Þjóðviljinn - 26.01.1990, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 26.01.1990, Blaðsíða 16
Fiskveiði- stefnan hefur brugðist Fyrirtveim vikum kynnti Nýtt Helgarblaö þá umræðu sem verið hefur í gangi um alllangt skeið um ágalla þess fyrirkomulags sem við höfum á fiskveiðum okkar. Skúli Alexandersson alþíngis- maður kom að máli við blaðið og hafði ýmislegt til málanna að leggja. Hér á eftir er rakið samtal hans og blaðamanns um helstu ágreiningsefnin varðandi fisk- veiðistefnuna. Það kom fram í máli allra þeirra sem þátt tóku í umræðunni í blaðinu 12. janúar síðastliðinn, að núgildandi fiskveiðsistjórnun, sem tekin var upp 1984, hefði skilað nokkrum árangri að minnsta kosti í verndun fiski- stofnanna, segir Skúli. Þetta er ekki rétt, því þetta fyrirkomulag hefur mistekist í öllum þeim meginatriðum sem máli skipta. Fjórföld mistök í fyrsta lagi hefur verið gengið á þorskstofninn meira en ráðlagt var og með þeim hætti að hrygn- ingarstofninn hefur aldrei verið minni en einmitt nú. Og nýliðun í þorskstofninum síðustu þrjú árin bendir til þess að stofninn muni enn fara niður á við næstu árin. Þetta má sjá á meðfylgjandi lín- uriti. en það er fráleitt að ímynda sér að veiðigjaldið muni sníða af henni gallana, segir Skúli Alex- andersson al- þingismaður í öðru lagi átti kvótakerfið einnig að valda minnkun fiski- skipaflotans. Það þveröfuga gerðist og hann fer sívaxandi. Nú eru fjölmörg ný skip í smíðum fyrir íslendinga erlendis þótt flotinn sé talinn of stór. í þriðja lagi átti kvótakerfið að skapa hagræðingu og minnka sóknarkostnað. Sóknarkostnað- urinn hefur hins vegar aukist, bæði vegna breyttrar sóknar og vegna stækkunar flotans. I fjórða lagi var svo fullyrt að kvótakerfið myndi skila betri afla að landi. Menn myndu bæta vinn- ubrögðin þegar aflamarkið væri takmarkað. Þarna hefur ekki orðið nein breyting til hins betra nema síður sé: eignarhald skips- ins á fiskinum í sjónum hefur frekar haft neikvæð áhrif. Takmörk á sókn en ekki afla Hvernig á þá að koma í veg fyrir ofveiði, ef það er ekki gert með aflakvóta á skip? Jú, það er rétt, menn segja að kvótakerfið hafi bjargað því sem bjargað varð og að án þess væri ástandið ennþá verra. En þetta eru engin rök. Þegar kvótakerfið var ákveðið haustið 1983 höfðu menn miklar áhyggjur af þorsk- stofninum, og það var ekki ágreiningur um að grípa þyrfti til aðgerða. Spurningin var hvernig bregðast ætti við. Skrapdagakerf- ið sem gilt hafði var gallað, en hafði þann kost að ekki var farið yfir þau mörk sem sett voru í upp- hafi árs. Með núgildandi kerfi hefur það hins vegar gerst á hverju ári. Og þessi umframafli hefur fyrst og fremst verið smá- Skúli Alexandersson alþingismaður: veiðigjald mun bara hækka gangverðið sem er á kvótanum. Ljósm Jim Smart þorskur. Hér áður fyrr var stærsti hluti þorskaflans tekinn á vetrar- vertíð fyrir Suðurlandi og þá var algeng stærð 7-10 kg. á fisk. Smá- þorskurinn á miðunum nú er hins vegar um eða innan við 2 kg. Þetta segir fljótt til sín í heildar- viðkomu stofnsins. Ég hef verið þeirrar skoðunar að stjórna megi sókn í bolfisk með sóknarmarkskerfi, sem byggðist fyrst og fremst á því að bæta gæði aflans og draga úr sóknarþunga, bæði með því að lögleiða frídaga um helgar á báta- flotanum og takmarka veiðitúra togara við 4 daga, þannig að tryggt sé að þeir komi alltaf að landi með fyrsta flokks hráefni. Gæði fyrir magn Það er ekki trúverðugt að við séum að framleiða gæðavöru úr 8-10 daga gömlum togarafiski eða tveggja nátta netafiski eða eldri. Okkur er sagt að ekki megi líða nema 1-2 klst. frá því að eld- isfiski er slátrað þar til hann fer í vinnslu eða umbúðir. Og hann á að vera kominn á markað helst innan sólarhrings til þess að hríð- falla ekki í verði. Hvers vegna halda menn að skipti öðru máli með villtan fisk? Það liggur í augum uppi að margfalda má verðmæti aflans með bættum vinnubrögðum. Ein ástæða þess að illa hefur gengið að bæta gæði fiskfram- leiðslunnar er sú sögulega stað- reynd að við byrjuðum fiskút- flutning á Bretlandsmarkað á sín- um tíma. Bretar þekktu þá ekki annan fisk en þann sem var viku eða tveggja vikna gamall, eða vel vistaður eins og sagt er. Þegar frystiiðnaðurinn hófst var fiskur- inn sem fór í vinnslu í sama gæða- flokki og sá sem við höfðum sent á Bretlandsmarkað. Við getum hins vegar framleitt vöru í allt öðrum gæðaflokki. Sama gæða- flokki og eldislaxinn. En til þess þarf breyttan hugsunarhátt og breytta sókn sem fæli í sér að verulega yrði dregið úr sóknar- þunga og frekar hugsað um gæði en magn. Til þess þyrfti góðan flota og fiskvinnslustöðvar í kring um allt landið, svo stutt sé á mið- in. Betri nýting flotans En hvernig viltþú minnkafiski- skipaflotann, sem flestir eru sam- mála um að sé allt ofstór og dýr? Þetta tengist því sem á undan er sagt. Úthaldstími skipa er allt of langur. Sókn sem miðast við gæði en ekki magn krefst fleiri skipa, og slík breyting í sókninni gerði því minnkun flotans ekki eins aðkallandi og ella. Aukin Uppreisn í Finnmörk Föstudaginntólftajanúarskýrðu dagblöðin í Finnmörk fráskipt- ingu þorskkvótans fyrir 1990. Sama dag gerðist það að Konrad nokkur Knutsen, oddviti í litlu sveitarfélagi sem heitir Loppa, lét hafa það eftir sér í fjölmiðlum að hann hvetti alla Finnmerkurbúa til að neita að greiða skuldir sínar. Hann hvatti ennf remur til að stofna varðsveitir í hverju byggð- arlagi til þess að hindra lögreglu í að kasta fjölskyldum út úr húsum eftir nauðungaruppboð. Knutsen er gamall og grandvar sveitarstjórnarmaður úr Verka- mannaflokknum, og undir venju- legum kringumstæðum hefði svona yfirlýsing verið talin sönn- un þess að maðurinn væri genginn af vitinu. Svo fór þó ekki að þessu sinni. Stuðningsyfirlýsingar streymdu þvert á móti úr öllum áttum, og fleiri oddvitar tóku undir. í mörg- um byggðarlögum var þegar haf- ist handa við að stofna varð- sveitir. Þegar blaðamaður á einu hér- aðsdagblaðanna spurði Knutsen hvort hann væri ekki hræddur um að verða dæmdur fyrir að hvetja til lögbrota, hló hann við, en sagði svo: „látum þá bara kasta mér í fangelsi ef það getur orðið að einhverju gagni.“ Þorskstofninn hrynur Eftir að ljóst varð að þorsk- stofninn við strendur Noregs er á þrotum, eru framtíðarhorfurnar fyrir íbúa sjávarþorpanna í Norður-Noregi allt annað en bjartar. Fyrir þremur árum spáðu fiski- fræðingar sjávarútveginum bjart- ri framtíð, sérstaklega lofaði þorskárgangurinn frá 1983 góðu fyrir næstu árin. Þessir góðu spádómar rættust ekki. Það varð æ ljósara að vistkerfið í Barentshafi var kom- ið úr jafnvægi, fæðukeðjan hafði rofnað eftir að bæði sfldar- og loðnustofninn voru nánast veiddir upp til agna. Fæðuskorturinn í sjónum bitn- aði ekki bara á þorskárganginum frá 1983, sem svo miklar vonir voru bundnar við, heldur varð vart við geigvænlega fækkun sjó- fugla, og selvöður flykktust að ströndum Finnmerkur í fæðuleit. Selainnrásin, sem hafði þegar verið árviss viðburður í austur- hluta Finnmerkur í mörg ár, náði hámarki veturinn 1987/88. Þá eyðilagði selurinn vetrarvertíð- ina fyrir bátaflotanum um alla Finnmörk, selirnir átu úr netun- um og flæktu sig sjálfa í þau. Þorskurinn hvarf út á dýpri sjó, þar sem einungis togarar gátu náð honum. Síðastliðinn vetur brá þó svo við að selurinn kom ekki upp að ströndinni. Vetrarvertíðin byrj- aði vel fyrir bátaflotann, en sú sæla stóð ekki nema til 4. apríl, því þá skall á þorskveiðibann. Árskvótinn var þrotinn, og þorskveiðibannið stóð til ára- móta. Það var þó fyrst nú fyrrihluta vetrar, að það kom í ljós hversu geigvænlegt ástandið er orðið. Þorskstofninn er kominn í útrým- ingarhættu, og á því ári sem nú er nýbyrjað fá Norðmenn bara að veiða 113.000 tonn af þorski. Andstœðir hagsmunir Hagsmunaárekstrar milli landshluta og milli togara- og bátaflotans hafa komið sterkara fram eftir að ljóst varð hve lítið er til skiptanna. Norður-Noregur og Vestur- Noregur búa við mismunandi hefðir í sjávarútvegi. Á vestur- landinu hafa menn þurft að sækja fiskinn langt, og þar eru gerð út stór fiskiskip. Áður fyrr voru sfldar- og loðnuskipin mest áber- andi, en síðustu árin hafa tog- skipin leyst þau af hólmi. I Norður-Noregi aftur á móti, og sérstaklega í Finnmörk, hefur verið stutt á fiskimiðin, og þar er gerður út stór floti minni báta. Hér hafa sjómenn rótgróna andúð á togurum, og kenna þeim og loðnuskipunum um hvernig komið er. Og vissulega má það til sanns vegar færa. f Barentshafi eru uppeldisstöðvar þorsksins, og síðasta áratuginn hafa togarar frá 16 SlÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.