Þjóðviljinn - 14.10.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.10.1989, Blaðsíða 12
vs km Hvað breytíst? Fjölmargir nýir skáttskyldir aðilar ■ nnheimtu virðisaukaskatts er dreift á öll stig viðskipta en er ekki einungis bundin við síðasta stig eins og almennt er í söluskattskerfinu. Flest öll viðskipti verða skattskyld. Þetta veldur því að rekstraraðilar í fjölmörgum atvinnugreinum sem standa fyrir utan söluskattskerfið munu innheimta og skilavirðisaukaskatti. Sem dæmi um nýja aðila má nefna: Bændur, iðnaðarmenn, útgerðaraðila, fiskverkendur, iðnfyrirtæki, heildsalaog vöruflytjendur. Frádráttarheimildin verður víðtækari S|jgfe egar skil eru gerð til ríkissjóðs má draga frá greiddan innskatt (virðisaukaskatt af innkaupum til nota í rekstrinum) frá útskatti (innheimtur skattur af sölu). Þetta gildir einnig um innskatt af fjárfestingar- og rekstrarvörum. Söluskattsskírteinin, sem eru notuð í núverandi kerfi, taka ekki til kaupa á þessum vörum eða þjónustu, heldur aðeins til endursöluvöru. Frádráttarheimildin gerir söluskattsskírteinin óþörfog fallaþau niður. Komið í veg fyrir margsköttun bera söluskatt vegna kaupa á ýmsum aðföngum og taka tillit til þessa kostnaðar við verðlagningu seldrar vöru og þjónustu. í virðisaukaskatti mádragafrá innskattinn af þessum aðföngum og uppsöfnun skattsins (margsköttun) er úr sögunni. Uppgjörstímabil verða lengri am ' vert uppgjörstímabil verður tveir mánuðir í stað eins mánaðar í söluskattskerfinu. Þeir sem að jafnaði hafa hærri innskatt en útskatt (t.d. útflutningsfyrirtæki) geta sótt um styttri uppgjörs- tímabil. Uppgjörstímabil bænda er sex mánuðir. Skýrari reglur ^ virðisaukaskatti eru skýrari reglur um skattskyldu heldur en í núverandi söluskattskerfi og undanþágum er haldið í lágmarki. Þetta auðveldar skattaðilum meðferð virðisaukaskattsins. mm rádráttarreglan kemur í veg fyrir margsköttun. í söluskattskerfinu þurfa fyrirtækin að Upplýsingasími RSK vegna virðisaukaskatts er 91-624422 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.