Þjóðviljinn - 24.08.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 24. ágúst 1988 188. tölublað 53. árgangur
Efnahagsaðgerðir
Niourfærsla á launum
Kaup á að lœkka um 9% með lögum. Líklega farinn bónarvegurað kaupmönnum og víxlurum.
Jón Baldvin reiðubúinn í niðurskurð: Staðgreiðslan góð til að fylgjast með lögbrotum
Ríkisstjórnin hefur nú fengið
allar tillögur forstjóranefndar-
innar í hendur. Ráðherrar tala á
þann veg að ætla má að þeir séu
reiðubúnir að reyna svokallaða
niðurfærslu. Pá verður byrjað á
launum og fyrirskipað með
lögum að lækka laun um 9%.
Samningsbundin hækkun um
2,5% um næstu mánaðamót yrði
þurrkuð út.
Ekki er talið líklegt að óljósar
hugmyndir um niðurfærsíu á
verðlagi verði bundnar í lög eins
og kauplækkanirnar. Frekar er
búist við að þar verði um að ræða
kurteisleg tilmæli við aðila við-
skiptalífsins. Hætta er á að um-
ræða innan ríkisstjórnarinnar um
vaxtalækkun byggist einnig á
hugmyndum um tilmæli og at-
huganir.
Það vekur athygli að krataráð-
herrar eru ódeigir við að ráðast á
launin. Þeir virðast sumir telja sig
komna í spor Emils heitins Jóns-
sonar 1959. Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra hefur
þó ekki enn tjáð sig opinberlega
um þær fyrirætlanir að hækka
vexti af húsnæðisstjórnarlánum.
í sjónvarpsviðtali í gær setti
Jón Baldvin Hannibalsson fram
þá athyglisverðu skoðun að einn
stærsti kostur við staðgreiðsluk-
erfi skatta væri að nú gætu yfir-
völd fylgst með því að kaup lækk-
aði.
Sjá bls. 3
Sykurmolarnir
Aleiðupp
171. sœti íBandaríkjunum. Komin íhóp 50
söluhœstu breiðskífa. Ný útgáfa afBirthday
vœntanleg
Sykurmolunum, sem nú eru á
hljómleikaferðalagi um Banda-
ríkin, hefur vegnað þar ótrúlega
vel. Plata þeirra Life‘s Too Good
er nú komin í 71. sæti bandaríska
breiðskífulistans eftir að hafa
verið á listanum í 10 vikur. Platan
er einnig komin á lista tímaritsins
Rolling Stone yfir 50 söluhæstu
breiðskífur þar í landi og er í
fyrsta sæti á lista yfir vinsælustu
plötur á útvarpsstöðvum háskól-
anna. Platan hefur nú selst í ná-
lægt 200 þúsund eintökum í
Bandaríkjunum og yfir 90 þús-
und eintökum á Bretlandi.
Tónleikaferðalag hljómsveit-
arinnar sem hófst í lok júlí stend-
ur nú sem hæst. Þau spila næstu 4
kvöld í Los Angeles og halda síð-
an suður á bóginn. Ferðalaginu
lýkur í lok september.
Á mánudaginn kemur út ný út-
gáfa af lagi Sykurmolanna Birth-
day í Bretlandi þar sem hljóm-
sveitin Jesus and the Mary Chain
leikur með þeim.
-iþ.
Sá sem hefur 50 þús. kr. á mánuði
má nú búast við að 4.500 verði klippt-
ar af mánaðarkaupinu. Samnings-
bundin hækkun um 1.250 kr. á mán-
uði, sem átti að taka gildi í næstu viku,
fer einnig fyrir lítið. Trúir því einhver
að útgjöldin hjá þessum launamanni
lækki um 5.750 kr. á mánuði?
Myndlist
Tungumáiið
og fonnm
- Ég hef mjög gaman af því að
prófa að vinna með mismunandi
efni og sjá hvert þau leiða mig, í
stað þess að mála kannski sama
þemað aftur og aftur með sömu
tækni. Hvert efni hefur sitt eigið
„tungumál", segir Kristín María
Ingimarsdóttir, en hún og Jó-
hannes Eyfjörð opna sýningu
Undir pilsfaldinum á laugardag-
inn.
Kristín sýnir málverk og Jó-
hannes skúlptúr, en hann segist
hafa valið skúlptúrinn vegna þess
að hann gefi honum möguleika
að tjá sig í mismunandi formum
og allskyns efnum. - Flest mín
verk eru líka þannig byggð að þau
bjóða upp á ákveðna snertingu,
að fólk skoði þau líka með hönd-
unum.
Sjá síður 8 og 9
Grandi hf.
500 miljónir boðnar
Fyrirtœkin Hvalur, Venus, Hampiðjan og Sjóváfalast
eftir hlut borgarinnar íGranda hf. Tilboðþarað
lútandi kynnt á fundi borgarráðs ígœr
Fyrirtækin Hvalur, Venus,
Hampiðjan og Sjóvá bjóðast til
að kaupa hlutabréf borginnar í
Granda hf. fyrir 500 miljónir
króna, sem er rúmlega tvöfalt
nafnverð bréfanna. Eigið fé fyrir-
tækisins er hins vegar um 500
miljónir. Borgin á um 2/3 hluta-
bréfa í Granda hf.
Tilboð fyrirtækjanna var lagt
fram á fundi borgarráðs í gær til
kynningar en engin afstaða var
tekin á fundinum til tilboðsins.
Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins segist vera í
grundvallaratriðum á móti sölu á
hlut borgarinnar í fyrirtækinu og
þar að auki sé tilboðið allt of lágt.
Sjá síðu 2
Þjónusta
Engin niðurfærsla
Skriða hœkkana farin afstað. 67% hœkkun á
gjaldskrágœsluvalla borgarinnarog20% hœkkun á
dagvistargjöldum hjá Akureyrarbœ
Sjálfstæðismeirihlutinn í borg-
arráði samþykkti í gær gegn at-
kvæði fulltrúa Alþýðubandalags-
ins að hækka gjaldskrá gæsluvalla
borgarinnar um 67%, úr 30 krón-
um í 50. Jafnframt hækka að-
gangskort að gæsluvöllunum úr
600 krónum í 1000. Hækkunin
tekur gildi frá og með næstu mán-
aðamótum. Frá sama tíma hækka
svo dagvistargjöld hjá Akur-
eyrarbæ um 20%.
Sigurjón Pétursson borgar-
fulltrúi mótmælir þessum gjald-
skrárhækkunum á gæsluvöllum
borgarinnar harðlega og átelur
borgaryfirvöld fyrir stóraukna
skattheimtu sem bitnar einna
mest á barnafjölskyldum.
Sjá síðu 2