Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1996, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1996, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 sænskir dagar Glernkið í Svíþjóð: Jeltsín skálar í glösum frá Johansfors í Smálöndum í suðausturhluta Svíþjóðar eru nokkrar þekktustu glerverksmiðjur heims og eru þær opnar gestum og gangandi. Glerrík- ið hefur þetta svæði stundum verið kallað. Á virkum dögum hafa flestar glerverksmiðjanna opið fram til klukkan þrjú síðdegis fyrir ferða- menn sem vilja sjá með eigin aug- um þegar glersmiðir breyta glóandi glermassa í listaverk. í öllum verksmiðjunum eru litlar verslanir sem einnig eru opnar um helgar. Þar er hægt að kaupa vörur Ferðamönnum gefst kostur á að sjá glersmiði breyta glóandi massa í fallega kristalshluti. á talsvert lægra verði en í venjuleg- um verslunum. Vörurnar falla hins vegar undir svokallaðan 2. flokk, það er að segja þær eru gallaðar en svo lítið að það sést varla. Mörgum þykir gaman að eignast slíkar vörur því þær minna svo sannarlega á að glersmíði er handiðn og að gler- smiðirnir eru engin vélmenni. Til þess að verða góður glersmið- ur þarf margra ára æflngu. Það tek- ur minnst 10 ár að verða meistari. Glerverksmiðjan í Kosta, sem stofnuð var 1742, hefur oft verið kölluð móðurverksmiðjan. Þegar margar glerverksmiðjur voru stofn- aðar í Smálöndunum í lok 19. aldar Ósló Stokkhólmur Nybrö fc Malmö Kaupmannahöfn Kalmar DV Glösin eru skreytt með gylltum upphafsstöfum Jeltsíns. komu glersmiðirnir frá Kosta. Orrefors er ein af glerverksmiðj- unum sem stofnuð var rétt fyrir síð- ustu aldamót. Fynr fimm árum voru Kosta Boda verksmiðjurnar, það er Kosta, Boda og Áfors, og Or- refors sameinaðar. Hver um sig heldur þó sérkennum sinnar fram- leiðslu. Jeltsín Rússlandsforseti skálar í glösum frá glerverksmiðjunni Jo- hansfors. Glösin eru skreytt með 24 karata gulli og voru hönnuð með það í huga að þau pössuðu við hús- gögnin og postulinið í Kreml. Gyllt- ir upphafsstafir forsetans eru á glös- unum. Jeltsín er talinn ánægður með þau glös sem hann hefur þegar fengið því það barst einnig pöntun á glösum fyrir allt rússneska þingið. -IBS Jeltsín skálar við Clinton Bandaríkjaforseta í glösum frá sænskri glerverk- smiðju. Skandia er alþjóðlegtfyrirtœki sem stofnað var árið 1855. Um 200fyrirtœki eru í eigu Skandia í 25 löndum. Hluthafar i Skandia eru um 36 þúsund og það starfa um 11 þúsund manns hjá fyrirtœkinu um allan heim. Á íslandi veitir Skandia þriþætta þjónustu. Vátryggingar, verðbréfamiðlun og líftryggingar. Það hefur alltaf verið keppikefli Skandia að veita faglega þjónustu og ráðgjöf og vera leiðandi í nýjungum, sem skila sér í betri og hagstœðari þjónustufyrir viðskiptavini Skandia. Skandia LAUGAVEGI 1 70 . SlMI 540 SO SO Glermunir frá Kosta Boda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.