Þjóðviljinn - 02.02.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 02.02.1985, Blaðsíða 16
MENNING Kjarvals- staðir og Akureyri Ruth Slenczynska hefur veriö tal- in mesta undrabarn á píanó á þessari öld 50 ára undra- barn Nk. mánudag, 4. febrúar kl. 21.00, heldurRuth Slenczynska píanóleikari frá Bandaríkjunum tónleika á Kjarvalsstöðum. Ruth Slenczynska hélt sína fyrstu píanótónleika í Kaliforníu aðeins 3 ára gömul. Fyrstu tón- leika sína í Evrópu hélt hún 5 ára gömul í Berlín og í París tveimur árum seinna. Hún hefur verið tal- in mesta undrabarn á píanó á þessari öld, og jafnvel jafnað við W. A. Mozart. Um þessar mundir heldur hún upp á 50 ára starfsaf- mæli sitt með tónleikaferðalagi um allan heim. Ruth Slenczynska hefur skrifað tvær bækur, sjálfs- ævisögu sína „Forbidden Child- hood“ og „Music at Your Fing- ertips“. Hún hefur Ieikið inn á yfir 100 hljómplötur og er nú „Artist in Residence“ í Southern Illionis-háskólanum. Á tónleikum sínum á Kjarvals- stöðum mun hún leika verk eftir Liszt, Scarlatti, Chopin, Virgil Thomson, Rachmaninoff og Prokofieff. Miðar verða seldir við innganginn. Þriðjudaginn 5. febrúar heldur hún síðan tónleika á Akureyri, í sal Tónlistarskólans, og hefjast þeir kl. 20.30. Selma Guðmundsdóttir Elísabet Erlingsdóttir Óperan Hádegistónleikar á þriðjuáögum íslenska óperan efnir til ein- söngstónleika í hádeginu á þriðjudögum í febrúar og mars. Tónleikarnir verða í forsal ís- lensku óperunnar, en þar hefur verið komið upp litlu sviði, og tekur þessi nýi tónleikasalur um 100 manns í sæti. Fyrstu hádegistónleikarnir verða nk. þriðjudag 5. febrúar, þá syngur Elísabet Erlingsdóttir, sópran, lög eftir Pál ísólfsson og Jean Sibelius. Píanóleikari er Selma Guðmundsdóttir. Á næstu sjö hádegistónleikum íslensku óperunnar syngja eftir- taldir einsöngvarar: Ólöf Kol- brún Harðardóttir, John Speight, Elísabet F. Eiríksdóttir, Guð- mundur Jónsson, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Halldór Vilhelms- son, Sigurður Björnsson. 18 mánaða sparireikningar Búnaðarbankans bera óumdeilanlega hæstu bankavextína Fyrirlestur Verkefni íslenskrar heimspeki- sögu Sunnudaginn 3. febrúar mun Gunnar Harðarson flytjafyrir- lestur á vegum Félags áhuga- manna um heimspeki, sem hann nefnir: „ Verkefni ís- lenskrar heimspekisögu". f fyrirlestri sínum hyggst Gunnar ræða helstu rannsóknar- svið innan íslenskrar heimspeki- sögu, heimspekiiðkan íslendinga fyrr á öldum og spurninguna hvort íslendingar eigi sér heimspekihefð. Gunnar lauk B.A. prófi í heimspeki frá H.í. haustið 1978 og stundaði síðan framhaldsnám í heimspekisögu við Parísarhá- skóla og lauk þaðan doktorsprófi í júní sl. Hann hefur unnið að útgáfu lærdómsrita frá miðöldum á vegum Heimspekistofnunar Háskóla íslands. Fyrirlesturinn verður fluttur í Lögbergi stofu 101 og hefst kl. 15.00. VEXTIR Nú hækkum við vexti úr 34% á ári í 37%. ÁVÖXTUN Þar sem vextir eru færðir tvisvar á ári verður ársávöxtunin 40,4%. VERÐ- BÓLGA Verðbólguspá Seðlabanka íslands og Þj óðhagsstofnunar gerir ráð fyrir 20% hækkun lánskjaravísitölunnar á árinu 1985, en við hana miðast vaxtakjör verðtryggðra reikninga. VERÐ- TRYGGING Sparifé á 18 mánaða reikningum nýtur fullrar verðtryggingar. Vaxtakjör eru borin saman við kjör 6 mánaða verðtryggðra reikninga, en miðað við þessa spá, þurfum við tæplega á því að halda! VERTU ÁHYGGJULAUS Þetta er góður kostur fyrir þá sem vilja vera algjörlega áhyggjulausir um sparifé sitt í 18 mánuði eða lengur. BUNAÐARBANKINN TRAUSTUR BANKI Ml) ONNUMST INNLAUSN SI'ARISklR I I INA RÍKISSJÓÐS 'Vextir eru breytilegir til hækkunar eða lækkunar samkv. ákvörðun Búnaðarbanka íslands TlMABÆR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.