Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Síða 29
1>V LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 37 gsins, fann föðurfólkið sitt í fyrsta skipti í sumar: á ættarmóti fiölskyldunnar sinn við myndatöku DV á fimmtudag Hann segist hafa frétt af því fyrir 15-16 árum að hann ætti hálfsystur sem héti Margrét. Faðir hans hafi einn góðan veðurdag komið og sótt hann, sagst ætla með hann í bíltúr og farið að hitta Margréti. Hún hafi ver- ið veik og rúmliggjandi og því hafi þeir stoppað mjög stutt. Hann segir að móðir hans hafi alla tíð vitað af Margréti, faðir hans hafi sagt henni frá henni strax við þeirra fyrstu kynni. Hann hafi alla tíð langað til að hafa samband við systur sína en ein- hvern veg- inn hafi aldrei orðið úr því. Er sterklík ömmu sinni Ættingjar Margrétar í foðurætt halda því fram að hún sé sterklík föðurömmu sinni sem er látin fyrir allmörgum árum en hún hafði mjög mikinn áhuga á stjórnmálum og var sjálfstæðiskona fram í fing- urgóma, að sögn Árna, fóðurbróður Margrétar. Árni segir að það sé margt í fari Margrétar sem fjöl- skyldan kannist við og ýmsir spaugilegir taktar og tjáningarform sem bara fjölskyldumeðlimir skilji. Margrét styður þetta og segist hafa séð á myndum að hún sé mjög lík fóðurömmu sinni. „Fólk hefur tekið eftir því hvað móðir mín heitin og Margrét hafa átt margt sameiginlegt og sjá hana oft fyrir sér í Mar- gréti. Það er líka mjög ánægjulegt. Mér finnst Margrét að mörgu leyti minna |ll||"■ 3 skylduna og þá sérstak- lega móð- ur mína. Móðir íÆ mín var g, spíritisti ipllPjgpp j % W og hafði áhuga á Margarét Frímannsdóttir ólst upp á Stokkseyri hjá móðurömmu sinni, Önnu Pálmeyju Hjartardóttur, og manni hennar, Frímanni Sigurðssyni. Hún hefur þó alla tíð haldið góðu sambandi við líffræðilega móður sína og kallaði þær báðar mömmu. Hér má sjá Margréti með dóttur sinni, Áslaugu Hönnu, barnabarni, Margréti Sól, og mæðrum sínum, Önnu Pálmeyju og Áslaugu. stjórnmálum. Hún var mjög einörð og leyndi ekki skoðun- um sínum,“ segir Árni. Kristinn tekur í sama streng. Hann segir að Margrét sé mjög lík ömmu sinni, þær séu „alveg ofsalega líkar“ og hafi „alveg sömu röddina“. Margrét, Kristinn og Árni segjast öll hafa hugsað mikið um það að taka upp samband sín í milli en skort til þess kjarkinn. Öll lýsa þau yfir vilja til þess að viðhalda því sambandi sem er komið á. Þegar DV hafði samband við Ás- laugu Sæunni Sæmundsdóttur, líf- fræðilega móður Margrétar Frí- mannsdóttur, sagðist hún fagna því að Margrét hefði náð sambandi við föðurfólkið sitt. Einhvern veginn hefði aldrei orðið úr því að sambandi væri komið á fyrr en nú. Það sé mjög gott að samband sé loks komið á. -GHS Margrét Frí- mannsdóttir, nýkjörinn for- maður Alþýðu- bandalagsins, hitti yngri hálf- bróður sinn, Ólaf Hannes- son, í fyrsta skipti við myndatöku DV í Alþingis- húsinu á f immtudag en eldri hálf- bróður sinn hafði hún hitt í fyrsta skipti í nokkrar mínútur fyrir 15-16 árum. Hún kynntist honum og hans fjöl- skyldu * hins vegar ekki fyrr en á ættarmóti fjölskyldunnar í sumar þegar föðurbræður Margrétar sáu til þess að henni yrði boðið. DV-mynd BG Margrét Frímannsdóttir fann föðurfólkið sitt á ættarmóti þess að Reykhólum í Sumar. Margrét segir að hún hafi séð í föðurfólkinu sínu ýmsa takta sem hún þekki úr eigin fari. Hún hafi strax fengið á tilfinninguna að hún hafi þekkt þetta fólk alla ævi. Hér má sjá Margréti með ömmubróð- ur sínum og föðurbróður sínum, Arna Ólafssyni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.