Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998 tónlist j 25 Lagið Tubthumping hefur hljóm- að nær látlaust úr öllum áttum síð- ustu mánuðina, enda feiknalega grípandi stuðlag sem hægt er að steyta við hnefann út í loftið og gaula með. Hljómsveitin á bak við lagið er Chumbawamba, sem verður að teljast ein sú sérstakasta í dag. Að hljómsveitin skuli njóta viðlíka vinsælda og hún gerir er álíka út í hött og að pönkhljómsveitin Ör- kuml ynni Eurovision. Fyrir Tubthumping Chumbawamba er skipuð átta manns sem byrjuðu að búa saman í kommúnu í Leeds fyrir fimmtán árum. Hljómsveitin valdist ekki saman vegna hljóðfærakunnáttu heldur sameiginlegrar andúðar á yfir- völdum. Hún hefur gefið út ótal plötur og fengist við ýmis afbrigði tónlistar. Fyrsta stóra platan hét Pictures of Starving Children Sell Records og kom út rétt eftir Live Aid-tónleikana. Þar var tónlistin hrátt pönk í anda anarkistanna í Crass, enda Chumbawamba á sama róli hvað varðar lífshugsjón- ir og afstöðu til heimsmála. Eftir nokkrar hráar pönkplötur gerði hljómsveitin acappella þjóðlaga- plötu með gömlum enskum upp- reisnarvísum - English Rebel Songs - sem var það síðasta sem pönkaðir aðdáendurnir bjuggust við, enda hefur aðal Chumbawamba alltaf verið að gera annað en búist er við af þeim. Enn kom bandið á óvart á næstu plötu, Slap!, þar sem það var kom- ið í í danstónlistina og blandaði hana pólitískri ádeilu. Næsta plata átti að heita Jesus H Christ og var búin til úr köflum úr frægum dæg- urlögum sem Chumbawamba hafði klippt saman upp á nýtt. Platan kom þó aldrei út vegna mótmæla frá höfundarréttarfyrir- tækjum. í staðinn kom platan Shhh þar sem fjallað var um rit- skoðun og tjáningarfrelsi. Fram að þessu hafði hljómsveitin gefið út á eigin merki, Agit-Prop Records. Nú voru umsvifin orðin of mikil, nokkrir meðlimir höfðu yflrgeflð kommúnuna og voru farnir að reka heimili, og enginn nennti í raun að reka bisness með fram hljómsveitinni. Ákveðið var því árið 1993 að gera samning við One Little Indian, fyrirtæki Bjarkar og Sykurmolanna, en þar ræður ríkj- um gamall kunningi úr pönkinu, Derek Birkett sem áður spilaði á bassa með pönkhljómsveitinni Flux of Pink Indians. Fyrsta platan á nýja merkinu var Anarchy. Á framhliðinni var ljós- mynd af barni að koma í heiminn. Sumum þótti þetta vera klám og var plat- an sums staðar bönnuð á þeim forsendum. Tónlistin á plötunni var aðgengilegri en fyrr og varð nokkuð vinsæl en hljómsveitin ákvað að endurtaka ekki gamla uppskrift á næstu plötu, Swinging with Raymond, heldur mætti með tvær hugmyndir, á annarri hlið- inni voru létt ástarlög, en á hinni djöfulleg lög um hatur og tortím- ingu. Þessi plata gekk illa og þegar Chumbawamba lagði fram næstu plötu - það efni sem myndar Tub- thumping - fannst mönmun hjá One Little Indian það ekki nógu spennandi og samningum var sagt upp. Það leit því ekki mjög vel út fyrir Chumbawamba í lok ársins 1996 og allt útlit fyrir að hljóm- sveitin yrði aftur að fara að rækta gulrætur í soðið. Eftir Tubthumping Eitt vinsælt lag getur gert gæfu- muninn. Þetta vissu Chumba- wamba-menn þegar þeir gerðu samning við stórfyrirtækið EMI. Þeir vissu að lagið Tubthumping (af samnefndri plötu) yrði vinsælt, en óraði ekki fyrir því hversu rosalega vinsælt það yrði. Þeir segjast þó enn vera sömu gömlu stjórnleysingjarnir, nú sé bara loksins hlustað á þá; þeir eru mættir til að breyta kerflnu innan Nú er Chumbawamba á ferð um Bandaríkin. Chumbawamba er skipuð átta manns sem byrjuðu að búa saman í kommúnu í Leeds fyrir fimmtán árum. Hljómsveit- in valdist ekki saman vegna hljóðfærakunnáttu heldur sameiginlegrar andúðar á yfirvöldum. frá. Og að gera grípandi popplög er þeirra leið til að ná til fólks: „Ég trúi því að eina leiðin til að höfða til ungs fólks,“ segir Alice Nutter söngkona, „sé með góðri popptónlist og góðum takti. Ástæð- an fyrir því að við viljum vera vin- sæl er sú að þá náum við til fleiri og á endanum hlustar kannski ein- hver á þann boðskap sem við erum með.“ Hvemig er hægt að vera bæði í vinsælli hljómsveit og vera stjórn- leysingi sem berst fyrir uppstokk- un á kerfinu. Er það ekki þver- sögn? Ekki vilja Chumbawamba meðlimir meina það. Þeir velja og hafna þeim tilboðum sem þeir fá og láta meirihluta gróðans renna til málefna sem þeir styðja. Og láta líka verkin tala. Þeim er illa við enska Verkamannaflokkinn, finnst hann hafa svikið málefnin og sé orðinn meira íhald en íhcdds- flokkurinn. Á síðustu Brits-hátíð gat söngvari Chumbawamba, Dan- bert Nobacon, ekki setið á sér þeg- ar hann sá aðstoðarforsætisráð- herrann, John Prescott, drekka kampavín og klappa fyrir Spice Girls. Danbert óð að honum og hellti ísköldu vatninu úr kampa- vínsfötunni yfir hann. Danbert var leiddur burtu í járnum og atburð- urinn var blásinn upp í enskum blöðum daginn eftir. Um leið gat Chumbawamba komið skoðun sinni á framfæri við þjóðina - „Við höfnum þeirri hugmynd að Verkamannaflokkurinn sé nokkuð skárri en gamla íhaldið." Nú er Chumbawamba á ferð um Bandaríkin og gaman að fylgjast með því hvort hljómsveitin stend- ur í einhverjum uppákomum. Það er víst að ef eitthvað fréttist verð- ur það fyrir eitthvað vitrænna en að láta illa í flugvél eða rústa hót- elherbergi. -glh Á ÍD. Amnesia Hljómsveitin Amnesia mun spila á síðdegistón- leikum Hins hússins kl 17 í dag á Kakóbarnum Geysi. Skítamórall Skítamórall ætlar að spila í félagsheimilinu Hlégarði Mosfellsbæ í kvöld. Annað kvöld mun hljómsveitin svo halda til Eyja og leika þar á dans- leik fyrir gesti Höfðans. Sóldögg á Höfn Sóldögg leikur fyrir dansi á Víkinni í Höfn á Horna- firði annað kvöld. Sveitin mun síðan spila á Gaukn- um miðvikudag og fimmtudag. Villi Pella Trúbadúrinn Villi Pella ætlar að halda uppi fjör- inu á Wunderbar fostu- dags- og laugardagskvöld. Gaukurinn Á Gauknum ætla Akur- nesingarnir í GOS spila fyrir Reykvíkinga bæði fóstudags- og laugardags- kvöld. Hljómsveitin er í samstarfi við útvarps- stöðina FM 957. Tvennir tímar Hljómsveitin Tvennir tímar spilar fyrir Grafar- vogsbúa á Feita dvergn- um bæði í kvöld og ann- að kvöld. Styrktartón- leikar í kvöld efnir Æskulýðsfé- lag Garðakirkju til styrktartónleika fyrir krabbameinssjúk böm í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Þar mun Stolía spila ásamt flytj- endunum Psychoticz, DJ Gunna, Saur, Grufl og Raija. Tónleikarnir hefj- ast kl. 19.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.