Þjóðviljinn - 18.04.1991, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.04.1991, Blaðsíða 7
Fkéthr Góðæri í frystiiðnaðinum Afkoma Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var góð á síð- asta ári og svo virðist einnig ætla að verða á þessu ári. Birgðahald er lítið og selst framleiðslan því næst jafnóð- um og hún er tilbúin til afgreiðslu. Arður til félagsmanna í formi endurgreiðslu nemur tæplega 144 miljónum króna, sem svarar til 0,85% af útflutningsverðmætum 1990. Heildarframleiðsla frystihúsa og frystitogara innan vébanda SH í fyrra var um 87.330 tonn sem er 6,2% minni framleiðsla en árið 1989. Heildarútflutningur frystra sjávarafurða frá Islandi í fyrra var 189 þúsund tonn að verðmæti 37,6 miljarða króna, reiknað í fob-verð- mætum. I ræðu Jóns Ingvarssonar stjóm- arformanns SH, á aðalíúndi samtak- anna í gær kom fram að af heildarút- flutningi síðasta árs nam hlutur SH 94 þúsund tonnum að verðmæti 17,6 miljarða króna, sem er um helming- ur útflutnings frystra fiskafúrða og um fjórðungur af öllum útfluttum sjávarafúrðum. Hjá SH var 2% sam- dráttur í magni í fyrra en 27% aukn- ing í krónum talið miðað við árið 1989. Það kom ennfremur frarn í ræðu Jóns Ingvarssonar að ástæðan fyrir góðri afkomu SH var ekki aðeins hækkandi afurðaverð á erlendum mörkuðum, heldur einnig sá stöðug- leiki sem hér ríkti _á síðasti ári í efna- hagsmálunum. I því sambandi nefndi Jón hófsama kjarasamninga frá því fyrra sem kenndir hafa verið við þjóðarsátt, hjöðnun verðbólgu auk þess sem fjármagnskostnaður lækkaði einnig verulega. Þá var hagur innlendu dótturfyr- irtækjanna, Jökla hf. og Umbúða- miðstöðvarinnar hf. góður og nam hagnaður af rekstri þeirra um 37 miljónum króna. Heildarhagnaður, þegar afkoma erlendu dótturfyrir- tækjanna er tekin með, nam þannig 302 miljónum króna í stað 70 milj- ónum króna árið 1989. Arið í fyrra var annað árið i röð sem einkenndist af hækkandi verði á erlendum mörkuðum. Veruleg breyt- ing varð þó á innbyrðis gengi gjald- miðla 1990, sem hafði mikil áhrif á mörkuðum SH. Bandaríkjadalur féll gagnvart Evrópumyntum og yeni. Auk þess minnkaði framboð keppi- nautanna á Evrópumarkaði, en það jók á eftirspumina eflir vörum héð- an og leiddi jafhframt til örra verð- hækkana, þó mismunandi eftir teg- undum og mörkuðum. Þannig hækk- uðu þorskflök fyrir Bretland um 37% en fyrir Bandaríkin aðeins um 17%. Hins vegar var hækkunin mun meiri í dollurum á Bandarikjamark- aði eða yfir 30% en um 25% í sterl- ingspundum í Bretlandi. -grh Jón Ingvarsson stjórnarformaður SH flytur skýrslu stjórnar, en afkoma hrað- frystiiðnaðarins var mjög góð á siöasta ári. Mynd: Kristinn Kristján Jónasson hjá Náttúrufræöistofnun Islands með sýnishorn af mangan- málmgrýti sem tekið var á hafsbotni við Reykjaneshrygg fyrir skömmu. Mynd: Kristinn. Góðmálma varla að f inna á Reykjaneshrygg Kjartan Thors, jarð- fræðingur á Hafrann- sóknastofnun, segir að fátt bendi til þess að góðmálma sé að fínna á hafsbotninum við Reykjaneshrygg, en óyggj- andi niðurstöður um það munu þó ekki liggja fyrir fyrr en í haust. Hafrannsóknaskipið Ami Friðriksson er nýkominn til hafn- ar eftir tólf daga útivist á haf- svæðinu úti af Reykjanesi. Þar vom tekin sýni af mangan- málm- grýti á um 250-300 metra dýpi, sem síðan verða rannsökuð af innlendum vísindamönnum á Náttúrufræðistofnun, Raunvís- indastofúun Háskóla íslands og Orkustofnun. Farið var yfir 30-40 kílómetra hafsvæði og meðal ann- ars vom teknar neðansjávarmynd- ir af jarðhitauppstreymi sem þar er að finna. Kjartan Thors sagði að fram- hald þessara rannsókna ylti á nið- urstöðum fyrirhugaðrar efnagrein- ingu á mangan- málmgrýtinu sem verður væntanlega lokið í haust. -grh Halldór undrandi á skrifum utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra segir að það sé fráleitt að hann og Framsóknarflokkurinn vilji framselja fiskimiðin til Evrópubandalagsins, eins og Jón Baldvin Hannibalsson heldur fram í grein í Morgunblaðinu í gær. Halldór segir skrif utanríkisráðherra um málið með ólíkindum og hitta hann sjálfan, fyrst og fremst. í Morgunblaðsgreininni gefur utanrikisráðherra það fyllilega í skyn að helsti talsmaður fyrir því að hleypa Evrópubandalaginu inn í landhelgina sé forysta Framsókn- arflokksins með Halldór Ásgríms- son í fararbroddi. í því sambandi birtir utanríkisráðherra nokkurra ára gamlar tilvitnanir máli sínu til stuðnings. Halldór Ásgrímsson segir að það hefði verið betra fyrir formann Alþýðuflokksins að viðurkenna að það hefðu verið mistök af hálfu flokksins að setja það í stefnu- skrána að „útiloka ekki“ aðild að Evrópubandalaginu. Hinsvegar hefði ríkisstjómin verið sammála um það á sínum tíma að hann, sem sjávarútvegsráðherra, ræddi við kollega sína í EB til að kynna mál- stað Islendinga í málinu og vinna því fylgi. I því sambandi hafi EB verið spurt að því hvað það hefði að bjóða íslendingum varðandi fískveiðar? Halldór sagði að engin svör hefðu borist um það, enda hefðu fiskstofnar EB hmnið eftir rányrkju, eins og allir vissu. Þá væri það einnig staðreynd að til dæmis kolmuni væri sameig- inlegur stofn sem þyrfti að semja um við EB. Ennfremur væri það einnig staðreynd að Grænlendingar hefðu framselt veiðiréttindi til EB úr sameiginlegum stofnum og í því sambandi mætti nefna karfa, rækju og loðnu, auk þess sem EB veiddi smáþorsk við Grænland sem ella gengi á íslandsmið. -grh Farið að styttast í greiðsluerfiðleikalánin Hægt hefur gengið að afgreiða umsóknir um húsbréf vegna greiðsluerfíðleika sem Alþingi samþykkti lög um í desember síðastliðnum. Þau gilda einungis í eitt ár. Reglugerð var gefín út 21. janúar en Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkis- ð umsóknirnar hefðu hlaðist upp síðan í fyrrasumar og að mjög torsótt væri að afgreiða þessi mál. Því hefði það dregist. Þeir sem sækja um húsbréf vegna greiðsluerfiðleika fá lán fyrir því sem þeir þurfa samkvæmt mati, auk þess að fá lán fyrir afföllum hús- bréfanna. Ávöxtunarkrafa húsbréfa er nú 8,1 prósent og affoll með sölulaun- um rétt tæp 18 prósent. Því fær sá sem er með eina miljón í greiðslu- erfiðleikum um það bil 1,18 miljón- ir króna að láni í húsbréfum. En bankamir kaupa bréfin á markaðs- verði. Þannig aukast skuldimar hjá fólki um tæp 20 prósent en dreifast á 25 ár í staðinn. Grétar J. Guðmundsson, aðstoð- armaður félagsmálaráðherra, sagði að ekki væri nokkur spuming að fólk í greiðsluerfiðleikum hefði ekki áhyggjur af aflollunum því sá kostnaður sem það bæri nú væri miklu hærri en svo. Hann benti til dæmis á lögfræðikostnað. Hann sagði að ásóknin í húsbréfm sýndi þetta glöggt. Sigurður sagði að búið væri að afgreiða mál þeirra sem hefðu átt við mestu vandamálin að glíma og að nú væri verið að fara í mál hinna. Hann sagði að stofnunin hefði flutt til fólk og ljölgað í greiðsluerfið- leikadeildinm þar sem málin hefðu reynst miklu flóknari og torsóttari en nokkur hefði búist við. Hin háa ávöxtunarkrafa er ekki hagstæð neinum sem þarf að selja húsbréf og sagði Sigurbjöm Gunn- íslenskur starfsmaður á Kefla- vikurflugvelli hefur kært herlög- regluna fyrir að hafa handtekið hann eftir að hann hafði keypt sér mat á Vellinum. Lögreglan mund- aði kylfur og losaði um byssur, lét hann standa með útglenntar lapp- ir upp við vegg og leitaði á hon- um. Þannig var hann látinn standa í 25 mínútur þar til ís- lenska Iögreglan á Keflavíkurflug- velli kom. Maðurinn hefur starfað lengi á Keflavíkurflugvelli og hefur átt í málaferlum við herinn. Að sögn hef- ur hann orðið fyrir ýmsu vegna þess arsson, deildarstjóri hjá Landsbréf- um, að fólk ætti ekki að selja hús- bréfin núna ef það kæmist hjá því. Hann sagðist eiga von á því að ávöxtunarkrafan færi minnkandi með minni fasteignaviðskiptum vor og sumar og bætti við að 8,1 pró- sent krafa væri mjög óeðlileg á rík- istryggðum bréfúm. Þó sagðist hann ekki geta fúllyrt að toppnum væri náð. Grétar taldi einnig að það færi að draga úr þessu þegar liði á sum- arið því þá losnaði um kaupskyldu lífcyrissjoðanna í gamla kerfinu frá en þetta mun þó í fyrsta skipti sem herlögreglunni er sigað á hann. Ekki tókst að ná í Þoigeir Þor- steinsson, lögreglustjóra á Keflavík- urflugvelíi, í gær, en starfsmenn lög- reglunnar sögðust ekki mega gefa neinar upplýstngar. -Sáf Kíló varð að tonni Þau mistök urðu í gær að kíló varð að tonni í fféttinni Sjávarútvegnum blæðir vegna kvótabrasksins, eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir. Em hlutaðeigandi hér með beðnir velvirð- ingar á þessu. -grh Herlögreglan handtekur Islending án ástæðu Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.