Þjóðviljinn - 18.05.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 18.05.1985, Blaðsíða 6
2. deild Góð nýting hjá ÍBI! Fékk tvöfœri og vann Fylki Fylkir-ÍBÍ 0-1 (0-0) * ísfírðingar gjörnýttu sitt eina marktækifæri í seinni hálfleik gegn nýliðum Fylkis á gervi- grasinu í Laugardal í fyrradag. Það var reyndar aðeins annað færi þeirra í leiknum. - A 54. mínútu tók Kristinn Kristjánsson snögga aukaspyrnu á vallarhelm- ingi Fylkis, gaf á Rúnar Vífilsson - hann sendi fyrir Fylkismarkið á Örnólf Oddsson sem skallaði lag- lega yfir Ólaf Magnússon mark- vörð, í stöng og fylgdi á eftir og skoraði auðveldlega. Það kom í ljós að gervigrasið hentar illa í strekkingsvindi. Báð- um liðum gekk illa að hemja knöttinn. ÍBÍ sótti meira undan vindi í fyrri hálfleik en fékk að- eins eitt færi, Benedikt Einarsson skaut yfir af markteig. Sóknir Fylkis voru hættulegri og besta færi þeirra kom á 37. mín. þegar Jón Bjarni Guðmundsson skaut í þverslá. í seinni hálfleik pressuðu Fylkismenn stíft, einkum eftir því sem á leið og eftir mark Örnólfs hugsuðu Vestanmenn, sem voru án Jóns Oddssonar og Jóhanns Torfasonar, fyrst og fremst um að halda fengnum hlut. Hreiðar Sigtryggsson varði mark ÍBÍ af öryggi, tvisvar skalla frá eigin varnarmönnum og á 63. mín. varði hann giæsilega frá Herði Guðjónssyni úr dauðafæri. Að öðru leyti hittu Árbæingar ekki rammann og urðu að sæta sig við tap á gervigrasinu - vellinum þar sem reiknað er með að þeir hirði mikið af stigum í sumar. Maður leiksins: Örnólfur Oddsson, ÍBÍ. - VS ÍÞRÓTTIR 1. deild Grimmir Kefhríkingar gáfu ekkert eftir Fram vann þó sanngjarnt en ÍBK á eftir að bítafrá sér Reykjavíkurmeistarar Fram þurftu virkilega að hafa fyrir því að sigrast á baráttuglöðum Keflvíkingum á Valbjarnarvellin- um í fyrrakvöld. Það var ekki fyrr en 11 mínútur voru til leiks- loka að Framarar gátu farið að anda léttar - þá skoraði Guð- mundur Torfason fallegt skalla- mark eftir góða fyrirgjöf Ómars Torfasonar frá vinstri kanti og tryggði þeim bláklæddu þrjú stig, 3-1. Keflvíkingar gáfu ekki tommu eftir og áttu síst minna í fyrri hálf- leiknum. Marktækifærin voru þó við þeirra mark, Ómar skallaði í stöng á fimmtu mínútu, Kristinn Jónsson átti hjólhest yfir um miðjan hálfleik og Guðmundur Steinsson skaut yfir úr dauðafæri á 36. mín. Mörkin tvö í hálf- leiknum komu í sömu andránni, Örn Valdimarsson gaf frá vinstri fyrir mark ÍBK og Ómar skallaði laglega í netið, en í næstu sókn var Ragnar Margeirsson felldur í vítateig Fram og skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni þrátt fyrir góða tilburði Friðriks Friðrikssonar markvarðar, 1-1. Fram náði betri tökum á leiknum eftir hlé og eftir korter reif Guðmundur Steinsson sig í gegnum vörn ÍBK og skaut, Þor- steinn Bjarnason varði glæsilega en Kristinn fékk boltann á mark- teig og kom honum í netið. Ómar skallaði rétt framhjá áður en hann lagði upp þriðja markið fyrir G. Torfason og Þorsteinn bjargaði vel í lokin frá Ómari og Erni. Sigurjón Sveinsson átti lok- aorðið á síðustu mínútunni, skaut í hliðarnet Frammarksins. Sanngjörn úrslit þegar á heildina er litið - Framarar voru Fram-IBK 3-1 (1-1) ** Mörk Fram: Ómar Torfason 27. mín. Kristinn Jónsson 59. mín. Guðmundur Torfason 79. mín. Mark ÍBK: Ragnar Margeirsson 28. mín. (víti). Stjörnur Fram: Guðmundur Steinsson ** Friðrik Friðriksson * Ómar Torfason * Stjörnur ÍBK: Ragnar Margeirsson ** Freyr Sverrisson * Þorsteinn Bjarnason * Dómari: Þoroddur Hjaltalín * Áhorfendur 894. heilsteyptari og yfirvegaðri í sín- um aðgerðum en barátta ÍBK sló þá oft útaf laginu og þegar maður á borð við Ragnar Margeirsson fær boltann er alltaf hætta. ÍBK er með nánast nýtt og yngra lið frá því í fyrra en þarf ekki að ör- vænta - ef marka má þennan leik. - VS 2. deild Jónsmálið Fundur á þriðjudag Á þriðjudaginn mun aganefnd KSI koma saman og fjalla um mál Jóns G. Bjarnasonar KR-ings. Skeytið sem innihélt tilkynning- una til KR um að hann helði verið dæmdur í leikbann er komið fram en það reyndist ekki hafa verið borið til Gunnars Guðmunds- sonar, formanns knattspyrnu- deildar KR, heldur í húsið við hliðina. Óvenjulegt mál í alla staði og það á sér enga hliðstæðu. Nú er deilt um hvað gildi varðandi skeytasendinguna-stimpill Pósts og Síma eða undirskrift viðtak- anda. Ef stimpillinn gildir, mun Þróttur fá stigin þrjú en ef undir- skriftin gildir heldur KR stigun- um! - VS IBV sterkara Tvö mörk Tómasará Siglufirði KS-ÍBV 1-2 (0-1) ★ ★★ Eyjamenn hafa bætt vel við sig frá því í fyrra - það kom berlega í ljós á Siglufirði í fyrradag. Þeir mættu grimmir til leiks, greini- lega sannfærðir um að ekkert annað dygði, og uppskáru góðan sigur í fremur jöfnum baráttu- leik. KS sótti stíft í byrjun en á 10. mínútu þurfti Gísli markvörður liðsins tvívegis að verja hörku- skot Eyjamanna, í síðara skiptið frá Ómari Jóhannssyni. ÍB V náði svo forystunni á 21. mín. þegar Jóhann Georgsson gaf fyrir mark KS frá hægri og Tómas Pálsson, sá síungi framherji, skallaði óvaldaður í netið. Baldur Be- nónýsson átti skot á Eyjamarkið af stuttu færi á 40. mín. en varið. KS hóf seinni hálfleik af krafti og á53. mín. skoraði Mark Duffi- eld eftir góðan undirbúning Colin Thackers. Bill Hodgson þjálfari hoppað|i hátt í loft af fögnuði (þetta gæti verið enski boltinnl). En Eyjamenn reyndust sterkari, þeir höfðu meira úthald og bjuggu yfir meiri krafti. Hafþór Kolbeinsson var þó rétt búinn að koma KS yfir á 60. mín. en á 66. mín. skoraði Tómas öðru sinni, 1-2, nú eftir fyrirgjöf Sigbjörns Óskarssonar. Mínútu síðar skaut Sigbjörn yfir Siglufjarðarmarkið úr dauðafæri. Undir lokin reyndi KS mjög að jafna, Tómas Kára- son átti skalla yfir og markvörður ÍBV varði frá Colin rétt fyrir leikslok. Úrslit 1-2, jafntefli hefði kannski verið sanngjarnt en ef annað liðið átti á annað borð að vinna voru úrslitin við hæfi. Maður leiksins: Mark Duffi- eld, KS. - RB/Siglufirði. 2. deild Ólafur Björnsson var besti maður vallarins í Njarðvík og skoraði síðara mark Breiðabliks. Yfirburðir Blika 2. deild Ekki sannfærandi Völsungar náðu undirtökunum á meðan Olafsfirðingar voru að venjast grasinu Völsungur-Leiftur 3-0 (2-0) * Völsungar hófu sókn að 1. deildar- sæti með 3-0 sigri á Leiftri frá Ólafs- flrði. Leikið var á grasvellinum á Ilúsavík, nokkuð óvenjulegt svo snemma árs. Það var greinilegt fyrstu 20 mínút- urnar. að Olafsfirðingar eru óvanir grasvöllum og fyrir vikið voru Völs- ungar mun sprækari. Fyrsta markið kom á 9. mín. Leiftur fékk horn- spyrnu sem Gunnar Straumland markvörður sló útí vítateiginn. Þar náði Kristján Olgeirsson knettinum, lék laglega fram miðjuna og sendi boltann í fætur Wilhelms Fredriksens sem átti í litlum vandræðum með að skora framhjá Loga Einarssyni mar- kverði Leifturs. Sjö mínútum síðar kom fallegasta markið. Glæsilegum samleik upp hægri vænginn lauk með snjallri fyrir- gjöf Björns Olgeirssonar. Bjössi sendi á Begga bróður (Kristján) sem skallaði frá vítapunkti í þverslá og inn. Verulega faliegt mark og óvenju- legt að Kristján skori með skalla. Eftir mörkin jafnaðist leikurinn og Völsungar náðu ekki að skapa nein færi, nema Jónas var tvívegis of ragur við að skjóta í upplögðum færum. Skömmu fyrir hlé bjargaði Logi hörkuskoti Kristjáns. Ólafsfirðingar komu ákveðnir til síðari hálfleiks og á 47. mín. sýndi Gunnar stórgóða markvörslu er hann varði hörkuskalla Halldórs Guð- mundssonar af stuttu færi. Átta mín. síðar hugðist Halldór senda fyrir mark Völsunga en boltinn hafnaði í þverslá. Enn átti Leiftur gott færi þegar Rúnar Guðlaugsson stóð óvaldaður á vítateig en skaut himin- hátt yfir. Á 75. mín. fengu Völsungar 3 hornspyrnur í röð og úr þeirri þriðju náði Ómar Rafnsson laglegri hjól- hestaspyrnu sem fór rétt yfir. Völs- ungar gerðu útum leikinn á 79. mín. Ómar hóf glæsilega sókn og sendi góða sendingu innfyrir vörn Leifturs. Þar var Jónas Hallgrímsson mættur og af yfirvegun og öryggi sendi hann knöttinn í netið. Völsungar voru betra liðið en léku engan veginn sannfærandi ef undan er skilinn 10 mínútna kafli í fyrri hálf- leik er þeir skoruðu mörkin tvö. Gunnar þurfti lítið að athafna sig í markinu en greinilegt er að hann er í hörkuformi. Vörnin er sterk með þá Sigurð Halldórsson og Birgi Skúlason sem miðverði. Helgi Helgason lék nú í stöðu bakvarðar og átti stórgóðan leik. Ómar er feykisterkur í tengilið- arstöðunni og Björn barðist vel að vanda. Kristján ætlar sér stóra hluti í sumar og lék mjög vel. Leiftur á eftir að koma á óvart í sumar og Einar Helgason þjálfari þarf ekki að örvænta. Þeir léku oft á tíðum laglega úti á vellinum en miklu meiri grimmd vantar í framlínumenn- ina. Friðgeir Sigurðsson er sterkur leikmaður sem líklega nýtist betur á miðjunni en í vörninni. Halldór gerði margt ágætt í framlínunni en vantar tilfinnanlega stuðning. Maður leiksins: Kristján Olgeirs- son, Völsungi. - ab/Húsavík. UMFN-Breiöablik 0-2 (0-0) ** Það er varla hægt að segja að Njarðvíkingar hafi átt ærlega sóknar- lotu á grasvellinum sínum gegn Breiðabliki í fyrradag. Kópavogsliðið átti leikinn eins og hann lagði sig en mörkin létu þó bíða eftir sér - þau komu á síðustu tólf mínútunum. Upp við mörkin var ekki sérlega mikið um að vera. f fyrri hálfleik fékk Njarðvík sín einu færi - Þórður Karls- son átti bæði og var varið frá honum í fyrra skiptið en hann skaut yfir í það síðara. Hinum megin var meiri hætta. Guðmundur Baldursson átti skot rétt framhjá, Örn Bjarnason markvörður Njarðvíkinga varði vel frá Hákoni Gunnarssyni og á43. mínútu þrumaði Ólafur Björnsson í þverslá Njarðvík- urmarksins eftir aukaspyrnu. Óiafur var aftur á ferð með auka- spyrnu í byrjun seinni hálfleiks en Órn varði glæsilega. Blikar fengu tvö dauðafæri áður en Jóhann Grétars- son náði loks að koma þeim yfir á 78. mín. með óverjandi skoti. Fimm mín- útum síðar var Ólafi hrint í vítateig UMFN og hann skoraði sjálfur úr vít- aspyrnunni sem dæmd var, 0-2. í lok- in var Gísla Grétarssyni Njarðvíkingi vikið af leikvelli fyrir endurtekið brot. Blikar voru betri að öllu leyti, spil- uðu ágætlega með Ólaf sem besta mann. Haukur Jóhannesson var frískastur í daufu liði heimamanna sem lék án Jóns Halldórssonar. Hann var í banni, en var þó svo áleitinn utan vallar að Ólafur Sveinsson dómari þurfti í tvígang að hafa afskipti af honum! Maður leiksins: Ólafur Björnsson, Breiðabliki. _ SÓM/Suðurnesjum. 2. deild KA byrjar bærilega Þriggja marka sigur í Borgarnesi Skallagrímur-KA 0-3 (0-1) ** Mikið breytt lið KA byrjaði 2. deildina vel í Borgarnesi í fyrra- dag. Liðið lék án fyrirliða síns, Njáls Eiðssonar, en vann samt nokkuð sannfærandi sigur, sem var þó of stór miðað við gang leiksins. Fyrri hálfleikur var jafn - lítið fyrir augað og kýlingar á báða bóga. Á 28. mín. skoraði Tryggvi Gunnarsson fyrir KA - var þá rangstæður að áliti heimamanna. Skallagrímur fékk sitt eina hættu- lega færi í hálfleiknum á 40. mín. Guðmundur Marteinsson átti þá hörkuskot rétt framhjá mark- vinklinum. Eftir 25 sekúndur í seinni hálf- leik fékk KA vítaspyrnu þegar Sigurgeir Erlendsson hindraði Tryggva. Þorvaldur Þorvaldssson skoraði, 0-2. Heimamenn hressstust við þetta og Guð- mundur, Ólafur Jóhannesson og Björn Axelsson fengu ágæt færi sem ekki nýttust. En í ákafanum gleymdu þeir vörninni á 71. mín- útu og Steingrímur Birgisson, ný- kpminn inná sem varamaður, slapp uppað marki þeirra og innsiglaði sigur Akureyrarliðs- ins. Lið KA virkaði sterkt, einkum aftasta línan. Þorvaldur Örlygs- son var bestur í jöfnu liði. Gunn- ar Jónsson var bestur Borgnes- inga og Guðmundur átti ágætan leik. Maður leiksins: Þorvaldur Ör- lygsson, KA. - eop/Borgarnesi. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.