Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Qupperneq 10
10
Fréttir
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
DV
DV-MYNDIR NH
Frá afmælishátíð Sólheima
Fariö var í skrúögöngu sem Reynir Péturgekk fyrir um staöinn.
Sólheimar í Grímsnesi 70 ára:
Upphaflegum mark-
miðum enn fylgt eftir
- ríkisstjórnin styrkir byggingu Sesseljuhúss
Þess var minnst á miðvikudag á
Sólheimun í Grímsnesi að 70 ár eru
liðin frá því að Sesselja Hreindís Sig-
mundsdóttir stofnaði þar barnaheim-
ili. Starfsemin á Sólheimum hefur
breyst í gegnum tíðina. í upphafi
voru Sólheimar bamaheimili en með
breyttum þjóðfélagsháttum urðu Sól-
heimar samfélag yngri sem eldri
borgara sem tekst á við fjölbreytt
verkefni. Þar eru rekin 5 sjálfstæð
fyrirtæki sem em sjálfbær og aðskil-
in frá rekstri Sólheima. Þar em
einnig vinnustofur sem eru hluti af
starfsemi Sólheima. Á þessum vinnu-
stöðum vinna íbúar staðarins við
fjölbreytt verkefni við framleiðslu á
ýmsum vöram sem bæði eru seldar á
staðnum og í verslunum.
Ingustofa
Á afmæli Sólheima var formlega
opnað handverkshúsið Ingustofa
sem kennd er við Ingu Berg Jó-
hannsdóttur sem er í hópi velgjörð-
armanna Sólheima. Inga tók fyrstu
skóflustunguna að húsinu fyrir fjór-
um árum og á afmælinu opnaði hún
húsið formlega eftir að séra Solveig
Lára Pétursdóttir hafði blessað hús-
ið. í Ingustofu verða íjögur verk-
stæði og vinnustofur, listasmiðja,
vefstofa, jurtastofa og leirvinnsla og
að auki verður listsýningarsalur í
miðrými hússins. Arkitekt er Áxni
Friðriksson og er Ingustofa 16. hús-
ið sem Árni teiknar á Sólheimum.
Vistvæn stefna
Enn er haldið í mörg af þeim upp-
haflegu markmiðum sem Sesselja
setti sér við stofnun Sólheima og
sum þeirra hafa þróast með tíman-
um og önnur hafa orðið til að skipa
Sólheimum virðingarsess á erlendri
grund. Á Sólheimum er vagga líf-
rænnar ræktunar á Norðurlöndum
og þeirri hugsjón hefur verið haldið
við allar götur siðan. Meðal þess
sem haft er að leiðarljósi við bygg-
ingar húsa á Sólheimum er að þau
séu byggð úr endumýtanlegu efni í
samræmi við vistvæna stefnu stað-
arins. Nýjar byggingar eru úr
timbri með torfþaki, einangraðar
með endurunnum pappír og málað-
ar með umhverfisvænni málningu.
Á afmælishátíðinni tók Siv Frið-
leifsdóttir fyrstu skóflustunguna að
nýju húsi sem á að rísa á Sólheim-
um, Sesseljuhúsi. Við það tækifæri
færði Siv Sólheimum þær fréttir að
ríkisstjórnin hefði ákveðið að
styrkja Sólheima um 75 milljónir
vegna byggingar Sesseljuhúss. -NH
Marel semur við
stærstu verslun-
arkeðju heims
Marel hf. gerði nýlega 300 millj-
óna samning um sölu á 20 skurðvél-
um til að skera steikur fyrir Wal-
mart-stórmarkaðakeöjuna sem er
stærsta verslunarkeðja heims.
Lykillinn að sölunni er ný skurð-
arvél sem stýrt er með þrívíddar-
tölvusjón.
Einnig samdi fyrirtækið um
flæðilínukerfi og hugbúnað til fram-
leiðslueftirlits í leirgedduvinnslu í
Mississippi fyrir um 100 miiljónir
króna. Leirgedduvinnsla er vaxandi
iðngrein í suðurríkjum Bandaríkja
og eru nú þegar framleidd yflr 200
þúsund tonn, sem nálgast árlegan
þorskafla íslendinga.
Sala Marels fyrstu sex mánuði
ársins er í samræmi við áætlanir
fyrirtækisins. -jtr
Á 10 km/klst. hraða yfir Kjöl
Helgi Ragnar Guömundsson,
Júlía Gunnarsdóttir og Sindri Snær
Helgason tóku sér 12 daga til
þess aö fara i ferðalag á 45 ára
gamalli dráttarvél meö
heimageröan tjaldvagn í anda
villta vestursins í eftirdragi.
45 ára dráttarvél
fór yfir Kjöl
Fjölskylda ur Vogunum fór í held-
ur óvenjulegt ferðalag nýverið.
Helgi Ragnar Guðmundsson, Júlía
Gunnarsdóttir og 8 ára sonur
þeirra, Sindri Snær, keyrðu á 45 ára
gamalli dráttarvél með heimagerð-
an tjaldvagn í anda villta vestursins
í eftirdragi yfir Kjöl. Farm-all Cub
dráttarvélin af árgerðinni 1955 virk-
aði „eins og mykjuskán sem dró
fólk að sér eins og mý“, sagði Júlía.
„Það voru margir sem minntust
þessara dráttarvéla og ég held það
hafi kviknað í mörgum að gera upp
gamlar dráttarvélar sem fólk á
heima hjá sér.“
Þau lögðu af stað 25. júní og tóku
sér 12 daga í ferðina. Dráttarvélin
kemst ekki nema 10 kílómetra á
klukkustund svo þau ferðuðust um
60 kílómetra á dag. Fjölskyldan fór
úr Vogunum upp í Mosfellsdal, það-
an á Þingvöll, Laugarvatn og Geysi,
síðan norður Kjöl yfir á Blönduós.
Síðan tóku þau þjóðveginn suður
aftur og fóru Hvalfjörðinn í blíð-
skaparveðri. -SMK
Ef I i n g-stétftarfé I ag
flytur í nýtt húsnæði
Skrifstofa Eflingar- stéttarfélags verður lokuð 10. -12. júlí vegna flutninga félagsins í nýtt
húsnæði að Sætúni 1. Skrifstofa félagsins verður á 3. hæð. Við opnum að nýju fimmtudaginn
13. júlí. Afgreiðslutími í sumar er frá kl. 08.30-16.00 alla virka daga.
Síminn verður áfram 510 7500, faxið 510 7501 og netfangið: efling@efling.is
Skrifstofa Úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. l í Reykjavík sem starfar í tengslum
við félagið flytur einnig starfsemi sína á sömu hæð að Sætúni 1.
Sími Úthlutunarnefndar verður 510 7510, faxið 510 7511.
Verið velkomin í nýja húsið
EFLING
STÉTTARFÉLAG