Þjóðviljinn - 20.12.1983, Page 20
DIOÐVIUINN
Þriðjudagur 20. desember 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Hugmynd um nýja atvinnugrein
á erfitt uppdráttar
Ræktun gleráls
úr sögunni?
Bannað að flytja inn lifandi vatnafiska
segir Páll A. Pálsson yfirdýralæknir
„í sjálfu sér er þetta einfalt mál.
Það er bannað samkvæmt lögum
að flytja til landsins lifandi vatna-
flsk. Ég fæ ekki séð að hægt verði
að hefja hér ræktun á glerál, nema
þá að Alþingi breyti þessum
lögum“, sagði Páll A. Pálsson yfir-
dýralæknir, formaður fisksjúk-
dómanefndar. Tilefni þess að Þjóð-
vlljinn lcitaði til Páls var að fyrir
meira en þremur mánuðum var
fisksjúkdómanefnd send til um-
sagnar frá landbúnaðarráðuneyt-
inu umsókn nokkurra manna um
að hefja hér á landi ræktun á glerál.
Svar frá nefndinni hefur ekki borist
enn.
Páll sagði að ástæðan fyrir því að
ekki hefði enn verið svarað væri sú
að nefndin hefði falið Sigurði
Helgasyni að kanna smithættu og
ýmislegt annað er glerálinn varðar.
Sigurður hefði hinsvegar verið
mjög upptekinn undanfarið og því
hefði málið dregist.
Nú er það svo að gleráll, sem er
um 8 sm langur þegar hann gengur í
ár m.a. hér á landi, fer svo í hafið
aftur og verður þar kynþroska.
Ekki hefur tekist að gera álinn kyn-
þroska í ræktunarstöðvum. Hug-
mynd þeirra sem hug hafa á álrækt
hér á landi er að flytja glerál inn frá
Evrópu þar sem mjög lítið af hon-
um gengur til íslands. Síðan hyggj-
ast þeir nota heitt vatn hér á landi
til að hraða vexti fisksins og telja að
um arðbæran atvinnurekstur sé að
ræða.
Þar sem bannað er að flytja inn
lifandi fisk virðist í fljótu bragði,
sem þessi hugmynd sé úr sögunni,
nema þá að lögum um þetta atriði
verði breytt. í þessu sambandi má
benda á að bæði lax og gleráll
ganga úr hafinu í íslenskar ár, samt
er bannað að flytja báðar þessar
tegundir inn, vegna smithættu.
-S.dór
• Landbúnaðarráðuneytið hefur
margsinnis ítrekað rannsóknina
við lögregluna frá því ífyrra.
• „Ekki leitt til neinna aðgerðau,
segir lögreglan.
• Kœran kom Inga Tryggvasyni
á óvart!
• Kjöt flutt inn í gámum,
segir kunnáttumaðurinn.
Óbreytt gjaldskrá á nœsta ári?
Þegar fengið sitt
Gjaldskrár rafmagnsveitna
ríkisins, pósts og síma og útvarps og
sjónvarps verða óbreyttar á næsta
ári standist launa- og gengisfor-
sendur fjárlagafrumvarpsins að
því er kom fram í ræðu Lárusar
Jónssonar formanns fjárveitinga-
nefndar við 3. umræðu fjárlaga á
þingi í gær.
Geir Gunnarsson alþm. sagði
við umræðurnar að þessar stofnan-
ir ríkisins hefðu fengið miklar
hækkanir á þjónustugjöldum á síð-
asta ári meðan launafólk hefði set-
ið undir stórfelldu kjararáni. Þann-
ig hefðu gjöld Pósts og síma hækk-
að um 47.5% frá 1. júní sl. en laun
aðeins um 13.5% og þjónustugjöld
útvarps og sjónvarps um 117% frá
því í des. í fyrra en laun um aðeins
43% á sama tíma.
-Jg-
Krakkarnir í Vesturbæjarskólanum létu ekki plássleysi aftra sér frá því að halda jólagleði, sem hófst
klukkan 9 í gærmorgun með því að dansað var í kringum jólatréð úti á skólalóðinni. Enginn samkomusalur
er í skólanum sem rúmar krakkana og sagði Kristín Andrésdóttir skólastjóri að Fræðsluráð hefði synjað
skólanum um samkomusal fyrir jólagleðina: Þrengslin í Vesturbæjarskólanum lýsa sér best í því að allar
sérgreinar eru kenndar utan skólans og fer skólastarfið í Vesturbæjarskólanum fram á 4 stöðum í bænum.
En það var semsagt glatt á hjalla í upplýstu skólaportinu í Vesturbæjarskólanum í gærmorgun og krakkarnir
sungu sér til hita.
Kunnáttumaður segir frá kjötsmyglinu \
Allir vita þetta
nema yfirvöldin!
—. Þetta flæðir yfir allt og allir
vita - nema yflrvöldin, að kjöti
er smyglað í stórum stíl til
landsins, segir kunnáttumaður
í viðtali við Þjóðviljann á bls. 6 í
dag. Segir hann m.a. frá þvi
hvernig kjöti hefur verið smygl-
að í gámum til landsins.
Sveinbjörn Dagflnnsson
ráðuneytisstjóri í landbúnað-
arráðuneytinu segir að ráðu-
neytið hafí marg ítrekað málið
við rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, allt frá því Pálmi Jónsson
þáverandi landbúnaðarráð-
herra sendi lögreglunni beiðni
um rannsókn á meintu kjöt-
smygli til landsins.
Rannsóknarlögreglan segir
hins vegar í fréttatilkynningu:
„Málið var áfram í athugun, en
hefur ekki leitt til sérstakra að-
gerða af hálfu rannsóknarlög-
reglu ríkisins, sem ástæða þykir
til að gera grein fyrir“.
Ingi Tryggvason formaður
Stétarsambands bænda segir að
hann hafí ekki séð kæruna áður
en hún var send til
rannsóknarlögreglunnar í lok
nóvember sl. og að hún hafí
komið sér mjög á óvart.
-óg
Sjá bls. 6
Happdrætti
Þjóðviljans
Dregið hefur verið en númerin
innsigluð hjá borgarfógeta.
Gerið skil sem allra fyrst
svo hægt verði að birta vinnings-
númerin!
Greiða má með
gíró 6572
í aðaíbanka
Alþýðubankans
Laugavegi 31