Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 Helgarblað DV Verulegur samdráttur og tap hjá OZ eftir tíma mikillar uppsveiflu: Mikil uppsveifla - enn meiri dýfa Þaö hefur gengið á ýmsu hjá OZ þann tíma sem fyrirtækið hefur ver- ið i rekstri. í nokkur ár var fyrir- tækið notað við hátíðleg tækifæri sem gott dæmi um að íslendingar gætu flutt út ýmislegt fleira en flsk enda er það staöreynd að OZ stóð mjög framarlega á mörgum sviðum hugbúnaðargerðar. Þrívíddargrafik var ein þess sterkasta hlið, enda er Guðjón Már Guðjónsson, stofnandi fyrirtækisins, galdramaður á því sviði. En þegar almennur samdrátt- ur varð í hugbúnaðargeiranum fór OZ ekki varhluta af því og gott dæmi um það er afkoma fyrirtækis- ins árið 2001 sem hijóðaði upp á tap upp á 24,6 milljónir Bandaríkjadala (um 2,4 milljarðar króna) sem var Hugbúnaðarfyrirtœkið OZ stendur nú á tíma- mótum. Samningurinn stóri sem fyrirtœkið gerði við Ericsson er nú út- runninn en á samnings- tímanum hefur tap fyrir- tœkisins aukist umtals- vert. Uppsveifla fyrirtœk- isins var mikil á sínum tíma en fallið var svo Skrifað undlr samstarfssamninginn vlð Ericsson 1999. Skúli Mogensen skrifar hér undir þennan samstarfssamning sem nú er útrunninn. Óiafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og fulltrúi frá Ericsson fylgjast meö. Þessi samningur tryggöi þaö aö OZ hélt lífi en haföi um leiö heftandi áhrif á starfsemi þess. enn þá meira þegar að því kom. Nú eru hins vegar líkur á að betri tímar séu fram undan. 76% meira tap en árið áður. Og nú eiga sér stað þau tímamót hjá OZ að höfuðstöðvar fyrirtækisins verða fluttar til Montreal í Kanada, þar sem það hefur reyndar verið með starfsemi um skeið. Þegar tap síðasta árs er skoðað sést að mest munar um að afskrift- ir, fjármagnskostnaður og áhrif dótturfélaga jukust um liðlega milij- arð milli ára. Þessi aukning af- skrifta er reyndar að mikiu leyti til komin vegna breyttra reglna hjá SEC (Securities an Exchange Comission), þar sem fyrirtækið er á skrá. Tap á reglulegri starfsemi fyr- irtækisins er rúmlega 57% minna en í fyrra, eða um 240 miiijónir króna. Eignir fyrirtækisins hafa hins vegar minnkað töluvert, eða úr 27 milijónum dollara i rúmar 10,7 milijónir sem bendir til verulega hnignandi stöðu. Flutningur fyrirtækisins á að hafa í för með sér skattalegt hag- ræði. Skúli Mogensen, forstjóri OZ, flytur til Kanada með fyrirtækinu. Fyrirtækið verður þó enn með starf- semi á íslandi og samkvæmt heim- ildum DV verða starfsmennimir á bilinu 20-25. Fækkun starfsfólks í heild hjá fyrirtækinu verður óveru- leg. Milljarðs innspýting Það er óhætt að segja að saga fyr- irtækisins hafi verið viðburðarík. Guöjón Már stofnaði þetta fyrirtæki og þykir hafa sýnt mikiö hugrekki í uppbyggingu þess. Þrívíddarforrit- un var í fyrstu aðalviðfangsefni þess og hún fór fljótlega að vekja at- hygli víða um heim. Fyrirtækinu gekk vel, enda miklir peningar í umferð á þessum tíma og forsvars- mönnum þess gekk vel að ná í fjár- muni með sölu á skuldabréfum og hlutabréfum. Hallgrímur Indriðason blaöamaöur Fréttaljós Stóra skrefið fram á við hjá OZ var síðan þegar gengið var frá þriggja ára samningi við Ericsson í janúar 1999. Ericsson keypti þá hlutabréf í OZ fyrir einn milljarð króna og þar með var OZ komið með nokkurt forskot því einn milij- arður i eigiö fé er noldcuð sem fyrir- tæki hlaupa ekki að því að öðlast. Þessi kaup voru gerð með vilyrði um það að fyrirtækið yrði skráð á hlutabréfamarkað, þá bæði í Banda- ríkjunum og Svíþjóð. Það takmark náðist hins vegar aldrei. Við þetta tækifæri var þvl spáð að gengi hlutabréfanna myndi snar- hækka, og þar af leiöandi einnig verðmæti fyrirtækisins. Þetta gekk eftir og þegar búið var að ganga frá samningnum stóra við Ericsson hækkuðu hlutabréfin hratt í verði. Til marks um það var gengi fyrir- tækisins í ársbyrjun 1999 2,3 dollarar á hlut en var komið upp í 3,80 doll- ara í mars sama ár. OZ var á tíma- bili meira virði á markaði en rótgró- in fyrirtæki á borð við Flugleiðir og Eimskip. Hallar undan fæti En ekki leið á löngu þar til fór að halla undan fæti og gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hríðféll. Menn sem keypt höfðu hlutabréf í fyrirtækinu meðan gengið var lágt, og höfðu því grætt vel á viðskiptunum, sáu sér nú leik á borð og seldu bréfin. Við það fór gengið niður á við að nýju og smátt og smátt dvínaði áhugi fjár- festa á fyrirtækinu. Það fór að tapa töluverðum íjármunum og í maí í fyrra sagði OZ upp öllu starfsfólki sínu í Svíþjóð og lokaði þar skrifstof- unni. Samningurinn við Ericsson rann síðan út í janúar síðastliðnum og þá sendi OZ frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem stóð m.a.: „OZ var skuldbundið til að vinna eingöngu fyrir Ericsson í rannsóknum og þró- unarverkefnum tengdum símamark- > ISPO-múrkerfið samanstendur af einangrun sem sett er utan á húsið, iini, glertrefjaneti og múr úr hvítu Portland- sementi, möluðu kvarsefni og akrýlblöndu. Hægt er að fá margar áferðir og mismunandi grófleika. Einangrun utan frá - betri kostur • ISOP-MÚR er einnig hægt að nota innanhúss, bæði til skrauts og viðgerða. • Ef húsið er ekki mjög illa farið er haegt að gera við það með ISPO- MUR, án þess að einangrun sé nauðsynleg. • Ódýrasti kosturinn. MÚRKLÆÐNING SMIÐSBÚÐ 3,210 GARÐABÆ • ISPO-MÚR á ný hús og þú þarft ekki að óttast,frost- eða alkalískemmdir. ISPO-MÚR hleypir ekki frostinu inn í veggina.- • Ef þú velur ISPO-MÚR á nýja húsið þitt sparar þú bæði sement og járnbindingu því steyptir veggir mega vera þynnri.- aðnum. Þessum höftum er nú lokið og hefur OZ þegar hafist handa við að semja við síma- og tæknifyrirtæki i Bandaríkjunum og Evrópu." Meginhluti tekna fyrirtækisins hefur komið frá Ericsson en þær tekjur eru nú ekki lengur fyrir hendi. Þessi samningur viö Ericsson var dálitið tvíbentur. Það má lesa út úr fréttatilkynningunni frá OZ að hann hafi haft hamlandi áhrif á starfsemina, enda mátti fyrirtækið ekki vinna fyrir aðra en Ericsson á samningstímanum og ekki einu sinni selja aðrar vörur en þær sem framleiddar voru fyrir fyrirtækið. Hins vegar eru viðmælendur DV sammála um að ef ekki hefðu komið til þessir fjármunir frá Ericsson væri OZ ekki til sem starfandi fyrir- tæki í dag. Minna fé og stefnuleysi Það er erfitt að skýra hvemig stendur á því að afkoman hefur versnað svo mikið á svo stuttum tíma hjá fyrirtækinu en vissulega skýrist það að einhverju leyti af því að minni peningar eru í umferð og starfsskilyrði hafa almennt ekki ver- ið hagstæð fyrir hugbúnaðargeirann á síðustu misserum. En það kemur fleira til, og einn heimildarmanna DV talar um að stefnuleysi hafi ver- ið ríkjandi í fyrirtækinu. „Fyrst var farið út í þrívíddarfor- ritun en svo var því hætt. 1 staðinn einbeittu menn sér að alls kyns for- ritun fyrir Internetið og tengsl milli farsíma og Netsins. Menn einbeittu sér ekki fast að einhveiju ákveðnu markmiði og því komu engar niður- stöður úr þeirri vinnu sem unnin var. Þeir voru líka óábyrgir í upplýs- ingagjöf og vom dálítið að reyna að selja norðurljósin," segir heimildar- maður DV. Batnandi horfur Samkvæmt heimildum DV má bú- ast við því aö hagur OZ vænkist nokkuð á árinu. Fyrirtækið hefur þegar gefið út afkomuviðvörun þar sem reiknað er með að það skili hagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Uppgjörið verður væntanlega birt fyrir næstu mánaðamót. Það er þó Ijóst að OZ, sem hefur tvisvar sinnum náð inn á lista yfir 500 framsæknustu fyrirtæki Evrópu, hlýtur að eiga framtíðina fyrir sér ef það nær góðum samningum sem tryggja því aukið fjármagn og svig- rúm til að vinna að því sem það ger- ir best. Samkvæmt heimildum DV er tilkynningar að vænta frá OZ um nýjan samning, en sá samningur yrði væntanlega ekki jafn hamlandi fyrir fyrirtækið og samningurinn við Ericsson var. Innlendar fréttir vikunr Á móti ríkisábyrgð Þjóðhagsstofnun leggst í umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis gegn ríkisábyrgð vegna nýrr- ar lyfjaþróunardeildar ÍE. Segir í umsögninni að engin rök styðji rík- isábyrgð; þvert á móti sé líklegt að inngrip í markaðinn með þessu móti geti leitt til lakari lífskjara þegar fram líða stundir. Vilhjálmur Egilsson, formaður nefndarinnar, kveðst ekki búast við efnislegum breytingum á frumvarpinu þrátt fyrir þetta. Hagkaup lækkar Hagkaup kynnti um miðja vikuna lækkun á verði rúmlega 700 vöru- tegunda, þar af um að jafnaði átta prósenta verölækkun á um 300 mat- vörutegundum. Útspilið hratt strax af stað verðlækkunum á öðrum bæj- um og ASÍ segir þetta hafa verið af- skaplega jákvætt skref sem styrki gengi krónunnar. Þetta hljóti að hafa áhrif á lækkun gengisvísitöl- unnar, það er auka líkumar á að rauða strikið haldi. Upphaf að vaxtalækkunum „Mér sýnist allt benda til að það muni standa sem við sögðum þegar við lækkuðum vextina um daginn, að sú lækkun yrði upphafið að frekara vaxtalækkunarferli." Þetta sagði Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri í DV i vikunni um hvort sú slökun spennu sem menn teldu sig nú sjá í efnahagslífinu gæfi ekki tilefni til enn frekari vaxta- lækkana. Ólík sjónarmið Alls 37% lands- manna vilja ganga í Evrópusambandið samkvæmt könnun fyrir LÍÚ sem kynnt var í vikunni. Ámóta margir voru á móti. Þetta er verulega ólik niðurstaða þeirri sem fékkst út úr könnun Samtaka iðnað- arins fyrr i vetur, en þar var fólk spurt hvort það væri hlynnt hugs- anlegri aðild. Þá sögðu 52% já. „Menn geta kreist út neikvæðari svör með því að spyrja hvort menn vilji afdráttarlaust og skilyrðislaust ganga inn,“ segir Sveinn Hannesson hjá SI. Hvalur strandaði Ekki tókst að bjarga hnúfubakn- um sem strandaði á Óslandsskeri í Homafirði á sunnudagskvöld og drapst hann aðfaranótt mánudags. Ágúst Þorbjörnsson, sem fyrstur fann hvalinn, byrjaði þá um morg- uninn ásamt fleiri að skera hvalinn. Náðust af honum 2,5 tonn af kjöti sem víða var í matinn eystra. Ekki var leyfilegt að selja hvalkjötið í verslanir þar sem hvalurinn var ekki afloífaður. Sjávarútvegur vanmetinn Sjávarútvegur á íslandi er van- metin atvinnugrein. Ná þarf sátt um greinina sem hefur goldið fyrir þær illdeilur og afskiptaleysi sem um hana er. „Jafnframt eigum við ekki að sætta okkur við að ríkis- valdið mismuni atvinnugreinum með þeim hætti sem við erum að upplifa þessa dagana," sagði Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjóri Burðaráss og stjómarformaður ÚA, á hádegisverðarfundi Verslunar- ráðs íslands á Akureyri. Enginn velktist í vafa um að tilvitnuð orð Friðriks voru vegna ríkisábyrgðar þeirrar sem ÍE er nú að fá. -sbs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.