Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
Fréttir DV
Alþjoðahjalp Lionsmanna
á skjálftasvæðum
DV. SUDURLANDI:______________________
Alþjóðahjálparsjóður Lionshreyf-
ingarinnar ákvað í kjölfar jarðskjálft-
anna á Suðurlandi 17. og 21. júní að
veita 10.000 dollara styrk til íbúa á
jarðskjálftasvæðinu. Lionshreyfingin
á íslandi fékk álit heimamanna á
Hellu við úthlutun styrksins og var
honum úthlutað í Hellubiói á þriðju-
dag. Styrkina hlutu: Heilsugæslustöð-
in á Hellu, 200.000 kr. til áframhald-
andi áfallahjálpar, Rauði krossinn,
íAiww.romeo.is
Viö leggjum mikinn metnaö
í pökkun og frágang á öllum
póstsendingum.
Allar sendingar dulmerktar.
1 00% trúnaöur.
Sólar/ðryggisfilma
Sól- og öryggisfilma á rúöjr. Vernd
gegn nita/birtu - upplitun og er góö
þjófavörn.
Litaðar filmur inn á bílrúður, gera bílinn
öruggari, þægilegri, glæsilegri og
seljanlegri.
Asetning meöhita - fagmenn
f/fái //:
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
- Alþjóðahjálparsjóður Lions veitir 10.000 dollara styrk
200.000 kr. vegna vinnu á svæðinu,
Flugbjörgunarsveitin á Hellu 100.000
kr. og björgunarsveitin Dagrenning á
Hvolsvelli 100.000 kr. Þá var ráðstafað
200.000 krónum til Lionsklúbbsins
Skyggnis á Hellu sem hann mun ráð-
stafa á svæðinu.
„Við Lionsmenn eigum þennan
stóra alþjóðlega hjálparsjóð sem er
alltaf gripið til þegar neyð er ein-
hvers staðar í heiminum, hvar sem
er,“ sagði Hrund Hjaltadóttir, svæð-
isstjóri hjá Lionshreyfingunni.
Hrund var stödd á alþjóðlegu þingi
Lionshreyfingarinnar i Honolulu á
þjóðhátíðardaginn þegar fyrri
skjálftinn reið yfir Suðurland. Við
sáum þetta samdægurs í sjónvarp-
inu og þegar það fréttist til sjóðsins
var búiö að taka ákvörðun um það
innan 12 tíma að veita þennan
10.000 dollara styrk til neyðarað-
stoðar hér á landi sem við erum að
afhenda hér í dag,“ sagði Hrund.
Eftir samtöl við heimamenn var
ákveðið til hvaða aðila styrkurinn
rynni. Okkur bar öllum saman um
að best væri að láta peninga i
áframhaldandi áfallahjálp fyrir
heilsugæslustöðina, fyrir nokkrum
dögum var sagt frá að það ætti að
loka á hana. Og mönnum fannst það
ekki nógu gott, þvi hér væri talsvert
af fólki sem þyrfti á henni að halda.
Hjálparsjóðurinn leggur áherslu á
að bregðast skjótt við og oft er það
bráðabirgðahúsnæði sem er skaffað
þegar mikið liggur við. Þess vegna
vildum við koma til móts við Rauða
krossinn til að hjálpa við að koma
upp neyðarhúsnæði," sagði Hrund.
Ómetanlegt að vita hug fólks
í fjarlægum löndum
„Það er okkur ómetanlegt að vita
til þess að fólk sem er statt suður í
Honolulu hugsi til okkar þegar
svona atburðir gerast. Og að al-
þjóðahreyfing Lions taki ákvörðun
þar á fyrsta sólarhring um styrk til
jarðskjálftasvæðis. Þaö i raun og
veru sýnir manni að Lionshreyfing-
in er öflugri en margir hafa kannski
reiknað með í gegnum tíðina," sagði
Óli Már Aronsson, oddviti Rangár-
vallahrepps. Hann sagði að styrkur-
inn kæmi sér afar vel til að geta
haldið áfram því starfi sem fram
hefur farið á svæðinu eftir jarð-
skjáiftana, bæði í neyðarhjálp og í
sálfræðiaðstoð við íbúa svæðisins
þar sem þörf væri á.
-NH
DV-MYND NH
10.000 dollarar á Suðurland
Frá afhendingu styrkc Atþjóðahjáiparsjóös Lionshreyfingarinnar.
Frekari þörf á bráðabirgðahúsnæði
- mun myndast þegar farið verður að gera við skemmd hús
PV, SUÐURLANDI:___________________
A Hellu er líf fólksins smátt og
smátt að aðlagast þeim breytingum
sem urðu á högum íbúa við jarð-
skjálftana sem riðu yfir á Þjóðhátíð-
ardaginn og á sumarsólstöðum.
Víða er þó langt í land að líf fólks
geti talist vera komið í eðlilegt horf
eftir hamfarirnar. Sums staðar eru
skemmdir enn að koma í ljós í hús-
um á Hellu. í rigningunni í síðustu
viku komu víða lekar í ljós í húsum
sem virtust vera heil. „Ókkur hefur
gengið vel að takast á við það sem
hefur komið upp á, fólk þurfti að
fara úr sex húsum, þar af hafa þrjár
fjölskyldur leitað til okkar eftir að-
stoð. Við höfum getað komið þeim í
húsnæði með hjálp Rauða kross-
ins,“ sagði Óli Már Aronsson, odd-
viti Rangárvallahrepps.
Tryggingafélögin hafa verið að
meta tjón á innbúi fólks og það mat
er langt komið. Viðlagatrygging hef-
ur séð um mat á húsunum sjálfum
og sagði Óli Már að þeir væru
komnir yfir stærsta hjallann í
mestu skemmdunum, en mikið væri
eftir af skemmd-
um húsum.
Veitumálin á
Hellu eru komin
í lag að mestu.
„Það var gert
stax við þær bil-
anir sem komu
upp í hitaveit-
unni fyrstu dag-
ana. Síðan hafa
verið að koma í
ljós smáskemmdir í innanbæjar-
kerfinu, en það hefur verið lagað
jafnóðum. Það sama er með vatns-
veituna. Það er ekki nærri eins
stórt og maður hefði átt von á,“
sagði Óli Már. Hann sagði að enn
hefðu ekki komið miklar skemmdir
í ljós i fráveitukerfunum. „Skemmd-
ir í þeim geta verið lengi að koma í
ljós þannig að við vitum ekki hvort
þar er eitthvað skemmt. Enn hefur
það ekki verið rannsakað kerfis-
bundið," sagði Óli Már Aronsson,
oddviti Rangárvallahrepps. -NH
Oli Már
Aronsson.
Honda Accord Aerodeck, f.skrd. 22.12. Renault Clio, f.skrd. 27.11.1998. Bsk., VW Vento, f.skrd. 06.07.1993. Bsk., 4 d., Skoda Felicia, f.skrd. 01.08.1996. Bsk., Suzuki Baleno, f.skrd. 25.09. 1997. Bsk.,
1995. Ssk., 5 d., ek. 101 þ.km, d-grænn. 3 d., ek. 26 þ.km, gulur. ek. 75 þ.km, d-rauður. 5 d., ek. 52 þ.km, rauður. 4 d., ek. 45 þ.km, grár.
Verð 1.550.000. Verð 1.050.000.________________________Verð 770.000.____________________________Verð 480.000.________________________ Verð 890.000.
Borgartúni 26, ámar 561 7510 & 561 7511
úrval no-faVa bíla af öllowj s+aeröo>vi 03 <jer*owj /
Margar bifreiðar á söluskrá
okkar er hægt að greiða með
Visa eða Euro raðgreiðslum