Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1999, Blaðsíða 20
20
FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1999
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
21
Sport
Sport
Breytingar hjá Alfreð og Magdeburg:
Minnst einn
- bikar á næsta tímabili, segir Alfreð Gíslason
Nokkrar breyt-
ingar verða á liði
Magdeburg í þýsku
A-deildinni í hand-
knattleik á næstu
leiktíð en Alfreð
Gíslason er sem
kunnugt er tekinn
við liðinu eftir að
hafa verið við
stjórnvölinn hjá
Hameln síðustu ár.
Alfreð hefur los-
að sig við þrjá leik-
menn, markvörð-
inn Almantas Sav-
onis og miðjumanninn Vigni-
adas Pekevicius, sem báðir
eru frá Litháen, auk Thomasz
Lebiedzinski. í þeirra stað eru
komnir franski landsliðs-
markvörðurinn Christian
Gaudin sem lék með Hameln,
Rússinn Oleg Kuleschov,
miðjumaður sem kemur frá
Volgograd, og Michael Jans
sem lék með B-deildarliði
Magdeburgar og var marka-
hæsti leikmaður B-
deildarinnar á síð-
asta tímabili. Þess-
ir þrir leikmenn
koma örugglega til
með að styrkja lið-
ið sem stóð ekki
undir væntingum
síðasta vetur.
En hvemig leggst
svo í Alfreð að taka
við liði Magdeburg-
ar sem hafnaði í 5.
sæti í A-
deildinni
á síðustu
leiktíð og sigraði í
EHF-keppninni?
„Þetta leggst
bara vel i mig. Ég
var meö hópinn við
æfmgar í einn mán-
uð frá 10. maí til 10.
júní en núna eru
menn i fríi en við
tökum svo upp
þráðinn þann 5.
júlí. Auðvitað gera
menn hér kröfur um að ná
góðum árangri og forráða-
menn félagsins hafa tekið
stefnuna á að vinna í það
minnsta einn bikar af þeim
þremur sem eru í boði á
næstu leiktíð. Ég held að liðið
eigi að hafa alla burði til þess
að verða í toppbaráttunni,"
sagði Alfreð Gíslason í sam-
tali við DV í gær.
Ólafur fór í uppskurð
Alfreð sagði að fjór-
ir leikmenn Magde-
burgar hefðu þurft
að gangast undir
uppskurð eftir
tímabilið og einn
þeirra var Ólafur
Stefánsson. Meiðsli
í hné voru að angra
Ólaf en að sögn Al-
freðs getur hann
byrjað að æfa eftir
hálfan mánuð.
-GH
Alfreð Gíslason:
Kröfur um góðan
árangur.
Ólafur Stefánsson er
nýkominn úr
uppskurði.
Norska bikarkeppnin:
Tryggvi skor-
aði 4 í Alta
0 V
* LANDSSÍMA
^DÐLDiM y r\r
Tryggvi Guðmundsson
skoraði fjögur mörk
í gær þegar lið hans,
Tromsö, vann Alta á
útivelli, 6-1, í
norsku bikarkeppn-
inni í knattspymu.
Leikið var innan-
húss en Alta er eitt
nyrsta byggða ból í
Noregi. Tryggvi var
tekinn út af strax
eftir að hann gerði
ijórða mark sitt á
73. mínútu.
Tryggvi - 4 mörk.
Tvö frá Ríkharði
Ríkharður Daða-
son skoraði tvívegis
í gær fyrir Viking
Stavanger sem vann
Álgárd, 5-0, í bik-
arnum. Rétt eins og
Tryggvi var Rík-
harður tekinn af
velli um leið og
hann hafði skorað
mark sitt. Ríkharði hafði
gengið mjög illa að skora í
síðustu leikjum þannig að
mörkin voru kærkomin fyr-
ir hann. Auðun Helgason lék
ekki með Viking.
Pétur og Helgi skoruðu
Pétur Marteinsson og
Helgi Sigurðsson skoruðu
báðir fyrir Stabæk í 6-1 sigri
Ríkharður - tvö.
síðara
á Gjövik/Lyn. Það voru tvö
fyrstu mörk leiks-
ins, og Helga var
kippt af velli rétt
eftir markið.
Rúnar Kristinsson
lék allan leikinn
með Lilleström sem
vann Os, 3-0, en
Heiðar Helguson
var tekinn út af.
Steinar Adolfsson
fékk að líta gula
spjaldið þegar lið
hans, Kongsvinger,
vann Bryne, lið
Ragnars Árnasonar,
1-0. Stefán Þ. Þórð-
arson var ekki með
Kongsvinger.
Árni Gautur
Arason fékk ekki
tækifæri í marki
Rosenborg sem
vann Narvik úti,
9-1.
Strömsgodset fékk háðu-
lega útreið gegn B-deildarliði
Haugesund, 5-1. Valur Fann-
ar Gíslason lék með Ströms-
godset en ekki Stefán bróðir
hans.
Annað A-deildarlið féll út
því Skeid tapaði heima fyrir
Raufoss, 3-4. Önnur liö úr
efstu deildinni komust áfram
á kostnað liða úr lægri deild-
um. -VS
Urvalsdeild karla
ÍBV 6 3 2 1 10-4 11
KR 5 3 1 1 10-4 10
Fram 6 2 4 0 7-3 10
Breiðablik 6 2 3 1 5-3 9
Grindavík 7 2 2 3 7-8 8
Víkingur R. 6 1 4 1 6-8 7
Leiftur 5 2 1 2 4-7 7
IA 6 1 3 2 2-4 6
Keflavlk 6 114
Valur 5 0 3 2
7-11 4
6-12 3
Vikingur og IBV áttu að leika á
Laugardalsvelli í gærkvöld. Ekki var
flugfært frá Eyjum vegna þoku og
leikurinn hefur því verið settur á
annað kvöld. Þessir leikir eru í kvöld:
Leiftur - Valur ................20.00
Keflavík - Breiöablik...........20.00
KR - Fram ......................20.00
DEIID KARLA
HK - Léttir...................2-1
Þórður Guðmundsson 2 - Óskar Grét-
arsson.
Leiknir R. - Þór A............2-2
Þórður Jensson, Óskar Alfreðsson -
Elmar Eiríksson, Orri Hjaltalín.
Völsungur - KS ...............1-0
Jóhann Pálsson.
Tindastóll - Sindri...........0-0
Ægir - Selfoss ...............1-1
Tómas Þór Kárason - Sigurður A.
Þorvarðarson.
Tindastóll 6 4 2
Leiknir R. 6 3 3
0 18-4 14
0 ll^ 12
Evrópumótiö í körfubolta:
Júgóslavarnir
einir ósigraðir
HK 6 3 2 1 14-11 11
Sindri 6 2 4 0 7-2 10
KS 6 2 1 3 9-9 7
Ægir 6 1 4 1 9-12 7
Selfoss 6 1 3 2 10-10 6
Þðr A. 6 1 2 3 7-13 5
Völsungur 6 1 1 4 6-16 4
Léttir 6 1 0 5 10-20 3
Undanriðlum Evrópumótsins í
körfu lauk i gær. Júgóslavar
unnu heimamenn, Frakka, 63-52,
og eru eina ósigraða iiðið í
keppninni. Nú taka við
milliriðlar. Úrslitin í gær:
A-riðill:
Makedónía vann ísraei, 62-64, og
Júgóslavar unnu Frakka, 63-52.
Júgóslavía, Frakkar og Israelar
fara áfram.
B-riðill:
Ungverjaland vann Slóveníu,
72-66, og Spánverjar unnu Rússa,
72-69. Spánverjar, Rússar og
Slóvenar fara áfram.
C-riðill:
Króatar unnu Bosníu, 65-59, og
ítalir unnu Tyrki, 64-61. Króatar,
ítalir og Tyrkir fara áfram.
D-riðill:
Þjóðverjar urðu fyrstir til að
vinna Tékka, unnu þá 77-68, og
Litháar möluðu Grikki, 82-64, þar
sem Arvitas Sabonis geröi 18 stig
á 23 minútum og tók 8 fráköst.
Tékkar, Litháar og Þjóðverjar
komast áfram. -ÓÓJ
^»i2. DEILP KARLA
D-riðill:
Þróttur N. - Huginn/Höttur .... 1-1
Þróttur N. 4 3 1 0 7-3 10
Hug./Hött. 4 12 19-6 5
Leiknir F. 3 1 1 1 4-3 4
Einheiji 3 0 0 3 2-10 0
Helsingborg náði i gærkvöld þriggja
stiga forystu i sænsku A-deildinni í
knattspyrnu með þvi að sigra Halmstad,
1- 0. Hammarby og Kalmar skildu jöfn,
2- 2, og Malmö og Gautaborg gerðu 1-1
jafntefli. Ólafur Örn Bjarnason sat á
varamannabekknum hjá Malmö en
Sverrir Sverrisson er frá vegna
meiðsla. Helsingborg er með 25 stig á
toppnum i Svíþjóð, Örgryte er með 22,
Halmstad 20 og Kalmar 20. Brynjar
Björn Gunnarsson og félagar í Örgryte
eiga einn leik til góða en þeir mæta
Trelleborg á útivelli á sunnudaginn.
Pete Sampras, Wimbledon-meistari
karla í fyrra, vann öruggan sigur á
Sebastien Lareau frá Kanada, 6-4, 6-2,
6-3, í 2. umferð á Wimbledon-mótinu í
tennis í gær. Jim Courier vann mikinn
maraþonsigur á Carlos Moya í þriggja
tíma leik, 6-3, 3-6, 7-6, 3-6, 6-2.
Steffl Graf lenti í talsveröum vandræð-
um með Mariaan de Swardt frá Suður-
Afríku i 2. umferð kvenna en sigraði,
4-6, 6-3 og 6-2. Monica Seles burstaði
hins vegar Marlene Weingartner frá
Þýskalandi, 6-0 og 6-0.
Lothar Matthaus, knattspyrnumaður-
inn frægi frá Þýskalandi, sagði í gær að
hann myndi hætta hjá Bayern Mún-
chen um næstu áramót og spila með
New York-New Jersey Metrostars í
bandarisku A-deildinni þegar hún hefst
í mars á næsta ári. Hinn 39 ára gamli
Matthaus er hins vegar tilbúinn að spila
með Þjóðverjum i úrslitum EM um
sumarið.
Hjörtur Leví Pétursson úr GOS varð
HSK-meistari karla í golfi um siðustu
helgi en meistaramótiö fór fram á Sels-
velli. Guöný Rósa Tómasdóttir, GHR,
varð HSK-meistari i kvennaflokki.
KR-ingar sendu i gær út afsökunar-
beiðni vegna ummæla i garð Framara,
sem birtast í leikskrá KR-inga fyrir ieik
félaganna í úrvalsdeildinni í knatt-
spymu í kvöld. Þar er meðal annars
sagt að lið Fram sé byggt á tómum með-
almönnum og félagið sé ekki liklegt til
að ná miklum árangri með slíkan mann-
skap.
-VS
Kenneth Matijani, Suöur-
Afríkubúinn á Skaganum:
Harðari bolti
0
r
Kenneth Matij-
ani, hinn
skemmtilegi
og sókndjarfi
Suður-Afríku-
búiíliði
Skagamanna.
DV-mynd
E.OI.
*
m
J
• ■
a Islandi
Kenneth Matijani hefur verið góður fengur fyrir Skaga-
menn í sumar. Þegar hann hann kom til liðsins var ekki
bjart yfir búinu, liðinu gekk ekkert að skora og fram und-
an virtist vera hörð og erfið fallbarátta. En þessi 26 ára
Suður-Afríkubúi hefur
fært líf á ný í Skagasókn-
ina, skorað 3 mörk í 4
leikjum, á sama tíma og
Skagamenn hafa nú unnið
þrjá leiki í röð.
Mikilvægur sigur en erf-
iður seinni hálfleikur?
„Já, sumir af strákunum
eru iðnir við að fá þessi
rauðu spjöld en við vitum
að allir leikir eiga eftir að
verða erfiðir í sumar.“
Hvemig er að spila hér í
íslenska boltanum?
„Það er mun harðari bolti
hér frá því sem ég er van-
ur í Suður-Afríku en ég
mun bara aðlaga mig að
þessum bolta. Strákarnir
hafa kennt og sýnt mér
margt og þetta er allt að
koma.“
Hvar spilaðir þú áður?
„Ég hafði spilað með Jomo
Cosmos í Suður Afríku allan minn feril.“
Hvert stefnir þú í framtíðinni?
„Framtíðin er óráðin en fái ég gott tilboð er aldrei að
vita nema aö ég slái til. Næst er erfiður leikur í Albaníu í
Evrópukeppninni og að honum mun ég og strákarnir
einbeita okkur að næst. Ég á þó samt eftir að gera upp við
mig hvort evrópski boltinn hentar mér og hvort ég vil
vera hér áfram eftir sumarið." -ÓÓJ
Helgi orðaður við Bolton
Helgi Kolviðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var í gær
á ný orðaður við enska félagið Bolton í þarlendum fjölmiöl-
um. Eins og áður hefur komið fram í DV hefur Bolton rætt
óformlega við Mainz í Þýskalandi um kaup á Helga en talið
er að þýska liðið vilji fá 50-80 milljónir fyrir hann.
Colin Todd, framkvæmdastjóri Bolton, segir á heimasíðu
félagsins að hann stefni að því að fá fimm leikmenn til félags-
ins. Fjórir leiki í Englandi og einn annars staðar. Todd vill
ekki nafngreina leikmennina en ensk blöð leiða að því getum
að þessi eini utan Englands sé Helgi Kolviðsson. -VS
Framtíðarliðið
- farið á mót í Portúgal
Ragnar Hauksson kom mikið við sögu í fyrsta sigri Skagamanna í sumar. Hann skoraði sigurmarkið í leiknum f fyrri hálfleik, fyrsta Skagamarkið í 340 mínútur, og fékk síðan að iíta rauða spjaldið í seinni hálfleik. Ragnar (gulur) er hér
í baráttu við Guðjón Ásmundsson, besta leikmann Grindvíkinga í leiknum í gær. DV-mynd E.ÓI.
Það sem koma skal
- Ragnar Hauksson tryggði Skagamönnum fyrsta sigurinn í sumar í sjötta leiknum
íslenska landsliðið í hand-
knattleik heldur til Portúgals
í dag til þátttöku á fjögurra
landa móti en auk íslendinga
taka Portúgal, Sviss og Grikk-
land þátt í mótinu.
Leikmenn í landsliðinu eru
framtíðarhópur A-landsliðs-
ins, svokallað 2004-lið. Hópur-
inn hefur æft undir stjórn
Theodórs Guðfinnssonar
landsliðsþjálfara síðan í maí
en hluti af liðinu er á æfing-
um með 20 ára landsliðinu
sem leikur á HMí Kína í
ágúst.
Þeir leikmenn sem Theodór
fór með í mótið í Portúgal eru:
Helga Torfadóttir, Víkingi
Hugrún Þorsteinsdóttir, Fram
Sonja Jónsdóttir, Val
Gerður B. Jóhannsdóttir, Val
Hrafnhildur Skúladóttir, FH
Brynja Steinson, Val
Kristín Guðmundsd., Víkingi
Hildur Erlingsdóttir, FH
Eivor Pála Blöndal, Val
Björk Ægisdóttir, FH
Jóna Björk Pálmadóttir, Fram
Harpa Melsted, Haukum
Ragnheiður Stephensen, Stjöm.
Anna Blöndal, Stjörnunni
-GH
Fyrsti sigur Skagamanna er kom-
inn í hús eftir 1-0 sigur á Grindvík-
ingum uppi á Skaga í gær í sjötta
leik liðsins í úrvalsdeildinni.
Það voru liðnar 340 markalausar
mínútur hjá liðinu þegar að Ragnar
Hauksson skoraði sigurmark liðs-
ins í gær. Þrátt fyrir að Ragnar
hefði síðan fengið rautt spjald í
byrjun fyrri hálfleiks og komið
rauðu spjöldum (3) liðsins i sumar
aftur yfir gegn mörkunum (2), býr
mark hans yfir miklu mikilvægi
fyrir þetta fornfræga knattspyrnu-
lið sem hefur nú loks fengið byr í
seglin í erfiðri baráttu sumarsins.
Það var bara eitt fótboltalið mætt
til leiks á Skaganum í gær. Heima-
menn yfirspiluðu Grindvíkinga í
fyrri hálfleik og skipti það síðan
litlu að gestimir urðu einum manni
fleiri á 48. mínútu leiksins. Skaga-
menn breyttu þá reyndar leik sín-
um, bökkuðu aftar á völlinn, en
Grindavíkurliðið hélt samt áfram
að verjast. Verja hvað vill maður þó
spyrja. Marki undir, manni fleiri og
samt var ekkert að gerast í sóknar-
leik liðsins. Það var ekki fyrr en að
Óíafur Ingólfsson kom inn á og
færði smálíf í sókn liðsins, en það
var alltof lítið og uppskeran var
aðeins fjögur markskot. Góð dæmi
um sóknarframgöngu leikmanna
Suðurnesjaliðsins eru að liðið braut
4 sinnum oftar af sér en skot þess á
markið og náði einnig í fleiri spjöld.
Skagamenn voru einum manni
færri allt þar til Grétari Hjartarsyni
var vikið út af í blálokin fyrir að
hrinda Reyni Leóssyni. Það kom í
framhaldi af því að Grétar vildi fá
vítaspymu. Framkoma Grétars þar
var ekki til fyrirmyndar.
Þeir bökkuðu til dæmis alltof
mikið og gáfu Grindvíkingum
svæði í lokin sem þeir hefðu vel get-
að nýtt en annars
líklega ekki skap-
að sér sjálfir. En
sigurinn er Skaga-
mönnum mikil-
vægastur og fyrri
hálfleikurinn gef-
ur góð fyrirheit
um það sem koma skal hjá liðinu.
„Langþráð og sætt“
„Þetta var mjög langþráð og sætt
að ná að vinna. Við reyndum að
þjappa okkur saman þegar Ragnar
fekk rauða spjaldið og ég tel að við
höfum verið sterkari í leiknum.
Fyrri hálfleikurinn er nákvæmlega
það sem koma skal hjá Skagaliðinu,
við erum búnir að spila 3 sigurleiki
í röð og við erum komnir í gang,“
sagði Reynir Leósson sem er aðal-
maðurinn í
sterkri vörn
Skagamanna sem
ekki hefur fengið
á sig mark í þrem-
ur leikjum og í
286 mínútur.
Skagamenn hafa
náð að læra af eigin markaleysi og
yfirfært það yfir á andstæðingana
sem lofar góðu fyrir næstu leiki.
„Rautt í helmingi leikjanna"
„Við hefðum getað skorað fleiri
mörk þegar við yfirspiluðum þá í
fyrri hálfleik en það er ekki nógu
gott að fá mann út af i helmingi
leikjanna sem við spilum. Við eig-
um líka í framhaldi af því erfitt
uppdráttar þegar við erum einum
manni færri. Við náðum að halda
fengnum hlut núna og þetta var
kærkominn sigur. Ef við ætlum að
vera með í þessu móti þurfum við
að vinna leiki, við erum núna með
6.stig sem er rýr uppskera hér uppi
á Skaga þegar svona mikið er búið
af íslandsmótinu.
Við fengum tækifæri bæði í bikar
og Inter-toto-keppni til að laga okk-
ar mál og við höfum sýnt það að við
erum menn til að þola mótlæti og
menn sem geta unnið sig út úr
vandræðum og við hljótum að þola
það vinna einhverja leiki,“ sagði
Logi Ólafsson, þjálfari Skagans, eft-
ir fyrsta deildarsigur sumarsins.
A-/A Ragnar Hauksson (24.) skall-
^ aði boltann yfir Albert Sævars-
son markvörð og hrúgu vamarmanna
Grindvíkinga eftir að Reynir Leósson
hafði skallað aukaspymu Jóhannesar
Harðarsonar frá hægri til hans.
Ætluðum að sækja 3 stig
„Við ætluðum að sækja hingað
þrjú stig, enda að spila við eitt af
botnliðum deildarinnar. Við eydd-
um dýrmætum mínútum inni á
miðjusvæðinu og komum boltanum
ekki nógu fljótt upp í sóknina og
nýttum því ekki mannamuninn.
Mér finnst erfitt að spila á þess-
um völlum þegar dómarinn er und-
ir mikilli pressu frá fjöldanum eins
og i kvöld. Ég vildi þannig fá víti í
restina þegar Alexander braut á
Grétari, hann keyrði þá inn í bak
hans. Við áttum stigið skilið en
tökum okkur saman í andlitinu fyr-
ir næsta leik og höldum áfram að
spila okkar bolta,“ sagði Hjálmair
Hallgrímsson, fyrirliði Grindvík-
inga. -ÓÓJ
ÍA1(1) - Grindavík 0 (0)
MljM Ólafur Þór Gunnarsson - Sturlaugur Haraldsson @,
Reynir Leósson @tAlexander Högnason, Kristján
Jóhannsson @ - Pálmi Haraldsson Heimir Guðjónsson Jó-
hannes Harðarson @, Kári Steinn Reynisson (Baldur Aðalsteinsson
74.) - Ragnar Hauksson, Kenneth Matijani (Freyr Bjamason 86.).
Rautt spjald: Ragnar (48. mín.).
Grindavík:
Albert Sævarsson - Óli Stefán Flóventsson @, Guð-
jón Ásmundsson @, Stevo Vorkapic, Bjöm Skúlason
- Alistair McMilian (Paul McShane 76.), Sinisa Kekic, Hjálmar Hall-
grimsson (Leifur Guðjónsson 85.), Duro Mijuskovic - Scott Ramsey
(Ólafur Ingólfsson 61.), Grétar Hjartarson. Gul spjöld: Ramsey, Vor-
kapic, Kekic, McMillan. Rautt spjald: Grétar (88.mín).
lA - Grindavík IA - Grindavík
Markskot: 13 4 Völlur: Ágætur, rok.
Horn: 9 1 Dómari: Bragi Bergmann,
Áhorfendur: 600. missti leikinn i fyrri hálfleik.
Maður leiksins: Pálmi Haraldsson, IA.
Las leikinn vel og var úti um allan völl að gera góða hluti.
i