Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2001, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2001 37 DV EIR á mánudegi Guðni og Geiri Ásgeir Davíðs- son (Geiri í Max- ím) hefur gengið á fnnd Guðna Ágústssonar land- búnaðarráðherra og óskað eftir að sósur sem hann framleiðir fyrir Bandaríkjamarkað verði markaðssett- ar með íslensku lambakjöti þar í landi. Segir Geiri að ráðherra hafl tekið þessu vel enda opinn fyrir öllum nýjungum. Sósumar eigi sam- leið með lambinu en um er að ræða. sveppa-, gráðosta- og rjómasósur sem Geiri lætur fram- leiða fyrir sig og félaga sina í lítilli verksmiðju í Al- bany í New York-fylki. Hafa þeir þegar gert samninga við verslunarkeðjur í Bandaríkjunum um sölu á sósunum. Er frekari vöruþróun í burðarliðnum. Rugstööin Skemmtilegt bílastæöi. Bílasjéns Flugfarþegar sem skilja bíla sína eftir á bílastæði Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eiga á hættu að bílar þeirra verði dregnir á brott á með- an á dvöl erlendis stendur. Er þá farið með bilana á langtímastæði Securitas þar rétt hjá. Þar kostar vikan 3.240 krónur fyrir öruggt stæði. Séu menn heppnir kostar ekkert að láta bilinn standa á bíla- stæðinu við Flugstöðina. Sé hann dreginn á brott kostar það 200 krón- um meira en langtímastæðið eða 3.440 krónur. Menn geta því tekið sjénsinn, séu þeir i burtu í viku, og annað tveggja, losnað við bflastæða- gjald eða greitt fyrir dráttarbílinn - nær því sama gjald og í gildi er hjá Securitas. Kemur út á eitt. Fyrirframpels Ómar Jóhanns- son, vídeómaður- inn sem vann milljón í Viltu vinna milljón? á Stöð 2 á dögun- um, hefur lagt vinningsupphæð- ina inn á banka. Hyggst hann bjóða eiginkonu sinni til útlanda á gamlársdag en þá hann afmæli. „Milljón er ekki svo mikið og ég þarf engan pels,“ segir Guðný Rann- veig, eiginkona hans, sem stendur vaktina á vídeóleigunni á móti bónda sínum. „Ómar er búinn að gefa mér pels. Gaf mér gervipels fyr- ir þremur árum og það dugar vel.“ Leiðrétting Vegna frétta af fyrirhugaðri einkavæöingu Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra á háloftunum skal tekið fram að norðurljósin eru undanþegin í áætlun hans. Þau hyggst ráðherrann ekki einkavæða. Milijónin Komin í banka. Guöni Opinn fyrir nýjungum. Geiri Óskaöi eftir fundi og fékk. Kristján Geir og Bára Voru aö leita aö sumarbústaö en féllu fyrir húsi Margrétar og ætla aö flytja til Stokkseyrar. Ung hjón á Kópavogsbraut létu slag standa: Keyptu hús Mar- Fimm ráð fyrir vikui ap STURTA ARNALDS - i Próflð sturtuna hans jrt.AÉl Ragnars Amalds í i * jffl Laugardalslauginni. JL P 'jjy Hún er önnur frá I - a. ™ vegg hægra megin á þriðja gangi talið frá bún- ingsskápum. Aðeins fyrir karl- menn en Ragnar hefur forgang sé hann á staðnum. Besta sturt- an í bænum og Ragnar veit það. ÓDÝR GISTING - Eins manns herbergi hjá Hjálpræðishem- um í KirRjustræti kostar ekki nema 3.500 krónur. Upp- lagt fyrir úthverfa- fólk sem vill gera sér dagamun og skemmta sér í miðbænum án þess að eyða álika uphæð í leigu- bíl heim. SÚLUFERÐ - Drífið ykkur á súlustað áður en borgar- stjóri lokar þeim öllum. Frúin er vel- komin með á Club Seven en á Maxím em þeir strangari og vilja helst karla. Ágæt afþreying eftir góða máltíð í miðbænum. grétar á Stokkseyri - örtröð á sjávarkambinum - allir vildu skoða „Þetta átti sér langan aðdrag- anda. Við höfðum verið að leita okk- ur að sumarbú- stað einhvers stað- ar við sjóinn á Suðurlandi en lét- um slag standa og keyptum hús Mar- grétar. Þangað ætlum við að flytja og búa allt árið,“ segir Krist- ján Geir Amþórs- son, starfsmaður hjá Reiknistofu bankanna, sem ásamt eiginkonu __________________ sinni, Báru Krist- jánsdóttur, hefur undirritað bind- andi kauptilboð í íbúðarhús Mar- grétar Frlmannsdóttur, varafor- manns Samfylkingarinnar, og Jón Gunnars Ottóssonar, eiginmanns hennar, á Stokkseyri. Kaupverð er trúnaðarmál en samkvæmt ágætum heimildum fór verðið ekki yfir 20 milljónir. Sjálf haföi Margrét lýst því yflr hér á síðunni að hún myndi aldrei selja húsið á tombóluverði dreifbýlisins heldur vildi höfuð- borgarverð fyrir hús sitt. Hún mun hafa farið nærri þvi í þessum viö- skiptum. Samkvæmt kauptilboði verða Margrét og Jón Gunnar að af- henda húsið fyrir 1. febrúar og flytja annað. Óvíst hvert. Sioniðindi i Sfnkkwyrl: Margrét Frímanns selur húsiö sitt J- Frétt um söluna Hálfgert umsátursástand skapaöist viö hús Margrétar á Stokkseyri og þurfti að stýra skoöunarferöum frá fasteignasölu á Selfossi. Ekki Selfoss „Margrét bað mig ekki að svip- ast um eftir nýju húsi handa sér hér á Selfossi þeg- ar hún setti húsið sitt á sölu þannig að ég geri ekki ráð fyrir að hún ætli að flytja hingað,“ segir Sigurður Fannar Guðmundsson hjá fasteignasölunni Bakka á Selfossi sem sá um söluna og ýtir það síður __________ en svo undir orðróm þess efnis að Margrét stefni í bæjarmálapótli- tíkina á Selfossi. „Mér skildist á henni aö hún vildi áfram búa ein- hvers staðar á Suðurlandi,“ segir Kristján Geir sem brátt flytur í hús Margrétar. Allir vildu sjá Örtröð var á sjávarkambinum ofan við hús Margrétar og Jóns Gunnars eftir umfjöllun sem fast- eignaviðskipti hennar fengu hér á síðunni, svo og í innlitsþætti Val- gerðar Matthíasdóttur á Skjá ein- um. Bílalestir runnu hjá lóðarmörk- um með andlit ökumanna og far- þega klesst viö bílrúður. Allir vildu sjá húsið og helst að fá að koma inn án þess þó að hafa kaup í huga. Furðar Margrét sig á forvitni fólks en hefur ekki hátt um því allt eru þetta atkvæði. Þurfti Sigurður Fannar fasteignasali því að setja upp áætlun um hverjir og þá hvem- ig húsið væri skoðað. Var þeirri áætlun fylgt með þeim árangri sem fyrr greinir þegar Kristján Geir og Bára keyptu húsið. HRESSING - Tak- ið lýsi og vítamín á hverjum morgni. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Haustmyrkrið dreg- ur sumarorkuna fljótt úr skrokknum. Lýsið snýr þeirri þróim við. ” LESIÐ - Bók bar- áttukonunnar Waris Dirie er holl lesning þeim sem vilja skilja heiminn. Hún er jafn óhugnan- leg og Dirie sjálf er fögur. Trygg- ið ykkur eintak af Eyðimerkur- blóminu. Litla Vegas opnar Boðið var til veislu í spila- vitinu við Suðurgötu í miö- bæ Reykjavíkur um helgina þar sem ný spilaborð voru vígð og erlendir atvinnugjaf- arar voru boðnir velkomnir. Um er að ræða stúlkur sem eru þjálfaðar í spilagjöf á spilavítum erlendis en sú list þykir erfið og ekki á færi annarra en þeirra sem vel til þekkja. Stúlkumar verða klæddar sérstökum búning- um sem íslendingar þekkja eingöngu úr kasinóum í kvikmyndum. (Þetta eru ekki kanínubúningar.) Deilur hafa staðið á milli byggingar- fulltrúa Reykjavíkurborgar og fyrrum eigenda spilavítisins um inngang sem var í skúr baka tfl við Hjálpræðisher- inn. Sá skúr hefur nú verið rifinn sam- kvæmt samþykkt borgarráðs þar um og nýr inngangur byggður. Byggingarfull- Nýr inngangur Skúrinn horfinn og allt nýtt aö innan. trúi borgarinnar hefur þó ekki enn lagt blessun sína yfir innganginn. Þrátt fyrir það var opmmarhátíðin skipulögð og ekkert til spar- að. Ný spilaborð og nýjar inn- réttingar prýða klúbbinn sem hefúr náð vinsældum jafnt meðal almennings og ráða- manna í þjóðfélaginu sem haldnir eru spilagleði. Svo vel hefur til tekist að helst minnir á smækkaða útgáfu af Las Vegas. Spilað er seint og fram á nótt og hafa lögregluyfirvöld lát- ið starfsemina óáreitta enda fram hjá banni um fjárhættuspil farið með lagni. Áfengi er borið fram án þess að sérstök greiðsla komi fyrir. Tekjur spilavítisins felast hins vegar í spilamennskunni sjálfri þar sem menn hætta oft á tíðum miklum fjármunum - og tapa og vinna á víxl. Skyndikynni viö tjaldstæðið í Ásbyrgi í ágúst: Pabbi týndur - auglýst eftir honum í smáauglýsingum „Mig vantar ættartöluna. Það get- ur munað helming í verði,“ segir Guðmundur Baldursson, umsjónar- maður tjaldstæðisins í þjóðgarðin- um í Ásbyrgi sem auglýst hefur í smáauglýsingum DV eftir labrador- hundi sem heimsótti hann og tík hans í afgreiðslu tjaldstæðisins 10. júlí síðastliðinn. Skyndikynni tók- ust með tík Guðmundar og gestin- um og nú hefur hún alið eiganda sínum sjö hvolpa en pabbinn er týndur. Þvi auglýsir Guðmundur: „Tíkin mín var bundin hér fyrir utan og ég og eigandi hins hundsins vorum að ræða það hér inni hvort við ættum ekki að leiða þau saman. Ekkert varð úr því en hundamir Guðmundur, Blrta og hvolparnir Öll aö leita aö pabba sem átti leiö hjá í sumarlok. hafa hins vegar séð um það sjálfir,“ segir Guðmundur sem þegar hefur selt þrjá hvolpa sem í heiminn komu með þessum hætti og á því fjóra eftir. „Gangverð á þeim er um 35 þúsund krónur en getur orðið 70 þúsund séu þeir ættbókarfærðir. Eigandi pabbans á einnig rétt á hvolpatolli sem er einn af þessum sjö hvolpum. Það er því til mikils að vinna hjá honum hafi hann sam- band, sem ég vona að verði.“ Tík Guðmundar heitir Birta en alls er óvíst um nafn þess sem gat henni hvolpana. Ólíklegt er að aðrir hundar komi til greina því skyndikynnin við tjaldstæðið í Ás- byrgi áttu sér stað 10. júlí og 63 dög- um síðar fæddust hvolparnir. Það er nákvæmlega meðgöngutími labradortíka. Rétta myndin Fyrir hundinn Skemmtileg regnhlíf fyrir heimilis- hundinn. Hentar vel í haustrigningunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.