Þjóðviljinn - 08.09.1988, Síða 3
FRETTIR
Sjónvarpsuppákoma
Fals og hókus-pókus
Forsætisráðherra rœðst harkalega aðformönnum samstarfsflokka sinna. Jón
Baldvin og Steingrímur geta útfœrt sínar hókus-pókus tillögur einir. Útspilfyrir
ríkisstjórnarfundinn í dag. Vill kaupafrest með allsherjarfrystingu
r
Eg tek ekki þátt í neinum hókus-
pókus aSgerðum, þar sem á
að plata verkalýðshreyfínguna
með einhverjum lækkunum sem
enginn getur sagt til um, sagði
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra í sérkennilegu viðtali í
fréttatíma Ríkissjónvarpsins í
gærkvöldi. Þorsteinn skaut föst-
um skotum að formönnum sam-
starfsflokka sinna í ríkisstjórn-
inni og sakaði þá um falsloforð
gagnvart verkalýðshreyfingunni í
umræðum um niðurfærslu launa
og verðlags.
Þá upplýsti forsætisráðherra að
hann hefði á fundi formanna
ríkisstjórnarflokkanna í gær-
morgun lýst því yfir að ef þeir
Steingrímur og Jón Baldvin vildu
halda áfram niðurfærsluleiðinni
með sínum hókus-pókus aðferð-
um, þá mættu þeir gera það á
eigin spýtur.
Steingrímur Hermannsson
brást hart við yfirlýsingum for-
sætisráðherra og sagðist afar
undrandi á að heyra hann segja
þetta. Samkomulag hefði verið
um að láta ekkert berast út frá
fundi formannanna í gærmorgun
fyrr en niðurstöður ríkisstjórnar-
fundar í dag lægju fyrir.
Þorsteinn Pálsson veittist eink-
um harkalega að Jóni Baldvin
Hannibalssyni í sjónvarpsviðtal-
inu og sagði hann bera ábyrgð á
því að niðurfærslan reyndist
ófær, með því að kynna öllum að
óvörum aðrar leiðir á samráðs-
fundi með fulltrúum Alþýðu-
sambandsins.
Jón Baldvin var hógvær í við-
brögðum sínum við yfirlýsingum
Þorsteins og sagðist hafa kastað
fram nýjum hugmyndum um
millifærslu og frystingu verðlags
þegar sýnt var að niðurfærslan
var komin í strand. Hann lagði
áherslu á að menn hlypu ekki frá
vandanum og sagðist vona að
ríkisstjórnin lifði af daginn í dag.
Forystumenn í Alþýðuflokki
og Framsóknarflokki sem Þjóð-
viljinn ræddi við í gærkvöldi
sögðu að viðtalið við Þorstein í
sjónvarpinu hefði verið sérp-
öntuð uppákoma í þeim tilgangi
að stilla samstarfsflokkunum upp
við vegg fyrir ríkisstjórnarfund-
inn í dag, þar sem Þorsteinn ætlar
að leggja fram nýjar hugmyndir
um lausn efnahagsvandans. Þær
tillögur munu m.a. fela í sér fryst-
ingu launa og verðlags fram á
næsta ár, til að gefa stjórninni
ráðrúm til að koma fram fjárlaga-
frumvarpi fyrir þingbyrjun og
tíma til að útfæra frekari efna-
hagsaðgerðir.
-Ig-
UMFÍ
Ekki út-
lendan bjór
Á stjórnarfundi Ungmennafé-
lags íslands sem haldinn var í
Djúpuvík á Ströndum um síðustu
helgi var samþykkt að skora á Al-
þingi og ríkisstjórn að leyfa ekki,
amk. til að byrja með, sölu á
sterkum bjór sem framleiddur er
erlendis.
Bendir Ungmennafélagið í
samþykkt sinni á þá hættu sem
óbeinar auglýsingar öflugra er-
lendra bjórframleiðenda geta
haft á neyslu sterks öls.
Ríkisstjórnin
Minnihlutastjóm
eða nýjar viðræður?
Kreppan i ríkisstjórninni gefur vœngiýmsum
öðrum munstrum. Kosningar ekki líklegar
Kreppan í ríkisstjórninni síð-
ustu daga hefur elnað mjög
eftir því sem lengra líður á vik-
una, og þeir stjórnmálamenn sem
Þjóðviljinn ræddi við í gær innan
og utan stjórnar eru farnir að spá
í ýmsa möguleika.
Þrátt fyrir útspil Þorsteins Páls-
sonar í gærkvöldi er sennilegast
að forystumenn flokkanna
þriggja reyni enn einu sinni að
telja uppað tíu og ná sér saman.
Einn stjórnarliða orðaði það
þannig í gær að hjónarifrildi væri
ekki það sama og lögskilnaður
hversu ákaft sem það kynni að
hljóma. Hitt dylst engum að ekki
þarf stóra þúfu í veginn í dag og
næstu daga.
Það er dægramunur á stöðunni
í stjórnarsamstarfinu. í augna-
blikinu virðast línurnar liggja
milli Sjálfstæðisflokks annars-
vegar og hinsvegar Framsóknar-
flokks og Alþýðuflokks. Það sem
ráðið getur úrslitum er hversu
langt hefur skilið milli Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks, Þor-
steins og Jóns Baldvins, en sam-
bandið þar á milli er sá öxull sem
stjórnarsamstarfið var byggt á.
Framkoma Þorsteins í sjón-
varpinu í gær gaf til kynna að
hann hafi klippt á tengslin, - og ef
hann segir í dag það B sem A hans
í gærkvöldi gerir ráð fyrir gætu
orðið stjórnarslit. Fæstir gera ráð
fyrir kosningum nema sem neyð-
arúrræði, en í gær voru á sveimi
hugleiðingar um minnihlutast-
jórnir, til dæmis Framsókn og Al-
þýðuflokkur, sem leitaði stuðn-
ings eitthvað frammá næsta ár.
Haldist sæmileg samstaða þar á
milli má ímynda sér ýmsa stjórn-
arkosti sem ekki komu til greina
meðan samvinna Alþýðu- og
Sjálfstæðisflokks var órofa.
Heimildarmenn Þjóðviljans
segja þó ekki frá neinum þreif-
ingum við stjórnarandstöðu-
flokkana nema venjulegu kunn-
ingjaspj alli og kaffibollaspádóm-
um, en bent er á að hvorki Borg-
araflokkur né Kvennalisti hafa
útilokað nýja stjórn án kosninga,
og Alþýðubandalagsmenn ekki
heldur skellt hurðinni með öllu
þrátt fyrir kröfur sfnar um stjórn-
arslit og kosningar. _m
Dyravörður frá Hótel íslandi stóð í gær við umferðarstjórn í Ármúlan-
um. mynd E.ÓL
Kynningar
Hótel
ísland
ilmaði
Christian Dior eyddi
miljónum ígœr til að
kynna nýtt ilmvatn á
Hótel íslandi
Um þrjúhundruð boðsgestir
þefuðu af nýju ilmvatni sem
snyrtivörufyrirtækið Christian
Dior kynnti með pomp og pragt á
Hóteli íslandi í gærkvöldi.
Að sögn eins starfsmanns Hót-
el íslands er ljóst að þessi kynn-
ing kostaði miljónir. Flestu var
umturnað innanhúss og tjaldað
yfir vinnupalla utanhúss.
Þeim hluta Ármúlans sem Hót-
el ísland stendur við var tvívegis
lokað fyrir allri umferð í gær-
kvöld vegna þessarar kynningar.
Að sögn lögreglunnar er ekkert
mál að fá slíkt leyfi.
Starfsstúlka á Hótel íslandi
sagði að flestir boðsgestanna
hefðu verið íslenskir. Ekki vitum
við hvernig gestum líkaði hið
nýja ilmvatn, en einn starfsmann-
anna sagði þegar hann var spurð-
ur hvort góð lykt væri húsinu:
Nei, hún er vond. -SS
Ríkisstjórnin
Allt komið í klessu
Framkvœmdastjóri Framsóknarflokksins: Þorsteinn stillti
niðurfœrslunniþannig upp að ASÍhafnaði henni. Áhrifamaður í
Sjálfstœðisflokknum: Ríkisstjórnin lifir, hótanir Steingríms leka niður
Hrossasalan
Útflutn-
ingsmet
400 reiðhross úr landi
í fyrrahaust tók Félag hrossa-
bænda í sínar hendur að skipu-
leggja útflutning á lifandi hross-
um. Á þessu ári hafa þegar verið
flutt út 400 reiðhross. Stefnir
þannig í metútflutning annað árið
í röð.
Verðlagsárið 1987/88 voru 244
sláturhross flutt út með skipi.
Skilaði sá útflutningur grundvall-
arverði fyrir kjötið þegar
greiddar höfðu verið útflutnings-
bætur, sem námu flutnings-
kostnaði. Að því er stefnt að fá
400 hrossa flutningaskip í haust.
Ekki sýnist áhorfsmál fyrir bænd-
ur að nýta sér þá möguleika sem
þarna eru fýrir hendi. -mhg.
Sigurður Geirdal, fram-
kvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins, segir Þorstein Pálsson
forsætisráðherra hafa stillt
niðurfærslunni þannig upp að
ASÍ myndi örugglega hafna
henni. Hann hefur enga trú á að
Þorsteinn komi fram með tillögur
í dag og gefur ríkisstjórninni 4
daga. Áhrifamaður í Sjálfstæðis-
flokknum sem ekki vill láta nafns
síns getið segir hótanir Steingríms
Hermannssonar, formanns
Framsóknarflokksins, leka niður
eins og blautar tuskur.
Þessi Sjálfstæðismaður sagði
Steingrím alla tíð hafa verið með
voðalegar upphrópanir en hann
hefði að sama skapi verið dug-
legur við að éta þær ofan í sig
aftur. Fjármálaráðherrann hefði
aðallega verið upptekinn við að
halda veislur fyrir sendiráðsfrýr
og væri í algerri sálarkreppu með
fjárlögin sem væru með 3,5 milj-
arða halla. Best væri að fá ærlega
vinstristjórn þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn yrði helst einn í
stjórnarandstöðu svo hann gæti
svo hirt sín 50% kjósenda eftir 20
mánaða setu vinstristjórnarinn-
ar. „Annars held ég að stjórnin sé
ekkert á leiðinni frá, það er ekki
nálægt því komin sú spenna sem
þarf til þess,“ sagði þessi ónefndi
Sjálfstæðismaður.
Sigurður Geirdal sagði að það
yrðu mikil og skemmtileg nýmæli
ef Þorsteinn mætti með tillögur í
efnahagsmálum í dag. Hann
hefði oft sagst vera með tillögur í
efnahagsmálum en hvar væru
lausnirnar? „Við höfum sagt nið-
urfærsluna færa ef hún yrði látin
ganga yfir alla. Það þýðir ekkert
að lækka laun og senda svo bæn-
askjal til braskaranna," sagði Sig-
urður. Völdin í Sjálfstæðis-
flokknum lægju hjá þeim sem
væru ánægðir með núverandi
ástand og vildu halda áfram að
græða á grisjun með uppboðum
svo þeir gætu fengið eignir á
spottprís.
Sigurður sagði það ráðast á
næstu 4 dögum hvort slitnaði upp
úr stjórnarsamstarfinu. Þing-
flokkur og framkvæmdastjórn
Framsóknarflokksins koma sam-
an til fundar í dag. -hmp
Fimmtudagur 8. september 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3