Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. aprfl 1984 NORÐUR SUÐUR í ályktun verður reynt að setja fram tillögur um hvaða efnisatriði ríki Evr- ópu geta sameinast hvað snertir lausn á fæðuvandamálinu og að- stoð við að draga úr hinni ógnvekjandi mannfjöldaþróun, nýj- ar áherslur í þróunaraðstoðinni sjálfri en fyrst og fremst breytingar á efnahags- og fjármálakerfi heims- ins. Vill Evrópa rjúfa víta- hring aðgerðaleysisins? A manudag hefst í Lissa- bon í Portúgal viðamikil ráð- stefna á vegum Evrópuráðs- ins er nefnist: Norður-Suður: Hlutverk Evrópu. Hafa ýmsir af leiðtogum samtaka 3. heims-ríkja látið svo ummælt að ráðstefnan væri einhver mikilvægasti stjórnmálavið- burðurinn á þessu ári í sam- skiptum Norður og Suðurs. Hugmyndina að ráð- stefnunni átti Ólafur Ragnar Grímsson og setti hann hana fram á þingi Evrópuráðsins fyrir þremur árum. Hefur síð- an verið unnið að henni og Ólafur Ragnar verið formað- ur skipulagsnefndar ráð- stefnunnar. Það er fremur fátítt að íslendingur taki að sér forystu í jafn mikilvægu alþjóðlegu máli og hér um ræðir og því ekki úr vegi að gengið væri á fund hans og hann inntur eftir inntaki ráð- stefnunnar og aðdraganda hennar. Ólafi Ragnari sagð- ist svo frá: - Veturinn 1980-81 vann ég að mjög ítarlegri skýrslu á vegum Evr- ópuráðsins sem bar heitið: Global Prospects: Human Needs and the Earth’s Resources. í henni var far- ið yfir öll þessi helstu vandamál sem setja svip sinn á þróun mannkynsins á næstu 30-40 árum. f brennidepli þessara viðfangsefna var það sem kallað er Norður- Suður, eins konar ávísun á sam- skipti hinna þróaðri þjóða eða efnaðri ríkja, sem áður drottnuðu yfir ríkjum 3. heimsins, og hinna nýfrjálsu ríkja, rúmlega 100 tals- ins, sem flest eru vanþróuð efna- hagslega og tæknilega. - Hvað kom til að þér var falið að gera þessa skýrslu? - Ég var þá nýkominn til Evróp- uráðsins og hafði tekið þátt í um- ræðu um efnahags- og þróunarmál og starfað í efnahags- og þróunar- nefnd ráðsins. Formaður nefndar- innar kom að máli við mig haustið 1980 og fól mér að gera fyrrgreinda skýrslu og semja drög að ályktun sem ráðið mundi gera. Ég ræddi , síðan við ýmsa sérfræðinga Sam- einuðu þjóðanna, Alþjóðabank- ans, OECD og fleiri aðila og studd- ist við skýrslur sem þessar stofnanir hafa sett saman. Um það leyti voru þrjú grundvallarrit að koma fram um þessi mál. Þar er fyrst til að taka Brandt-skýrsluna frægu um Norður-Suður. f öðru lagi svoköll- uð Global 2000 eða Heimurinn árið 2000 sem mikill fjöldi færustu sérfræðinga í Bandaríkjunum höfðu tekið saman á vegum Carter- stjórnarinnar. Global 2000 var lýs- ing á þróun veraldarinnar og fór hún svo í taugarnar á frjálshyggju- postulum að Reagan lét verða sitt fyrsta verk í embætti að leggja stofnunina sem unnið hafði skýrsl- una niður. f þriðja lagi var það svo skýrsla OECD (Facing the Future) um framtíðarþróun í efnahagsmál- um. Á grundvelli allra þessara við- ræðna og gagna setti ég saman skýrsluna. - Og hvert var inntak hennar? - Þar voru dregnar saman stað- reyndir um gífurlega fólksfjölgun, sívaxandi hungur, eyðingu lands og skóga og stórfellda þurrð vatnsbóla sem eyðileggur lífskjör hundruð miljóna manna um víða veröld. Einnig var lýst efnahagslegum samskiptum iðnríkja og þróunar- landa sem hafa reynst þeim síðar- nefndu mjög erfið. Ég lagði þessa skýrslu fram á miðju ári 1981 ásamt ítarlegri ályktun sem Evrópuráðið gerði að formlegri stefnu. - Hvers konar tímamót markaði þessi stefna? - Umþærmundirbentimargttil að tilraunir til að snúa þessari þró- un við mundu ekki bera árangur. Samtök 3. heims ríkja á vettvangi Sameinuðu þjóðanna (Group of 77 - ríkin eru reyndar nú hátt á 2. hundrað) höfðu þá sett fram kröfur um víðtæka samninga milli iðnríkja og þróunarlanda (Global Negotiat- ions) en þá var orðið ljóst að hin nýja ríkisstjórn Bandaríkjanna var mjög andvíg ýmsum aðgerðum sem álitnar voru nauðsynlegar ef ætti að snúa þróuninni við. Hins vegar var það ljóst að Evrópuríkin stæðu jafnfætis Bandaríkjunum að efnahagslegri getu, ef þau legðu saman, og eina vonin var sú að þau reyndu að koma þessum viðræðum af stað og fá varanlega lausn á þátt- um eins og fæðuvandamálinu, skuldabyrðinni, tækniþróuninni og verslunarmöguleikunum sem gerðu þróunarríkjunum kleift að öðlast raunverulegt efnahagslegt sjálfstæði. Veturinn 1981-82 kom svo æ betur í ljós að nauðsyn væri á sérstökum viðræðum í samskiptum Norðurs og Suðurs. - Og þá kom hugmyndin um ráðstefnuna? - í ályktun Evrópuráðsins frá 1981 hafði ég sett inn sem einn lið að efnt yrði til sérstakrar ráðstefnu og í mars 1982 fór ég ásamt nokkr- um fulltrúum ráðsins og áttum við viðræður í New York og Washing- ton við Cuellar, aðalritara Samein- uðu þjóðanna, Bradford Morse, framkvæmdastjóra Þróunarstofn- unar SÞ, Clausen bankastjóra Al- þjóðabankans og ýmsa forystu- menn aðra þar sem þeir voru þess mjög hvetjandi að þessari hug- mynd, sem ég hafði sett fram, yrði hrint í framkvæmd. Á grundvelli þessara viðræðna í New York og Washington lagði ég fyrir Evrópuráðið haustið 1982 ít- arlega og formlega skýrslu um eðli og umfang slíkrar ráðstefnu, hverj- ir ættu að sækja hana o.s.frv. f þessum umræðum kom fram að mjög margir stjórnmálamenn á vinstri og hægri kanti og miðju stjórnmálanna töldu brýnt að Evr- ópuráðið tæki til hendi og reyndi að rjúfa vítahring aðgerðarleysins sem samningaviðræður milli Norðurs og Suðurs væru komnar í. Þetta kom fram hjá fulltrúum ríkja eins og Svíþjóðar, Hollands, Austurríkis, Danmerkur og Nor- egs sem hafa mjög skorið sig úr varðandi mikil framlög til þróunar- landa. Þessi viðhorf fóru líka að koma fram hjá fulltrúum stærri ríkja, m.a. í ræðu sem Mitterand, forseti Frakklands, flutti á þingi Evrópuráðsins þar sem kom fram eindreginn stuðningur við hug- myndina og sama gilti um ýmsa frá Þýskalandi. Þá kom líka fram stuðningur frá ríkjum S-Evrópu svo sem Spáni og Portúgal sem hafa löngum haft meiri samskipti við S-Ameíku og hluta Afríku en önnur ríki í Evrópu. Um haustið 1983 var sett á lagg- irnar formleg skipulagsnefnd til að vinna að þessum undirbúningi og í henni voru fulltrúar allra helstu nefnda Evrópuráðsins. Á næstu mánuðum tóku svo einnig sæti í nefndinni formlegir fulltrúar frá stofnunum Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankanum, Efnahags- bandalaginu, Alþjóða vinnumál- astofnuninni, OECD og einnig frá samtökum ríkja 3. heimsins. Var það í fyrsta skipti í sögunni sem allir þessir aðilar tóku höndum saman um að skipuleggja slíkan at- burð í samskiptum Norðurs og Suðurs og í fyrsta skipti sem samtök ríkja 3. heimsins taka formlega þátt í samvinnu við Evrópuráðið um stefnumótun á þessu sviði. - Og þú varst kosinn formaður nefndarinnar? - Já, ég var kosinn formaður þessarar skipulagsnefndar sem hef- ur nú í hálft annað ár unnið að undirbúningi þessarar ráðstefnu. Hefur það verið gífurlegt verk enda hefur þurft að greiða fram úr fjölmörgum vandamálum. Það þurfti t.d. að velja ráðstefnunni stað og það var býsna flókið því að ríkisþing og ríkisstjórnir þriggja landa kepptust um að fá að halda hana: Austurríki, Spánn og Port- úgal.i Það var flókið diplomatískt spil að komast að niðurstöðu. - Hvers vegna völduð þið Por- túgal? - Af ýmsum ástæðum. Portúgal hefur sterk tengsl við ákveðin lönd í Afríku og S-Ameríku sem önnur Evrópuríki hafa ekki. Þar að auki er lýðræðið í Portúgal ungt og við vildum styrkja lýðræðisstofnanirn- ar með því að koma með þessa ráð- stefnu til þeirra. Þetta staðfestu þeir líka sjálfir með því að bjóða fram ríkisþinghúsið undir ráðstefn- una og fresta þinginu á meðan. Mario Soares forsætisráðherra hefur sýnt mikinn áhuga á ráð- stefnunni. í nóvember 1983 fór ég til Lissabon til að eiga með honum sérstakan fund um ráðstefnuna og á fundinum með Mario Soares kom m.a. fram að Portúgal ætti að ýmsu leyti gott með að vera brú milli þró- aðra iðnríkja og vanþróaðra ríkja þar sem landið sjálft mætti kallast vanþróað Evrópuland. Honum var líka persónulega mikið í mun að sýna fulltrúum lýðræðislegra þinga og ríkisstjórna í Evrópu að lýð- ræðið og lýðræðisstofnanir stæðu styrkum fótum í Portúgal. Þess skal getið að ég hitti Soares að máli í vikunni fyrir heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur til Portúgals og varð var við að Portúgalir biðu heimsóknarinnar með mikilli eftir- væntingu. Þeir hafa síðan lýst með mikilli hrifningu framkomu Vigdís- ar og ræðum í þessari opinberu heimsókn. - Hverjir verða helstu ræðu- menn á ráðstefnunni? - Annar meginþátturinn í störf- um skipulagsnefndar var að velja ræðumenn og umræðuefni. Willy Brandt féllst snemma á að verða ræðumaður og sama gilti um for- stöðumenn þeirra alþjóðastofnana sem hlut eiga að máli. Þannig munu þeir einstaklingar, sem hafa verið hvað áhrifaríkastir í stefnu- mótun á þessu sviði, allir taka þátt í ráðstefnunni. Meðal framsögu- manna verða einnig Sridath Ramp- hal, framkvæmdastjóri Sambands bresku samveldisríkjanna, sem sumir vildu gera að aðalritara SÞ um árið. Hann hefur bak við tjöld- Á fundinum með Peres de Cuellar aðalritara Sameinuðu þjóðanna í New York í mars 1982 þegar fjallað var um þá hugmynd að halda sérstaka ráð- stefnu til að ræða hlutverk Evrópu í samskiptum Norðurs og Suðurs. Á myndinni eru við hlið aðalritarans Sir Anthony Grant formaour efna- hagsnefndar Evrópuráðsins, Ólafur Ragnar Grímsson og Sir John Osborn en Ólafur varð síðan formaður skipulagsnefndar ráðstefnunnar og Sir John varaformaður

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.