Þjóðviljinn - 01.10.1983, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 01.10.1983, Blaðsíða 27
Helgin ll—2. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27 Fjölmennur og fjörugur fundur á Akranesi Ríkisstjórnin Húsfyllir var að Rein á Akranesi á fundi Alþýðubandalagsins í fyrrakvöld. Um 150 manns sóttu fundinn og ríkti mikill baráttuhug- ur. Fundurinn var hinn fyrsti um lýðræði og lífskjör sem haldnir verða í öllum kjördæmum landsins á næstunni. Framsögumenn á fundinum voru þeir Svavar Gests- son formaður Alþýðubandalagsins og Skúli Alexandersson alþingis- maður. Skúli fjallaði í framsögu sinni um þær áherslur.sem ríkisstjórnin hef- ur í stefnu sinni. Þar er; hagsmunaöflum Framsóknar og íhalds í þjónustu og yfirbyggingu samfélagsins hyglað á kostnað launafólks. Rakti hann með dæm- um hvernig sóað er í bönkum, verslunum, bensínstöðvum og álíka, meðan kjör launafólks eru skert svo, að ekki verður af þeim lifað. Þá fjallaði hann um tvískinn- ung Framsóknarflokksins í stóriðj- umálum. Flvernig Grundartanga- verksmiðjan hefði verið hafin til skýjanna fyrir kosningar, en lokun hennar boðuð að þeim loknum. Einnig fjallaði Skúli um rekstar- vanda útgerðarinnar og yfirlýsing- ar forsætisráðherra um framtíð hennar. Kvað Skúli þær raddir farnar að heyrast að framtíð togar- anna væri helst í því fólgin að liggja við bryggju og framleiða rafmagn með ljósavélum í samkeppni við Landsvirkjun. efnir til stríðs í inngangsræðu sinni ræddi Svav- ar Gestsson um þau sögulegu átök sem nú fara fam á íslenskum vinnu- markaði og eiga ekki sinn líka síð- an 1942. Sú svipting mannréttinda sem ríkisstjórnin hefði beitt ætti sér enga hliðstæðu í nágrannalöndun- um og fara yrði alla leið til Tyrk- lands til að finna bann við samning- um frjálsra manna. Ríkisstjórnin hefði efnt til stríðs við launafólkið í landinu. Hann bað menn sérstaklega að minnast loforða og yfirlýsinga frá Framsóknarflokknum fyrir síðustu kosningar og athuga hvort þar væri að finna eitthvað sem líktist því sem ríkisstjórnin er að fram- kvæma. Þarnæst rakti Svavar efna- hagsstefnu stjórnarinnar í ítarlegu máli og sýndi fram á að baráttan við verðbólguna á einungis að bitna á launafólki í landinu. Allir aðrir aðilar fá sitt, opinber þjón- usta er hækkuð eftir beiðnum, vöruverð gefið frjálst að mestu og þar fram eftir götunum. Jafnframt kvað Svavar það liggja ljóst fyrir, að samkvæmt stefnu ríkisstjórnarinnar væri ekki hægt að ná verðbólgunni niður án þess að launin hækkuðu enn meira, og spurði menn hvort þeir teldu sig. geta hert sultarólina ennmeir. Hann kvað það einnig ljóst að ef laun hækkuðu þá myndi verðbólg- an aukast, því ekkert hefði verið gert nema að lækka launin. Að loknum framsöguræðum voru frjálsar umræður og fyrir- spurnir. Stóðu þær lengi kvölds og voru mjög líflegar. I lokaorðum sínum hvatti Svavar Gestsson alla vinstri menn til að fylkja sér saman í órofa heild til að létta oki ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar af baki íslenskra launþega. eng/hól. Bæjarstjórnin í Garðabæ rausnarleg Hækkar kaupið Á sama tíma skrifar bœjarstjórinn greinaflokk um nauðsyn þess að halda niðri kaupi, segir Hilmar Ingólfsson bœjarfulltrúi - A sama tíma og b. ■jarstjórinn í Garðabæ er að skrifa greinar um nauðsyn þess að launum almenns launafólks sé haldið i iðri ákvað meirihluti hans hér í 'iænum að hækka laun bæjartæk úfræðings uppí tæplega 40 þúsund krónur úr 31.493 kr., sagði Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Garðabæ í viðtali við Þjóðviljann í gær. Þessari kauphækkun var komið á án þess að umbeðnar greinargerðir væru færðar til stuðnings í bæjarráði nú í fyrra- dag. - Þessi kauphækkun er fóðruð þannig að maðurinn fær greiddar 70 yfirvinnustundir á mánuði. Við vildum að sjálfsögðu létta þessu þrældómsoki af manninum og lögðum til að frekar yrði ráðinn nýr starfsmaður til að létta undir. En þau ráð voru höfð að engu. Okkur Garðbæingum finnst þetta mál gera málflutning bæjarstjóra í síð- degisblaðinu enn hlægilegri. Mað- urinn sem heldur því fram að ekk- ert sé til skiptanna fyrir venjulegt launafólk er sjálfur með margföld verkamannalaun og stendur fyrir því að kollegar hans í flokki og á bæjarkontórnum fái kauphækkun. Hvað er að marka svona menn? Bæjarstjórinn með enn hærri laun - Eitthvað hefur einnig skolast til í höfðinu á bæjarstjóranum hvað hann hefur sjálfur há laun. Hann er nefnilega með töluvert hærri laun en greint var frá í Þjóðviljanum í vikunni. Maðurinn fær 70 eftir- vinnustundir greiddar, en ekki fjörutíu. Það gerir að verkum, að bæjarstjórinn í Garðabæ hefur 8.400 krónur til viðbótar nefndri upphæð í Þjóðviljanum. Þannig hefur hann ekki undir 53 þúsund- um á mánuði með öllu reiknuðu. Svo leggur hann til í blaðagreinum að neyslukapphlaupið verði stöðv- að, verðbætur verði ekki greiddar á almenn laun, og telur að ekkert sé til skiptanna, sagði Hilmar Ingólfs- son bæjarfulltrúi að lokum. -óg Bæjarstjórinn í Garðabæ er ekki með 45 þúsund krónur á mánuði eins og hann upplýsti í viðtali við Þjóðviljann heldur með að minnsta kosti 53 þúsund krónur á mánuði þegar allt er talið. Ekkert til skipt- anna, segir hann í DV-greinum. Símnotendur: Fleiri vilja greiðslufrest Símnotendur hafa beðið meira um gjaldfrest en áður, sagði Krist- jana Á. Guðmundsdóttir, hjá Pósti og síma, við Þjóðviljann í gær. Gjaldfrestur er einungis veittur til skamms tíma og þá því fólki, sem hefur áður staðið vel í skilum. Kristjana sagði að ekki hefði verið meira um lokanir á síma að undanförnu en áður, en hins vegar væri greinilegt að þrengra væri um hjá fólki. Meira væri t.d.farið fram á gjaldfrest sem veittur væri í und- antekningartilvikum. Sérstaklega j reyndi stofnunin að taka tillit til greiðsluerfiðleika ellilífeyrisþega og öryrkja. Traustir viðskiptavinir og áreiðanlegir fengju stundum að halda síma sínum opnum til nokU- urra daga gegn því að greiða inná reikninga. -óg Hvimleitt fyrir fatlaða að vera uppá aðra komnir með allar sínar ferðir um skóiann. (Ljósm.: Magnús). Hjólastólalyftan í MH Nemendur mótmæltu í gær afhentu nemendur Menntaskólans í Hamrahlíð rekt- ornum mótmæli, vegna þess að enn er ekki komin hjólastólalyfta í skólann, þrátt fyrir að skólinn hafi undir höndum bæði gjafafé og fjár- veitingu til verksins. Undanfarna daga hefur staðið yfir undirskriftasöfnun í Menntaskólanum í Hamráhlíðí Kröfðust nemendur þess að skóla- stjórn fjárfesti nú þegar í hjóla- stólalyftu til að fatlaðir nemendur komist leiðar sinnar. Skólinn hefur bæði fengið gefins fé til þeirra fra- mkvæmda svo og fjárveitingu úr ríkissjóði. í gær afhentu síðan fulltrúar nemenda í Hagsmunaráði MH skólastjóranum, Örnólfi Thorlaci- us, undirskriftalistana. Við þett: tækifæri fluttu stutt ávörp, Bene dikt Stefánsson, forseti Nemendaf élagsins, og Örnólfur rektor. Benedikt minnti á að fyrii tveimur árum hefðu nemendur Öldungadeild safnað fé ti kaupanna, sem þeir síðan afhenti skólastjórn. Taldi hann að fé þett; hefði þá dugað fyrir títtnefndr lyftu. Örnólfur Thorlacius taldi upp hæð þá er nemendur Öldunga deildar hefðu afhent ekki hafa dug að til kaupanna, en þó hefði mátt f; fjárveitingu til viðbótar við þá upp hæð. Arkitektar skólans hefðu þ( ráðið skólastjórn að setja heldu venjulega lyftu í húsið, en úr þv hefði ekki enn orðið. - H.Hjv Yfirlýsing frá Steingrími: Staðfestir fyrri fréttir Þegar Þjóðviljinn var að fara í prentun í gærdag barst blaðinu yfirlýsing frá Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra vegna skrifa Þjóðviljans um bílakaup hans. í yfirlýsingunni kemur ekkert nýtt fram sem ekki hefur þegar birst í Þjóðviljanum eða öðrum blöðum. Þjóðviljinn mun að sjálfsögðu birta yfirlýsingu ráðherrans eftir helg- ina ásamt nýjum upplýsingum í málinu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.