Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR. 2 JANÚAR 1998 27 Iþróttir Þorbjörn Jensson: Kærkomið að sjá aðra spreyta sig íslenska landsliðið í hand- knattleik hélt utan í morgun til Svíþjóðar til þátttöku í fjögurra landa móti sem hefst í kvöld. Auk íslendinga og Svía taka Eg- yptar og Túnismenn þátt í mót- inu. ísland leikur í kvöld gegn Egyptum, á laugardag verður leikið gegn Svíum og loks gegn Túnismönnum á sunnudag. Þorbjörn Jensson tilkynnti landsliðið um áramótin sem 14 leikmenn skipa og eru þeir eftir- taldir: Markmenn eru þeir Reynir Þór Reynisson, Fram, og Elvar Guðmundsson, Breiðabliki. Aðr- ir leikmenn eru Róbert Sighvats- son, Dormagen, Gústaf Bjama- son, Haukum, Jason Ólafsson, Aftureldingu, Njörður Ámason, Fram, Daði Hafþórsson, Fram, Arnar Pétursson, Stjörnunni, Hilmar Þórlindsson, Stjömunni, Sigfús Sigurðsson, Val, Davíð Ólafsson, Val, Páll Þórólfsson, Aftureldingu, Rúnar Sigtryggs- son, Haukum, og Aron Kristjáns- son, Haukum. Fastamenn í landsliðinu sem leika í Þýskalandi, Sviss og Nor- egi gáfú ekki kost á sér í þetta mót. „Ég lít á þessa ferö sem kærkomiö tækifæri til að sjá nýja leikmenn spreyta sig. Ég er að leita að framtíðarmönnum í landsliðið og þaö er vonandi að þetta mót gefi mér einhverja sýn í þeim efnum,“ sagði Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari í sam- tali viö DV i gærkvöld. Til Drammen og Larvik Eftir mótið má segja að Þor- bjöm verði á ferð og flugi. Hann mun halda til Noregs og fylgjast með Drammen á æfíngum og í keppni í deildinni og í meistara- deild Evrópu þar sem norska lið- ið mun leika gegn Winterthur frá Sviss. Bjarki Sigurösson landsliðsmaður leikur sem kunnugt er með Drammen. Eftir að verunni lijá Drammen lýkur mun Þorbjöm halda til Larvik en kvennaliðið þaöan er eitt það sterkasta í Noregi en lið- ið þjálfar Kristján Halldórsson. „Ég ætla að kynna mér lyft- inga- og þrekæfingar hjá Larvik. Mér er tjáð aö þjálfarar sem sjá um þá hlið hjá félaginu séu mjög færir á sínu sviði,“ sagði Þor- björn sem kemur ekki aftur landsins fyrr en 19. janúar. -JKS Lesendur DV kusu efnilegasta sundmann landsiiösins, Örn Arnarson úr SH, íþróttamann ársins á DV. Örn kom á ritstjórn blaösins í gær og afhenti Össur Skarphéöinsson, annar ritstjóra DV, honum veglega bókagjöf, Heimskringlu og Sturlungu frá Máli og menningu. Örn hélt áleiöis til Ástralfu í morgun en hann tekur þátt í heimsmeistaramótinu þar í landi sem hefst 12. janúar. DV-mynd Pjetur Iþróttamaður ársins á DV: Lesendur DV völdu Öm Amar- son, sundmann úr Sundfélagi Hafn- aríjarðar, íþróttamann ársins 1997. Öm er eitt mesta efni sem fram hef- ur komið f sundinu hin síðari ár og ber árangur hans á siðasta ári glöggt vitni um það. Hann er aðeins 16 ára gamall og má því ljóst vera að framtíðin er björt hjá þessum unga íþróttamanni. Öm komst í B-úrslit á Evrópumeistaramótinu í Sevilla á Spáni á sl. sumri og öðlaðist um leið rétttnn til að keppa á heimsmeist- aramótinu í Perth í Ásíralíu sem hefst eftir tíu daga. íslendingar hafa ekki átt sundmann á heimsmeist- aramóti síðan 1986. Öm varð Norðurlandameistari unglinga í tveimur sundgreinum rétt fyrir áramótin. Fyrr á árinu sló hann fyrsta íslandsmetið í fullorðn- isflokki, fyrst í 400 metra skriðsundi og á eftir fylgdu met í 100 og 200 metra baksundi og loks í 200 metra fjórsundi. Öll þessi met vom áður í eigu Eðvarðs Þórs Eðvarössonar. Öm hefur á undanfórnum dögum fengið ýmsar viðurkenningar fyrir árangur sinn. Hann varð í 5. sæti í kjöri á íþróttamanni ársins, var út- nefndur sundmaður ársins af Sund- sambandinu og var kjörinn íþrótta- maður Hafnarfjarðar. Eftirtaldir íþróttamenn fengu at- kvæði: I ÍU" Örn Amarson, sund...................503 Kristinn Bjömsson...................398 Jón Amar Magnússon, frjálsar .... 163 Ólafur Stefánsson, handbolti.........90 Tryggvi Guðmundsson, knattspyma . 89 Geir Sveinsson, handbolti............78 Guðrún Amardóttir, frjálsar..........68 Kristín Rós Hákonardóttir, sund. ... 49 Vala Flosadóttir, frjálsar...........48 Hermann Hreiðarsson, knattspyma. . 47 Davíð G. Jónsson Halldóra Sif Halldórsdóttir, dans .... 40 Birgir Leifur Hafþórsson, golf......33 Guðjón Skúlason, körfubolti..........33 Eyjólfur Sverrisson, fótbolti........25 Helgi Jónas Guðfmnsson, karfa .... 23 Guðmundur Stephensen, borðtennis. 20 Valdimar Grímsson, handbolti........ 19 Dagur Sigurðsson, handbolti......... 17 Sigurbjöm Bárðarson, hestar......... 16 Þórður Guðjónsson, knattspyma. ... 16 Bjarki Sigurðsson, handbolti........ 14 Geir Sverrisson, fijálsar........... 12 Amór Guðjohnsen, fótbolti........... 12 Helgi Áss Grétarsson, skák.......... 11 Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, sund ... 10 Róbert Duranona......................10 Bergsveinn Bergsveinsson, handbolti. 9 Halldór Svavarsson, karate............8 Þórður Emil Ólafsson, golf............5 Patrekur Jóhannesson, handbolti.... 5 Páil Þórólfsson, handbolti............5 Teitur Örlygsson, körfubolti..........5 Birgir Sigfússon, fótbolti............5 Eydis Konráðsdóttir, sund.............4 Amgrímur Benjamínsson, golf.........4 Ámi Gautur Arason, fótbolti...........4 Hermann Hauksson, körfubolti........4 Friðrik Stefánsson, körfubolti......4 Jón Andri Finnsson, handbolti.......4 Andri Sigþórsson, knattspyma........3 Ómar Halldórsson, golf................3 Gústaf Bjamason, handbolti...........3 Ólafur Gottskálksson, fótbolti.......3 Amar Pétursson, handbolti............3 Einar Þór Daníelsson, fótbolti......3 Haukur Ingi Guðnason, fótbolti......3 Amar Grétarsson, fótbolti............3 Jóhann B. Guðmundsson, fótbolti. ... 2 Sara Jónsdóttir, badminton...........2 Sigurður Valur Sveinsson, handbolti. . 2 Guðni Bergsson, fótbolti.............2 Ólafur Þórðarson, fótbolti...........2 Guðmundur Bragason, körfubolti... . 1 Kristján Helgason, snóker............1 Halldór Sigfússon, handbolti.........1 Magnús Ver Magnússon, aflraunir... 1 Ólöf María Jónsdóttir, golf..........1 Magnús Schewing, þolfimi............ 1 Pétur Marteinsson, fótbolti......... 1 „Það er mjög ánægjulegt að fá svona útnefningu og það segir manni að maður sé á réttri leið,“ sagði Öm i samtali við DV en hann hélt í morgun áleiðis til Ástralíu þcir sem tekur þátt á HM. „Ég ætla að reyna að gera mitt besta, hafa gaman af því sem ég er að gera og stefnan er auðvitað að ná í B-úrslitin sem er raunhæft mark- miö. Ég er búinn að æfa sund frá því ég var 6 ára gamall og í dag er ég aö æfa mest 9 sinnum í viku. Ég stefni á að komast í úrslit á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 og á leikunum þar á eftir ætti maður að verða á hátindi ferilsins. Sundíþróttin hér á landi er á mikilli uppleið og það er mjög ánægjulegt," sagði Öm. -Gp/JKS/SK/VS IMIMMWBÍÍÍÍÍIBMmÉMBMIIk. Elsa Rut Hjaltadóttir glæsilegum sjónauka. úr Keflavík tekur á móti lesendaverölaunum, DV-mynd Pjetur LÍMi Orn fyrir valinu hjá lesendum DV t < s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.