Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Page 42
50 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001 Tilvera DV mimmn Grái kötturinn Grái kött- urinn viö Hverfisgötu er eitt þeirra kaffi- húsa í mið- borginni sem náð hafa vin- sældum listafólks af ýmsu tagi. Staðurinn er morgun- og miðdagsstaður en lokaður á kvöldin. Meðal þess sem gerir hann sérstakan eru hillur með lesnum bókum og sætin sem gætu verið úr gömlum Rússajeppum. Grái köttur- inn býður upp á nokkrar tegundir af kaffi og brauðréttum. Fyrir val- inu varð kaffi hússins og ristuð beygla með skinku, osti og græn- meti. Kaffið reyndist bragðmikið en ekki beiskt og beyglan matarmikil, með sérlega fersku áleggi. Reyndar hefði kaffiskammturinn mátt vera ögn stærri svo hann hrykki til að skola hverjum bita niður. Grái kött- urinn er reyklaus og þar inni er notalegt andrúmsloft sem ótvírætt skapast innan um fólk og bækur. Kaffi Puccini Það var fremur rólegt á Kaffi Puccini við Vitastíg þegar ég leit þar inn í vikunni. Staðurinn, sem er á tveimur hæðum, tekur þijátíu manns í sæti. Ef marka má viðskiptavinina sem voru á Puccini þann tíma sem ég dvaldi þar er staðurinn vinsæll meðal fólks á framhaldsskólaaldri. Persónu- lega fannst mér skemmtilegt aö sitja þar og þykjast vera að glugga í bók en vera í raun að hlusta á samræður við- skiptavinanna sem voru að skoða tímarit og sögðu vá, kúl og geðveikt. Gengilbeinan á Puccini var glaðleg þegar hún tók á móti mér og hjálpleg þegar hún leiöbeindi mér í vali á köku. Að hennar mati átti ég að fá mér epla- köku með rjóma og reyndist hún ljóm- andi góð. Að vanda pantaði ég mér tvö- faldan espressó en gengilbeinan ákvað að ég væri frekar cappucino-maður og færði mér einn slíkan i staðinn. Hún bauðst reyndar til að leiðrétta mistök- in en þar sem hún hafði staðið sig vel i kökuvalinu ákvað ég að fara að henn- ar ráði. Verðið á Puccini er fremur í hærri kantinum og ég borgaði 730 krónur fyrir kaffi og kökusneið. Kaffibrennslan Kaffihúsið Kaffibrennslan er skemmtilegt kaffihús í hjarta Reykjavíkur þvi það er við Austur- völl. Meðal þess sem Kaffibrennslan býður er gott úrval af samlokum, hamborgurum og fleiri réttum. Á hverjum degi er svo í boði réttur dagsins og oft eru tilboð á bjór. Flestir réttir smakkast mjög vel og má hiklaust mæla meö kjúklinga- samlokunum sem eru einstaklega góðar en þær eru bornar fram með salati og frönskum kartöflum. Kaff- ið hefur einnig yfirleitt veriö bragð- gott og það er ávallt borið fram með litlu glasi af sódavatni. Á kvöldin er oft mikiö af fólki á Kaffibrennslunni þannig að ef menn ætla að tylla sér þar niöur yfir drykk eina kvöld- stund er best að mæta tímanlega því staðurinn er fljótur að fyllast. -Gun/Kip/MA Fjallagrös Fjallagrös vaxa villt um allt Island og voru meðal algengustu nytjaplantna fyrr á tímum. Þá lagðist fólk út og var á grasa- fjalli sólarhringum saman. Best þótti að tina grösin á nóttunni, þegar döggin hafði mýkt þau. Enn eru fjallagrös tínd til manneldis og reyndar líka til lyfjagerðar því þau þykja afar holl og næring- arrík. Sumir telja að það hafi skipt sköpum fyrir heilsufar þjóðarinn- ar fyrr á öldum hversu landið var gjöfult á fjallagrös. Grösin eru þurrkuð og geymast þau þá vel, jafn- vel árum saman. Þau eru notuð ýmist heil eða söxuð í súpur og grauta. Einnig má mylja þau út í korn og nota í brauð. Fyrr á tíð voru þau notuð til að drýgja kornið sem þurfti að kaupa dýru verði og voru tvær tunnur af fjallagrösum látnar samsvara einni tunnu af korni. mam 1 & #•? %5 *' f mmm Mttil 1 wmsJfSselfg WSi ffifl Íiftt Fer á grasafjall reglulega Gunnar Jónsson, kokkur á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins. Hafa veriö notuð í lækn- ingaskyni öldum saman - segir Gunnar Jónsson, matreiöslumaður á Heilsustofnuninni Grasamjólk Fimmtíu grömm af fjallagrös- um eru soðin í hálfum lítra af vatni í 10-15 mínútur. Einn lítri af mjólk er settur út í, suðan lát- in koma upp og mjólkin soðin við vægan hita í 20 mínútur. Hálfri teskeið af salti og 2-6 matskeiðum af hunangi er að síðustu bætt út í. Sósa/pottréttir Söxuð grös eru sett í matinn við upphaf eldamennskunnar. Gott er að nota þau eins og þurrkaða sveppi. Fjallagrasakara- mellubúðingur Tuttugu og flmm grömm af fjallagrösum eru rifin smátt. Sjö- tíu og flmm grömm af sykri eru sett á heita og þurra pönnu og í hann er grösunum blandað. Pannan er hrist svo sykurinn og grösin jafnist sem best og síðan hrært í þar til sykurinn er orð- inn að karamellu. Við og við er pannan tekin af eldinum svo grösin verði sem best brúnuð án þess að sykurinn brenni. Þegar hvít froða er byrjuð að koma er smjörbiti settur á pönnuna og hrært í þar til orðið er jafnt. Þá er karameUunni heUt á smurða bökunarplötu. Þegar hún er orðin hörð er hún muUn með kefli. Þrjú blöð „Fjallagrös eiga fastan sess í mat- armenningunni á þessu heimili og hafa alltaf átt,“ segir Gunnar Jóns- son, matreiðslumaður á Heilsustofn- un Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Sjálfur kveðst hann fara með starfsfólki stofnunarinnar á grasaíjall reglulega. „Við förum öðru hvoru inn á HveraveUi og tín- um fjaffagrös þar tvo daga 1 senn. Það er sér- stök stemning sem fylgir því.“ Gunnar segir nauðsyn legt að tína grösin þegar blautt sé á, annaðhvort eftir rigningu eða nátt- fall. Annars séu þau hörð og föst við svörðinn. „En þegar aðeins er búið að rigna eru þau mjúk og fin og gott að tína þau,“ segir hann. Góð við kvefi Gunnar segir fjallagrösin notuð út í te dagsdaglega á stofhun Nátt- úrulækninga- félags- ins og hann bakar brauð úr þeim líka. Grasamjólk segir hann hafa verið á árum saman en sjaldnar á borðum í seinni tíð. Hvað telur hann svo gefa þessum grösum mest gildi? Því svara hann svo: „Fjallagrös hafa veriö notuð í lækningaskyni öldum saman, auk þess sem þau þykja mjög nærandi. Samkvæmt lækningabókum eru þau sýrustillandi og þykja sérstak- lega góð fyrir slímhúð í maga og um hósta, flensu og kvefi. Hér á heimilinu er mikil eftir- sókn í grasateiö, ég tala nú ekki um ef fólk finnur fyrir ein- hverri slæmsku." Gunnar er fús til að miðla les- end- um af kunnáttu sinni í með- ferð fjalla- grasa og gefur uppskriftir sem hann hefur notað með góðum ár- angri. Gerlaust brauð með fjallagrösum 1 kíló hveiti 2 tesk. lyftiduft meltingarvegi." Gunnar kveðst sjálfur hafa kynnst grösunum sem kvefmeðali. „Þau eru mjög góð við þurr- 1 tesk. matarsódi 20 g salt 1 bolli fræ, til dæmis sesamfræ eða sólblómafræ 7 dl vatn 1 hnefi af fjallagrös- um. Fræin eru ristuð á pönnu og kæld. in eru íogo í bleyti og skoluð vel. Síðan söxuð mjög fint niður. Allt hrært saman og hnoðað í um það bil 5 mínútur. Sett í ofn og bakað í 20 mínútur á 220 gráðum og 40 mínút- ur á 150 gráðum. Fjallagrasate 1/21 vatn Tæpur hnefi af fjallagrösum. Grösin eru skoluð vel og sett út í pottinn meö vatninu. Suðan er látin koma upp og teið látið malla við hægan eld í ca 5 mínútur. Sigtað og safa úr hálfri sítrónu bætt út í. Sætt með hunangi. Gun. matarlími eru látin liggja í köldu vatni í 10 mínútur, kreist upp og brædd yflr gufu. Út í það er hrært tveimur matskeiðum af köldu vatni. Matarlímið er mátulega kalt þegar ekki flnnst velgja. Einn peli af rjóma er þeyttur, mestallri karamellumylsnunni blandað út í og matarlímið hrært útí 1 mjórri bunu. Búðing- urinn er svo skreyttur með af- ganginum af karamellunni. Kjarngott brauö meö fjallagrösum og fræjaum. Næringargildi Hollustu fjallagrasa hefur löngum veriö viö brugöiö. Trúlega eru þaö steinefnin sem einkum hafa haldiö merki þeirra á lofti Innihald 1100 grömmum er: Hitaeiningar 32 Prótein 1,7 g Kalk 390 mg Kolvetni 5,2 g

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.