Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1999, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 1999
13
Hver treystir
ekki Finni?
Fyrir nokkru kom út
svonefnt „Kynningar-
blað Sambands sveitar-
félaga í Austurlands-
kjördæmi" og dreifðist
um allt land innan í
Morgunblaðinu. Inni-
hald þessa bæklings
vakti mörgum reiði og
hneykslun vegna ein-
hliða stóriðjuáróðurs
og óvandaðs málflutn-
ings. Þessi einsýni boð-
skapur var þeim mun
ábyrgðarlausari að þar
er talað í nafhi allra
sveitarfélaga Austur-
landskjördæmis þótt
mjög öflug andstaða sé
við óheft stórvirkjanaá- “
form í kjördæminu. Til
að mynda er ekki langt síðan
sveitarstjórn Austurhéraðs lýsti
sig hlynnta lögformlegu umhverf-
ismati á Fljótsdalsvirkjun og hið
sama gildir um Fljótsdælinga.
Hverjir kostuðu pésann?
Þeir sem kostuðu þennan bæk-
Kjallarinn
Landsvirkjun sem
eru því kostunarað-
ilar þessa eindæma
áróðursrits. Lög-
mætt? Varla. Sið-
laust? Já. Eða ættu
ráðuneyti almennt
að taka upp þann
sið - í samfloti við
ámóta ríkisfyrir-
tæki og Landsvirkj-
un - að vera kostun-
araðilar einhliða
áróðursrita sem þau
teldu sér þóknanleg
og gefln væru út í
nafni ýmissa sveit-
arfélagasambanda?
Auðvitað er löngu
“ vitað að Landsvirkj-
un vílar ekkert fyrir
sér. En óneitanlega er þetta tÚlag
iðnaðarráðuneytis sérkennilegt í
ljósi þess að á sama tíma skipar
Finnur Ingólfsson verkefnisstjóm
sem á að forgangsraða virkjunum
og móta langtíma-rammaáætlun
rikisins í umhverfis- og orkumál-
um, auk ferðaþjónustu. Ráðherr-
------------. ann segist vonast
Birgir Sigurðsson
rithöfundur
Er rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma á öllu landinu einka-
mál Austurlandskjördæmis? spyr greinarhöfundur.
„Svo sem eðlilegt er eiga fulltrú-
ar orkugeirans, Landsvirkjun og
Orkustofnun, sæti í þessari
stefnumótandi verkefnisstjórn.
Hins vegar eiga engir málsmet-
andi ferðaþjónustufrömuðir þar
sæti. Eru þeir ekki nógu hallir
undir stórvirkjanastefnuna?“
ling vora Fjarðabyggð, Seyðis-
fjörður og svokölluð Starnefnd
(nefnd um staðarval iðnaðarsvæða
á Reyðarfirði). Að þessari nefnd
standa m.a. iðnaðarráðuneytið og
til þess að áætl-
unin muni
„stuðla að al-
mennri sátt um
nýtingu vatnsafls
og jarðvarma".
(Mbl. 10.3. sl.)
Telur hann að of-
angreint tillag
iðnaðarráðuneyt-
isins til áróður-
spésans stuðli að
slíkri sátt? Og er
það í nafni sáttar
sem hann skipar einn svæsnasta
penna bæklingsins, Þorvald Jó-
hannsson, í ofannefnda verkefnis-
stjóm? Varla. Hins vegar er einkar
þénugt fyrir ráðherrann að hafa
Þorvald þennan í verkefnisstjóm-
inni þar sem hann er jafneinnsýnn
stóriðjumaður og ráðherrann sjálf-
ur.
Skylt er að geta þess að Þorvald-
ur er formaður orku- og stóriðju-
nefhdar Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi. En er
rammaáætlun um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma á öllu landinu
einkamál Austurlandskjördæmis?
Hefði ekki verið nær að skipa fuU-
trúa frá Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga?
Traustvekjandi?
Svo sem eðlilegt er eiga fulltrú-
ar orkugeirans, Landsvirkjun og
Orkustofnun, sæti í þessari stefnu-
mótandi verkefnisstjórn. Hins veg-
ar eiga engir málsmetandi ferða-
þjónustufrömuðir þar sæti. Em
þeir ekki nógu haílir undir stór-
virkjanastefnuna? Frjáls og óháð
náttúruverndarsamtök eiga þar
ekki heldur fulltrúa. Þeir sem ótt-
ast um ósnortna náttúra þurfa
samt engu að kvíða. Formaður
Landverndar er nefnilega í verk-
efnisstjórninni. Það era nú nátt-
úruverndarsamtök sem segja sex:
Formaðurinn er Jón Helgason,
fyrrverandi framsóknarráðherra,
og Landsvirkjun er aðili að þeim.
Fyrirtækið á meira að segja full-
trúa í stjóm Landverndar. Það er
einkar þénugt þvi þá getur Lands-
virkjun líka komið að málinu nátt-
úraverndarmegin. Má þar með
segja að ósnortinni náttúru og ger-
semum hennar sé vel borgið!
Landvernd, með Landsvirkjun
innanborðs og í stjórn, á líka að
sjá um svonefndan samráðsvett-
vang enda leggur Finnur áherslu á
„að rammaáætlunin njóti trausts
úti í samfélaginu". (Mbl.10.3.)
Hver fyllist ekki trausti og tiltrú
þegar svona er staðið að málum?
Birgir Sigurðsson
Sannleikurinn er
sagna bestur
Það er býsna mikið rætt í dag
um þann margþætta vanda sem af
neyslu vímuefna stafar og er það
vissulega af hinu góða ef menn í
alvöru skyggnast um sviðið og
leita orsaka annars vegar og úr-
bóta hins vegar. Ekki skal efast út
af fyrir sig um einlægni þeirra
sem um fjalla, hafandi fyrir sér þá
ógn ógæfu af ýmsu tagi sem allt of
víða blasir við. Þó bregður of oft
fyrir undarlegum tvískinnungi hjá
„Það er fróðlegt í dag að bera
saman rök og fullyrðingar með og
á móti bjórnum en hitt i raun
hryggilegra hversu allar spár okk-
ar andstæðinga bjórsins hafa
ræst. Heildarneyslan hefur aukist
að mun..."
ágætu fólki sem um vandann fjall-
ar, þar sem vímuefnum er skipt í
tvo flokka og afar skýr skil dregin
um leið þeirra á milli.
Lögleg og ólögleg vímuefni
Ég segi stundum að menn vilji
skipta vímuefnum í góð og vond
og ekki laust við að manni þyki
sem eigin sjálfselska ráði för um
of. Nánar tiltekið er hér um að
ræða að skipta vímuefnum í lögleg
og ólögleg vímuefni og ekkert
nema gott um þá skiptingu að
segja ef þau eru ekki slitin úr sam-
hengi, rétt eins og um alls óskylda
hluti sé að ræða sem engin áhrif
hafi innbyrðis.
Eftir þvi tek ég oftar en ekki í
slikri umfjöllun að á meðan hin
ólöglegu vímuefni eru réttilega
fordæmd kröftuglega þá er annað-
hvort engin afstaða tekin til áfeng-
isins eða það
meðhöndlað sem
tiltölulega sak-
laus neysla, að
maður ekki segi
að vegsamað sé.
Oftar en ekki er
hér um þá
sjálfselsku að
ræða og þá skæð-
an tvískinnung
um leið, að við-
komandi neytir
áfengis og þykir
harla gott enda þykist sá hinn
sami engin vandamál hafa þar af
og þeim mun kröftugri orð era um
önnur vímuefni viðhöfð.
Alveg sérstaklega er þá neysla
léttra vína og ég tala nú ekki um
bjórs vegsömuð eða a.m.k. talin
nær af hinu góða.
Með og mót bjórnum
Nú er það svo að allar rann-
sóknir sem ekki eru
þá kostaðar af áfeng-
isauðvaldinu sjálfu
sýna svo ekki verður
um villst órofasam-
hengi milli neyslu
hinna ýmsu vímu-
efna: tóbaks, áfengis
og ólöglegra vímu-
efna þar sem eitt leið-
ir af öðra í yfirgnæf-
andi tilvikum. Og svo
minnst sé á bjórinn,
sem margir fögnuðu á
sinni tíð ýmist í and-
varaleysi eða enn
frekar af gráðugri
gróðavoninni einni
saman, þá man ég
mætavel hinar djörfu
fullyrðingar bjór-
sinna um aö ástand allt mundi
batna, heildarneysla áfengis stór-
minnka og unglingadrykkjan síð-
ur en svo aukast, hvað þá að
neyslan mundi enn neðar færast.
Það er fróðlegt i dag að bera
saman rök og fullyrðingar með og
á móti bjómum en hitt í raun
hryggilegra hversu allar spár okk-
ar andstæðinga bjórsins hafa
ræst. Heildameyslan hefur aukizt
að mun, unglingadrykkjan hefur
aukist, neyslan hefur færst neðar
í aldursstiganum og margfræg og
margtuggin menningaráhrif held-
ur betur látið á sér standa. Og
Kjallarinn
Helgi Seljan
þingtemplar
brugg og smygl, sem
hverfa áttu eins og
dögg fyrir sólu, hafa
andhverfuna eina
sem virkileika.
Feginn vildi ég að
þessar spár okkar og
uggur um áhrifin
heföu ekki ræst, en
rauntölur staðreynd-
anna liggja fyrir, því
miður. Annað mál er
svo það að nú á 10
ára óheillaafmæli
bjórsins munu
margir, allt of marg-
ir fagna, þrátt fyrir
dauðans alvöru stað-
reyndanna. Fyrst og
““ síðast auðvitað sá
Qöldi sem á annarra
ógæfu græðir ótæpilega og svo
hinir sem sjá allt í einhverri
menningarglýju, sitjandi sem hin
„góða“ fyrirmynd hinna ungu
náttlangt á ótölulegum bjórkrám
borgarinnar og varðar ekkert um
staðreyndir.
Hugsandi fólk setur hlutina i
samhengi og virðir staðreyndir.
Sannleikurinn er nefnilega sagna
bestur í þessu sem öðru og breyt-
ir þar engu um fagurgali gróða-
punga og annarra þjóna vímunn-
ar, þó hátt láti svo sem heimskra
er siður.
Helgi Seljan
Með og
á móti
Grunnskólahald á
Korpúlfsstöðum
Sigrún Magnús-
dóttir borgarfull-
trúi.
Meira öryggi
„í Engja- og Borgahverfi hefur
skólastarf verið hafið í tvö ár með
færanlegum skólastofum. Reynslan
af því hefur leitt í ljós að það er
verra að vera með skólahald þar
sem stórfram-
kvæmdir eru í
gangi. í Víkur-
hverfi háttar
þannig til að eftir
er að byggja leik-
skóla líka og Ijóst
að framkvæmd-
irnar með til-
heyrandi um-
stangi munu
ógna öryggi
skólabarna. Þau
fá ekkert öruggt útivistarsvæði.
Samkvæmt áætlun okkar verður
Víkurskóli tekinn í notkun
2001-2002. í áætluninni var ekki
gert ráð fyrir skólastarfi í Staðar-
hverfi en nú er ljóst að þar er meira
um barnafólk en í Víkurhverfi. Við
verðum því aö koma til móts við
íbúa þess hverfis ekki síður en íbúa
Víkurhverfis. Vestasta álma Korp-
úlfsstaða er ónotuö. Þegar við sáum
hversu myndarlega golfarar höfðu
staðið að framkvæmdum í austur-
endanum kom upp sú hugmynd að
nota vesturendann sem bráða-
birgðáhúsnæði fyrir skólastarf með-
an Víkurskóli væri i byggingu.
Þannig fæst bráðabirgðakennsluað-
staða fyrir þau 80 börn sem hafa
verið skráð í skóla í þessum hverf-
um. Og það sem ekki er síður mik-
ilvægt: börnin fá stórt og öruggt úti-
vistarsvæði. Þau verða ekki í hættu
vegna byggingarframkvæmda.“
Veriö að
svíkja fólk
„Sé málið skoðað út frá sjónar-
miði íbúa Víkurhverfisins þá hafa
þeir gert ráð fyrir að skóli væri í því
hverfi, samkvæmt þeim upplýsing-
um sem fengist hafa fram til þessa.
Það er því verið
að svíkja þetta
fólk um það sem
því var lofað og
tók ef til vill
ákvörðun út frá
þeim forsendum
um að búa þarna.
Augljóslega þýðir
þetta mikið rask
fyrh börn þegar
þau era jafnvel að
skipta á unga
aldri þrisvar um skóla þótt þau búi
á sama staðnum. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um hversu óhentugt
það er út frá öllum forsendum fyrir
viðkomandi böm og foreldra þeirra.
Einnig má benda á fiarlægðir frá
viðkomandi hverfum til skólans
sem geta ekki verið af hinu góða.
Menn eru að tala um tvísetningu í
Korpuskóla þannig að ekki verður
um að ræða einsetningu eins og
víða annars staðar. Einnig er lík-
legt, að fenginni reynslu, að þarna
verði skólahald til lengri tíma en
talað er um nú, þegar einu sinni er
búið að koma upp skóla á annað
borð. Korpúlfsstaðir henta ekki vel
undir skólastarf. Forystumenn Sam-
foks, sem skoðað hafa fyrirhugaðar
teikningar, bentu á að mjög óhent-
ugt væri að vera með skólastarfsemi
þar. Þeir sem best þekkja telja að
ekki sé gott að vera með skólastarf-
semi í þessari byggingu. Þegar tekn-
ar eru inn í dæmið kostnaðartölur,
sem eru mjög loðnar og í lausu lofti,
er ekki hægt að sjá að sú leið sem R-
listinn vildi fara þarna, gegn mót-
mælum okkar sjálfstæðismanna, sé
skynsámleg. Helstu rökin fyrh þess-
ari ráðstöfun eru fjárhagsleg. En ef
menn skoða þær forsendur sem
gefnar eru fyrir þeim spamaði sem
R-listinn talar um að ná þá virðist
ávinningurinn af þessari ráðstöfun
ekki verða mikill, ef hann er þá ein-
hver.“ -hlh/JSS
Guölaugur Þór
Þóröarson borgar-
fulttrúi.