Þjóðviljinn - 21.11.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.11.1984, Blaðsíða 1
2i f DfOÐVIUINN MENNING Gengisfellingin Stórfelld skuldahækkun Á viku hafa skuldir Hitaveitu Borgarfjarðar og Akraness hœkkað umlóO miljónir Hætt er við að þegar allt kemur til alls hafí gengisfelling í fyrradag skapað fleiri vandamál en henni var ætlað að leysa, sam- kvæmt ummælum forsætisráð- herra. Sem dæmi má nefna að skuldir Hitaveitu Akraness og Raforkuverð Sjá viðbrögð ASÍviðgengis- fellingunni. Bls.3 Borgarfjarðar námu einum milj- arði í erlendum lánum fyrir geng- isfellingu. Við það 4,6% gengissig sem átti sér stað í síðustu viku og þá 12% gengisfellingu sem fram- kvæmd var í fyrradag hækka skuldir hitaveitunnar um 160 miljónir króna. Reikningsgreiðendur hita- veitunnar eru 2400, þannig að skuldahækkunin nemur um 62.500 kr. á hvern reiknings- greiðanda. Tekjur hitaveitunnar árið 1984 eru áætlaðar um 90 miljónir króna, þannig að litlu munar að tveggja ára tekjur hennar hafi verið teknar í gengis- fellingunni að óbreyttu hitaveitu- gjaldi. Hjá Hitaveitu Akureyrar er ástandið einnig mjög alvarlegt, Tvöfalt kostn- aðar- verð? Kostnaðarverð raf- orku til almennings- veitna var 19 millidal- ir á árinu 1983 en söluverðið 34,1 milli- dalir. Hvert fór mis- munurinn? Samkvæmt forsendum Hall- dórs Jónatanssonar fram- kvæmdastjóra Landsvirkjunar við útreikning á framleiðslu- kostnaði raforku til ísal þar sem verið til stóriðju er reiknað 12,7 millidalir, ætti Landsvirkjun að geta selt raforku til almennings- veitna á 19 millidali eftir að nýi álsamningurinn tekur gildi. Nú- gildandi verð til almennings- veitna samsvarar 35-40 milli- dölum. Það er hins vegar vitað að ekki stendur til að lækka raforku- verðið. Ástæðan er sú að kostn- aðarútreikningar forstjórans er blekkingarleikur með tölur. Samkvæmt framlögðum árs- reikningum Landsvirkjunar var meðalframleiðslukostnaður við selda orku 18,9 miil 1983 og fer samkvæmt spám hækkandi upp í 20,5 millidali 1984 og 21,8 milli- dali 1985. Þá hefur eðlilegur arð- ur af fjárfestingum ekki verið reiknaður inn í dæmið. Blekking- arvefurinn sem talsmenn álsamn- ingsins eru nú að vefa um þessi mál mun endanlega afhjúpast á orkureikningum almennings í landinu. Sjá fréttaskýringu á bls. 2 og frétt á baksíðu Friðbert bíóstjóri með snældu sem Þjóðviljamenn fengu leigða í „Vídeóheiminum". Greinileg fjölfjöldun, snældu- miðinn Ijósritaður, dreifingarréttinn á Háskólabíó og er þegar byrjað að auglýsa sýningar einsog sést af veggspjaldinu. Mynd: Atli. Myndbönd Fimmta hver ný snælda ólögleg Hundruð þúsunda króna tap rétthafa og ríkissjóðs. Saksóknari situr á kœrum meðan braskarar stunda smygl og óleyfilegafjölföldun. Tjón innlendra rétthafa af ólöglegum innflutn- ingi og fjölföldun á myndböndum nemur hundruðum þúsunda á mánuði, og ríkissjóður missir annað eins: að réttu lagi innheimtir ríkið um 1500 krónur af hverri lögmætri myndbands- snældu. „Þetta eru nokkrir aðilar, fleiri en einn“, segir Friðbert Pálsson Háskólabíóstjóri og for- maður Samtaka rétthafa um lögbrjótana. Ekki er einungis brotið gegn nýsettum lögum um höf- undarrétt, brotin varða líka ákvæði almennra hegningarlaga um skjalafals: merkimiðar og kápur á snældunum eru ljósritaðar og ljósmynd- aðar. Samtök rétthafa kærðu mál af þessu tagi til saksóknara fyrir skömmu. Hann vísaði málinu frá sér á þeim forsendum að skjöl þyrfti frá fram- leiðendum þarsem hver milliliður er rakinn. „Þetta kom okkur mjög á óvart", sagði Friðbert, „við áttum von á að rannsóknarkerfið tæki öðru- vísi á þessu“. Lögbrotin eru tvennskonar. Annarsvegar eru menn sendir utan til að kaupa myndbönd og selja þau síðan myndbandaleigum hér heima. Hinsvegar eru myndbönd fjölfölduð, yfir gamla mynd sem farin er að dala í leigu eða á tómt myndband. Kápa um myndbandið er þá oft ljós- mynduð, og miði ljósritaður í svarthvítu eða í lit. „Sumt af þessu er svo vel gert að almenningur sér það ekki“, segir Friðbert, en lögbrotin koma þó alltaf niðrá neytandanum líka, vegna þess að myndgæðin haldast aldrei söm við fjölföldunina. Friðbert fullyrðir að fimmta hvert nýtt mynd- band sé ólöglegt, og í nýlegri könnunarferð í tvær leigur var fengurinn yfir 300 ólöglegar snældur. Algengast er að sögn Friðberts að ólöglega efnið sé geymt „á bakvið" (með bláu myndun- um) en sumstaðar liggur það frammi, einsog Þjóðviljamenn sannreyndu við heimsókn í leiguna „Vídeóheiminn". Þar fengum við nokkr- ar snældur leigðar, og völdum af handahófi. Ein þeirra innihélt kvikmyndina „Gorky Park“, og var að sögn Friðberts greinileg fjölföldun með ljósrituðum snældumiða. Snældan var merkt tölunni 723 og að auki bókstafnum C, sem bend- ir að sögn kunnugra til þess að snældan sé önnur í röðinni frá frumsnældu. Háskólabíó á réttinn að myndinni og hyggst taka hana bráðlega til sýn- inga. -m þar sem stór hluti skulda hennar eru í erlendum lánum. Það horfir því allt annað en vel hjá þessum þj óðþrifafy rirtæk jum. -S.dór Askorun Burt með vopnin! 9-11 ára nemendurá Króksfjarðarnesi senda ríkisstjórnum allra landa áskorun um að tryggjaframtíð þeirra Nemendur í Grunnskóla Geir- dalshrcpps í Króksfjarðarnesi héldu með sér málfund í gær og var umræðuefnið ógnun vígbún- aðarkapphlaupsins og framtíð mannkyns. Var samþykkt áskorun til ríkisstjórna allra þjóða heims, svohljóðandi: 1) Leggið tafarlaust niður öll vopn og vítisvélar. 2) Notið vopnaframleiðslupen- inga til matvælaframleiðslu handa hungruðum heimi. 3) Gefið okkur og komandi kyn- slóðum framtíð í friði og bræðralagi þar sem allir menn eru jafnir. Sigurður Pálsson skólastjóri sagði að nemendur á þessum mál- fundi væru á aldrinum 9-11 ára og að greinilegt væri að friðarum- ræðan nú á tímum ætti sér hljóm- grunn í öllum aldursflokkum. Þjóðviljinn kemur áskorun krakkanna í Grunnskóla Geira- dalshrepps hér með á framfæri. I bið í fjorða sjnn Helgi og Margeir unnu Skákir Jóhanns og Jóns fóru í bið í annarri umferð ólympíum- ótsins í Saloniki, Helgi og Marg- eir unnu sínar skákir gegn Hond- úras. Eftir unna skák í dag hélt Helgi áfram með biðskák úr fyrstu umferð og fór hún enn í bið eftir 120 leiki. Helgi hefur hrók og biskup gegn hrók. Sveitin er með 3'/2 vinning og 3 biðskákir. Sigurlaug vann sína skák í kvennakeppninni gegn Dóminík- anska lýðveldinu, en skákir Ólaf- ar og Guðlaugar fóru í bið. 2 vinningar, 2 biðskákir. - m

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.