Þjóðviljinn - 27.10.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 27.10.1984, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Ifvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Laugardagur 27. október 1984 209. tölublað 49. órgangur UðDVmiNN Kerfið MÓTMÆLASETA Anna Kristjánsdóttir og Árnl Júliusson á skrifstofu ríkissaksóknara. mynd-eik Nokkrir einstaklingar hafa sest að á skrifstofu ríkissaksóknara og munu ekki hverfa þaðan nema tilneyddir. Við viljum leggja áherslu á að málum okkar verði flýtt í kerfinu þar sem þau hafa legið órannsökuð hingað og þangað.' Okkur er brýnt að mál okkar komist á viðunandi rekspöl, sögðu einstaklingar sem í gær tóku sér stöðu á skrifstofu rflus- saksóknara við Hverfisgötu. Þau ætiuðu ekki að fara þaðan sjálf- vfljug fyrr en eftir helgi, og ætla með dvöl sinni að mótmæla hversu linlega réttarkerfið hefur tekið á málum þeirra. Anna Kristjánsdóttir, Ámi Jú- líusson og hjónin Ómar Kristins- son og Emma Blómsterberg af- hentu ríkissaksóknara skjal þar sem þau lýstu „þá aðila sem stjórna réttarfari á íslandi ábyrga fyrir fjárhagslegri og félagslegri stöðu þeirra nú. í skjalinu segir ennfremur: Viðu undirrituð höf- um ákveðið að taka okkur sæti á skrifstofu ríkissaksóknara og víkja ekki þaðan fyrr en mál okk- ar sem liggja órannsökuð hingað og þangað í „kerfinu“ - hafa komist á viðunandi rekspöl“. jp 1 Þjóðviljinn Ný myndasaga r Ídag hefur göngu sína ný myndasaga í Sunnudagsblaði Þjóðviljans sem ber heitið Ferðin til Vínlands. Segir þar frá strákn- um Snorra sem fer til Vínlands með Leifi heppna og lendir þar í ýmsum raunum. Höfundur myndasögunnar er Kristján J. Guðnason mynd- listarmaður og sagði hann í sam- tali við Þjóðviljann í gær að Ferð- in til Vínlands væri sjálfstætt verk en við gerð þess hefði hann byggt á Grænlendingasögu. Kvaðst hann búast við að sagan yrði í um 20-30 þáttum og munu þeir birt- ast í Sunnudagsblaðinu framveg- is. Kristján nam við Handíða- og myndlistarskólann á árunum 1961-1964 en hóf að því búnu nám við Listiðnskólanna í Osló. Hann hefur haldið nokkrar einka sýningar og tekið þátt í haustsýn- ingum FÍM nokkrum sinnum. Þjóðviljinn býður Kristján vel- kominní hóp starfsmanna blaðs- ins. -v. Öryggislykill sparifiáreigenda • • Oryggislykill 1: Besta ávöxtun bankans. Nú 26,75% ársávöxtun. Kaskó-reikningurinn hefur þrjú vaxtatímabil á ári: 1. janúar til 30. apríl, 1. maí til 31. ágúst og 1. september til 31. desember. Sé Kaskó-reikningurinn án úttektar heilt vaxtatímabil, reiknast uppbót á vaxtainneign, sem samsvarar bestu ávöxtun sparifjár hjá bankanum á því tímabili. Ef lagt er inn á Kaskó-reikning eftir að vaxtatímabil er hafið og reikningurinn er síðan án úttektar næsta tímabil á eftir, reiknast vaxtauppbót allan spamaðartímann. • • Oryggislykill 2: Vörn gegn verðbólgu. Samanburður á kiörum verðtryggðra og óverðtryggðra reikninga er framkvæmdur mánaðarlega. Ef verðbólga eykst og verðtryggðir reikningar gefa bestu ávöxtun, þá fær Kaskó-reikningurinn sjálfkrafa þá ávöxtun. Engin fyrirhöfn eða flumingar á milli reikningsforma. • • ______________ Oryggislykill 3: Engin binding. Innstæða Kaskó-reiknings er alltaf laus til útborgunar án uppsagnar á reikningi. Ef tekið er út á vaxtatímabili fellur vaxtauppbót niður það tímabil en innstæðan heldur sparisjóðsvöxtum eftir sem áður. Kaskó-reikning má stofna og leggja inn á hvenær sem er. ip U6RZLUNRRBRNKINN -vúwcci með p&i ( Bankastræti 5 Húsi verslunarinnar, nýja miðbænum Umferðarmiðstöðinni v/Hringbraut Laugavegi 172 Grensásvegi 13 Arnarbakka 2 Varnsnesvegi 14, Keflavík Þverholti, Mosfellssveit

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.