Þjóðviljinn - 08.09.1988, Qupperneq 11
ÍÞRÓTTIR
Evrópukeppnin
ÍAgegn
Ung-
verjum
Síðasti leikur íslenskra liða í
Evrópukeppninni í bili verður í
kvöld þar sem Skagamenn leika
gegn ungverska liðinu Újpesti
Dozsa. Lið þetta er næsta óþekkt
hér á landi en er orðið 103 ára
gamalt.
Lið þetta hefur 18 sinnum orð-
ið ungverskur meistari, síðast
árið 1979. Pá hefur liðið 6 sinnum
orðið bikarmeistari en síðast
vann það bikarinn árið 1986. Uj-
pesti Dozsa lék til úrslita í UEFA
keppninni árið 1969 en tapaði þá
fyrir enska liðinu Newcastle. Pá
tapaði liðið í undanúrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa 1974 fyrir
Bayern Munchen.
Enda þótt liðið sé ekki sérlega
þekkt hér á landi leikur það góða
knattspyrnu eins og lið frá
Austur-Evrópu gera gjarnan.
Það er því ekki ólíklegt að leikur-
inn á Skaganum verði góður og
hver veit nema heimamönnum
takist að velgja Ungverjum undir
uggum. _þóm
Þorsteinn Þorsteinsson er hér í harðri baráttu í leiknum í gær, en harðir Spánverjar sýndu bestu knattspyrnu sem sést hefur hér á landi í haust.
Evrópukeppnin Mynd: E 01
Handbolti
Landsleikir
við Dani
íslenska landsliðið leikur í dag
og á morgun sína síðustu leiki
áður en liðið heldur til ólympíu-
leikanna í Seoul. Danir koma í
heimsókn og verða báðir leikirnir
í íþróttahúsi Seljaskóla kl. 20.15.
Þar sem sætapláss er ekki
mikið í Seljaskóla verður miða-
fjöldi á leikinn takmarkaður og
hefst miðasala báða dagana kl.
16.00. Miðaverð er kr. 800 fyrir
fullorðna en kr. 200 fyrir börn.
Landsleikir íslendinga og
Dana hafa jafnan verið mjög
skemmtilegir. Liðin hafa leikið
51 landsleik og hafa Danir vinn-
inginn, hafa unnið 29 leiki, ís-
lendingar 17, en 5 leikjum hefur
lyktað með jafntefli. íslendingar
hafa verið betri aðilinn nú í seinni
tíð en Danir eru að byggja upp
landslið fyrir b-keppnina í vetur.
-þóm
Frábærir Spánverjar
Framarar áttu við ofurefli að etja og töpuðu 0-2 þráttfyrir ágœt tilþrif
Johan Cruyff greinilega á réttri leið með stórliðið frá Katalóníu
vamarmenn Barcelona áttu alla
skallabolta í vítateig sínum.
Fram tapaði fyrri leik sínum við spænsku snillingana Barcelona
þrátt fyrir hetjulega baráttu. Spánverjarnir léku geysilega vel og voru
hreinlega í allt öðrum gæðaflokki en nýbakaðir íslandsmeistararnir, og
sást það reyndar glöggt í þessum leik hve slakir Frakklandsmeistarar
Monaco voru í gær. Það var Roberto Fernandez sem skoraði bæði
mörk leiksins, sitt í hvorum hálfleik, en sigur Börsunga var aldrei í
verulegri hættu.
Róleg byrjun
Leikurinn fór mjög rólega af
stað og reyndu bæði liðin eftir
mætti að byggja upp spil. Spán-
verjarnir gerðu Frömurum
gjarnan lífið leitt með því að
„dekka“ vel upp í öll svæði og
pressa vel á spil Framara. Ehnir
bláklæddu reyndu þó ávallt að
spila sinn alþekkta bolta og gekk
misjafnlega en varla er hægt að
segja að Börsungum hafi orðið
nokkuð betur ágengt til að byrja
með.
Þá vita þeir sem fylgst hafa með
spænskri knattspyrnu að þeir
brjóta oft af sér á leiðinlegan hátt
og fengu Framarar stundum að
finna fyrir því. Þeir brutu sérstak-
lega oft af sér á miðjum vallar-
helmingi sínum og stöðvuðu
þannig væntanlegar sóknir Fram.
Aukaspyrnur Framara sem
fylgdu í kjölfarið báru hins vegar
ekki árangur þar sem hinir sterku
Tvö mörk Fernandez
Mörkin tvö sem færði Barce-
lona sigurinn voru ekki ýkja
merkileg, en engu að síður vel að
þeim staðið. Framarar misstu
boltann úti á velli og var refsað
með snörpum sóknum sem end-
uðu báðar með því að Roberto
Fernandez skoraði örugglega.
Fyrra markið gerði hann á 33.
mínútu en þá léku Spánverjarnir
vinstra megin í gegnum Fram-
vörnina. Sóknin var mjög snögg,
aðeins ein snerting hjá hverjum
leikmanni, og á endanum var
Fernandez í dauðfæri á markteig
og átti ekki í nokkrum vand-
ræðum með að skora.
Sagt eftir leik
Eins og við var að búast
Asgeir Elíasson
Við unnum vel í þessum leik og
ég er ánægður með vinnsluna í
liðinu en það var einfaldlega ekki
nóg vegna þess að við áttum við
ofurefli að etja. Þeir gáfu okkur
ekki tíma til að spila og kannski
vantaði dálítið hugrekki í strák-
ana. Ég var búinn að sjá Barce-
lona spila, við vissum ná-
kvæmlega út í hvað við vorum að
fara og þeir komu því ekki á óvart
með góðum leik sínum. Okkar
besti séns var sennilega þegar
Pétur var kominn inn fyrir vörn
þeirra en var stöðvaður og hefði
gjaman mátt gefa spjald fyrir það
brot. Aðdragandi markanna var
kannski klaufalegur en við vorum
þá að reyna að spila úti á velli því
við fórum í þennan leik með því
hugarfari að spila góða knatt-
spymu. Við eigum varla nokkurn
möguleika á að komast áfram en
maður vonar bara það besta-
Johan Cruyff
Þetta em mjög góð úrslit sem
náðust með því að spila okkar
leik. Framarar gerðu hvað þeir
gátu en við gáfum þeim lítið
svæði til athafna. f þeirra liði
fannst mér nr. 4 (Pétur Ormslev)
og nr. 5 (Viðar) bestir. Mitt lið er
hins vegar á réttri leið en fjórir
leikmenn em enn ekki komnir í
form vegna meiðsla, þar á meðal
Lineker sem á um 3 vikur eftir í
sitt gamla form. Síðari leikurinn
verður alls ekki auðunninn enda
eru allir leikir teknir alvarlega.
Pétur Ormslev
Þetta var alveg eins og mátti
búast við og ég er ekkert voða-
lega svekktur. Mörkin vom
kannski ekkert sérstök en við
þeim mátti alvegeins búast. Þetta
lið þeirra er mjög sterkt og það
var gaman að takast á við þá, en
það er mikill munur á þessum
tveimur liðum og allur skilningur
þeirra á leiknum miklu betri. Við
reyndum að spila okkar samieik
en þeir pressuðu vel á okkur
framarlega á vellinum þannig að
Birkir var farinn að sparka bolt-
anum meira út en venjulega og þá
áttum við erfitt með að vinna
boltann. Við ætluðum okkur að
halda hreinu og helst að skora
mark líka. Það tókst ekki að sinni
en það kemur dagur eftir þennan
dag.
Arnljótur Davíðsson
Ég er ekki sáttur við leikinn.
Það er sama hver mótherjinn er,
ég sætti mig aldrei við tap. Þetta
var alveg rosalega gott lið, þeir
vom mjög teknískir og spiluðu
vel. Vörnin var mjög góð hjá
þeim og maður þurfti að hlaupa
mikið, en Barcelona er besta lið
sem ég hef Ieikið við. Liðið er
samt alveg eins og við bjuggumst
við og við verðum að reyna að ná
góðum úrslitum í seinni leiknum
enda þótt það sé hæpið að gera
eitthvað stórkostlegt.
Gary Lineker
Ég er að sjálfsögðu ánægður
með sigur liðsins því aðstæður
vom ekki góðar. Fram lék oft
ágætlega en hefði getað gert bet-
ur í leiknum, þannig að leikmenn
liðsins em sennilega óánægðir
með úrslitin. Ég sjálfur er ekki í
nógu góðri æfingu og á svona
tvær vikur í að komast í gott
form. Það verður erfitt fyrir alla
leikmenn Barcelona að halda
sæti sínu í liðinu því það er mikil
samkeppni meðal leikmanna. Ég
mun reyna að vera í liðinu og er
alls ekki á förum því ég er mjög
ánægður í Barcelona.
-þóm
Seinna markið kom síðan á 57.
mínútu en þá fékk hann boltann á
vítateig og skaut síðan mjög góðu
skoti efst í markhornið þannig að
Birkir átti ekki möguleika á að
verja.
Spánverjum sleppt
fyrir horn
Síðari hálfleikur var mun tíð-
indameiri og áttu bæði liðin ágæt-
is marktækifæri. Besta tækifæri
Framara var á 64. mínútu þegar
Pétur Ormslev var kominn á al-
gerlega auðan sjó fyrir innan
vöm Barcelona en Jose Alexanco
stöðvaði hann með broti. Öllum
til mikillar furðu dæmdi dómar-
inn aðeins aukaspyrnu en gaf Al-
exanco ekki einu sinni gult
spjald. Svona brot á tvímælalaust
að spjalda því færin gerast ekki
mikið betri og þarna sluppu
Spánverjar svo sannarlega með
skrekkinn.
Um tíu mínútum síðar komst
Arnljótur Davíðsson skemmti-
lega inn í vítateig Barcelona en
féll við án þess að nokkuð væri
dæmt. Mér er þó til efs að brotið
hafi verið á Arnljóti en hann
hefði getað sent boltann á Pétur
Ormslev sem var einnig inni í
teig. Síðustu mínúturnar héldu
Spánverjamir fengnum hlut og
fátt markvert gerðist.
Engin skömm
Framarar þurfa ekki að
skammast sín fyrir þennan leik.
Barcelona er gífurlega sterkt lið
og verður gaman að fylgjast með
gengi þess í vetur. Pétur Ormslev
átti góðan leik með Fram og þá
vom þeir Viðar Þorkelsson, Pét-
ur Arnþórsson og Amljótur Dav-
íðsson ágætir en enginn Framara
átti slakan leik, hversu furðulega
sem það kann að hljóma. Það var
ánægjulegt að sjá Framliðið
reyna að spila fallega knatt-
spymu en ekki tóman varnarleik
eins og oft vill bregða við hjá ís-
lenskum liðum gegn slíkum stór-
liðum.
-þóm
Fimmtudagur 8. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11