Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 DV Fréttir Skoðanakönnun DV um ríkisstofnanir og landsbyggðina: Flestir sammála flutn ingi ríkisstofnana - meirihluti framsóknarmanna með en sjálfstæðismenn á móti Afgerandi munur kemur fram á skoðunum íslendinga í skoðana- könnun DV þar sem spurt var: ertu fylgjandi eða andvig(ur) flutningi ríkisstofnana út á land. Mikill meirihluti eða 63,2 prósent lands- manna eru fylgjandi slíkum flutn- ingi. Athygli vekur að stuðnings- menn stjómarflokkanna eru mjög ósammála í afstöðu sinni. í skoðanakönnuninni, sem gerð var fóstudaginn 29. september, var úrtakið 600 manns. Þeir sem tóku afstöðu voru 465 eða 77,5% en óá- kveðnir voru 9,3% og þeir sem svör- uðu ekki voru 13,2% eða samtals 22,5%. Af þeim sem afstöðu tóku voru 63,2 prósent fylgjandi flutningi ríkisstofnana út á land en 36,8 pró- sent voru á móti. Þegar skoðaðar eru niðurstöður stuðningsmanna flokkanna kemur ýmislegt athyglisvert í ljós. Meiri- hluti stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokks er á móti flutningi rikisstofn- ana út á land eða 48% en 39% eru því meðmælt. í stuðningsmanna- hópnum voru 13% sem ýmist voru óákveðin eða vildu ekki svara. Hjá þeim sem styðja Framsóknarflokk- inn er mikill meirihluti eða 72% fylgjandi flutningi rikisstofnana út á land en 20% á móti. Þeir sem eru óákveðnir eða svara ekki í þeim hópi mældust 8%. Þegar litið er til stuðningsmanna annarra flokka kemur í ljós að á bak við Frjálslynda flokkinn er mikill stuðningur við flutning rikisstofnana eða 57% en andstaðan mælist 14%. Óákveðnir í þeim hópi og þeir sem svara ekki reyndust vera 29%. Svipaða sögu er að segja af afstöðu stuðningsmanna Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs. Þar er stuðn- ingur við flutning 56% en andstaðan 31%. Óákveðnir og þeir sem svara ekki mælast vera 13%. Flutningur ríkisstofnana Svör !ftir lands,,lutum út á land Þeir sem ,8% andvíg 63,2% fylgjandi V Allt úrtakið Höfuðborgarsvæöið ,5% _ A aftin/ 49,0 ^ ara ekki fylgjandi ^9 . . sjpp||| Landsbyggöin Hjá Samfylkingunni er þessu öfugt farið. Andstæðingar flutnings ríkis- stofnana mælast vera 54% en stuðn- ingsmenn 41%. Óákveðnir og þeir sem ekki svara í þeim hópi eru 5%. Samkvæmt þessu virðist andstaða við flutning ríkisstofnana út á land vera mest í hópi stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinn- ar en meirihluti stuðningsmanna ann- arra flokka eru fylgjandi flutningi rík- isstofnana út á land. Afgerandi stuðningur á landsbyggðinni Mjög afgerandi munur er á svörum fólks eftir búsetu. Á höfuðborgar- svæðinu eru 56,2% andvíg flutningi rikisstofnana en 43,8% með. Á landsbyggðinni snýst dæmið heldur betur við en þar eru 83% fylgj- andi flutningi ríkistofnana út á land en aðeins 17% á móti. Ekki er afgerandi munur á afstöðu kynjanna. Karlar eru að 61,2 hund- raðshlutum fylgjandi flutningi en 38,8% á móti. I hópi kvenna eru 65,5% fylgjandi flutningi en 34,5% eru á móti. -HLH/HKr. Hannes Hólmsteinn. Prófessor með jólabók: Hannes og húmorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er að leggja lokahönd á nýja bók sem vænt- anleg er á markað fyrir næstu jól. Bókin heitir Fyndn- ir Islendingar og hefur að geyma hátt í þúsund gamansög- ur sem sagðar hafa verið af ýmsu til- efni og Hannes hef- ur safnað saman á einn stað. Bókin verður ríkulega myndskreytt og í raun nútímaútgáfa af bókaflokkn- um íslensk fyndni sem gefinn var út snemma á öldinni og var til á vel- flestum heimilum landsins. -EIR Rannsókn á lokastigi Héraðsdómur Reykjavíkur fram- lengdi gæsluvarðhald yfir 38 ára gamalli konu, sem grunuð er um að hafa valdið dauða manns, til 14. nóvem- ber. Konan I er grunuð um að hafa átt aðild að dauða 47 ára gamals manns í kjallaraíbúð á Leifsgötu í Reykjavík í lok júlí. Rannsókn er á lokastigi. -SMK Hugaö að hlýraeldi í Norðfirði: Sjómenn segja „olíu- bragð“ af hlýranum - en markaðurinn er góður og verðið hátt DV, NORÐFIRÐI: Nýjasta hugmynd Fjarðarbúa er hlýraeldi og í undirbúningi er stofnun félags, Hlýra ehf. Helstu hvatamenn þess eru þeir Jóhann Pálsson hjá Hönnun hf. á Reyðar- firði og Hreinn Sigmarsson hjá Fjárfestingafélagi Austurlands. Styrkur til frekari athugunar á verkefninu hefur fengist hjá Iðn- tæknistofnun og einnig 3 milljón- ir frá sjávarútvegsráðuneytinu og hefur verið ráðinn til verksins Snorri Gunnarsson líffræðingur. Skilyrði til hlýraeldis virðast mjög góð hér í Norðfirði. Ekki er vitað til að hlýraeldi hafi áður verið stundað í heiminum og yrði þetta frumtilraun ef af yrði. Markaðsverð fyrir hlýra hefur verið allgott og markaður nokkuð öruggur. Ekki eru þó allir á einu máli um hversu góður matfiskur hlýri sé. Góður sjómaður sagði mér að af honum væri olíubragð. Þess má líka geta að roð af hlýra þykir hið hesta efni til ýmiss kon- ar iðnaðar. Hefur maður séð hin fegurstu veski, inniskó, belti og annað smálegt úr hlýraroði. Vona menn að af þessari framkvæmd verði. -KAJ Rykbomba Réttsýnar ryksugur á rosalega fínu verði* Vampyr 5020 1 Orkusparandi vél • Sogkraftur 1.300 W J • Fimmfalt filterkerfi ■ Tveir fylgihlutir icr. ► •II AEG VAMPYR 5020 0) ! © CE 220,0 • 1500 wött • 350 sogwött • Stiglaus styrkstillir • Fimmfalt filterakerfi • Breytilegur soghaus • Fjórir fylgihlutir CE 275,0 • 1500 wött • 350 sogwött • Stiglaus styrkstillir • Lengjanlegt sogrör • Fimmfalt filterakerfi • Breytilegur soghaus • Fjórir fylgihlutir CE-POWER • Kraftmikil ryksuga í sportlegri tösku • Sogkraftur 1.600 W • Lengjanlegt sogrör • Fimmfalt filterkerfi • Tveir fylgihlutir Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is * Pað að ryksuga sé réttsýn verður ekki útskýrt hér og kannski aldrei, en maður hefur það á tilfinningunni að það hljóti kannski að geta skipt máli

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.