Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998 HLJÓMPLÖTU Ýmsir — Fishcake ★★★ Útgáfan Thule Records er starf- rækt i Borgartúninu af Þórhalli Skúlasyni, duglegum rafeindapæl- ara sem hefur frá árdögum breik- dansins reynt að koma framúr- stefnulegri rafeindatónlist á land- ann. Þetta hefur ekki borið mik- inn árangur og því hefur Þórhall- ur síðustu árin litið til útlanda, Þýskalands aðallega, eftir sperrt- um eyrum. Thule-útgáfan hefur geflð út nokkrar tólf-tommur með Þórhalli og jábræðrum hans í raf- magninu og diskurinn Fishcake safnar þessum verkum saman á handhægan hátt. Efnið á Fiskikökunni verður seint talið „aðgengilegt almenningi". Hér eru engar grípandi melódíur, ekkert sem fermingarbörn með landa í tó- matsósuflösku koma til með að syngja á hestamannamótum í sumar. Nei, hér erum við komin svo langt frá alfaraleið að innihald disksins knýr mann til að spyija djúptþenkjandi spmminga eins og „Hvað er tónlist?" og „Til hvers er tónlist?“. Takturinn í lögunum er oftast hægur svo líklega er til- gangurinn með þessari tónlist að skaffa bakgrunnstóna fyrir hægindi, þetta er tónlist til að tsjilla við, eins og sagt yrði á ísl-ensku. Tónlistin er all„mínímalísk“ og fólleit, taktfóst og full endurtekninga og næstum alveg laus við að koma á óvart. Uppbygging laganna er nokkuð svipuð; með risi er gefið loforð um einhvern hápunkt en svo ódýrra lausna er þó ekki grip- ið til heldur renna lögin út í sandinn á jafn hljóðlegan hátt og þau byrjuðu. Tónlistin minnir á notalegt brak í gömlum ofni sem lætur illa í frosthörk- um eða suð í loftkælingu. Þetta er stemningartónlist og mjög þægileg sem slík og notadrjúg við loftkenndar athafnir, eins og að drekka vatn eða að lesa eitthvað eftir Gyrði Elíasson. Stundum er þó notalegt taktfast suðið brotið upp, t.d. leyfir Sigurbjöm Þorgrímsson (Aez) sinu lagi, „Andop 3“„að springa út með offorsi og skruðningum, og það er ekki laust við að Sanasól gæli lítillega við hefðbmidna poppuppbyggingu. Þegar öllu er á botninn hvolft er Thule-útgáfan ^gðOegt innlegg - hún bætir gráu og útfjólubláu í islenska tónlistarlitrófið. Gunnar Hjálmarsson Madonna - Ray of Light ★★★ Madonna hefur líkt og fleiri stórstjörnur sterka löngun til að fylgjast með nýjustu straumum og dragast ekki aftur úr öðrum, vill halda sér ferskri í poppinu. Hún kýs að hella sér á kaf út í el- ektrónískar pælingar á nýju plöt- unni, sem er hennar sjöunda og besta í langan tíma. NýjabrumSkröfur Madonnu ganga upp á þessari plötu. Það er mikill fengur í hljóðstjómandan- um William Orbit. Við fyrstu sýn virðast Madonna og vinir hennar (lagahöfundurinn Patrick Leonard kemur hér við sögu í fyrsta skipti síðan á Like a Prayer) hafa skaffað lögin og Orbit (sem áður hefur hljóðunnið m.a. fyrir Prince, Blur, Peter Gabriel og Human League) sett þau í búning sem hæfir nýjustu kröfum. En svo fer maður að skynja dýpri samruna; platan er þétt heild, samstarfið gengur algjörlega upp. Hér er með öðrum orðum ekki sá vandræðagangur sem oft vill ríkja þegar peningar og nýjustu tónhug- myndir koma saman; útkoman er ekki brjóstumkennanleg eins og t.d. á síð- ustu U2-plötu, þar sem andleysi og peningalykt draup af hveijum tón. Þrátt fyrir nýmóðins hljóm og á köflum framúrstefnulegar pælingar er tónlist Madonnu í eðli sínu popp og það er ekki djúpt á það. Melódíurnar eru gómsætar og fljótar að troða sér á heilabörkinn. Lögin þrettán sveiflast í ótal áttir með óvæntum uppákomum og flugeldasýningum. Titillagiö er aldamótadiskó, „Skin“ er mók-rokk, „Candy Perfume Girl“ tripp hopp með umhverfisáhrifum; hvert lag virðist taka upp á einhverju skemmtilegu. Meira að segja angurværar ballöður (og af þeim er nóg) fá ekki að vera i friði fyrir tilraunamennskunni og það er friskandi tilbreytni. Madonna hefur líklega aldrei sungið betur en hér og má þakka Evítuhlut- verkinu fyrir það. Stundum er þó eins og hún ráði ekki alveg við það sem hún ætlar sér, háu-Cin eru ekki algerlega sannfærandi. Textamir eru ágæt- ir, þó dálítið tilgerðarlegir á köflum. Jafnvel þeir sem hafa aldrei þolað Madonnu ættu að gefa þessari plötu séns, en Madonnu-aðdáendur hafa ekki átt glaðari daga í langan tíma. Gunnar Hjálmarsson The Charlatans/Melting pot ★★★ Uppskera sjö ára í lifi The Charlatans er að finna á þessarri firnagóðu safnplötu, Melting Pot. Það hafa skipst á skin og skúrir í ferli sveitarinnar sem er byggð á rústum Stone Roses og Happy Mondays. The Charlatans ruddust öllum að óvörum í fyrstu sæti vinsæld- arlista upp úr 1990 með nánast allar plötur sínar, eitthvað sem svokallaðir samferða- menn þeirra í tónlistinni höfðu aldrei gert. Skýringanna er kannski að leita í einstæðri blöndu rokks og léttleika sem kemur öllum í filing. Hér er þó ekkert léttmeti á ferð, tónlistin hefur virkilegt „punch“ og maður getur sett kúl svip- inn upp við áheyrn laga sveitarinnar. Sveitin missti hljómborðsleikara sinn Rob Collins í bílslysi 1996, skömmu eftir útgáfu plötunnar One To Another og varð það áfall fyr- ir tónlistarheiminn sem sagði Collins vera síðustu raunverulegu rokkstjömuna. Sveitin hélt þó áfram með aðstoð Martin Duffy, hljóm- borðsleikara Primal Scream og platan Tellin’ Stories leit dagsins ljós í fyrra. Melting Pot er einstakt safn frábærra laga sem hver rokkunnandi getur verið stoltur að eiga. PáU Svansson Mömmustrákurinn Usher er í Voginni, fæddur 14. október 1979. Líf hans snýst um tónlist og aftur tónlist og þegar hann er spuröur hvort hann eigi kærustu segir hann að tónlistin sé hans Átján ára soulsöngvarinn eina ast- Usher Terry Raymond er einn vin- sælasti súkkulaðistrákurinn í „Rhythm & Blues“-geiranum um þessar mundir. Platan hans, My Way, hefúr gengið vel beggja vegna Atlantshafsins og þegar best lét átti hann tvö lög, You Make Me Wanna og Nice and Slow, á topp 10 í Banda- ríkjunum. Unglingastjarnan er mikill mömmustrákur og þakkar mömmu sinni frægðina. Mamman er umboðs- maður stráksa og ól hann upp sjálf eftir að pabbinn stakk af. Mamman, Usher og yngri bróðir fluttu frá Tenneesee til Atlanta þegar Usher var tólf ára og mamman fékk vinnu sem kórstjórnandi í gagnfræðaskóla. Stráksi gekk vitanlega í kórinn og fékk þar sitt tónlistarlega uppeldi; „Ég hef lært að þessi bransi er krefj- andi og mikið stress í honum,“ segir Usher, „en mamma hefur verið frá- bær kennari. Hún hefur haldið mér niðri á jörðinni.” Usher tók þátt í hæfileikakeppn- um í Atlanta og á einni slíkri sáu út- sendarar LaFace plötufyrirtækisins hann. Eftir frekari hæfnisprufur fékk Usher samning og gaf út fyrstu plötuna 1994 sem hét einfaldlega „Us- her“. Platan gekk vel en mefri at- hygli vakti Usher þó þegar hann söng í jólaauglýsingu fyrir Kók ’95 og ári síðar er hann gaf út lagið „You Will Know“ ásamt öðrum upprenn- andi söngvurum i hóp sem kallaði sig Black Men United. Með annarri plötu sinni, My Way, hefur Usher styrkt stöðu sína og hann og mamman geta ekki kvartað undan aura- eða áhugaleysi. Lagið „You Make Me Wanna” fékk verð- laun sem besta smáskífa karlsöngv- ara á „Soul Train“-hátíðinni í lok fe- brúar og bráðlega fer Usher á tón- leikatúr um Bandaríkin ásamt Mary J. Blige, einni skærustu stjörnu R&B heimsins. Usher er í Voginni, fæddur 14. okt- óber 1979. Líf hans snýst um tónlist og aftur tónlist og þegar hann er spurður hvort hann eigi kærustu segir hann að tónlistin sé hans eina ást. Þó hefur sést til gutta með Brandy, annarri ungri R&B stjörnu. Gulur er uppáhaldslitur Usher og hann á tvo hunda, þá Champ og Jazz. Hann er með húðflúr á vinstri hend- inni, nafnið sitt skreytt með sverði. Usher er auðvitað hæstánægður með stöðu sina og segist rétt að byrja. „Fólk segir að maður eigi að stefna hátt, alla leið upp á himininn, en ég er nú meira að spá í himin- geiminn," segir hann kampakátur. Botnleðja: Hvar er hún nú? Það hefur ekki borið mikið á Botnleðju síðustu mánuði og hún blandaði sér ekkert í plötuútgáfu fyr- ir síðustu jól. En hljómsveitin er fráleitt hætt og minnti á sig á síðdegistónleikum Hins hússins fyrir sléttri viku. Hún spilaði sex ný lög í bland við göm- ul og kynnti nýjan utanáliggjandi meðlim, hljóm- borðsleikarann og altmuligmanninn Kidda, sem einnig hamrar á trommur í hljómsveitinni Emmet. Það heyrðist ekkert i honum en hann stóð sig örugg- lega vel. Nýju lögin hljómuðu nokkuð sannfærandi, ekta Botnleðjugrugg. í gegnum hljóðvegginn mátti greina þó nokkuð poppaðri áhrif en áður, smá Blur- tjasl er komið í rokksprungurnar. Strákarnir báðu mig þó að taka ekki mikið mark á þessum tónleik- um, hljóðið hefði verið vont og bandið aldrei komist í stuð því áhorfendur hefðu glápt á þá með hangandi haus og „peppun" engin verið. Á míní-túr Það prógramm sem Botnleðja spilaði i Hinu húsinu er það sama og verður notað í „míní-túrnum“ sem byrjar í kvöld á barnum Gimli í Hróarskeldu. Þeir tónleikar eru hluti af hátíðarhöldum í tilefni af 1000 ára afmæli Hróarskeldu. Á morgun spilar Botnleðja i Kaupmannahöfn á Eurospotting-rokkhátíðinni. Á þeirri hátíð koma fram hljómsveitir frá ýmsrnn Evr- ópulöndum. Það er líklegt að þetta brölt Botnleðju í Danmörku verði til þess að hljómsveitin spili á Hró- arskelduhátíðinni í sumar. í næstu viku verður Botn- leðja svo komin til London og spilar í tveim loftlaus- um skítabúllum; Garage á þriðjudaginn og Bull & Gate á miðvikudag. Hljómsveitin kallar sig Silt í út- löndum og kemur til með að flytja megnið af lögunum á ensku. Ný plata Að míní-túrnum loknum má búast við að Botnleðja fari að vinna plötu og stefnt er að því að þriðja plata hljómsveitarinnar komi út í vor. Heiðar söngvari seg- ir að til sé „hellingur af hálfkláruðu efni“ sem þurfi að liggja yfir og klára. Hann er lítillátur og segir að nýju lögin séu „faktískt bara sömu gítargripin raðað saman upp á nýtt“, en svo rennur af honum kald- hæðnin og hann játar að þetta sé frábært efni, sér- staklega allra nýjustu hugmyndimar - „hálfkláraða efnið er alltaf best því þá er maður ekki búinn að fá Hljómsveitin Botnleðja er fráleitt hætt og minnti á sig á síödegistónleikum Hins hússins fyrir réttri viku. DV-mynd Hari leiða á því sjálfur. Ég er kannski ekki dómbær en mér fmnst þetta nýja efni það langskemmtilegasta sem við höfum gert til þessa“. -gUi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.