginn, og kynni sér aö- stööu, framkvæmdir og starf- semi félagsin: — B Leikir um helgina Um helgina fara fram nokkrir leikir i 1. og 2. deild knattspyrn- unnar, og verða þeir sem hér seg- ir: Laugardagur 21. júli: 1. deild Keflavikurvöllur IBK-IBV kl. 14 2. deild Akureyrarvöllur Þór-Austri kl. 14. 2. deild ísafjaröarvöllur IBÍ-UBK kl. 14. 2. deild Kaplakrikavöllur FH-Reynir kl. 16. Sunnudagur 22. júli: 1. deild Laugardalsvöllur KR-Haukarkl. 20. Mánudagur 23. júli: 1. deild Laugardalsvöllur Valur-Fram kl. 20. M.S. BALDUR Fer frá Reykjavik þriöju- daginn 24. þ.m. til Breiöa- fjaröarhafna. Vörumóttaka mánudaginn 23. 7.og til há- degis þriöjudaginn 24. 7. SKIPAÚTC.tRe RIKISINS M.S. Coaster Emmy fer frá Reykjavik föstudag- inn 27. þ.m. austur um land til Vopnafjaröar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Vestmannaeyjar, Horna- fjörö, Djúpavog, Breiödals- vik, Stöövarfjörö, Fáskrúös- fjörö, Reyöarfjörö, Eski- fjörö, Neskaupstaö, Borgar- fjörö eystri og Vopnafjörö. Móttaka alla virka daga til 26. þ.m.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.