Þjóðviljinn - 08.09.1988, Qupperneq 14
Mikið helvíti getur hann Lúðvík
fréttastjóri úr Hafnarfirðinum
verið baldinn. Laust fyrir hádegi í
gær hringdi hann hér niður í
kompuna til mín og fór f ram að ég
skrúfaði saman pistil á
fjölmiðlasíðu morgundagsins.
Og því endilega fyrir
morgundaginn, spurði ég? Jú, til
þess að fólk, sem hefur verið að
spyrja eftir þér viti, að þú ert
tórandi og byrjaður að starfa hér
við blaðið á ný. Mér fannst það nú
ekki skipta neinum sköpum fyrir
þjóðina hvort sú vitneskja bærist
henni einum degi fyrr eða seinna.
Auk þess benti ég
fréttastjóranum á, að ef hann vildi
vera svo lítillátur að birta eitthvað
af fréttunum, sem ég hef verið að
tína í hann, þá gæfi þaö tilvist
mína nógsamlega til kynna.
Að vísu eru þær einkum f rá
nýafstöðnum aðalfundi
Stéttarsambands bænda, sem
að þessu sinni var haldinn í
húsakynnum Menntaskólans á
Akureyri, en engu ómerkari fyrir
það. Það er nefnilega mikill
misskilningursem sumt
fjölmiðlafólk er haldið - og held
ég verði nú samt að undanskilja
Lúðvík, - að allur þorri
þjóðarinnar láti sig málefni
bændastéttarinnar engu skipta
og telji jafnvel að „öxín og jörðin"
geymi þástétt best. Þettafinnum
við vel ef við gerum okkur það
ómak að taka tali fólk úti á landi,
ekki bara bændurog þeirra
skyldulið, heldurhvern sem er.
Sveitirnarog þéttbýlisstaðirnirút
um land eiga nefnilega sömu
hagsmuna að gæta, eins iíf er þar
annars líf. Og fjari líf dreifbýlisins
út þá er höfuðborginni sjálfri
hætt, jafnvel þótt hún komi sér
upp ráðhúsi íTjörninni og
hringleikahúsi uppi á Öskjuhlíð.
Þetta skilja fjölmargir
Reykvíkingar, það veit ég af
viðtölum viðfólk, og það þótt þeir
séu raunar meira nærðir á
glórulausum ofstækisskrifum en
vitrænni umræðu um þessi mál.
Jæja, til þess nú að þóknast
Lúðvík fréttastjóra varð ég
náttúrlega að leggja til hliðar það
verkefni, sem ég var að vinna að,
- og þótti þó engan veginn gott.
En hvað leggur maður ekki á sig
fyrir vini sína? Og þar með slæ ég
botninn í þennan pistil og tel mig
hér með hafa orðið við þeim
tilmælum Lúðvíks að láta
lesendur blaðsins vita að ég sé
enn meðlífsmarki.
- mhg
ídag
er8. september, fimmtudagurí
tuttugustu og fyrstu viku sumars,
sautjándi dagurtvímánaðar, 252.
dagur ársins. Sól kemur upp í
Reykjavík kl. 6.31 en sest kl.
20.18. Tungl minnkandi á fjórða
kvartili.
UM UTVARP & SJONVARP
Einka-
spæjarar
á ferð
Ást og spenna
Ðitl Cosby og Robert Culp leika
harðsvíraða einkaspæjara í leit
að horfinni stúlku, í myndinni
„Hickey og Boggs.“
Annar þátturinn um afþreying-
arbókmenntir, er á dagskrá rásar
1 klukkan 22:30 í kvöld. Þá verð-
ur litið inn í ævintýraheim ásta-
og spennusagna, sem fá án efa
marga til að gleyma hversdags-
leikanum um stund.
í þættinum verður m.a. litið á
úrval afþreyingarbókmennta í
sjoppum og rætt við Gunnar
Gunnarsson rithöfund. Einnig
verður talað við starfsmann á
bókasafni og útgefanda vasa-
brotsbóka. Þættirnir heita
„Ævintýri nútímans og er um-
sjónarmaður þeirra Anna Mar-
grét Sigurðardóttir.
Stöð 2 sýnir klukkan 22 kvik-
myndina „Hickey og Boggs“. Þar
er hægt að sjá Bill Cosby spreyta
sig í öðru hlutverki, en sem lækn-
ir og fyrirmyndarfaðir.
í myndinni segir af 2 harðsvír-
uðum einkaspæjurum, sem þeir
Bill Cosby og Robert Culp leika.
Þeir félagar eru ráðnir af dular-
fullum manni til að hafa upp á
stúlku, sem horfið hefur spor-
laust. Við leitina rekast þeir á
hvert líkið eftir annað, af fólki
sem hugsanlega er viðriðið hvarf-
ið og málið greinilega ekki eins
einfalt og í fyrstu var látið.
í finnsku myndinni um bjórinn, segir að á eftir mannskepnunni sé bjórinn iðnastur dýra við að breyta
landinu. Fellir hann tré og byggir híbýli og stíflur sem geta gjörbreytt næsta umhverfi.
Byggingameistarinn
í kvöld klukkan 20:30 sýnirSjón- ^ uppeldi ungviðisins, en mannskepnunnar. Til marks um
varpið finnska heimildarmynd ,,bernskuár“ bjóranna eru mörg. þaðertilfinnskurmálsháttursem
um bjórinn og nefnist hún Bygg- ™ þeim tíma kennir móðirin þeim segir, „að ekkert sé eins viti bor-
ingameistarinn. Hegðun bjórsins hinar ýmsu byggingakúnstir, sem ið Qg maðurinn, nema bjórinn.“
áöllumárstímumersýndogbyrj- vakið hafa undrun og aðdáun
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
FOLDA
Viðburðir
Réttir byrja. Maríumessa hin
síðari. Víðinesbardagi 1208.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Hitlerstefniraðstríði.
Henleins-flokkurinn hættiröllum
samningum við við Prag-
stjórnina þótt hann verði að
viðurkenna síðustu tillögur henn-
ar sem samkomulagsgrundvöll.
Samskonar átyllur eru notaðar
og áður en Hitler tók Austurríki.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. september 1988