Þjóðviljinn - 11.01.1980, Page 3
Föstudagurinn 11. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Kjararádstefna
ASÍ í dag:
Kosningar
á Alþingi
A fundi sameinaðs Alþingis i
gær var m.a. kosið i nokkrar
nefndir og ráð. Kosningu i flugráð
hlutu eftirtaldir: Albert
Guðmundsson alþingismaður,
Steingrimur Hermannsson
alþingismaður og Skúli
Alexandersson alþingismaður.
Varamenn voru kosnir
Guðmundur Guömundsson
slökkviliðsst jóri, Ragnar
Karlsson og Vilhelm Júliusson
verkstjóri.
Sigurður J. Briem fulltrúi var
kosinn framkvæmdastjóri
Söfnunarsjóðs tslands til 6 ára
eða frá 1. jan.1980 til 31. des 1985.
Norðurlandaráð
í Norðurlandaráð voru kosnir
sem aðalfulltrúar eftirtaldir
þingmenn: Matthias Á.
Matthiesen, Sverrir
Hermannsson, Ólafur
Jóhannesson, Páll Pétursson,
Stefán Jónsson og Arni Gunnars-
son. Varamenn þeirra voru
kosnir Geir Hallgrimsson,
Gunnar Thoroddsen, Halldór
Asgrimsson, Davið
Aðalsteinsson, Hjörleifur
Guttormsson og Eiður Guðnason.
| Næst sam-
i komulag
| um verð-
i bótamál?
i dag kl. 10 hefst á Hótel Loft-
■ leiðum kjaramálaráðstefna
J ASt, sem frestað var I desem-
Ibermánuði, og eru nú taldar
auknar likur á sameiginlegri
! stefnumörkun i kjarakröfum
| sambandsins. Undanfarið hefur
■ mikið verið fundað innan verka-
I lýðshreyfingarinnar til undir-
a búnings ráðstefnunni, — 26
J manna nefndin fundaði i gær og
Imiðstjórn ASt kemur saman kl.
9 i dag áður en ráðstefnan hefst.
■ Kjaramálaráðstefnunnar,
I sem ætlað er að ljúki i kvöld,
■ hefur verið beðið með nokkurri
Þessa mynd tók -eik við upphaf fundar 26 manna nefndar ASt i gær, en nefndin leggur tillögur sinar fyrir
kjararáðstefnuna I dag.
eftirvæntingu, þar sem tals-
verður ágreiningur varð milli
einstakra aðildarfélaga sam
bandsins á kjaramálaráðstefn-
unni i desember og tókst ekki að
ljúka henni m.a. af þeim ástæð-
um. A þingi Verkamannasam-
bandsins um siðustu helgi var
hins vegar samþykkt stefnu-
mörkun, sem ætlað er að auð-
veldi samkomulag um verð-
bótamálið, sem verið hefur
helsti ásteytingarsteinninn. Þar
var sett fram krafa um að laun
á bilinu 230-300 þúsund krónur
fái sömu krónutölu i visitölu-
bætur og miðist þær við 300 þús-
und króna laun. Laun á bilinu
300-400 þúsund krónur fái fullar
visitölubætur, en hærri laun en
400 þúsund krónur fái sömu
krónutölu og 400 þúsund króna
laun fá. Krafa þessi er sett fram
með þvi skilyrði að sama kerfi
gildi fyrir önnur launþegasam-
bönd.
-AI
Umboösfulltrúaembœttiö gæti eins kallast
„Aöstoöarmaöur ráöherra
5?
Ég tel að þetta ný ja em-
bætti umboðsf ulltrúa sé
fyrst og fremst mannafla-
aukning í dómsmálaráðu-
neytinu og geti verið til
góðs sem tengiliður þess
við almenning en að um-
boðsfulltrúinn geti haft
áhrif á dómsathafnir eða
sé líkt embættum umboðs-
manna á Norðurlöndum tel
ég ekki rétt. Þess vegna
gæti embætti Finns Torfa
Stefánssonar alveg eins
heitað aðstoðarmaður ráð-
herra, sagði Már Péturs-
son formaður Dómarafé-
lags íslands í samtali við
Þjóöviljann í gær.
segir Már Péturs-
son, formaöur
Dómarafélagsins
í morgunpóstinum 4. janúar
lýsti Finnur Torfi Stefánsson
hvert hann áliti hlutverk sitt i
hinu nýja embætti og kom þar
fram að hann áliti skyldu sina að
taka við kvörtunum þeirra sem
eiga um sárt að binda i skiptum
við dómstóla og gera ef ástæða
þætti til viðkomandi embættis-
mönnum tiltal i sendibréfsformi.
Þá taldi hann að hlutverk fulltrú-
ans væri samsvarandi starfi um-
boðsmanns þjóðþinga á Norður-
löndum og viðar.
1 gær skrifar svo Steingrimur
Gautur Kristjánsson héraðsdóm-
ari grein i eitt dagblaðanna og
telur þessi ummæli fallin til að
gefa ranga mynd af verkaskipt-
ingu dómstóla og stjórnvalda hér
á landi og feli i sér villandi upp-
lýsingar um hlutverk umboðs-
manna þjóðþinga. I samtalinu við
Má Pétursson i gær lýsti hann sig
hjartanlega sammála grein
Steingrims.
Samkvæmt stjórnarskránni
fara dómstólar með einn af þrem-
ur höfuðþáttum rikisvaldsins og
eru sjálfstæðir þannig að enginn
getur sagt dómara fyrir verkum i
meðferð máls. Undirmaður
dómsmálaráðherra getur þvi
ekki agað dómstóla landsins.
I grein Steingrims kemur fram
að munurinn á störfum umboðs-
fulltrúans, sem i raun er ekki
annað en stjórnarráðsfulltrúi, og
umboðsmanna þjóðþinga á
Norðurlöndum geti vart orðið
meiri. Sá fyrrnefndi heyrir alfar-
ið undir pólitiskan ráðherra
þ.e.a.s. framkvæmdavaldið. Um-
boðsmenn þjóðþinga eru hins
vegar settir til að hafa hemil á
framkvæmdavaldinu og taka við
kærum borgaranna út af misbeit-
ingu þess — en ekki dómstóla.
GFr.
Sildarverksmiðja rikisins
1 stjórn Sildarverksmiðju
rikisins voru kosnir eftirtaldir
sem aðalmenn: Þorsteinn
Gislason skipstjóri, Einar
Ingvarsson bankafulltrúi, Jón
Kjartansson, Sigurður
Hlöðversson og Hallsteinn Frið-
þjófsson.
Sildarútvegsnefnd
1 Sildarútvegsnefnd voru kosnir
eftirtaldir aðalmenn:
Guðmundur Karlsson alþingism.,
Kristmann Jónsson og Birgir
Finnsson fyrrv. alþingsim. Vara-
menn þeirra voru kosnir Unn-
steinn Guðmundsson skrifstofu-
stjóri, Þorleifur Björgvinsson og
Haukur Þorvarðsson netagerðar-
maður.
Menntamálaráðuneytið um skólakostnaðinn:
Greiöslustaöan er nú síst
lakari en undanfarin ár
í frétt, sem menntamála-
ráðuneytið sendi frá sér i gær
vegna yfirlýsinga i fjölmiðlum
um reikningsskil rikissjóðs vegna
Skaftár-
hlaup þegar
í rénun
Skaftárhlaup sem hófst
aðfaranótt miðvikudagsins
virðist i rénun nú þegar, enda
talið ósennilegt að það yrði mikið,
þar sem óvenju stutt er frá
siðasta hlaupi, sem var i
september.
Megna fýlu leggur nú af ánni og
hún er sementslituð.
rekstrarkostnaðar skóla, segir
m.a. að eðli málsins samkvæmt
hljóti rikissjóður oftast að vera i
nokkurri skuld við sveitarfélög,
þótt þær skuldir séu ekki i öllum
tilfellum gjaldfallnar.
A s.l. ári fóru greiðslur rikis-
sjóðs vegna rekstrar grunnskóla
um 630 milj. króna fram úr verð-
bættum fjárveitingum fjárlaga,
segir i frétt ráðuneytisins. Hins
vegar sé greiðslustaða fræðslu-
umdæma mjög misjöfn, eða frá
þvi að vera innan fjárlaga til þess
að fara tæpar 250 miljónir fram
úr verðbættum framlögum.
Ráðuneytið segir að reikningar
sem bárust fyrir 20. nóvember
hafi verið afgreiddir um
mánaðamótin nóvember/
desember, en reikningar sem
bárust eftir þann tima og fram i
miðjan desember hafi verið
afgreiddir til greiðslu um áramót.
Að lokum segir i frétt mennta-
málaráðuneytisins, að með þessu
hafi verið reynt að jafna greiðslu-
streymi milli rikissjóðs og
sveitarfélaga án þess að auka
skuldir rikissjóðs við sveitarfélög
þegar á heildina er litið, jafnhliða
þvi sem reynt hafi verið að
tryggja að ekki yrði farið fram úr
heildarfjárveitingum til mennta-
mála.
Við hvort tveggja hafi verið
staðið. „Greiðslustaða rikissjóðs
gagnvart sveitarfélögum vegna
rekstrar grunnskóla er sist lakari
um þessi áramót en verið hefur
undanfarin ár. Frávik frá verð-
bættri heildarf járveitingu
ráðuneytisins eru innan við 1%.”
Björn staöfestir frétt Þjóöviljans
Mcð yfirlýsingu sinni til
fjármálaráðhcrra staðfestir
Björn Friðfinnson allt sem kom
fram i frétt Þjóðviljans i gær.
Samtalið var tekið upp á segul-
band og hið eina sem á milli ber i
yfirlýsingu Björns og þvi sem
haft er eftir honum er að hann
sagði, að mismunur vegna
lækkaðs framlags Jöfnunarsjóðs
væri 180 miljónir, en ekki allt að
180 miljónir, eins og Björn heldur
fram í yfirlýsingu sinni.
Orðrétt sagði Björn
Friðfinnsson um reikninga
sjúkrastofnana:„...i þriðja lagi
hefur Tryggingastofnunin vegna
fjárskorts ekki getað sýnt okkur
sömu fyrirgreiðslu um áramót
eins og undanfarin ár. Við þurfum
að leggja út vegna þeirra (þ.e.
sjúkrahúsa) núna i desember-
mánuði um einn miljarð, sem við
eigum svo að fá greitt i janúar.”
Fyrirsögn fréttarinnar og
„hugleiðingar um fallega
reikninga Reykjavikurborgar”
eru að sjálfsögðu blaðsins og ekki
á ábyrgð Björns Friðfinnssonar á
nokkurn hátt. -eös
Auglýsing
um próf
dómtúlka.
fyrir skjalaþýðendur og
Þeir, sem öðlast vilja réttindi sem
skjalaþýðendur og dómtúlkar, eiga þess
kost að gangast undir próf, er haldin verða
i febrúar n.k.,
Umsóknir skal senda dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu fyrir janúarlok á
sérstökum eyðublöðum, sem þar fást.
Próftökum verður veittur kostur á leið-
beiningum um frágang skjala og
þýðingartækni á nokkurra tima námskeiði
fyrir próf.
Við innritun i próf greiði próftaki gjald,
er nemur helmingi gjalds fyrir löggildingu
til að vera dómtúlkur og skjalaþýðandi.
Gjaldið, sem nú er kr. 12.720, er óaftur-
kræft, þó að próftaki komi ekki til prófs
eða standist það ekki.
Dóms og kirkjumálaráðuneytið, 8. janúar
1980.
TILKYNNING
um eftirgjöf aðflutningsgjalda
af bifreiðum til öryrkja
Ráðuneytið áréttar hér með, að frestur til að sækja um
eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreiðtil öryrkja skv. 27. tl.
3. gr. tollskrárlaga rennur út 1. febrúar 1980 og skulu því
umsóknir ásamt venjulegum fylgigögnum hafa borist
skrifstofu öryrkjabandalags lslands fyrir þann tima.
Fjármálaráðuneytið, lO.janúar 1980.