Þjóðviljinn - 11.05.1982, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. mai 1982
WOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Þórunn Siguröardóttir.
L'msjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson.
Blaöamenn: Auöur StyrkársdóUir, Helgi Ólafsson
Magnús H. Gislason, Ólaíur Gislason, óskar Guðmundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlööversson.
iþróttalréttaritari: Viðir Sigurösson.
t'tlii og hönnun: Andrea Jónsdóttir-Guöjón Svéinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Kagnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: GuörUn Guövarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: SigrUn Báröardóttir.
lnnheimtumenn:Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar
SigUrmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir Karen
Jónsdóttir.
Útkeyrsla. afgreiðsla og auglýsingar:
Keykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Siöumúla 6,
Davíö, Albert og Fjelsted ;
• Spaugilegt var að sjá og heyra helstu fulltrúa
glundroðans í Sjálfstæðisf lokknum þá Davíð Oddsson
og Albert Guðmundsson koma fram í gervi sátta og
samlyndis í sjónvarpsþætti á sunnudaginn var, þótt
allir viti að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins hefur á síðasta kjörtimabili klofnað mun oftar í
afstöðu til mála heldur en meirihlutaf ulltrúarnir, sem
þótilheyra þremur f lokkum.
• Segja má að vesalings Albert hafi í sjónvarpinu
komið fram i hlutverki hertekins stríðsfanga, sem
knúinn hefur verið til þess að játa nýjum herrum,
þeim Davið Öddssyni og Geir Hallgrímssyni, hollustu
sína. Það var aumt hlutskipi, enda hefði eins verið
hægt að koma með páfagauk og láta hann tyggja hið
nýja vísdómsorð borgarstjórnaríhaldsins: „Sigur er
okkar kjörorð"!!!
• Davíð Oddsson, hið sjálfumglaða borgarstjóra-
efni Vinnuveitendasambandsins og Verslunarráðsins
með þess 2000 heildsölum, flutti þann boðskap að nú
væri Alþýðubandalagið búið að hirða 30% af þeim
launum, sem samið var um í kjarasamningunum 1977.
• Samviskan er greinilega lipur hjá borgarstjóra-
efninu, og ekki talin ástæða til að láta staðreyndirnar
trufla sig við áróðurssamsuðuna.
• Staðreyndirnar eru þær, aðsamkvæmt opinberum
upplýsingum Kjararannsóknarnefndar Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitendasambandsins, þá tókst með
kjarasamningunum í júní 1977 að tryggja á síðari
helmingi þess árs 15-20% betri kaupmátt taxtakaups
verkamanna, heldur en ríkisstjórn Geirs Hallgríms-
sonar haf ði skammtað næstu tvö ár á undan. Þar með
var launastefna Sjálfstæðisflokksins og Vinnuveit-
endasambandsins brotin á bak aftur af verkalýðs-
hreyfingunni með stuðningi Alþýðubandalagsins.
• En er þá kaupmáttur launa verkamanna 30%
lakari nú en hann var fyrsta hálfa árið eftir kjara-
samningana 1977 eins og Davíð Oddsson fullyrðir?
• Samkvæmt opinberum tölum Kjararannsóknar-
nefndar, þá var kaupmáttur taxtakaups verkamanna
2-3% lakari síðustu þrjá mánuðina, sem upplýsingar
liggja fyrir um (nóv. — jan s.l.), heldur en þessi sami
kaupmáttur var fyrsta hálfa árið eftir kjarasamn-
ingana 1977. Sé hins vegar spurt um greitt dagvinnu-
tímakaup verkamanns með yfirborgunum þá er lækk-
unin alls engin. Aðalatriði þessa máls er þó það að nú
stendur verkafólk frammi fyrir harðsnúnum kröfum
Vinnuveitendasambandsins um 20-30% skerðingu
kaupmáttar almennra launa. Vinnuveitendasam-
bandið telur sér til tekna hvert einasta atkvæði, sem
Davíð Oddssyni verður greitt i borgarstjórnarkosn-
ingunum, og það með réttu. Alþýðubandalagið stendur
hins vegar nú sem fyrr við hlið verkalýðshreyfingar-
innar og styður kröfur hennar um kjarabætur til lág-
launafólks.
• Hver sá sem greiðir Sjálfstæðisflokknum og
Davíð Oddssyni atkvæði sitt i komandi kosningum er
þar meðað fela Vinnuveitendasambandinu umboð sitt
i launamálum.
• En það voru fleiri fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
sem komu fram í sjónvarpinu á sunnudag heldur en
Albert og Davíð. Ekki má gleyma henni Fjeldsted,
lækninum í ellefta sætinu
• Það var skrítinn boðskapur. Blessuð manneskjan
hafði það helst til málanna að leggja að nú væri kom-
inn tími til að láta foreldra sem börn eiga á dagheim-
ilum borga miklu meira sjálf fyrir umönnun barn-
anna. Borgarsamfélagið ætti ekki að vera að kosta
þetta, nema þá að litlu leyti, — og svo mætti láta ein-
staklinga reka heilsugæslustöðvarnar! Við höfum
lengi vitað að ýmsir dyggir Sjálfstæðismenn eru
miklir aðdáendur hins ameríska einkareksturs á
heilsugæslunni, þar sem enginn kemst á sjúkrahús
hvað sem við liggur nema fyrir stórfé!
• En skyldi vera ástæða til að ef la slík sjónarmið til
vegs í borgarstjórn Reykjavíkur? Og hvað finnst
mönnum um þau viðhorf að láta þá sem njóta borga
alla féiagslega þjónustu svo sem dagheimili og þá
máske skóla á kostnaðarverði í því skyni að létta
sköttum af hátekjufólki, stóreignamönnum og fyrir-
tækjum? —k.
Helgarfyllerí
! Moggans
„Þingmenn Alþýöubanda-
lagsins I hávaöarifrildi sin á
milli i Alþingishúsinu ”,
„Upplausn og rifrildi i Al-
þýöubandalaginu”. Þetta
voru fyrirsagnir Morgun-
blaösins nú um helgina, sú
fyrri á „frétt”, en siöari á
leiöara.
• .
j Vandlifaö ]
Þaö er vandlifaö fyrir Al-
þýöubandalagiö á siöum
Morgunblaösins. Ar og siö er
hamraö á þvi aö Alþýöu-
bandalagiö sé lokaður
einræöisflokkur þarsem heill
flokkur tali sem einn maður
einni röddu. Svo er fjarg-
viörast útaf oröaskiptum
þingmanna flokksins og
skoöanaskiptum þeirra af-
siöis i Alþingishúsinu.
Hálfrar aldar áróöur I Mogg-
anum þurrkaöist út á einu
bretti. Menn skiptust á skoð-
unum i Alþýöubandalaginu.
Hitt er svo umhugsunarefni,
hvort Morgunblaöið ætli aö
lepja upp slúöursögur og
skoöanaskipti pólitiskra *
andstæöinga sinna yfir kaffi-
bolla og semja fréttir og rit-
stjórnargreinar úr þeim
efnivið.
Veröi þeim á Mogganum
aö góöu. Þetta fellur eins og
flis viö rass, sagöi einn
hneykslaöur þingmaöur
þegar hann leit á Moggann
sinn.
I
Algjör
j eindrœgni
Vissulega er blæbrigöa-
munur á skoöunum Alþýöu-
bandalagsm anna til
stóriöjumála sem annarra
stórmála sem eru til umræöu
hverju sinni. Hvað annaö?
En eindrægni flokksins er
algjör þegar Sjálfstæöis-
flokkurinn og allt þaö sem
hann stendur fyrir er annars
vegar (útlend stóriöja,
skefjalaust arörán, auö-
hrigapólitik, andfélagsleg
viöhorf, Vinnuveitendasam-
bandspólitikin og m. f. h). Þá
stendur Alþýöubandalagiö
sem einn maöur og talar
einni röddu: niöur meö
ihaldiö, lifi sósialisminn.
klippt
Svartnœtti
Sjálfstœðis-
flokksins
Hverjum þykir sinn fugl
fagur, og þannig fór klippara
þegar hann horföi á framboðs-
fund i sjónvarpssal á sunnudag-
inn aö honum þdtti G-listafólkiö
frambærilegastog jafnbest. Og
Adda Bára átti besta frasann,
þegar hún botnaöi upphafiö á
áróðursbæklinginum svarta frá
ungum ihaldsdrengjum „Þegar
ævintýrinu lýkur...” meö „þá
tekur svartnættiö viö”. Svart-
nætti Sjálfstæöisflokksins.
Annars veröur aö segja um
þessar sjónvarpsumræöur að
heldur voru þær bragödaufar og
litlausar I heildina tekið. Og
hvar voru hinir sókndjörfu
Sjálfstæöismenn? Einhvern-
veginn nálS sóknin ekki inn 1
sjónvarpssalinn, og minnti
fremur á óskipulagöa fyrirsát
heidur en framrás óvigs hers.
Enda fer þaö þeim Sjálfstæðis-
mönnum alltaf jafnilla þegar
þeir eru að belgja sig út af of
lágu kaupi og smávöxnum
félagslegum framkvæmdum.
Þeim lætur betur að tala um
skattalækkanir og rentur af
flokksins um þessar mundir, Jó-
steinn Kristjánsson, gekk svo
langt að staöhæfa að Framsókn
myndi ekki ganga til meiri-
hlutasamstarfs um stjórn
borgarinnar nema að gengiö
yrði að þessum kröfum. Fyrr
má nú vera stefnufestan, enda
var Kristján Ben. sveigjanlegri
og ekki fæddur i gær.
Hvöss augu í
sjónvarpssal
En sé mark takandi á Jósteini
veröur ekkert af pólitiskum ból-
förum Framsóknar og krata i
borgarstjórn á næstunni, þvi
Guðriður Þorsteinsdóttir kvað
félagsleg verkefni svo mörg og
brýn að engin efni væru til þess
aö lækka skattana. Hinsvegar
sagöi Bjarni P. Magnússon að
kratar væru meö opiö i allar
samstarfsáttir, en myndu lfk-
lega byrja á þvi að bjóöa
kvennaframboöi höndina að
loknum kosningum. Hvöss voru
þá sögö augu Sjaínar i sjón-
varpssal. Annars voru kratar
með kommardcur nokkrar og
vildu láta fólk hefna þess sem
hallast hefur aö þeirra mati i
rikisstjóm með þvi aö kjósa
krata i stað komma i borgar-
stjórn. Æ, æ sjaldan launar
Sigurjón
Adda Bára Alfheiöur Siguröur
Guöriin
kapitaii. Eitthvaö viröist svo
stefnan hjá þeim hafa lent i úti-
deyfu, enda minnti Sigrún
Magnúsdóttir kaupkona á það,
aö enn heföi ekki sést tangur né
tötur af stefnuskrá Sjálfstæöis-
flokksins i borgarmálum. En
gotter fyrir ihaldiö aö eiga eins
föðurlegan frambjóðanda og
Markús öm til þess aö tala I
tima heilsugæslulæknisins. Og
svona borgarstjöraefni sem
náði hug og hjarta áhorfenda
þegar aörir frambjóöendur
flokksins voru búnir aö tala upp
allan heildartima ihaldsins i
þættinum. Frjáls samkeppni
getur komiö niöur á þeim sem
sist skyldi.
Fátt eitt sagði
Framsókn
Framsóknarflokkurinn var á
hinn bóginn hvorki stefnulaus
né tætingslegur. Frambjóö-
endur hans sögöu fátt, en allir
nákvæmlega þaö sama. Nú
vitum viö öll aö Framsókn ætlar
að lækka fasteignaskatta, aö-
stööugjald af iönaöi, hafa Egil
Skúla áfram, og selja rikinu
Borgarspftalann (vill þaö
kaupa?),
Þessi staglstill mun ásamt
samræmdum ávarpsoröum og
framkomu vera hannaöur á
ákveöinni auglýsingastofu i
Reykjavik. thaldiö er lika meö
sjónvarpsskóla og þar er kennt
aö ekki skipti máli hvaö sagt er I
sjónvarpi.heldur hvernig. Gall-
inn er barasá aö frambjóöendur
Sjálfstæöisflokksins veröa
gjarnan i framan eins og skóla-
krakkar sem leggja sig i lima
viö aö þóknast kennaranum
þannig aö úr veröur tilgerö.
Framsóknarmenn eru aö bera
sig við að fiska i atkvæðasjó
Sjálfstæöisflokksins á skatta-
lækkunarmiðum.Skærasta póli-
tiska stjarna Framsóknar-
kálfurinn ofeldiö, eöa var þaö
ekki svo aö þaö var fyrir þrá-
beiöni Alþýöuflokksins voriö
1979 að samþykkt voru svoköll-
uö ólafslög, sem krukka i visi-
tölu eftir þvi hvernig búnast?
Þetta gerði Alþýöubandalagiö
til samkomulags viö krata
vegna þess að þaö vildi vera
með þeim áfram i rikisstjórn.
Og nú á Alþýöubandalagiö aö
éta krataskitinn og þakka fýrir
sig. Laun heimsins eru van-
þakklæti. Og sjálfur Bragi
Jósepsson sem mært hefur Al-
þýöubandalagiö i blaöagrein
fyrir aö hafa notaö sér styrk-
leik sinn i meirihlutasam-
starfinu af „hófsemi” upphófst
meö þessa lika kommaroku. Al-
þýöubandalagiö haföi stigiö
ofaná tána á honum I fræöslu-
ráöi, og var sannarlega kominn
timi til þess aö ljóstra upp þessu
leyndarmáli. En þaö er eins og
viö hafum ævinlega sagt i
þessum þætti, og munum koma
á framfæri viö fulltrúa okkar i
fræösluráöi, aö filar eiga aö fara
varlega I glervörubúö.
Kvenna-
4
framboðskonur
með i skráfunni
En ekki má gleyma konunum.
Siöast en ekki sist, eins og sagt
er. Þær voru i' meirihluta, 14 af
27 frambjóöendum, og kvenna-
framboöiö kastaöi veiöarfærum
sinum til hægri, Ef dæma má af
málflutningi Sjálfstæöis- og
Framsóknarmanna viröist þaö
vera aö fá hann á þeirra heima-
miðum. Meinalaust er þaö af
vorrihálfu,enþaö er ljóst af orö-
ræöum kvennaframboöskvenna
aö vinstrilinaner komin i skrúf-
una. Or þvi veröur vanalega
vond flækja.
— ekh
og skorrið