Þjóðviljinn - 08.09.1988, Qupperneq 7
VIÐHORF
Eini f lokkurinn með
efnahagstillögur
Tillögur forstjóranefndarinnar eða leið Alþýðubandalagsins
Svavar Gestsson skrifar
Eftir vinnufund Alþýðubanda-
lagsins á Hallormsstað í síðustu
viku liggur fyrir að Alþýðu-
bandalagið er eini þingflokkurinn
sem hefur mótað heildstæðar til-
lögur um aðgerðir í efnahagsmál-
um.
Grundvallaratriðin eru þessi:
1. Að ekki verði um að ræða
kjaraskerðingu.
2. Að lækkun vaxta og tilkostn-
aðar atvinnuvega og heimila
verði framkvæmd í stað geng-
islækkunar.
3. Að gróðaöflin verði látin gefa
eftir af sínum hlut.
Enginn stjórnarflokkanna hef-
ur lagt fram heildstæðar tillögur í
efnahagsmálum og hinir stjórn-
arandstöðuflokkarnir ekki held-
ur. Eina tilllagan um efna-
hagsmál sem liggur fyrir frá öðr-
um aðilum í þjóðfélaginu er til-
laga forstjóranefndarinnar um
kjaraskerðingu sem gerir meðal
annars ráð fyrir því að lækka elli-
og örorkulífeyri og um leið að
auka gróðasvigrúm hlutabréfa-
eigenda frá því sem nú er.
Aðalatriði
okkar tillagna
Aðalatriði tillagna okkar eru
þessi:
1. Að vextir verði lækkaðir
þannig að raunvextir verði
aldrei hærri en 3%.
2. Að dregið verði með skipu-
lögðum hætti úr tilkostnaði at-
vinnuvega og heimila.
3. Að lagðir verði á skattar upp á
2500 til 3000 milj. kr. til þess
að standa undir nauðsyn-
legum ráðstöfunum meðal
annars þeirri lækkun kostnað-
ar sem gert er ráð fyrir skv.
tölulið tvö.
Afleiðingar
tillagnanna
Helstu afleiðingar tillagna
okkar yrðu sem hér segir.
1. Kostnaður útflutningsat-
vinnuveganna minnkar.
Þannig batnar staða fryst-
ingarinnar um 4-5%.
2. Fjármagnsútgjöld íbúðar-
eigenda minnka verulega.
Miljón króna lán tekur nú á sig
90-120 þúsund krónur á ári
samkvæmt tillögum Alþýðu-
bandalagsins.
3. Verðlag lækkar vegna þess að
vaxta kostnaður fyrirtækj-
anna er verulegur hluti verð-
myndunarinnar.
4. Gróði fjármagnseigenda á
gráa markaðnum minnkar.
5. Staða atvinnuvega og heimila
batnar auk þess vegna þess að
kostnaður lækkar almennt, en
einnig er gert ráð fyrir sér-
stakri lækkun á einstökum
kostnaðarliðum eins og farm-
gjöldum og rafmagni. Orku-
kostnaður er til dæmis nú um
2,5-3% af rekstrarkostnaði
frystingarinnar.
Hverjir borga?
Hverjir borga? Samkvæmt til-
lögum Alþýðubandalagsins
verða lagðir á skattar sem hér
segir:
„Samkvœmt tillögum Alþýðubandalagsins er
gert ráðfyrirþvíað stórgróðaöflin verði látin
borga brúsann en samkvœmt tillögum
forstjóranefndarinnar er gert ráðfyrir því að
auka enn á gróðasvigrúm fjármagnsaflanna
Bankaeftirlit
Sjóðum Ávöxtunar slitið
Skilanefnd reynir að koma eignum sjóðanna í verð. Hefurfall
Avöxtunar íraun styrkt verðbréfamarkaðinn, eða stendur
hann á brauðfótum?
Igær ákvað Bankaeftirlit Seðla-
bankans að hagsmunum
eigenda fjármuna í sjóðum
Ávöxtunar sf., þ.e. Verðbréfa-
sjóði Ávöxtunar hf. og Rekstrar-
sjóði Ávöxtunar hf., yrði best
borgið með því að hluthafafundir
sjóðanna ákvæðu að slíta félögu-
num. Hluthafafundir sjóðanna
ákváðu að hlíta þessum úrskurði
Bankaeftirlitsins og félögum sjóð-
anna var slitið í gær. Voru kosnar
skilanefndir á fundunum til að
koma eignum sjóðanna í verð og
úthluta fjármunum til kröfuhafa.
Þar með var fallið frá þeirri hug-
mynd sem áður hafði verið hreyft
að aðrir verðbréfasjóðir eins og
t.d. Kaupþing eða Fjárfesting-
arfélagið tækju að sér rekstur
sjóða Avöxtunar.
Það er skilanefndin sem hefur
það hlutverk að koma eignum
sjóðanna í verð, en í henni sitja
Gestur Jónsson hrl., Ólafur Ax-
elsson hrl. og Símon Gunnars-
son, löggiltur endurskoðandi. Er
við því að búast að þeir verði
önnum kafnir við að svara
símhringingum órólegra við-
skiptavina Ávöxtunar nú á næstu
dögum.
Það mun því væntanlega ganga
eftir sem Þjóðviljinn skýrði frá,
að með sölu á eignum sjóðanna
tapaði fjöldi viðskiptavina þeirra
fjármunum, sennilega nálægt 100
miljónum króna. Það mat kunn-
áttumanns um verðbréfasjóði
áætlaði að um 20% inneignar
sjóðanna ætti að nást í verð á
næstu 4-5 mánuðum og eftir 4-5
ár mætti ímynda sér að um 50%
sjóðanna hefðu skilað sér til nú-
verandi viðskiptavina. Líklegast
var talið að um 60-75% af fjár-
hæðum sjóðanna, sem taldar eru
vera um 360 miljónir, næðust út á
endanum. Því myndu tapast upp-
hæðir á bilinu 90-140 miljónir
króna, vegna rekstrarstöðvunar
Ávöxtunarsjóðanna. Þetta mat
er byggt á innsýn í uppbyggingu
verðbréfasjóða, hversu mistrygg-
ar kröfur sjóðanna geta verið og
hversu langan tíma kann í raun að
taka að losa peningana, verði allt
í einu stopp á flæðinu.
Ekki virðist laust við að for-
ráðamenn hinna stærri sjóða telji
fall Ávöxtunar sér til framdrátt-
ar, þótt á óbeinan hátt sé. Yfirlýs-
ingar þeirra Péturs Blöndals og
Gunnars Helga Hálfdánarsonar
hafa beinst í þá átt, að markaður-
inn hafi styrkst því nú viti allir
hver veiki hlekkurinn hafi verið.
Þótt þetta megi til sanns vegar
færa, má ekki gleyma því að
verðbréfasjóðir eru ekki ríkis-
tryggðir og engar fjármálastofn-
anir þola útstreymi fjármagns
vegna óeðlilegra innlausna meir
en nemur nokkur hundruð milj-
ónum og sumar eflaust mun
minna. Reynslan hefur sýnt að
slíkar kröfur geta verið fljótar að
hrannast upp. í því sambandi má
minna á að eigið fé Fjárfestingar-
félagsins er aðeins 110 miljónir
króna, þrátt fyrir að það fé sem
það hefur bundið tii ávöxtunar
nemi 2,3 miljörðum króna. Eigið
fé Kaupþings er aðeins 38 miljón-
ir króna, en í sjóðum þess liggja
bréf til ávöxtunar sem svarar ein-
um miljarði króna. -phh
Fimmtudagur 8. september 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
1. Á vaxtatekjur umfram verð-
tryggingu.
2. Á banka og peningastofnanir
3. Á fjárfestingu á þenslu-
svæðum.
4. Á stóreignir.
5. Lagt verði á nýtt skattþrep á
hátekjur.
Allt önnur leið
Á næstu vikum verður að tak-
ast á um það hvor leiðin verður
farin leið Alþýðubandalagsins
eða forstjóranefndarinnar. Ber-
um að lokum saman grundvallar-
atriði þessara tillagna - Alþýðu-
bandalagsins og forstjóra-
nefndarinnar:
Leið Alþýðubandalagsins
byggist á því að verja launin en
forstjóranefndin gengur út frá því
að launin verði lækkuð.
Samkvæmt tillögum Alþýðu-
bandalagsins er gert ráð fyrir því
að dregið verði úr kostnaði at-
vinnuveganna meðal annars með
raunvaxtalækkun en tillögur for-
stjóranefndarinnar og umræður
innan ríkisstjórnarinnar byggjast
ekki á þeirri forsendu að um
raunvaxtalækkun verði að ræða.
Samkvæmt tillögum okkar er
gert ráð fyrir því að treysta félags-
lega þjónustu en engu að síður
því að halda rikissjóði í jafnvægi.
Tillögur forstjóranefndarinnar
gera ráð fyrir því að reka 1000
ríkisstarfsmenn og að skera niður
ellilífeyri og þannig að ná jöfnuði
í ríkisfjármálum.
Samkvæmt tillögum okkar
geta útflutningsatvinnuvegimir
gengið með eðlilegum hætti - þar
er með öðrum orðum komið í veg
fyrir atvinnuleysi.
Samkvæmt tillögum Alþýðu-
bandalagsins er bent á leiðir til
þess að draga úr viðskiptahalia en
tillögur forstjóranefndarinnar
ganga út frá því að áfram verði
um viðskiptahalla að ræða sem
þýðir áframhaldandi aukningu
erlendra skulda.
Samkvæmt tillögum Alþýðu-
bandalagsins er gert ráð fyrir því
að stórgróðaöflin verði látin
borga brúsann en samkvæmt til-
lögum forstjóranefndarinnar er
gert ráð fyrir því að auka enn á
gróðasvigrúm fjármagnsaflanna.
Með öðrum orðum: Grund-
vallarmunur. Ef nú færu fram
kosningar yrði kosið um tillögur
forstjóranefndarinnar eða leið
Alþýðubandalagsins.
Auglýsing
um endurgreiðslu söluskatts af
ábyrgðartryggingu ökutækja í eigu
fatlaðra
Samkvæmt heimild í lögum um söluskatt hefur
ráðuneytið gefið út reglugerð um endurgreiðslu
söiuskatts af iðgjöldum ábyrgðartryggingar bif-
reiða í eigu fatlaðra.
Rétt til endurgreiðslu eiga þessir:
1. Örorkulífeyrisþegar (75% örorkumat eða
meira).
2. örorkustyrkþegar lífeyristrygginga og slysa-
trygginga (50-74% örorkumat).
3. Foreldrar barna sem njóta barnaörorkustyrkja
samkvæmt lögum.
4. Foreldrar barna sem njóta greiðslna sam-
kvæmt lögum um málefni fatlaðra.
Umsóknir um endurgreiðslu skulu skráðar á
eyðublöð sem Tryggingastofnun ríkisins lætur í
té. Með umsókn skulu fylgja kvittanir trygginga-
félags fyrir greiðslu iðgjalds ábyrgðartryggingar.
Nánari upplýsingar og eintak reglugerðar má fá
hjá Tryggingastofnun ríkisins og umboðum
hennar.
Reykjavík, 6. september 1988
Fjármálaráðuneytið
Auglýsið í Þjóðviljanum