Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Blaðsíða 14
14 Menning Listin býr í þögninni DV-MYND HILMAR ÞÓR Vigdís Grímsdóttir rithöfundur Upplifanir manneskjunnar, vonir, þrár og vonbrigði eru samar við sig þó aldir skilji að. Anastasiu Posokhovu. Anastasia og Linda eldri bralla margt saman og halda dýrindis veislur þegar kynsystrum þeirra í veröldinni tekst vel upp og Linda eldri leggur, í samvinnu við Anastasiu, ýmsar erfið- ar þrautir fyrir Lindu yngri. Þær þrautir þjóna m.a. þeim tilgangi að fá stúlkuna til að gera sér grein fyrir stöðu kvenna og mikilvægi þeirra í samfélaginu fyrr og nú en síðast en ekki síst til að opna augu hennar fyrir listinni að lifa og njóta. Og þar hefur tónlist meistarans mikil áhrif, tónlist Tchaikovskys sem endurspeglar allt tilfinningalitrófið: Ástina, sársauk- ann, vonbrigðin, vonina, gleðina, harm- inn, tryllinginn og kyrrð sálarinnar. Tónlist Tchaikovskys spilar amman án afláts og fyrr en varir sogast Linda yngri inn í heim meistarans, sem vitjar henn- ar með reglulegu millibili og opnar henni dýrðlegan heim ástarinnar. Hann birtir henni einnig heim grimmdar og mannvonsku, en þeirri hlið veraldarinn- ar þarf Linda líka að kynnast til þess að verða sterk og heil manneskja. I gegnum listina, ekki orðin. Eins og áður er sagt þurrkar Vigdís út öll mörk tíma og rúms en hún gerir það svo vel að áður en lesandinn veit af finnst honum ekkert eölilegra en að dauðir og lifendur skemmti sér saman, dansi, hlæi eða gráti. Lesandinn fær sterka tilfinningu fyrir því að fortíð og nútíð haldist ævinlega í hendur og þrátt fyrir tækninýjungar er saga manneskj- unnar alltaf eins þó birtingarformin séu ólík. Upplifanir manneskjunnar, vonir, þrár og vonbrigði eru alltaf samar við sig þó aldir skilji að. Þennan boðskap kryddar Vigdís með frábærum persónu- lýsingum: sterkum, uppátektarsömum og óborganlegum kvenpersónum sem í lifsgleði sinni og krafti geta allt ef vilj- inn er fyrir hendi. Þögnin er meistaraverk höfundar sem ber svo mikla virðingu fyrir listinni að hún leggur á sig að yrkja átakamikinn óð til listarinnar og þess galdurs sem í henni býr og margir hafa gleymt. Ef ein- hver efast um þann galdur væri ráð að setja Tchaikovsky á fóninn og leyfa Þögninni að um- lykja sig. Sigríður Albertsdóttir Vigdís Grímsdóttir: Þögnin. löunn 2000. Eins og Vigdisi Grímsdóttur er lagið birtir hún í nýjustu skáldsögu sinni, Þögninni, nýja og ferska sýn á listina þótt hún haldi sig áfram við sitt gamalkunna þema: Persón- ur sem lifa í tveimur aðgreind- um heimum. í Grandaveginum (og fyrri sögum Vigdísar) eru skilin milli þessa heims og annars fremur skýr en í Þögn- inni rennur tími og rúm sam- an og mynda óaðskiljanlega heild. Sögukonan Linda Þorsteins- dóttir, sem er stúlka um tví- tugt, rekur sögu sína frá barnsaldri. Hún eyðir bernskuárum sínum að mestu hjá föðurömmu sinni, sem hún er skírð í höfuðið á, og í þeim félagsskap verður hún vitni að ótrúlegum uppákomum sem brjóta hana niður en herða um leið. Á ákveðnum tímapunkti ævi sinnar ákveður amma hennar að loka á orðin og þegja. Allir halda að hún hafi misst málið, litla nafnan Linda er sú eina sem veit sannleik- ann og hún er einnig sú eina sem amman treystir fyrir leyndardómnum sem býr að baki þessari ákvörðun. Og amman kennir nöfnu sinni að þegja, að vísu með grimmdarlegum hætti, en um leið kennir hún henni að orð eru hættuleg, þau geta sprungið! Linda litla kynnist einnig á heimili ömmu sinnar löngu látnum persónum sem amman hefur komið sér upp persónulegu sambandi við, einkum og sér í lagi hinu fræga tónskáldi Tchaikovsky og föðurömmu hans; Myndlist Aðild að kvöldmáltíð Jón Axel Björnsson myndlistarmaður verður seint vændur um að auðvelda áhorf- endum sínum aðgengi að hugmyndaheimi sínum og verkum. Hann kemur hins vegar fram við þá eins og hugsandi fólk; gefur sér að þeir geri vitsmunalegar kröfur til mynd- listar. Sjálfur gerir Jón Axel sennilega meiri kröfur til myndlistar en flestir félagar hans í bransanum. í hans augum er hún ekki - og má ekki vera - prívatflipp i formi stofu- skreytis eða fyrirbærafræði, heldur vett- vangur brýnna tilvistarlegra fyrirspurna, hvorki meira né minna. Og á þessum vett- vangi opinberar hann eigin efasemdir og vanmátt engu síður en sannfæringu. í seinni tíð eru fyrirspurnir Jóns Axels í formi eins konar innstallasjóna, þar sem kallast á máluð verk og þrívíddarverk, en þó fá stök verk í því samhengi einnig sjálfstætt vægi. Raunar er þrívíddin langt í frá ný bóla i verkum listamannsins, því frá því um miðj- an níunda áratuginn hafa innviðir málverka hans haft sterka þrívíddarlega nánd. Eldri málverk hans eru einnig uppfull með ágeng- an framslátt um mannlega breytni, stað- reynd sem fór fram hjá mörgum vegna þess hve litrík og áferðarmikil þau eru. Efni og andi Með tímanum hafa verk Jóns Axels þróast frá ígrundunum um mannlega breytni í hug- leiðingar um tengslin milli hins líkamlega - efnislega - og hins andlega. Þessar hugleið- ingar viðraði listamaðurinn í fyrsta sinn með fullum þunga í Galleríi Sævars Karls snemma á síðasta ári. Sýning hans sem nú stendur yfir í Listasafni ÁSÍ er að ýmsu leyti eins konar framlenging á þeim og aðferðirn- ar bæði einfaldar og margbrotnar. Einfaldar að því leyti að grundvallareiningar verk- anna/innsetninganna, tvívíð og þrívíð höfuð- in, tilvísanir í náttúruna, grunnform og grunnlitir, eru í sjálfu sér afar blátt áfram, en í uppröðun eininganna, innan innstalla- sjóna sem utan, í því hvernig þær kallast á, tekur myndræn rökræða listamannsins á sig flóknar og ófyrirsjáanlegar myndir. Jón Axel: Hluti af þrívíddarverkinu Menn Verk hans hafa þróast frá ígrundunum um manniega breytni í hugleiðingar um tengsl milli hins líkamlega og andlega. Tökum sem dæmi umfangsmesta verkið á sýningunni, þrívíddarverkið „Menn“. Fyrir endavegg í meginsalnum eru þrettán „óper- sónulegar" gifsbústur á járnplötum og snúa andlitum til veggjar. Gegnt þeim er hálfmynd úr gifsi af nöktum manni, alteknum af ílöngun sem er í senn líkamleg og andleg. Tilvistarlegur marvaði Með tilvísan tii fyrri sýningarinnar, þar sem hvitt gifsandlit hékk gegnt dulbúnu kross- marki, má geta sér til að gifshöfuðin fráhverfu og upphöfnu vísi til postulanna tólf og varan- legrar aukaaðildar nútímamannsins - hins þrettánda - að síðustu kvöldmáltíðinni. Þar með er einnig opnuð leið til skilnings á tilvist- arlegum marvaðanum sem „Sundmaður" listamannsins treður á ganginum inn af meginsal. Hálfmyndin gæti því verið staðgengill frels- ishetjunnar, í eiginlegri og óeiginlegri merk- ingu, hvers þess sem finnur hjá sér hvöt til að leysa mannkyn úr viðjum andlegrar eða efnis- legrar ánauðar. Hafi þessi einfalda útlegging mín við myndræn rök að styðjast er niöur- staða listamannsins ekki uppörvandi; nefni- lega að á endanum snúi allir baki við slíkum hetjum. í gryfjunni er annað samsett verk Jóns Ax- els sem einnig á sér hliðstæður á fyrri sýning- um hans. „Dagar og Nætur“ er teiknuð og mál- uð myndröð, svart-hvítar nærmyndir af ís- lensku fjörugrjóti; ofan á þær eru lagðir einlita fletir í ýmsum litum. í verkum listamannsins eru einlita fletir yfirleitt þrungnir marghátt- aðri merkingu, formrænni og listheimspeki- legri. Til dæmis hefur hann notaö þá sem sam- nefnara fyrir hið sértæka eða jafnvel yfirskil- vitlega. Hér er trúa mín að listamaðurinn tefli saman tvenns konar veruleika og eggi okkur til að gera upp á milli þeirra. Með því verðum við að virkum þátttakendum í viðvarandi rök- ræðu hans um grundvallaratriði. Aðalsteinn Ingólfsson Sýning Jóns Axels stendur til 12.11. Listasafn ASÍ við Freyjugötu er opiö þriö.-sun. kl. 14-20. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000 __________________________DV Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Birgir á Súfistanum Annað kvöld kl. 20 hefst kvöldvaka á Súfistanum, Laugavegi 18, helguð Birgi Sigurðssyni rithöfundi. Tilefni dagskrárinnar er útkoma nýrrar skáldsögu hans, Ljósið í vatninu. Hallmar Sigurðsson ræðir um skáldið, sem einnig les úr verkum sínum, og þau Edda Heiðrún Backmann og Hilmir Snær Guðnason lesa úr verkum Birgis. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Mozart Players í kvöld kl. 20 heldur ein af bestu kammer- sveitum Evrópu, The London Mozart Players, tónleika í Salnum. Kammersveitin er skipuð fiðluleikurunum David Jurtiz og Mayu Magub, víóluleikurunum Judith Bus- bridge og Juliu Knight og sellóleikurunum Sebastian Comberti og Juliu Desbruslais. Fyrsti hornieikari Sinfóníuhljómsveitar ís- lands, Joseph Ognibene, mun einnig leika með kammersveitinni á tónleikunum. Á efnisskrá eru verk eftir Benjamin Britt- en, Richard Strauss, Mozart og Brahms. The London Mozart Players er viður- kennd sem ein af bestu kammersveitum Evr- ópu og fræg fyrir einstök gæði tónleika. Sveitin kom fyrst fram sem slík árið 1985 í Queen Elizabeth Hall í Lundúnum og síðan hefur hún haldið tónleika á tónlistarhátíð- um og tónleikaröðum um allt Bretiand og víðar um Evrópu. Nýlega hélt hún eftir- minnilega tónleika i Sarajevo og Banja Luka. Smekkurinn og listin í dag kl. 15 heldur Stefán Snævarr, skáld og heimspekingur, opinn fyrirlestur við Listahá- skóla íslands í Laugar- nesi. í doktorsritgerð sinni, Minerva and the Muses. The Place of Rea- son in Aesthetics, ver Stefán þá skoðun að list- dómar séu ekki bara smekkbundnir, heldur megi skynsemin sin nokkurs við listmat. Fyrirlestur hans fjallar um sama efni og ber heitið „Smekkurinn og listin. Eru listdómar öldungis huglægir?" Sigurþór Hallbjörns- son - betur þekktur und- ir gælunafninu Spessi - heldur fyrirlestur í Listaháskóla íslands, Skipholti 1, á miðviku- daginn kl. 15. Spessi hef- ur haldið Ijósmyndasýn- ingar á íslandi, í Hollandi, Bretlandi, New York og nú á Netinu. Nýjasta verk hans ber heitið „Natura Morte“ eða „Kyrralíf' og í fyrirlestrinum mun hann Qalla um það ásamt öðrum verkum sínum. Bókagerö og tölvuvinnsla A fimmtudag hefst námskeið í bókagerð við Opna listaháskólann í Skipholti 1. Kenndar verða ólíkar aðferðir við einfalt bókband, byggðar á japönskum hefðum, og kennt að gera bókakápur með mismunandi aðferðum. Kennari er Sigurborg Stefánsdótt- ir myndlistarmaður. Námaskeið í tölvuvinnslu á prentfilmum hefst á mánudaginn kemur. Unnið er við undirbúning á listprentun, serigrafi, riton- filmum, koparþrykki og fotograflskri prent- un. Nokkurrar kunnáttu i notkun Photoshop krafist. Kennari er Leifur Þorsteinsson, ljós- myndari og umsjónarmaður ljósmyndavers LHÍ. Einnig má nefna námskeið í umbroti prentgripa, sem hefst 20. nóv. Kennari er Margrét Rósa Sigurðardóttir, prentsmiður og kennari í graflskri hönnun í LHÍ. Námskeið um Kirsuberjagaröinn Þjóðleikhúsið frum- sýndi Kirsuberjagarð- inn eftir Anton Tsjek- hov í október undir stjórn Rimasar Tmn- inas frá Litháen. Þriðjudagskvöldið 21. nóvember heldur Ámi Bergmann rithöfundur erindi um verkið og höfundinn og viku síðar verða umræður um verkið og sýninguna ásamt aðstand- endum hennar. Fyrirlesturinn og umræðurnar fara fram í Listaháskóla íslands, Skipholti 1.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.