Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1998, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
27
, Fréttir
(
( Keflvíkingur vinnur fyrir heimsfrægar hljómsveitir:
Rótari hjá Stones
I
i
I
i
I
I
I
DV, Suðnrnesjum:
„Starf mitt er ævintýri líkast og
mjög spennandi. Það var mikil
heppni sem fylgdi því að ég fékk
starfið. Það er alveg meiri háttar
gaman að vinna fyrir þessar stór-
stjörnur og mikil lífsreynsla fyrir
mig. Þetta eru venjulegir menn en
með rosalega gott kaup,“ sagði
Ragnar Ingi Sveinbjömsson, 24 ára
Keflvíkingur, sem er rótari Rolling
Stones, einnar þekktustu hljóm-
sveitar heims. Ragnar Ingi kom til
íslands í jólafrí ásamt bandarískri
unnustu sinni en þau fór aftur heim
til Bandaríkjanna i gær. Rolling Sto-
nes lýkur hljómleikaferð sinni um
Bandaríkin í janúar og heldur því
næst í heimsreisu. Ragnar Ingi fer
ekki í þá ferð en hann verður rótari
hjá Elton John og Billy Joel, en þeir
hyggjast syngja saman í hljómleika-
ferð um Bandaríkin. Þá verður
Ragnar Ingi rótari Pink Floid á
þessu ári.
Ragnar varö Rocky
Ragnar Ingi gengur undir nafn-
inu Rocky Jónsson í Bandaríkj-
unum. Hann tók eftimafn föður síns
en breytti Ragnars-nafninu þar sem
efitt var að bera það fram í Banda-
ríkjunum. Ragnar Ingi hefur unnið
sem rótari Rolling Stones undan-
fama 4 mánuði en þar á undan var
hann rótari U2 á þrennum tónleik-
um sveitarinnar. Ragnar Ingi vinn-
ur hjá bandarísku fyrirtæki, Qu-
ality Crews, sem sér um allt um-
stang hjá þekktustu hljómsveitum
heims. „Ég fékk þessa vinnu í gegn-
um skólafélaga minn í Bandaríkjun-
um en hann var rótari í síðustu
hljómleikaferð Kiss. Ég ætla að
njóta vinnunnar minnar á meðan
hún varir. Starfíð mitt er geysilega
eftirsótt og margir sem vildu vera í
Ragnar Ingi Sveinbjörnsson, 24 ára Keflvíkingur, hefur unniö sem rótari hjá
Rolling Stones. Hann hefur unnið nýlega sem rótari hjá U2 og veröur rótari
hjá Elton John og Billy Joel og Pink Floid á þessu ári.
DV-mynd Ægir Már
mínum sporum. Það sést best á því klukkustundir til þess eins að reyna
að eftir hverja tónleika bíöur íjöldi að komast inn til að gera eitthvað.
fólks fyrir utan höllina í margar Sumir fá 5 dollara á tímann fyrir að
Húsavík:
Fjárdráttur hjá Dvalarheimilinu
DV, Akureyri:
Fjárdráttarmál er komið upp inn-
an Dvalarheimilis aldraðra á Húsa-
vík, og hefur stjómarformaður
stofnunarinnar sagt af sér í kjölfar
málsins, eins og DV hefur greint
frá. Hann var einnig stjórnarfor-
maður Kaupfélags Þingeyinga og
sagði einnig af sér formennsku þar.
Fram kom á stjómarfundi stofn-
unarinnar fyrir skömmu að reikn-
ingar fyrir stofnunina höfðu ekki
verið lagðir fram í 6 ár. Endurskoð-
endur fóru yflr reikninga fyrir árið
1991 og mun þá hafa komið í ljós
fjárdráttur sem nam a.m.k. tveimur
milljónum króna það árið. Sú upp-
hæð hefur meira en tvöfaldast með
vöxtum og dráttarvöxtum. Reikn-
ingar fyrir árin frá 1992 hefa ekki
verið endurskoðaðir en vinna við
það stendur yfir og óttast menn
jafnvel að sitthvað fleira „gmggugt"
muni koma upp á yfirborðið.
„Það er auðvitað allt annað en gott
mál að svona lagað geti átt sér stað og
ekkert annað en vanræksla stjórnar-
innar að reikningar fyrir stofnunina
skuli ekki hafa verið lagðir fram í öll
þessi ár. Þetta eru auðvitaö ekkkert
annað en meiriháttar afglöp sem
stjómarmenn verða að axla“ sagði
einn stjórnarmanna Dvalarheimilis
aldraðra á Húsavík sem DV ræddi við
um þetta mál. -gk
tína rasl í kringum sviöið. Rolling
Stones er alveg ótrúlega vinsæl og
sérstaklega hjá kvenþjóðinni. Það
kemur oft fyrir að það líður yfir
konur á hljómleikum," sagði Ragn-
ar Ingi. Ragnar Ingi bjó til 3 ára ald-
urs í Keflavík en fluttist þá til
Bandaríkjanna með foreldrum sín-
um, Sveinbimi Jónssyni úr Kefla-
vík og Sigríði Kalmarsdóttur úr
Höfiium. Ragnar Ingi fluttist á ný til
íslands 1987 með móður sinni.
„Ég var einn vetur hér í skóla. Þá
var ég í bílskúrsbandi með skólafé-
lögum. En ég fór aftur til Bandaríkj-
anna þar sem ég kann betur við
mig. Það er gott að koma hingað í
frí og mér þykir vænt um mitt
heimaland. Ég lét tattóvera skjalda-
merkið á bakið á mér. Ég hef það
mjög gott og er með góð laun þannig
að það þarf eitthvað að mikið að
breytast í lífi mínu til að ég myndi
fLytja til fslands," sagði Ragnar Ingi,
en áður en hann gerðist rótari Roll-
ing Stones var hann söngvari í
nokkrum bandarískum hljómsveit-
um sem ferðuðust um Bandaríkin
og einnig vann hann sem rótari
nokkurra hljómsveita þar.
„í kringum Rolling Stones er gríð-
arlegt hljóðkerfi og mikið umstang.
Það tekur 3 heila daga að setja upp
vinnupalla en sviðið er 8 hæðir. Þá
tekur heilan dag að setja upp ljósin
og hljóðfærin. Á tónleikum þeirra
hafa verið á milli 60 og 80 þúsund
manns. Þá sjáum við einnig um um-
stangið í kringum gestahljómsveit-
irnar, sem eru að hita upp fyrir
stjörnumar," segir Ragnar Ingi.
-ÆMK
/tf'.
Hagstœð kjör
//,
Tá
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er
afsláttur
af annarri auglýsingunni.
jfÍL.
mjt'
oW milfi himir)(
Smáauglýsingar
550 5000
I
I
WICANDERS^
Vissir þú að...
Mesta úrval
náttúrukorks á Jslandi.
C' orkur er frá náttúrunnar hendi bjggður upp af loftfylltum
J.\. holum. I hveijum ríimsentimetra af kork em 125.000
loftsellur sem pjðir að 50% korksins er loft. Þess vegna er svogott að
ganga á korkgólfum.
Þau pola velprjstingfrá pungum húsgögnum og mjóum halum .
vegna pess að korkurinn réttir úr sérþegarþijstingurinn hverfur. . ’
- alveg eins og korktappi úr kampavínsflösku.
\V/icandersgótfin hafa einstakt "fagurfraðilegt
W langlifi".
Náttúrugólfefni eins og viður og korkur hafa
gífurlegayfirburðiyfir önnurgólfefni par sem þau
eru sígild.
Þau eldast fallega og eru fógur jafnvelpópau séu
orðin gömul.
Þ.ÞORGRIMSSON & CO
ÁRMÚLI 29 108 RVK SÍMAR: 553-8640 & 568-6100 — Útsölustaðir