Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 22
22 Helgarblað LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 DV Nýstárleg hönnunarsýning: Sagnaþulir osanna Þessi upplýsta skyrta segir okkur sögu meö Ijósi. Sagnaþulir Ijósanna samankomnir í Ásmundarsal viö Freyjugötu Hópurinn samanstendur af þremur Dönum, tveimur Norðmönnum, tveimur Júgóslövum, einum Pólverja og einum Islendingi. -m-ann 18. nóvember nk. kl. 1^)16.00 stendur Hönnunar- Tr safn íslands í Garöabœ fyrir óvenjulegri hönnunarsýn- ingu í sölum Listasafns ASÍ við Freyjugötu. Hér er um aö rœöa sýninguna Ljósasögur eöa „Lysfortœllinger “ sem er samsýning átta ungra hönn- uöa sem starfa í Danmörku. Allir hafa þeir aö markmiði virkjun birtu, einkum og sér- ílagi rafmagnslýsingar, meö nýjum hœtti, gjarnan með frá- sagnarlegu ívafi. Þaö er safn- inu sérstök ánœgja að fá aö kynna þessa hönnun sem er einstök í nútímalegum sjónlist- um. Sögur meö Ijósum „Það sem við eigum sameigin- legt er að við lærðum öll utan eitt í Danmarks Design Skole en vor- um samt ekki samferða í gegnum skólann. Við erum að útskrifast á fimm ára bili en leiðir okkar lágu saman eftir að skólanum sleppti," segir Aðalsteinn Stefánsson sem er Islendingurinn í hópnum. Aðstandendur Ljósasagna komu saman til stofnunar samtaka um ljósahönnun sína í október 1997 og var yfirlýstur tilgangur þeirra að „segja sögur með ljósum og kynna þær fyrir almenningi". Sögur sín- ar segja hönnuðirnir með því aö gera tilraunir með ýmsan efnivið og rými og margháttuðum leik með ljós. Aöalsteinn lýsir samstarfi þeirra svo að hópurinn vinnur ekki saman nema á fundum þar sem menn skiptast á hugmyndum. Þegar sýningin er sett upp er yflr- leitt fyrsta skiptið sem þátttakend- ur sjá verk hver annars en hafa rætt ítarlega um hugmyndina. Segja má að níundi meðlimur hópsins sé nokkrus konar fram- kvæmdastjóri sem sér um að halda fundargerðir, bóka sýning- arsali og annast mikið af því praktíska starfi sem fylgir list- sköpun og sýningahaldi. Fundahöld og sköpun „í raunverluleikanum er svona starf 80% fundahöld og 20% sköp- un og smiðar," segir Aðalsteinn. Árangurinn birtist með óhlut- bundnum hætti en er um leið markvert framlag til ljósahönnun- ar. Líta má á sjálfa ljósgjafana sem hluta stærri frásagnar eða sem einstaklingsbundnar frásagnir. Aðstandendur kapþkosta að sýna fram á möguleika til nýrrar upplif- unar ljóssins, bæði með framúr- stefnulegum tillögum og með gagn- rýnni sýn á viðtekna notkun ljóss- ins. Umfram allt vilja aðstandend- ur hvetja áhorfendur til að taka af- stööu til Ijóssins. 1 dag eru i hópnum þau Lovorika Banovic (fyrrv. Júgósl.), Monna Blegvad (Danm.), Aleksej Iskos (Póll.), Igor Kolobaric (fyrrv. Júgósl.), Hans E Madsen (Danm.), Aðalsteinn Stefánsson (ísl.), Carlo Volf (Danm.) og Janne Öhre (Nor.). Flestir hafa þeir hlotið menntun sína i Danmarks Designskole. Fimm þeirra starfa sem iðnhönnuðir, einn er innan- hússarkitekt en að auki eru mynd- listarmaður og leikmyndahönnuð- ur í hópnum. Varö sveinn hjá afa „Ég lærði upphaflega rafvirkjun í Iðnskólanum," segir Aðalsteinn þegar hann er beðinn að lýsa námsferli sínum. „Ég varð sveinn í rafvirkjun hjá afa mínum Aðalsteini Tryggvasyni rafvirkjameistara sem kenndi mér að vinna. Ég var samt alltaf stað- ráðinn i að fara og læra einhvers konar hönnun og útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskólanum, fjöltæknideild, 1996. Þar vann ég mikið með ljós og hljóð í ljósainn- setningum og fannst þess vegna eölilegt framhald að fara í Dan- marks Design Skole þar sem ég lærði leikmyndahönnun og lauk námi fyrir einu ári.“ Aðalsteinn hefur þegar hannað leikmyndir við eina leiksýningu og einn dans „performance „ í Kaupmannahöfh. • „Ég er ánægður með það hvern- ig hjólin eru farin að snúast því ég hef ekki sömu sambönd og inn- fæddir og þarf því að hafa svolítið meira fyrir þessu.“ Aðalsteinn hefur verið búsettur í Danmörku í fjögur ár samfleytt en heldur góðu sambandi við sitt heimaland og tók t.d. þátt í Ljósa- hátiöinni i Reykjavík á dögunum með þvi að setja upp verk í Hafn- arhúsinu þar sem teflt var saman eldi og vatni meö eftirminnilegum hætti. Meöbyr frá upphafi Frá upphafi hefur þessi hópur fengið mikinn meðbyr. Árið 1998 sýndi hann í fyrsta sinn á ljósamessunni svonefndu í Hern- ing og stuttu síðar var hann feng- inn til aö setja upp tvær sýningar með stuttu millibili í helsta list- iðnaðarsafni Dana, Kunstindustrimuseet í Kaup- mannahöfn. Snemma á þessu ári var hópurinn fenginn til að setja upp þriðju sýningu sína í Kunstindustrimuseet, sem er næsta óvenjuleg upphefð þegar ungir hönnuðir eiga í hlut. Ljósasjó fyrir Jótlandspostinn Af öörum uppákomum hópsins má nefna sérstakt „ljósasjó" fyrir dagblaðið Jyllandsposten á Kóngs- ins Nýjatorgi í maí 1999, sýningu á húsgagnamessunni í Bella Center, 1999, sérstaka sýningu hjá ljósa- framleiðandanum Louis Poulsen, sem margir íslendingar þekkja og sýningu á hönnunarmessu í Lund- únum. Þá sýndi hópurinn nýlega, fyrir milligöngu Kunstindustrimu- seet í Kaupmannahöfn, í Danska húsinu í París. Nú er hópurinn þátttakandi í ljósahátíðinni í Helsinki sem samsvarar nýrri ljósahátíð í Reykjavík og hefur fengið boð um að sýna í Dansk Design Center í miðborg Kaup- mannahafnar á næsta ári. Héðan fer hópurinn beint til Helsinki þar sem verður sett upp Ijósasýning sem er sköpuð á staön- um og þar af leiðandi frábrugðin því sem hópurinn hefur áður gert. Síðan liggur leiðin til Mílanó á mikla lampamessu. Hópur í könnunarleiöangri Hópurinn hefur fengið styrki og viðurkenningar úr mörgum helstu menningarsjóðum Dana, t.d. sjóð- um dönsku bankanna, sjóði Politi- ken-samsteypunnar og sjóði Thom- as B. Thrige. Einnig má geta þess að sýningarskrár og plaköt hóps- ins sem hönn- uð eru af Mette og Peter Brix, hafa hlotið sérstak- ar evrópskar viðurkenning- ar sem fram- úrskarandi grafísk hönn- un. Hópurinn fylgir sýningu sinni úr hlaði með eftirfar- andi mani- festi: „Við erum í könnunarleið- angri á svæði þar sem fátt er um landa- mæri. Við hverfum frá hinu þekkta og þokumst áleiðis til hins óþekkta og á leiðinni taka markmið okk- ar breyting- um. Útkoman er ráðgátur þar sem form- in leita sér annarskonar tilgangs og til- gangurinn kallar á ann- ars konar form. Hönnun okkar lýsir ferðalögunum sem við tök- umst á hend- ur; ferðalögin snúast upp í sýningar og sýningarnar köllum við ljósasögur.“ Ljósasögur segja okkur sögur með nútímalegum sjónllstum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.