Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996 Fréttir „Sjóræningjaspóla“ meö Bubba Morthens á götumarkaði í London: Fínt ef atvinnulausir fá spólu með mér fyrir pundiö - segir Bubbi en Skífan ætlar aö rannsaka málið Bubbi Morthens með „sjóræningjaspóluna" sem landar hans keyptu hjá götusala í London nýlega. Á spólunni eru upptökur af tónleikum Bubba í Borgarleikhúsinu 28. nóvember síðastliðinn. DV-mynd BG Frystihúsið skipt- ir með kvóta DV, Ólafsfirði Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hefur frá byrjun vinnslu eftir áramót fengið afla gegnum beina samninga með kvótaviðskipti. Þar með hefur hráefni til vinnslu verið tryggt en allt kapp er lagt á að halda uppi fullri atvinnu. Hráefnisverðið er svolítið hærra, að sögn Karls Guð- Panasonic Ferðatæki RX DS25 Ferðatæki með geislaspilara, 40W magnara, kassettutæki, útvarpi m/stöðvaminni og fjarstýringu. BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI mundssonar, framkvæmdastjóra HÓ, en fiskurinn er mun betri. Framleiðslan hefur farið í dýrari pakkningar en unnt hefur verið að vinna úr togarafiski. Langmest af þroskinum sem HÓ kaupir er veidd- ur á línu eða dragnót. Hann kemur 1-4 daga gamall, samanborið við 5-10 daga úr togurum. -HJ Alþingi: Ríkisbankarnir ekki sameinaðir Það kom fram í máli Finns Ingólfssonar viðskiptaráðherra á Alþingi á mánudag að ekki stend- ur til að sameina Landsbankann og Búnaðarbankann eins og for- maöur bankasljómar Landsbank- ans hefur sagt að sé æskilegt. Finnur sagði að hann hefði skipað nefnd til að kanna form breytingar á ríkisbönkunum og væri hún enn að störfum. Hann sagði að í stjórnarsáttmálanum væri gert ráð fyrir því að ríkís- bönkunum yrði breytt í hlutafé- lög. Sagöist hann vona aö þaö tækist fyrir næstu áramót. Það var Svavar Gestsson sem bar fram fyrirspurn til viðskipta- ráðherra um þetta mál og gagn- rýndi það að ekki skuli unnið að þvi að sameina ríkisbankana í einn sterkan banka, eins og hann orðaði þaö. -S.dór DV fékk nýlega í hendur hljóð- snældu frá íslendingum sem keyptu hana hjá götusala á Canden Town markaði í London. Ekki svo ýkja merkilegur viðburður nema hvað um svokallaða „sjóræningjaspólu" er að ræða með upptökum af tón- leikum Bubba Morthens í Borgar- leikhúsinu 28. nóvember sl. „Útgef- andi“ spólunnar er Iceboots sem segir sig meðlim í International Tapers Association, ef marka má heimatilbúna kápu í spóluhulstr- inu. Á kápunni er birtur listi yfir lögin á spólunni og flytjendur auk nokkuð ítarlegs inngangs á ensku um Bubba Morthens. „Mér finnst það merkilegt að götusali skuli selja sjóræningja- spólu af tónleikum með mér. Svona er nú veröldin. Það eru ekki bara biskupar sem eru í góðum málum,“ sagði Bubbi Morthens þegar DV hafði samband við hann og til- kynnti honum tíðindin. Hann sagð- ist hvorki geta riíist eða skammast vegna þessa máls. „Hvað getur maður gert? Það er fint ef atvinnulausir fá spólu með Bubba fyrir pundið. Það er gott mál. Ég get ekki annað en gefið þessum sjóræningjum plús. Ef þetta gerðist hérna heima myndi ég sennilega lyfta fingri.“ Bubbi sagðist lengi hafa vita af sjóræningjaupptökum til sölu á svörtum markaði á Norðurlöndun- um en það kæmi sér á óvart að slíkt gerðist í Bretlandi. „Það er auðvitað alltaf alvarlegt þegar brotið er á höfundarréttinum eins og í þessu tilviki. Við munum beita öllum ráðum til að komast að því hverjir hafa verið þarna að verki og reyna að koma lögum yfir þá. Á hinn bóginn sýnir þetta að hróður Bubba hefur borist víðar en um lsland,“ sagði Jón Ólafsson, eig- andi Skífunnar, sem er útgáfuaðili Bubba Morthens. -bjb Búnaðarþing: Emerald-tiónið Á búnaðarþingi, sem lauk sl. sunnudag, voru málefni Lífeyris- sjóðs bænda talsvert til umfjöllun- ar. Samþykkt var ályktun þar sem harmað var það tjón sem sjóður- inn varð fyrir vegna lánveitinga til Emerald Áir. Jafnframt var stjórn- inni þakkað fyrir að hafa tekið vel og röggsamlega á málinu þegar það kom upp á yfirborðið. Fyrir þinginu lá tillaga um að afnema skylduaðild að sjóönum en hún var ekki samþykkt. Umræður um skipulagsmál Bændasamtakanna og verkaskipt- ingu milli heUdarsamtakanna og einstakra búgreinafélaga tóku mikinn tíma á þinginu. Samþykkt var tillaga um að fela stjórn Bændasamtakanna umboð til þess harmað að ganga frá samningum við bú- greinafélögin um þessi mál. Sigur- geir Þorgeirsson, framkvæmda- stjóri Bændasamtakanna, sagði að í stórum dráttum fælist í þessu að skUgreina og binda niður í samn- ingum það fyrirkomulag sem unn- ið hefur verið eftir. -SÁ Togarinn Runólfur SH: Með lifandi sandhverfu DV, Grundarfirði: Togarinn Runólfur SH 135 kom með lifandi sandhverfu tU hafnar núna í vikunni. Að sögn Ingimars Hinriks Reynissonar, skipstjóra á Runólfi, veiddist sandhverfan á óvenjulega miklu dýpi eða 320 faðma. Hafrannsóknastofnun hafði ekki áhuga á að kaupa sandhverfuna þar sem menn þar töldu hana ekki lifa það lengi. Sandhverfunni, sem var sex kUó að þyngd, var slátrað og var hún seld á 1.000 krónur kílóið til Humarhússins. -ITP Björgvin Lárusson, Fiskmarkaði Breiðafjarðar, slátrar sandhverfunni sem lenti á borðum Humarhússins. DV-mynd ITP Dönsuðu í sólarhring DV, Ólafsfirði: Unglingárnir hér í Ólafsfirði stóðu fyrir maraþondansi um síðustu helgi. Dönsuðu þeir í heilan sólarhring til að safha áheitum frá einstaklingum og fyrirtækjum til að fjármagna ferð sem farin verður á vegum félagsmiðstöðvararinnar tU Reykjavíkur. -HJ Öryggis- reglur hertar hjá ferjum DV, Vestmaimaeyjum: Átján Evrópuþjóöir sam- þykktu fyrir skömmu samning sem kveður á um hertar öryggis- reglur fyrir farþegaferjur í miUi- landasiglingum og ná því ekki til Vestmannaeyjaferjunnar Herj- ólfs. Herjólfur uppfyllir þessi skUyrði að sögn Magnúsar Jón- assonar framkvæmdastjóra. Nýju reglurnar na 'il 18 þjóöa í Norðvestur-Evrópu og komá í kjölfar tíðra slysa á ferjum. „Reglurnar ná eingöngu tU skipa í mUlilandasiglingum og eru því Herjólfi óviðkomandi. Þrátt fyrir það uppfyllir Herjólf- ur þessi skUyrði eftir því sem næst verður komist. Við bíðum aðeins eftir að fá það staðfest,“ sagði Magnús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.