Þjóðviljinn - 18.05.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.05.1985, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR Hið kynduga mark Viðars Halldórssonar úr aukaspyrnu utanaf kanti er staðreynd. Stefán Jóhannsson markvörður KR gerir örvæntingarfulla tilraun - en of seint. FH hefur náð forystunni. Mynd: E.ÓI. 1. deild KR-ingar klaufar! 1. deild Einstefna! Fjögur mörk IA áfimm mínútum ÍA-Víðir 7-0 (3-0)*** Mörkin: Árni Sveinsson 29. mín. Sveinbjörn Hákonarson 33.44. mín. Sigurður Lárusson 66. mín. Júlíus P. Ingólfsson 67. mín. Hörður Jóhannesson 69.71. mín. Stjörnur ÍA: Árni Sveinsson ** Guðjón Þórðarson ** HörðurJóhannesson ** Ólafur Þórðarson ** Sigurður Lárusson ** Sveinbjörn Hákonarson •* Heimir Guðmundsson * Júlíus P. Ingólfsson * Karl Þórðarson * Stjörnur Viðis: Gísli Heiðarsson • Sævar Júlíusson • Dómari: Kjartan Ólafsson ** Áhorfendur: 1085 Það var alger einstcfna á Skag- anum í gærkvöldi þegar nýliðar Víðis úr Garði sóttu Islands- og bikarmeistarana heim. ÍA átti leikinn út í gegn og ef allt hefði gengið upp hefðu úrslitin getað orðið 15:0 í stað 7:0 eins og raun- in varð. Frá fyrstu mínútu sýndu Skagamenn afbragðs spil. Þeir unnu hver fyrir annan, með bolta og boltalausir, vinnslan var gífur- leg. Það var bara spurning hve- nær fyrsta markið kæmi, og eftir hálftíma renndi Heimir Guð- mundsson á Árna Sveinsson sem skoraði auðveldlega. Sveinbjörn Hákonarson bætti tveimur við fyrir hlé, fyrst eftir misheppnaða fyrirgjöf Júlíusar Ingólfssonar sem varnarmanni mistókst illi- lega að hreinsa frá, og síðan eftir .góðan undirbúning Guðjóns Þórðarsonar og Árna. Hin fjögur mörkin komu á fimm mínútna kafla um miðjan seinni hálfleik. Fyrst kom það fallegasta, þrumuskalli frá Sig- urði Lárussyni eftir hornspyrnu Karls Þórðarsonar. Strax á eftir fékk Júlíus Ianga sendingu upp vinstri kant og lyfti yfir úthlaup- andi markvörð með þrjá sam- herja í dauðafæri. Loks komu tvö mörk frá Herði Jóhannessyni, eftir fyrirgjafir Sveinbjörns og Guðjóns. Ekkert mark síðan síð- ustu 20 mínúturnar þrátt fyrir áfr- amhaldandi stórsókn ÍA. ÍA fékk ógrynni af færum og ótrúlegt var hvernig sum fóru for- görðum. Víðismenn voru tvisvar nálægt því að skora, Birkir Krist- insson varði frá Guðmundi Jens Knútssyni af markteig er staðan var 2:0 og uppúr því vildu Garðs- búar frá vítaspyrnu. í seinni hálf- leik kastaði Sigurður yfir mark- vörð sinn, Birki, úr innkasti (!) en Jón Áskelsson forðaði marki. Víðisliðið barðist en ekkert kom út úr því. Alltaf var þó reynt en þetta var ekki dagur nýliðanna. Þeir hljóta að geta gert miklu bet- ur. Gísli Heiðarsson markvörður meiddist á 54. mín. og inná kom Sævar Júlíusson. Báðir stóðu sig prýðilega og verða ekki sakaðir um eitt einasta mark. - SV/Akranesi 1. deild Sóttu stíft í lokin en náðu ekki að sigra. Bakdyramark Viðars jafnað með glœsimarki Gunnars KR-ingar voru klaufar að taka ekki með sér öll stigin úr Hafnar- firði í gærkvöldi. Þeir sóttu lát- laust undir lok leiksins en náðu að klúðra öllum sínum færum. Út- koman varð því 1:1, FH og KR gerðu fyrsta jafntcfli íslands- mótsins og það var sanngjarnt þegar á heildina er litið. Mikið var um miðjuhnoð í leiknum en KR-ingar voru á- kveðnari og harðari og áttu snögg upphlaup upp miðjuna. Gunnar Gíslason, besti maður liðsins, var aðaldriffjöðrin í þeim en þau voru ekki nógu markviss. FH- ingar reyndu að halda uppi spili og tókst það að mörgu leyti ágæt- lega en spiluðu helst til of þröngt - nýttu ekki hægri kantinn nógu vel. Framan af biðu menn eftir því 3. deild Selfoss vann í Sandgerði Selfyssingar höfðu þrjú stig á brott með sér úr Sandgerði í gær- kvöldi er þeir léku þar við Reyni í SV-riðli 3. deildar. Hilmar Hólmgeirsson og Gunnar Garð- arsson komu gestunum í 2:0 en Ari Haukur Arason minnkaði muninn fyrir Reyni þegar korter var til leiksloka. Reynismenn sóttu meira í leiknum og áttu m.a. sláarskot. - VS að KR skoraði og það kom heimamönnum því þægilega á óvart þegar Viðar Halldórsson skoraði hálfgert „bakdyramark" úraukaspyrnu utanaf kanti. Stef- án Jóhannsson markvörður KR staðsetti sig of framarlega, ætlaði að fara í fyrirgjöfina, en Viðar skaut markmegin við varnar- vegginn, bakvið Stefán og í autt markið! (sjá mynd). FH lagði niður rófuna eftir markið og KR sótti stíft. Jöfnun- armark lá í loftinu allan tímann og FH-ingar björguðu margoft á síðustu stundu - ætluðu greini- lega að hanga á þessu eina marki. Loks kom markið og það var glæsilegt. Gunnar skaut utan vít- ateigs, í bláhornið niðri, 1:1. FH-ingar tóku aðeins við sér og hristu af sér slenið í smástund en KR-ingar voru beittari í lokin og sóttu stanslaust síðustu tíu mínúturnar - voru klaufar að tryggja sér ekki sigurinn. En - jafntefli í fyrsta 1. deildar- leiknum í Hafnarfirði í fjögur ár. -lg- Naumt Þróttarar töpuðu öðrum leik sínum í röð í gærkvöldi er þeir spiluðu við Val. Valur sigraði eftir að Þróttarar höfðu haft for- ystu í hálfleik, og virtust ekki ætla að láta hana af hendi. Það var frekar óvænt er Páll Ólafsson kom Þrótturum yfir í fyrri hálfleik. Valsmenn voru meir með knöttinn, en mistök í vörninni kostuðu mark. Páll stal af þeim boltanum, brunaði upp frá miðju og skaut öruggu skoti rétt utan vítateig og boltinn rat- aði rétta leið án þess að Stefán Arnarson kæmi nokkrum vörn- um við. Valsmenn fóru að sækja meira eftir markið, en flestar sóknaraðgerðir þeirra voru ó- markvissar og flausturskenndar. Sævar Jónsson átti þó góðan skalla í slá eftir góða fyrirgjöf Guðmundar Þorbjörnss. Boltinn lenti rétt utan marklínu og þar hafði Loftur Ólafsson betur og hreinsaði. Valsmenn hófu síðari hálf- leikinn með hörkusókn sem lauk FH-KR 1-1 (1-0)*** Mark FH: Viöar Halldórsson 32. mín. Mark KR: Gunnar Gíslason 78. mín. Stjörnur FH: Guðmundur Hílmarsson • Halldór Halldorsson * Jón Erling Ragnarsson * Kristján Gíslason • Stjörnur KR: Gunnar Gíslason •* Hannes Jóhannsson • Jakob Pétursson • Willum Þórsson • Dómari: Kjartan Tómasson Áhorfendur 732 Noregur Guðbjöm átti tvö Start malaði Brann á útivelli Frá Markúsi Einarssyni frétta- manni Þjóðviljans í Noregi: Guðbjörn Tryggvason lagði upp tvö mörk fyrir Start í fyrra- dag þegar liðið vann góðan úti- sigur á Brann, liði Bjarna Sig- urðssonar, í norsku 1. deildinni. Brann var yfir í hálfleik, 1:0, en Start skoraði fjögur í þeim seinni, komst hvað eftir annað í gegnum hripleka vörn Brann og sigraði 4:1. Bjarni átti ekki möguleika í fyrstu þrjú mörkin en það fjorða skrifast á hans reikning. Lilleström vann Eik 8:0 og er efst í 1. deild með 7 stig úr 4 leikjum. Rosenborg vann Bryne 3:1 og er með 6 úr 3 leikjum. Valerengen tapaði 0:2 fyrir Molde í lélegum leik sem ég sá og Viking vann Kongsvinger 2:0. Drengjaliðið „Inná þeirra braut“ Tvö ódýr mörk og 2:0 fyrir Skota „Við gerðum þá vitleysu að fara inná sömu braut og Skotarnir, spila með kýlingum og hlaupum, í stað þess að leika okkar bolta og það réð sennilega úrslitum", sögðu drengjalandsliðsmennirnir Heimir Guðjónsson og Þorsteinn Guðjónsson í samtali við Þjóð- viljann í gær. Drengjalandsliðið í knattspyrnu tapaði 2:0 fyrir Skotum í fyrstu umferð úrslitakeppni Evrópumótsins í Ungverjalandi. Skotar voru sterkari í fyrri hálfleik og skoruðu tvívegis á tveimur mínútum rétt fyrir hlé. „Þetta voru ódýr mörk og ef við hefðum sloppið við þau er ég viss um að leikurinn hefði farið öðruvísi. Við sóttum mun meira i seinni hálfleiknum,“ sagði Heimir. Grikkir unnu Frakka 2:0 í sama riðli. „Grikkir léku af mikilli hörku og brutu niður tekniska Frakkana með grófum leik,“ sagði Þorsteinn. ísland leikur við Frakkland á morgun og Grikkir leika við Skota. Sigurliðið í riðlinum kemst í 4-liða úrslitin. - VS hjáVal Valur-Þróttur 2-1 (0-1) *** Mörk Vals: Guðmundur Þorbjörnsson 63. mín. Sævar Jónasson 87. mín. Mark Þróttar: Páll Ólafsson 17. mín. Stjörnur Vals: Hllmar Slghvatsson ** Ingvar Guðmundsson • Magni Pótursson • Stjörnur Þróttar: Ársæll Kristjánsson • Loftur Ólafsson • Páll Ólafsson • Dómari: Baldur Scheving *** Áhorfendur: 562 með skoti yfir frá Ingvari Guð- mundssyni. Sókn Valsara hélt áfram og bar loks árangur er gef- ið var fyrir og varnarmönnum Þróttar mistókst að hreinsa frá. Boltinn barst fyrir markið til Guðmundar sem nýtti tækifærið til fullnustu. Þróttarar vöknuðu við þetta og reyndu að ná forust- unni aftur. Þeir voru nálægt því þegar Jóhannes Eðvaldsson skallaði rétt framhjá eftir fyrir- gjöf Páls. Það voru síðan Vals- menn sem náðu forustunni eftir hornspyrnu Hilmars Sighvats- sonar. Boltinn barst þvert fyrir markið til Sævars sem hafði næg- an tíma. Hann snéri sér og tók knöttinn á lofti og sneiddi hann í hornið fjær. Fallegt mark. Þróttarar áttu nokkur tækifæri á að jafna, en þau runnu öll út í sandinn. Valsliðið var betra nú en á móti Víking og styrkti það vörnina að hafa Magna Pétursson þar. Þó er mikið um mistök og misskilning á milli manna. Þróttarar börðust nokkuð vel, en drógu sig heldur mikið aftur til að reyna að halda fengnum hlut, sem þeir síðan misstu. - gsm Laugardagur 18. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.