Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997 15 Eg um mig frá mér til mín Kjallarinn Er klónun kall tímans? Núna þeg- ar Guð virðist hafa yfirgefið okk- ur endanlega erum við byrjuð að hugsa um að fjöldaframleiða okkur sjálf út í það óendanlega. Kristskrossinn hefur líka fyrir löngu vikið fyrir alls kyns vöru- merkjum og lógó- um. Þau birtast okkur síðan í yfir- stærðum í kvik- myndahúsum og sjónvörpum, kirkj- um nútímans og '■■■■ ........ altari. Illskiljanlegar umvandanir Flest skilaboð berast okkur líka í gegnrnn gervihnetti í eigu alls kyns fjölþjóðafyrirtækja. Þau leika núna hið aldagamala hlutverk kat- ólsku kirkjunnar að boða trúna um gjörvalla heimsbyggðina. Hvort himnaríki er önnur og ókönnuð pláneta skal hins vegar Haraldur Jónsson myndlistarmaöur „Klónun er eðlllegt framhald af kristinni trú. Jesús var nefnilega elngetinn í kynlausum getnaöl. Af hverju hann var ekkl kvenkyns veröur alltaf eln af þessum ósvör• uöu spurnlngum sögunnar.a ósagt látið. Klónun er eðlilegt framhald af kristinni trú. Jesús var nefhilega eingetinn I kynlausum getnaði. Af hverju hann var ekki kvenkyns veröur alltaf ein af þessum ósvör- uðu spumingum sögunnar. Sið- ferðislegar umvandanir þegar ein- ræktun ber á góma eru þess vegna í meira lagi illskiljanlegar. Allt í kringum okkur blasa við hlutir og fyrirbæri sem eru langt frá því að vera einstök. Það hlýtur nefnilega alltaf að vera samhengið sem skiptir sköpum. Rétt eins og að- eins fjórðungi bregður til fósturs er það uppeld- ið og umhverfisáhrifin sem móta einstaklinginn öðru fremur. Það eru alltaf tengsl manneskja og hluta sem gefa heild- armyndina en ekki hlut- urinn eða persónan sem slík. Nema við séum að tala um dularfulla antík á uppboði. Frummynd frekar en eftirmynd. Hvaða flækjur? Ekkert þrífst heldur án umhverfis síns. Ekki ...... einu sinni sveppagróð- ur. Erfltt er að sjá hvaða flækjur kæmu upp þótt tveir einstaklingar væru nákvæmlega eins í útliti. Eineggja tvíburar hafa til að mynda verið til frá því að við byrjuðum að anda. Þeir urðu ekki einu sinni fyrir ofsóknum þjóðemissinnaðra afla í Þriðja ríkinu. Það er ekkert ámælisvert við að vera til í tak- mörkuðu upplagi. Til dæmis einn af sjö ein- tökum. Það er líka ósið- ur að dæma manneskjur ein- göngu eftir útlit- inu. Þetta er að mörgu leyti óskiljanlegt mál. Eru yfirvöld ekki einmitt líka að innræta með okkur að við eig- um öll að sam- einast í staðinn fyrir að reyna að vera voðalega sérstök? Það les maður í öllu falli í þessum upplýs- ingabæklingum frá Evrópusam- bandinu sem eru alltaf detta í gegnum lúguna. Þríeinn guðdómur Eiginleikar og hæfileikar liggja gjaman í ættum. Þannig hafa menn getað séð hvemig handverk eða aðrar náðargáfur ganga aftur í ákveðnum ættleggjum og eftir sömu blóðrásum. í hestamennsku ✓ Í0 Flest skilaboö berast okkur Ifka gegnum gervihnetti, segir Haraldur m.a. f grein sinni. er sömuleiðis urmull af slíkum dæmum. Ef misvísandi upplýsing- ar brengla blóðskráningu í þeim geiranum verður allt vitlaust. Kaupendur skila strax hrossinu eða leiða það fyrir rétt. Guðdómurinn er þríeinn og all- ur í karlkyni. Faðir, sonur og heil- agur andi. Guð skapaði manninn líka í sinni mynd. Á næstu misser- mn mun mannskepnan jafnvel taka við þessu hlutverki Guðs. Fjöldaframleiðsla með klónun í anda eingyðistrúar. Ég um mig frá mér til min. Einræktaðir einstaklingar munu samt alltaf bera mismun- andi nöfit, svo ekki sé talað um kennitölu. Hvar liggur þá efinn? Fátt verður hins vegar algerlega fúllkomið og í mörg vafasöm hom- in aö líta. Til dæmis í glæpamál- um og bamsfaðemismálum þar sem þessir þræðir flækjast hvað mest: „hver hans er pabbinn?" eða „hver af honum er hann?“. Sami einstaklingurinn getur verið á ólíkum stöðum samtimis. Fjarvist- arsönnun og blóðprufúr missa merkingu sína. Það er kannski helst í slíkum málum sem menn munu komast í uppnám. - Svari nú hver fýrir sig. Haraldur Jónsson. Hverjir eiga Island 2010? Verður það Burðarás, Samheiji eða einhver Evrópuprins sem eiga fjörðinn, þorpið eða bæinn í ná- inni framtíð? Alþjóðleg fyrirtæki eða litli vinnuharði sjálfstæöi at- vinnurekandinn? Fáir hafa orðið ríkir hér á landi nema í skjóli ein- hverra sérréttinda eða fyrir til- stuðlan fákeppni. Veiðiheimilda. Lengi vel var gæðunum skipt á milli gæðinga Sjálfstæðisflokks og „Hvers vegna skyldi alltaf vera horft til litla mannsins þegar auka á hagvöxt? Mannsins sem þorir aö förna öllu og vlnna eins og hestur til aö veröa sjálfstæöur eöa bjarg- álna. Eru afkomendur ríkisstarfs- manna duglausir?“ Framsóknar. í seinni tíð hefur að- gangur að tækifærunum einnig verið takmarkaður, ekki aðeins í hafinu heldur eru það sérréttindi að fá aðgang að Kringlum og Perl- um. Sömuleiðis eru það áunnin forrréttindi að fá að keppa á fá- keppnismörkuðum eins og sigl- inga- og flutningaleiðum eða tak- mörkuðum sjónvarpsrásum. Lág leiguafhot af eignum ríkisbanka eða sameiginlegum borgareignum er einnig auðlind er fáir njóta en margir þurfa að greiða fyrir með sköttum eða ójafnri samkeppnis- aðstöðu. Væru t.d. eignir Reykjavíkur- hafnar við Faxagarð ekki betur komnar í uppskipunaraðstöðu fyr- ir leiguskip sem gætu tryggt sam- keppni til landsins á flutningaleið- um? Sumir þekkja sinn vitjunar- tíma Ronald Reagan hefði aldrei látið það viðgangast að tvö skipafélög skiptu milli sín flutningaleiðum jafnt utanlands sem innan. Ekki einu sinni á leið inni frá Amer íku til íslands Hér hreyfa stjórnmálamenn ekki stórutá þótt fákeppni ríki. Nýbún- ir að losa sig við Ríkisskip. Bank- amir eru ekki heldur seldir eða eftiriátnir eigendum sínum, fólk- inu í landinu, vegna andstöðu í ríkisstjórnarflokkunum. Enginn greinarmunur er gerður á því hvort ríkisfyrirtæki er að nýta auðlindina eins og jámblendið eða í samkeppni viö fjölda aðila. Þannig keppa ríkis- bankarnir viö fjölda sparisjóöa og íslands- banka, rekstrarform er ber ólíkar skyldur og skatta. Eignar- haldsfélög ríkisbank- anna em og i harðri samkeppni við fjölda einkafyrirtæka á markaðinum, sem byggja, selja og leigja fasteignir en greiða engan arð né skatta. Eiga íslendingar að hafa meirihluta i jám- blendisverksmiðjunni sem ekki er í beinni samkeppni við önnur einkafyrirtæki hér? Engin mörkuð stefna? —— Tryggjum sam- keppni á sjóleiðinnl Fremstu hagfræðingar landsins hafa líkt ofveiði og skuldasöfnun okkar við ofdrykkju. Grænlend- ingar vilja endurheimta eigið sjálf- stæði og virðingu, takast á við eig- in mál. Liggja ekki utangarðs á meðan Danir ráðgast með auðlind- ina: hátæknifiskveiðar og námu- gröft. En er enginn metnaður hjá íslendingum aö eiga meirihluta í stóriðjunni? Nóg er af háskóla- menntuðu fólki hér, öfugt við Grænlendinga. Kjallarinn Sigurður Antonsson framkvæmdastjóri Því skyldu ekki há- skólamenn telja það kappsmál að eiga og reka verksmiðjurnar sem taka við af fisk- veiðum sem fara minnkandi vegna of- veiði? Hvers vegna skyldi alltaf vera horft til litla manns- ins þegar auka á hag- vöxt? Mannsins sem þorir að fórna öllu og vinna eins og hestur til að verða sjálfstæð- ur eða bjargálna. Eru afkomendur rík- isstarfsmanna dug- lausir? Vilja þeir ekki berjast nema í ....-...... öruggu skjóli litla mannsins eða stóra bróður? Er ekki mál til komiö að hætta að leita að erlendum stóriðjuhöld- um, hafa eignaraðildina innan- lands og marka steftiu um at- vinnu- og skólamál 20-30 ár fram í tímann? En fyrst verður aö fela Áma Sigfússyni að koma á sam- keppni á sjóleiðinni til íslands og tryggja að hér veröi ekki fákeppni- fyrirtæki eins og í Grænlandi. Sigurður Antonsson Vilhjálmur Eglls- son, alþlnglsmaöur og framkvæmda- stjórl Vorslunar- raös. Aukin hag- kvæmni í sam- skiptum „Ég er fylgj- andi því að færa klukkuna fram um þetta leyti árs og síð- an til baka í október eins og gert er í Evrópu. Ástæðan er fyrst og fremst sú að fólk nýt- ur þá sumars- ins mun betur. Birtan endist lengur fram á kvöldið og sá tími sem flestir ís- lendingar hafa tfl að vera úti við lengist. Þetta skiptir miklu máli fyrir fólk sem vinnur inni en það getur þá notið sólarstunda eftir vinnu. Þetta skiptir einnig miklu fyrir alla sem stunda íþróttir, bæði keppnis- og almenningsí- byrja kappleiki líl. 5-6 á haustin og golfáhugamenn geta leikið golf eftir vinnu langt fram á haust. Að flýta klukkunni hefur í för með sér aukna hagkvæmni í samskiptum við Evrópu en tveggja klukkustunda munur á íslandi og Evrópu styttir mjög samskiptatímann milli landanna sem er mjög bagalegt fyrir fólk í miklum samskiptum viö Evrópu. Ekki bætir úr skák að hádegis- verðarhlé í löndunum eru ekki á sama tíma. Margir þurfa að byxja fyrr að vinna á morgnana við núverandi aðstæður en ef klukkunni yrði flýtt myndi opn- un dagvistarstaða fylgja þeirri þróun eins og reyndar allt þjóðfé- lagiö.“ Raskar svefnvenjum manna ,Ég er alger- lega mótfallinn því að verið sé að hringla með klukkuna. Það ruglar svefn- venjum manna og stilla þarf allar klukkur á landinu tvisvar og : ljóst a fjármuni. Þeir sem eiga ipti vestur um haf missa eina klukkustund af sameiginleg- um skrifstoíútima sem ekki er langur. Sé klukkunni flýtt fram undir lok október myndu menn finna fyrir skammdeginu mun fyrr a haustin. Þá þyrfti að breyta veðurfréttatímum en þar er miðað við miðtíma Greenwich (GMT). Mjaltatími mundi breyt- ast í sveitum og þeir sem nota flóðatöflur, sinna rannsóknum, fjarskiptum og samgöngum yrðu að breyta tima sínum og hafa leiðréttan tíma í huga. Tíma- reikningur á sumrin yrði víðs jarri því markmiði að hádegi sé kl. 12 og miðnætti kl. 24. Orðin hádegi og miðnætti yrðu þar meö óræð. Ritstjóri blaös velti því fyr- ir sér af hverju fólk er almennt langlífara hér á landi og í Japan og komst að því að í hvorugu landinu væri hringlað með klukkima. íslendingar fara einni klukkstund seinna í háttinn en aörir og vakna að sama skapi seinna. Misvægið yrði mun meira ef klukkunni yrði breytt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.