Þjóðviljinn - 11.02.1982, Page 4
4 SíÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 11. febrúar 1982
UÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
Hreyfingar og þjódfrelsis
(Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóftviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Álfheiður Ingadóttir.
'Umsjónarmaður sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Magnús H. Gislason, Óskar
Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson.
tþrótta- og skákfréttamaöur: Helgi Ólafsson.
tJtlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Kagnars, Sigriður Hanna Sigurbjörns-
dóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guovarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
lnnheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Sfðumúla 6,
Reykjavik, simi 81333
Prentun: Blaðaprent hf.
Sósíaldemókratar
og svarthöfðar
• Það er aumlegt yfirklór Alþýðublaðsritstjórans í
blaði hans í gær. Þar þykist hann ekki hafa átt við al-
mannatryggingar eða atvinnuleysisbætur þegar hann
flutti reiðilestur sinn á laugardaginn var þar sem
hann bannfærði „bræðraflokkana" á öðrum Norður-
löndum og stimplaði félagsmálastefnu þeirra sem
sérstakt,,víti til varnaðar". En hvað átti maðurinn þá
við? Vill hann ekki tala skýrar? — Ritstjóri Alþýðu-
blaðsins tók í reiðilestri sinum dæmi af danskri konu
sem hætti að vinna úti, en ríkið borgaði þá bara fyrir
hana húsaleiguna, rafmagnið o.fl. Þetta telur rit-
stjóri Alþýðublaðsins hneyksli og sérstakt víti til
varnaðar. En skyldi þessa danska kona nokkuð eiga
kost á vinnu. Það eru 300.000 atvinnuleysingjar í Dan-
mörku og hún er atvinnulaus. Það er bull, þegar menn
þykjast vera fylgjandi atvinnuleysisbótum, en
hneykslast á því að atvinnulausu fólki sé tryggt hús-
næði og rafmagn. Ritstjóri Alþýðublaðsins talar
áfram með fyrirlitningu um hið danska „ríkisforsjár-
kerfi", en segir það ekki koma almannatryggingum
né atvinnuleysisbótum við. Ojæja, svona geta aðeins
fyrrverandi sósíaldemókratar orðið ruglaðir, þegar
þeir hafa breyst í svarthöfða.
• I yfirklóri sínu í gær fer ritstjóri Alþýðublaðsins
að tala um dýrt heilbrigðiskerf i. Jú ugglaust má f inna
dæmi um það, bæði í Danmörku,Svíþjóðog á (slandi að
byggð hafi verið of dýr sjúkrahús. Munurinn á þjóð-
félagsgerð Norðurlanda og Bandaríkjanna kemur
hins vegar óvíða skýrar fram en þegar spurt er um
félagslegt öryggi, þar á meðal heilsugæsluna. Á
Norðurlöndum er ekki spurt, hvort þú getir borgað
læknishjálpina, þurfir þú á henni að halda. ( Paradís
einkaframtaksins leggst hins vegar enginn á sjúkra-
hús, nema hann hafi fullar hendur f jár. Atvinnuleys-
ingjarnir deyja þar drottni sínum.
• Er það máske þessi „ríkisforsjá" sem ritstjóri Al-
þýðublaðsins á við, þegar hann stimplar félagsmála-
stefnu sósíaldemókrata á öðrum Norðurlöndum sem
sérstakt víti til varnaðar.
• Það er rakalaus heilaspunL þegar ritstjóri Al-
þýðublaðsins hefur uppi þær ásakanir gegn Alþýðu-
bandalaginu og norrænum sósíaldemókrötum, að
þessir flokkar haldi sig geta tryggt félagslegt öryggi
með atvinnulíf ið í rúst. Engum hefur dottið sá mögu-
leiki í hug. Það eru hins vegar ekki nema villtustu
hægri menn, sem taka undir með ritstjóra Alþýðu-
blaðsins um f jandskap norrænna sósíaldemókrata við
atvinnulífið í löndum sínum.
• En meðal annarra orða — hvernig skildi Alþýðu-
flokkurinn við höf uðatvinnuveg Islendinga, sjávarút-
veginn, eftir 12 ára „viðreisnarstjórn", þar sem
flokkurinn átti sjávarútvegsráðherrann? Muna menn
hvað íslendingar áttu marga nothæfa togara þegar
flokkurinn hrökklaðist loks úr stjórnarsænginni hjá
íhaldinu? — Skyldu þeir hafa verið 5 eða 10? Sú stór-
fellda uppbygging sjávarútvegsins, sem hófst árið
1971, þegar Alþýðubandalagið fór í stjórn og Lúðvík
Jósepsson varð sjávarútvegsráðherra hefur hins veg-
ar valdið byltingarkenndri breytingu í atvinnulífinu
um allt land, og tryggt okkur þau um margt góðu lífs-
kjör sem við nú búum við, þar á meðal allgott heil-
brigðis- og tryggingakerfi.
• Við óskum ritstjóra Alþýðublaðsins til hamingju
með þær undirtektir sem hann fær hjá Svarthöfða
Vísis í gær við bannfæringu sinni yfir norrænum
sósíaldemókrötum. Aldrei fengu þeir Olaf ur Friðriks-
son eða Finnbogi Rútur Valdimarsson slíka viður-
kenningu úr þeirri átt. — Svarthöfði segir:
• „Jón Baldvin Hannibalsson skrifaði leiðara þar
sem hann varaði við því að íslendingar færu sömu leið
til fátæktar ogsósíalismaog farin hefur verið á hinum
Norðurlöndunum... Auðvitað blasir við sá efnahags-
legi ófarnaður, sem óheftur og útþaninn sósíalismi
hef ur haft i för með sér í ríkjum verkamannaf lokka á
Norðurlöndum".
• Það er munur að eiga vísa bandamenn á réttum
stöðum. En við spyrjum: Sé alþýðan fátæk á Norður-
löndum, hvar má hún þá kallast rík? —k
BIAÐHE)
1. tbl. 1. árg. 31. janúar 1982
Fjárhi agsáætlun Selfoss 1
&
Er ILip.f. Selfoss skæruli
•TVT t/nn'T' r» w í
Bœjarblaðið
Alþýöubandalagiö á Sel-
fossi hefur hafiö útgáfu nýs
blaös undir heitinu Bæjar-
blaöiö, og er þvi ætlaö aö
fjalla fyrst og fremst um
málefni sem tengjast Sel-
fossi og Selfyssingum. Blaöið
á aö koma út mánaöarlega
fyrst um sinn og er þaö borið
i hvert hús i bænum.
Skæruliða-
hópur?
Er Ungmennafélagiö
Selfoss skæruliöahóöur?
spyr Bæjarblaöiö á forsiöu.
Siöan segir aö i þeirri um-
ræöu sem oröiö hafi vegna
þrettándagleöi Umf. Selfoss
og eftirköst hennar veki þaö
furöu aö blandaö sé saman
dansskemmtun unglinga
13—16 ára annars vegar og
ábyrgðarlausu framferöi
hálffulloröinna manna hins
vegar. Þessu tvennu sé hrært
saman svo furöu gegni. Mörg
orö hafi veriö látin fjúka sem
betur hafi veriö látin ósögö.
Jafnvel hafi mátt skilja á
• blöðum, haft eftir lögregl-
unni, að notaöar hafi verið
bombur rétt eins og skæru-
liöar ÍRA nota i sinni bar-
áttu. „Er nema furða aö al-
menning reki I rogastans og
krefjist rannsóknar, og aö
Umf. Selfoss sé hreinsaö af
slikum áburði og umsvifum i
sinu uppbyggilega starfi.”
Sjötug
skrípalæti
En ekkert er nýtt undir
sólinni og ekki heldur nýtt aö
þrettándinn sé daga
grályndastur. t afmælisriti
Umf Selfoss 1976 er einmitt
grein frá uppþoti á þrett-
ándanum I912,hefur Bæjar-
blaðiö þaö eftir:
„Álfabrenna var haldin á
túni Kristjáns I Sigtúnum.
Eitt sinn ætluöu einhverjir
aö gera sprell i þetta allt
saman, grimuklæddir sem
álfastrákar. Stefáni i
Stokksey rarseli var um
kennt, hann var amk. einn
þeirra. Þeir voru meö
skrfpalæti og vildu gera alit
vitlaust og hentust svo út i
buskann. Svo var dansaö á
eftir fram til morguns.”
Ct af þessu uröu mikil
skrif I Suöurlandi. Og hver
segir svo aö unglingar fari
versnandi. Ætli þeir séu ekki
frekar samir viö sig. En
Bæjarblaöiö leggur til aö
næst verði látiö dansa fram
til morguns á þrettándanum.
klippt
íhaldslinkan
Talsverðar umræöur uröu um
ástandiö undir herforingja-
stjórn i Tyrklandi á Alþingi i
fyrradag i tilefni fyrirspurnar
Vilmundar Gylfasonar hvort
rikisstjórnin heföi mótmælt ein-
ræðisstjórninni á vettvangi
NATO. ólafur Jóhannesson
kvað NATO ekki vera vettvang
til mótmæla af þessu tagi, þvi
þaö væri eingöngu til varnar ut-
anaökomandi hættu, en ekki
innanaðkomandi. Hinsvegar
væru ýmis riki aö velta þvi fyrir
sér hvort kæra ætti Tyrkland
fyrir mannréttindanefnd Evr-
ópu. thaldsmenn voru heldur
kindarlegir i þessari umræöu og
vildu ekki stugga viö Tyrkjum,
heldur reyna aö hafa góölátleg
áhrif á þá með fortölum i stofn-
unum eins og Evrópuráöinu og'
NATÓ. Morgunblaðinu segist
þannig frá aö „viss ágreiningur
sé sagður uppi i Evrópuráði um
þaö, hvort lýöræöisþjóðir Evr-
ópu hefðu meiri áhrif á jákvæða
þróun til lýöræöis i Tyrklandi
með aöild þeirra aö ráðinu —
eða hvort visa ætti þvi úr sam-
tökunum, ef fram héldi sem
horföi.”
Tyrklandsmálið
Hér er fariö vægt i sakirnar.
Þrir islenskir þingmenn voru á
þingi Evrópuráösins i Stras-
bourg i lok janúar, og þaö ætti
ekki aö fara á milli mála hvaö
þar geröist. Evrópuráöiö er
samstarfsstofnun þjóöþinga 21
Evrópurikis, og eru þar fulltrú-
ar allra helstu stjórnmálaafla
álfunnar samankomnir. Þingið
gerir ýmsar almennar ályktan-
ir, þar sem meirihlutavilji kem-
ur fram, og beinir þess utan til-
mælum til rikisstjórna og ráö-
herranefnda á vegum ráösins
um sérstakar aögeröir. Þá
starfar á vegum ráösins mann-
réttindanefnd og mannréttinda-
dómstóll. Hver þingmaður hef-
ur eitt atkvæði á þingi Evrópu-
ráðsins og ekki hefur komiö
fram hvernig þeir Ingólfur
Guðnason, Framsóknarflokki,
og Pétur Sigurösson, Sjálfstæö-
isflokki, vöröu atkvæöi sinu á
þingfundi um Tyrklandsmáliö,
en Ólafur Ragnar Grimsson, Al-
þýöubandalagi, átti hlut aö þvi
meirihlutasamkomulagi, sem
samþykkt var meö atkvæðum
vinstri afla og frjálslyndra gegn
atkvæöum ihaldssinna, 68 at-
kvæöum gegn 41.
Norrænt
frumkvœði
MHKIíWM )!f í í (};) |f
HHHHIÍIHIIIII '
ÍmillílWII 1 H
ipililliniH H H H
BlHHtMftfiPH IIH
nw '
I stjórnmálahreyfingar geti
|starfaö óhindrað, aö mannrétt-
indi séu virt, og menn ekki fang-
elsaöir án dóms og laga. Ekki
má heldur gelyma, aö þegar
herforingjastjórnin var viðlýði i
Grikklandi var þvi vikið úr ráð-
inu.
Ýmsir fulltrúar á þingi Evr-
ópuráðsins, svo sem frá Spáni,
Portúgal og Grikklandi, vildu
vikja Tyrkjum úr Evrópuráö-
inu, en til þess aö skapa styrkari
meirihluta höfða Noröurlanda-
kratar forgöngu um aö sú leið
væri farin að hvetja rikisstjórn-
ir aöildarlandanna til þess aö
kæra herforingjastjórnina i
Tyrklandi fyrir Mannréttinda-
dómstóli Evrópu. Þar er henni
skylt aö standa fyrir máli sinu
og kjósi hún að gera það ekki,
sem telja má næsta vist, veröur
hún að segja sig úr Evrópuráö-
inu. Samþykkt þingsins i þessa
veru hefur þegar haft þau áhrif
að hafin er undirbúningur aö
þvi, aö frumkvæöi danska utan-
rikisráðuneytisins, aö rikis-
stjórnir Norðurlanda og ann-
arra lýöræðisrikja kæri Tyrk-
land formlega vegna brots á
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Formaöur utanrikismálanefnd-
ar danskra sósialdemókrata
Lasse Budts hefur verið sér-
stakur forgöngumaður i þessu
máli. Danski sendiherrann mun
hafa komið boöi um þátttöku ís-
lendinga i undirbúningsfundi
um þetta mál sem haldinn var i
Kaupmannahöfn fyrir helgi til
islenska utanrikisráöuneytisins.
Þar voru ekki talin tök á aö
senda fulltrúa en beðiö um aö
gögn yröu send til íslands.
Afstaða Islands
íslenska rikisstjórnin mun þvi
senn standa frammi fyrir þvi
hvort hún hefur samstööu meö
rikisstjórnum annarsstaöar á
Norðurlöndum um kæru á hend-
ur Tyrkjum. Mikilvægur próf-
steinn á þá afstööu veröur niö-
urstaöan á Alþingi, en eins og
fram kom i umræöum hefur
fulltrúi Alþýöubandalagsins
lagt fram tillögu i utanrikis-
málanefnd um aö nefndin standi
sameiginlega aö ályktun sem
hún leggi fyrir Alþingi og þar
sem tekið veröi undir haröa for-
dæmingu þings Evrópuráðsins á
herforingjaeinræöinu i Tyrk-
landi. Fram hefur komiö á þingi
aö Alþýöuflokkurinn er reiöubú-
inn aö standa aö samþykkt
þessarar tillögu. Þetta kom
m.a. fram i máli Benedikts
Gröndals, fulltrúa Alþýöu-
flokksins i utanrikismálanefnd,
og Vilmundur Gylfason lagöi
áherslu á nauösyn þess aö Is-
lendingar lýstu yfir skýlausri
afstööu sinni og andstöðu viö
ástandið i Tyrklandi, og þeir
Lasse Budtz danskur þingmaöur og formaöur utanrikismáianefnd-
ar sósíaldemókrata talar á þingi Evrópuráösins.
Til þess aö átta sig á aödrag-
anda málsins er nauösynlegt aö
hafa i huga aö þegar herfor-
ingjastjórnir ríktu á Spáni og i
Portúgal voru þessi riki ekki að-
ilar aö Evrópuráöinu, enda er
þaö frumforsenda fyrir þátttöku
I þessum samstarfsvettvangi
lýöræöisrikja, aö opin og frjáls
stjórnmálastarfsemi sé I aöild-
arlöndunum, aö flokkar og
ættu enga samleið meö hinni
furöulegu, ósæmilegu og tviátta
afstööu Bandarikjastjórnar i
þessu máli.
Tyrklandstillaga Olafs Ragn-
ars Grimssonar veröur tekin
fyrir á fundi utanrikismála-
nefndar næstkomandi mánudag
og veröur fróölegt aö fylgjast
meö afdrifum hennar.
— ekh
og skorið