Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Qupperneq 9
9
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002
X>V_________________________________________________________________________________________________Neytendur
Gripið og greitt:
Með næstódýrustu
matarkörfuna
- fyrir þá sem eru með kort en auðvelt er að útvega sér þau
Mikil kjarabót í því að kaupa inn í ódýrari verslunum:
Hvað þýðir 27%
verðmunur?
Neytendasíöan hefur í gegnum tíð-
ina gert reglubundnar verðkannanir á
matvöru og i þeim hefur komið fram
gífurlegur verðmunur milli einstakra
verslana, eða allt að 45%. í verðkönnun
í þessari viku reyndist munurinn á
lægsta og hæsta verði matarkörfunnar
vera 27%. Þegar verðmunur er slíkur
vekur það furðu að einhverjir skuli
vilja greiða hæsta verðið, að fólk sem
berst harðri baráttu fyrir nokkrum
þúsundköllum aukalega í launaumslag-
ið nýti sér ekki það sem e.t.v. er mesta
kjaraþótin; lægra verð á vörum og
þjónustu.
En hversu mikið má spara með því
að versla þar sem ódýrast er? Sam-
kvæmt könnun sem ASÍ og Manneldis-
ráð gerðu í októþer sL kostar maturinn
fyrir mann á mánuði tæpar 15.500 kr.
sé miðað við meðalneyslu íslenskrar
fjölskyldu og meðalverð verslana. Ofan
á þessa upphæð bætast svo hreinlætis-
vörur og annað sem ef til vill er ekki
bráðnauðsynlegt en við leyfum okkur
að setja í körfuna þegar keypt er inn
fyrir heimilið.
Ef við gefúm okkur að 15.500 kr. séu
verðið fyrir mat og hreinlætisvörur á
mann á mánuði hjá þeirri verslun þar
sem ódýrast var að kaupa inn sam-
kvæmt verðkönnun DV í síðustu viku,
er heildarkostnaðurinn fyrir fimm
manna fjölskyldu 77.500 kr. á mánuði.
Séu vörumar hins vegar keyptar þar
sem þær eru dýrastar þarf sama fjöl-
skylda að greiða hvorki meira né
minna en 98.425 kr. fyrir mánaðar-
neysluna. Því má spara 20.925 kr. í
hverjum mánuði eða 251.100 kr. á ári.
Til að eiga slíka upphæð þurfa launin
að hækka töluvert meira þar sem stór
hluti þeirra fer í skatt og peningurinn
sem sparast dugar næstum fyrir góðu
sumarfríi erlendis fyrir alla fjölskyld-
una. -ÓSB
Þegar DV gerði verðkönnun i vik-
unni var til gamans farið í Gripið
og greitt í Skútuvoginum en það er
birgðaverslun i eigu
heildsala og framleið-
enda og er hugsuð fyrir
veitingastaði, mötuneyti,
skip og minni smásölu-
verslanir. Hins vegar
geta allir sem þess óska
keypt irm þar og því var
ákveðið að kanna verð
matarkörfu þar. Niður-
stöðumar voru hins veg-
ar ekki birtar með öðr-
um verslunum þar sem
Gripið og greitt er rekin
á öðram grunni en aðrar
verslanir, en þær eru for-
vitnilegar og koma því
hér.
Gripið og greitt er svo
sem ekki ný á markaði
en hún hefur verið opin
frá árinu 1989. Hannes
Jónsson innkaupastjóri
segir að þar sé til sölu
mikið úrval matvöru, í
stórum sem smáum ein-
ingiun, en einnig sérvara
fyrir eldhús, svo sem
kokkafót, pottar, hnífar,
dúkar, sérvéttur, matar-
stell og fleira. „Við erum með um
15.000 vöranúmer sem er margfalt
meira en finnst t.d. í lágvöruverðs-
verslunum. Auk þess eru um 7.000
vörunúmer í viðbót á skrá hjá okk-
ur sem við getum pantað og fengið í
verslunina samdægurs."
nefna tómatsósu en hún fæst frá
nokkrum framleiðendum og í nær öll-
um stærðum, t.d. er Hunt’s tómatsós-
an til í 4 stærðum. Viðskiptavinir geta aði, t.d. eru stóru pakkningarnar af
Verðkönnun 30.04.2002
Krónan Bónus Nettó Gripið og greitt Gripið og greitt Vildarkjörs- oc Matarklúbbsverí
Egils appelsín, 21 197 189 189 199 193
1 kgtómatar 265 219 299 275 267
1 kg klví 255 219 259 235 228
1 kg lceberg kál 359 . 259 367 289 280
1 kg græn paprika 349 279 359 311 302
1 kg gúrkur 88 79 89 95 92
1 kg ostur, Gotti 927 927 955 976 947
Létt og laggott 168 166 169 168 163
Matreiðslurjómi 169 168 176 180 175
Sveppaostur í ðskju 198 189 199 200 194
11AB mjólk 139 135 139 148 144
Skyr.is, stór dós, vanillu 193 212 193 205 199
Cocoa Puffs, 553 g 368 359 369 372 361
Maraþon color þvottaefni 527 499 519 632 613
Orville örbylgjupopp, 6 í pk. 279 269 279 279 271
Komi flatbröd 137 127 139 131 127
Kókómjólk, 6 í pk. 306 297 299 312 303
Samtals 4924 4592 4998 5007 4859
Reiknað meðaiverð
Þeir sem hafa hug á að kaupa inn
í Gripið og greitt geta gengið i ann-
an af tveimur innkaupaklúbbum,
Vildarkjör eða Matarklúbbinn. Það
er hægt að gera í verslun-
inni, tekur enga stund og
fær viðkomandi þá kort sem
veitir 3% afslátt af öllu sem
keypt er. í töflunni má sjá
verð matarkörfu í Gripið og
greitt, bæði almennt stað-
greiðsluverð, svo og með 3%
afslætti Vildarkjörs og Mat-
arklúbbsins. Sé kort frá öðr-
um hvorum þessara klúbba
notað er verð þessarar mat-
arkörfu lægra en í öllum öðr-
um verslunum nema Bónus
Gripið og greitt, Skútuvogi en á þessum tveimur versl-
Þeir sem hafa hug á að kaupa inn / Gripiö og unum munar 6%. Það er því
greitt geta gengiö í annan af tveimur innkaupa- jjóst að Gripið og greitt er
klúbbum, Vildarkjör eöa Matarklúbbinn. Þaö er ágætur valkostur fyrir neyt-
hægt aö gera í versluninni, tekur enga stund og endur, með lágt vöruverð og
fær viökomandi þá kort sem veitir 3% afslátt af mjög g0tt vöruúrval.
öllu sem keypt er. Sem (jæmj um úrvalið má
einnig keypt ýmsar vörur í stærri
pakkningum en gengur og gerist og í
mörgum tilfellum sparaö umtalsverð-
an pening. „Það er þó ekki algilt að
magninnkaupin skili miklum spam-
grjónum aðeins um 3% ódýrari en
þær minni, en svo er líka hægt að
kaupa 1,5 1 af salsasósu sem er mun
ódýrari per kíló en hinar minni,“ seg-
ir Hannes. -ÓSB
RÐALFUNDUR GUMMIVINNSLUNNflR HF.
Aðalfundur Gúmmívinnslunnar hf. fyrir rekstrarárið
2001 verður haldinn laugardaginn 11. maí 2002,
kl. 11.00, í Múlabergi á Hótei KEA, Akureyri.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfúndarstörf samkvæmt 16.
grein samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningar munu liggja frammi á
skrifstofú félagsins, hluthöfúm til sýnis, viku fyrir aðalfúnd.
Stjóm Gúmmívinnslunnar hf.