Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 45
53 LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001 r»V Tilvera Generali-EM á Tenerife 2001: ítalir sigruðu í fjórða sinn í röð ítölsku Ólympíumeistararnir sigruðu örugglega á Qórða Evrópu- mótinu i röð og nú bíður bridge- heimurinn spenntur eftir því hvort þeim tekst að bæta Bermuúdaskál- inni í safnið á Bali í haust. Flestir munu kannast við nöfnin en þau eru Duboin, Bocchi, De Falco, Ferr- aro, Lauria og Versace. íslenska landsliðið gaf heldur eft- ir í síðustu sex leikjunum eftir góð- an endasprett og hafnaði í 17. sæti, með 546 stig, eða 15,6 stig að meðal- tali í leik. Liðið spilaði fast í þremur pörum og skoruðu Magnús og Þröstur mest, eða að meðaltali 0,29 impa í leik. Þeir spiluðu 480 spil. Þorlákur og Matthías spiluðu einnig 480 spil og voru rétt fyrir ofan núllið, með 0,02 impa í spili að meðaltali. Jón og Karl spiluðu 400 spil og voru rétt fyrir neðan núllið, með -0,04 impa í spili að meðaltali. Árangur liðsins í síðustu leikjunum var eftirfarandi: Tékkland-ísland 17-13 San Marino-ísland 14-16 Búlgaría-Ísland 14-16 Slóvenía-Ísland 17-13 írland-ísland 11-19 Noregur-ísland 24-6 Röð og stig efstu liðanna á Evr- ópumótinu var annars þessi: 1. Ítalía 647 stig 2. Noregur 638 stig 3. Pólland 624 stig 4. Rússland 616,5 stig 5. ísrael 594,5 stig 6. Danmörk 592 stig Fimm efstu löndin unnu sér rétt til að keppa um heimsmeistaratitil- inn á Bali í haust. Englendingar unnu Evrópumeist- aratitilinn I kvennaflokki og meist- ararnir heita Smith, Dhondy, Brunner, Brock, Goldenfield og Courtney. Og í flokki eldri spilara sigraði sveit Pólverja og meistararnir heita Klapper, Milde, Stobiecki, Wala, Russyan og Wilkosz. Og Evrópumeistarar í kvennatví- menningi urðu Sabine Auken og Daniela von Arnim en þær vörðu titil sinn. Eins og að líkum lætur voru ítal- ir efstir í Butlerkeppninni og það voru Duboin og Bocchi sem skoruðu mest eða 0,91 impa í spili. Við skulum að lokum skoða eitt spil frá leik Ítalíu og Noregs en þeir fyrrnefndu unnu leikinn með nokkrum yfirburðum. N/A-V ♦ 10943 ♦ 6432 ♦ 942 4 75 —ij----14 G872 " * Á1097 ♦ ♦ G S U Á1096 4 KD65 V KG ♦ ÁD105 4 K43 Á öðru borðinu sátu n-s stjörnu- spilarar Norðmanna, Helness og Helgemo en a-v Lauria og Versace. Og á hinu borðinu sátu n-s Bocchi og Duboin en a-v Aa og Grotheim. Sagnir gengu eins á báðum borðum: »D85 ♦ K8763 4 DG82 Norður Austur Suður Vestur pass pass 1 ♦ pass pass dobl pass 1 grand pass pass pass Helness spilaði út tígultvisti, gosi, drottning og kóngur. Versace svín- aði síðan laufi, Helgemo drap á kónginn og spilaði meira laufi. Ver- sace spiiaði nú litlu hjarta og Hel- gemo drap á kónginn. Sagnhafi er nú með 8 slagi og það gerði 120 til a- v. Á hinu borðinu spilaöi Bocchi einnig út tígultvisti og fyrsti slagur fór eins. Grotheim svínaði síðan laufi og Duboin drap á kónginn. En í stað þess að spila hlutlaust laufi til baka reyndi hann lítinn spaða með frábærum árangri. Auðvitað gat Grotheim gert hon- um lífið leitt með því aö taka laufslagina en hann vildi skilja eftir samgang við blindan. Hann tók því tvisvar lauf og spilaði hjarta. Duboin þurfti ekki meira. Hann drap með kóng og spilaði tígulfimmi sem Bocchi átti á níuna. Hann spil- aði síðan spaðatiu og sagnhafi varð að láta sér nægja 6 slagi. Það voru 100 til n-s og ítalir græddu 6 impa á þessu látlausa spili. Smáauglýsingar Allt til alls ►I550 5000 Myndgátan hér til hliðar lýsir lýsingarorði. Lausn á gátu nr. 3047: Slægur fiskur Myndasdgur 2 Éa 61 8Ww«ab4tra (Ef þú átt ekki mein penínga skaltu bara segja eínhverri stelpu að þú víljir trúlofast ,henni. Þá gefur hún þér is. , ftg er hræddur um að i það gangi ekki h|á mér en mig isngar mjög i mikið i is. /Jú! I per pening. Mummi. hún áttiÁ . en ég varð að fara einn f og kaupa is hands henni, mömmu hennar og litla bróður. .: og ég ^var líka að undirrita skuldaviðurkenningu. Ekkert hefur breyst eftir öll þessi ár. Sama gamla gula tungllð. Nema hvað steínamir sem við sWjum á virðast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.