Þjóðviljinn - 23.02.1983, Síða 3
Miðvikudagur 23, fcbrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Fólksflutningar á síðasta ári:
Straumurinn líggur á
höfuðborgarsvæðið
Á síðasta ári urðu meiri
breytingar á fólksf lutningum
hér innanlands en á undan-
förnum árum auk þess sem
fleiri f luttust til Isndsins frá
útlöndum en f rá því á árinu
1982. Straumurinn innan-
lands liggurtil suð-vestur
hornsins, mestá höfuðborg-
arsvæðið (Reykjavík, Kópa-
vog, Hafnarfjörð, Garðabæ,
Seltjarnarnes og Mosfells-
sveit) frá öðrum byggðum
landsins, en aðfluttir voru
einnig nokkru fleiri en brott-
f luttir á Suðurnesjum, Kjal-
arnesi og Kjós.
Á tímabilinu 1. desember 1981
til 1. desember 1982 fluttust 7468 til
höfuðborgarsvæðisins, þar af 1584
frá útlöndum og 5884 annars staðar
að af landinu. Á sama tíma fluttu
burt 6234, þar af 1120 til útlanda.
Mismunurinn er 1234 eða um 1%
af íbúatölu svæðisins 1. des. 1981.
Straumurinn er sterkari en á árinu
1981, þegar mismunur aðfluttra og
brottfluttra var 779 höfuðborgar-
svæðinu í hag, en á árunum
1975—1980 tapaði höfuðborgar-
svæðið íbúum gagnvart lands-
byggðinni og útlöndum.
útlanda. Á sama tíma eru aðflutir á
Vestfjörðum 670, þar af 67 frá út-
löndum. Mismunurinn er 214
rnanns eða um 2% af íbúafjölda
Vestfjarða 1. desentber 1981.
Af einstökum stöðum á Vest-
fjörðum má nefna Suðureyri við
Súgandafjörð. Þaðan fluttu á árinu
1982 92 en aðeins 28 fluttu til
Suðureyrar. Mismunurinn er 64,
þar af 25 sent fluttu til útlanda,
mest erlent fiskvinnslufólk.
Suðurland -
Vestmannaeyjar
Suðurland í heild tapar 110
manns í fólksflutningum á árinu
1982. Ef litið er á Vestmannaeyjar
einar sér, kemur í ljós að þangað
fluttu 162 á rneðan 326 fluttust í
burtu. Mismunurinn eða tapið er
162 eða rúmlega 3% af íbúafjölda
1. des. 1981.
Norðurland
I Norðurlandi vestra má nefna
Siglufjörð. Þangað fluttu á síðasta
ári 60 manns, en 128 í burtu. Mis-
munurinn er 68 manns. Norður-
land vestra tapaði í heild 56 manns,
og Norðurland eystra 101. Þar voru
brottfluttir 1256 á árinu en aðfluttir
1155.
þaðan 840. Mismunurinn er66. Frá
Suðurnesjum. Kjalarnesi og Kjós
fluttu -987 manns en hins vegar
flutti 1031 þangað, þannig að þessi
landshluti „græddi" 44 á þessum
flutningum.
Ofangreindar upplýsingar eru
fengnár hjá Guðna Baldurssyni á
Hagstofu íslands og ntunu birtast í
nýjunt Hagtíðindum innan fárra
daga. — AI.
Helgarfargjöld kn 5.940
Söluskrifstofur okkar, umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar veita allar
upplýsingar um m.a. ferðatilhögun, hótel og bílaleigubíla.
*miðaö cr við gengi 10.2. '83
Þaðeru
fáar/Sborgir
erlendar^S^jafn
tengdar okkur og kærar
og Kaupmannahöfn.Þaðan var
okkur stjórnað, þar háðu fram-
sýnir menn frelsisbaráttu þjóðar
okkar, þangað sóttum við mennt-
un okkar og fyrirmyndir allra helst.
En Köben erennþá^ á sínum
stað^ við sundið og þangað
eigum við margt að sækja
enn sem fyrr.^
Kynntu þér Kaup-
mannahafnará- , ,<, g
ætlun ft
Flug-
leiða. J
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi
STJÓRNIN.
EIMSKIP
Aóalfundur
H.f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu mánudaginn 21. mars 1983,
kl. 14:00.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf samkvœmt 14. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
aukningu hlutafjár og innköllun eldri
hlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 14. mars.
Reykjavík, 15. febrúar 1983.
Vestfirðir-
Suðureyri
A árinu 1982 fluttu 884 frá Vest-
fjörðum, 807 tóku sér búsetu ann-
ars staðar á landinu en 77 fluttust til
Aðrir
iandshiutar
Austurland tapaði 82. Aðfluttir
voru 723 en brottfluttir 805. Til
Vesturlands fluttu 774, en brott
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu og fleiri
Stofna söngkór
Mánudagskvöldið 28. ícbrúar
n.k. verður haldinn fundur í Lista-
safni ASI að Grensásvegi 16, þar
sem kynnt vcrður hugmynd uni
stofnun söngkórs, þar sem gert er
ráð fyrir að þátttakendur verði
einkum félagsmcnn stéttarfélag-
anna í Reykjavík og nágrcnni.
Leiðrétting
Þau mistök voru í frétt Þjóð-
viljans í gær um úrslit í forvali
Alþýðubandalagsins á Vestur-
landi, að sagt var að Skúli Alex-
andersson alþm. hafi hlotið
170 atkvæði í fyrstu tvö sætin.
Það er rangt, hann hlaut 170
atkvæði í 1. sæti, en alls greiddu
242 Alþýðubandlagsmenn á
Vesturlandi atkvæði í for-
valinu.
Blaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökuin.
Um nokkurt skeið hefur verið
um það rætt á vegum Menningar-
og fræðslusambands alþýðu og
Nemendasambands Félagspiála-
skóla alþýðu að stofna blandaðan
kór, þar sem félagsmönnum stétt-
arfélaganna verði gefinn kostur á
að æfa og læra söng. Tónskóli Sig-
ursveins hefur sýnt þessu sérstakan
áhuga og leggur því lið í formi kór-
stjórnar, kennslu og fleira.
Gert er ráð fyrir að reglulegar
æfingar verði á mánudagskvöldum
í Listasafni ASÍ að Grensásvegi 16
og er þess vænst að sem flestir fé-
lagsmenn stéttarfélaganna og mak-
ar þeirra, sem áhuga hafa á því að
taka þátt í slíku söngstarfi, komi á
fundinn næstkomandi mánudags-
kvöld, en hann hefst kl. hálf níu.
Það skal tekið fram að ekki er
krafist ákveðinnar lágmarkskunn-
áttu í söng eða tónlist þegar starfið
hefst, þannig að allir þeir, sem
áhuga hafa og aðstæður leyfa geta
verið með.