Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 DV Særöur í sjúkrabíl Palestínskur unglingur, sem særðist í átökum við ísraelska hermenn, er borinn í sjúkrabíl í Ramallah. Arafat hvetur sína menn til stillingar Fjórir Palestínumenn féllu í hörð- um átökum við ísraelska hermenn á Vesturbakkanum og Gaza eftir að bænahaldi múslíma lauk í gær. Yasser Arafat, forseti Palestínu- manna, hvatti byssumenn úr röðum ianda sinna til að hafa hemil á sér en Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, var ekki seinn á sér að lýsa því yfir að það væri ekki nóg. Tiltölulega rólegt var eftir bæna- hald í al-Aqsa moskunni í Jerúsal- em þar sem oft hefur komið til harðra átaka. Arafat sagði að allt væri gert til að koma í veg fyrir að skotið yrði á Isra- elsmenn frá þeim svæðum sem Palestínumenn ráða alveg yfir. Barak sagði leiðtogum franskra gyðinga sem voru í heimsókn í gær að orðin tóm dygðu ekki, ísraelar væru að bíða eftir að verkin töluðu. Bandaríkjaþing svo til óstarfhæft Hætta er talin á að Bandaríkja- þing verði nánast óstarfhæft á næsta ári vegna þess öngþveitis sem deilan um talningu atkvæða úr for- setakosningum i Flórída hefur haft i fór með sér. I bandaríska blaðinu Washington Post kemur fram að næsti forseti, hvort það verður George W. Bush eða A1 Gore, verði að hafa mjög hemil á þeim lagabálkum sem hann annars hefði viljað koma í gegn um þingið. Repúblikanar fengu mjög nauman meirihluta í kosningunum um daginn og af þeim sökum gæti reynst erfitt að koma í gegn meiri háttar stefnubreytingum. Nautakjötið skoöað Franskur slátrari skoðar nautakjöt í kjötgeymslu sinni. Mikill ótti er nú við kúariðu í Frakklandi. Ótti við kúariðu heltekur Frakka Mikill ótti við kúariðu hefur grip- ið um sig í Frakklandi. Sala á nautakjöti hefur hrunið og kokkar á veitingahúsum breyta matseðlum sínum. Frakkar héldu þar til fyrir skömmu að þeim stafaði engin hætta af kúariðu svo fremi sem þéir létu ekki ofan í sig breskt nauta- kjör. Allt breyttist þó þegar kjöt af kúariðusjúkum grip fór óvart með ósýktu kjöti í verslanir. Kúariðu- sýkt kjöt getur valdið heilahrömun- arsjúkdómnum Creutzfeldt-Jacob sem er ólæknandi. Italir og Spánverjar hafa bannað innflutning á frönsku nautakjöti. Dómari á Flórída hafnar að handtöldu atkvæðin verði með: Gore áfrýjar og þykist sigurviss Dómari i Flórída veitti forseta- draumum Als Gores hugsanlega náðarhöggið þegar hann úrskurðaði í gær að atkvæði úr forsetakosning- unum sem verið er að telja í hönd- unum í ríkinu verði ekki talin með þegar endanleg úrslit verða kunn- gerð. Þar með staðfesti hann ákvörðun innanríkisráðherra Flór- ída sem demókratar vildu fá hnekkt. Stuðningsmenn Gores sögðu að úrskurði dómarans yrði áfrýjað til hæstaréttar Flórída og þóttust nokk- uð vissir um að sjónarmið þeirra myndu hafa sigur þar. „Við teljum að íbúar Flórída eigi ekki aðeins rétt á því að atkvæði þeirra verði talin í höndunum, held- ur að þau verði tekin með í kosning- unum,“ sagði háttsettur ráðgjafi Gores í gær. Fari svo að hæstiréttur Flórída verði sama sinnis og Terry Lewis, dómari i Leon-sýslu, bendir flest til að George W. Bush, ríkisstjóri í Texas og forsetaefni repúblikana, verði kjörinn forseti Bandaríkj- anna. Lykillinn að forsetaembættinu er í Flórída. Sá frambjóðendanna sem fer með sigur af hólmi þar fær alla 25 kjörmenn ríkisins og hefur þar með tryggt sér forsetaembættið. Bush hefur 300 atkvæða forskot miðað við opinbera talningu og repúblikanar eru nokkuð vissir um að þeir fái meirihluta rúmlega þrjú þúsund utankjörfundaratkvæða sem lokið var að telja snemma í morgun. Enda þótt handtalning væri í full- um gangi í tveimur sýslum úrskurð- aði Lewis dómari að Katherine Harris, gallharður repúblikani sem margir hafa kallað skósvein Bush, hafi verið í fullum rétti þegar hún ákvað að handtöldu atkvæðin yrðu ekki með þegar niðurstöðurnar yrðu gerðar upp. „Lögin hafa sigrað,“ sagði James Baker, fulltrúi Bush í Flórída. Hann sagðist hafa rætt við Bush og vara- forsetaefni hans og þeir væru ánægðir með úrskurð dómarans. Katherine Harris sagði í yfirlýs- ingu sem hún sendi frá sér síðdegis í gær að hún myndi halda sínu striki og staöfesta úrslit kosning- anna í dag, laugardag. Það eina sem gæti komið í veg fyrir það er úr- skurður hæstaréttar Flórída sem gengi þvert á úrskurð Lewis dóm- ara og ákvörðun Harris sjálfrar. Demókratar vona að hæstiréttur taki öðruvísi á málinu. Rétturinn úrskurðaði til dæmis á fimmtudag að handtalning atkvæða gæti farið fram eins og demókratar vildu. Atkvæöin skoöuö í krók og kring Talningamenn í Palm Beach-sýslu velta vandlega fyrir sér atkvæðaseðli úr forsetakosningunum sem einhver vafi leikur á að sé góöur og gildur. Handtalning atkvæða hélt áfram í gær þótt dómari hefði úrskuröað aö þau yrðu ekki tekin með í reikninginn þegar endanleg úrslit forsetakosninganna verða gerð upp. Þeim úrskurði var áfrýjað. Stíflurnar eru ekki jafnum- hverfisvænar og af er látið Stíflur sem byggðar eru til að geyma vatn eða til raforkufram- leiðslu eru ekki jafnumhverfisvæn- ar og hingað til hefur verið talið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu, hinni fyrstu sinnar tegundar, sem gerð var um félagsleg, efnahagsleg og umhverfisleg áhrif stíflugerðar, að sögn breska tímaritsins Economist. Stíflur eru gjarnan stolt þeirra þjóða sem byggja þær og ákvarðan- ir um að reisa þær eru oft af póli- tískum toga til að skapa atvinnu eða í þágu einhvers ákveðins hóps. I skýrslunni, sem gerð var á vegum alþjóðlegrar stíflunefndar, kemur fram að áhrif þeirra á vistkerfið eru aðallega neikvæð. Þegar byggja þarf stiflur hefur það oft í fór með sér eyðileggingu í umhverfinu. Ryðja þarf skóga eða önnur vistkerfi á þeim svæðum sem Stíflur varasamar? Ný skýrsla bendir til að stíflur kunni að valda skaða á náttúrunni og auki losun gróðurhúsalofttegunda. eiga að fara undir vatn. Gróður safnast oft saman í uppstöðulónun- um og þegar hann rotnar gefur hann frá sér koldíoxíð og metan sem stuðla að frekari gróðurhúsa- áhrifum. I grein Economist kemur fram að ekki sé vitað hve stórtækar stiflur eru í losun gróðurhúsalofttegunda. Sumir áætla þó að þær geti sent frá sér allt að fjórðung þessara loftteg- unda sem fara út i andrúmsloftið. Talið var að vatnsorkuver myndu draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda vegna þess að þær brenna ekki jafðefnaeldsneyti. Nú þarf hins vegar að endurmeta hvort sú sé raunin í hitabeltislöndum. Þar við bætist að stíflur geta breytt náttúrulegum flóðum og þannig haft áhrif á lífríki áa og vatna. Og þær geta verið gróðrar- stía sjúkdóma á borð við malaríu. Fogh að forsætisráðherra Anders Fogh Rasmussen, leiðtogi danska íhalds- flokksins Venstre, á sér þann draum æðstan að velta öðr- um Rasmussen úr sessi, sjálfum Poul j Nyrup, forsætisráð- herra Danmerkur. Michael Kristi- ansen, nýr blaðafulltrúi flokksins, hefur nú fengið það verkefni að reyna að gera þennan draum leið- togans að veruleika. Franskar á röngum stað Hin tólf ára gamla Ansche Hed- gepeth hafði ekki heppnina með sér um daginn þegar henni varð á að borða franskar kartöflur á jarðlest- arstöð í Washington DC. Það er víst bannað og var stúlkan því handtek- in. Hún var fyrsta fómarlamb her- ferðar yfirvalda gegn sóðaskap í jarðlestakerfmu. Schröder skammaður Þýskir Sölmiðlar veittust að Ger- hard Schröder kanslara í gær fyrir að reka ekki samgönguráðherrann sem sagði sjálfur af sér vegna ásak- ana um fjársvik. Stjórnmála- skýrendur telja að atvikið eigi ekki eftir að skaða Schröder, enda hefur hann fengið viðurnefnið teflon- kanslarinn. Ráðist inn í hóruhús Lögregluþjónar SÞ og hermenn NATO réðust inn í fjölda vændis- húsa í Kosovo í gær þar sem serbneskir og albanskir glæpahópar hafa stundað eiturlyfjasölu og versl- að með kynlifsþræla. Einu haldið, öðru sleppt ■ Niels Helveg Pet- ersen, utanríkisráð- herra Danmerkur, sagði í gær að ef Danir héldu fast í þá kröfu sína að fá einn mann í fram- kvæmdastjóm Evr- óþusambandsins gætu þeir þurft að gjalda þess á öðr- um vettvangi. Stóru löndin innan ESB eru því andvíg að öll aðildar- löndin fái framkvæmdastjóra. Marxistar undir grun Útlæg marxistasamtök, GRAPO, eru grunuð um að hafa skotið lög- regluþjón til bana í úthverfi Ma- drídar, höfuðborgar Spánar, í gær. Nýr kafli I samskiptum Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði i gær að með sögulegri heimsókn sinni til Hanoi væri hafrnn nýr kafli í samskiptum Banda- ríkjanna og Víet- nams, eftir harm- leiki Víetnamstríðsins sem lauk fyrir aldarfjórðungi. Clinton ávarpaði ví- etnömsku þjóðina í sjónvarpi. Það er heiður sem engum öðmm erlendum þjóðarleiðtoga hefur hlotnast. Pútín til Síberíu Vladímír Pútín Rússlandsforseti kom til snæviþakinnar Síberíu í gær úr hitamollunni í soldánsrík- inu Brúnei og fullvissaði íbúana um að stjómvöld í Moskvu hefðu ekki gleymt þeim. Pútín sagði að stjóm- völd í Moskvu þyrftu að endurmeta stefnu sína í Síberíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.