Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Blaðsíða 18
< 18
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002
Tilvera dv
lífið
Söngur í Reykjanesbæ
Landsmót kvennakóra verður
haldið í dag í Reykjanesbæ. Alls
munu 13 kórar taka þátt en
gamanið mun fara fram í
Keflavíkurkirkju í kvöld þar sem
heljarinnar tónleikar verða
haldnir. Alls taka um 400 konur
þátt í hátíðarhöldunum.
> ónleikar
■ DJ Óli Palli á Vídal.n
Útvarpsmaöurinn landskunni Ólafur
Páll Gunnarsson bregöur sér í gerfi DJ
Óla Palla og þeytir skífur á Vídalin í
kvöld. Þar mun hann leika bæöi nýja og
gamla slagara þannig að allir ættu að
geta fundið eitthvað viö sitt hæfi.
■ Hliómar á Kaffi Revkiavík
Keflvíska ofurbandið Hljómar verða
með dúndurskemmtun á Kaffi Reykja-
vík í kvöld. Hljómar vel, ekki satt?
■ Lúdó og Stofán á Catalinu
-» Á Café Catallnu t kvöld veröa hinir
mögnuðu Lúdó og Stefán og munu þeir
skemmta langt fram á nótt.
■ Mennakprn á Kringlukránni
Hin kunna og fornfræga hljómsveit
Mannakorn veröur á Krlnglukránni í
kvöld og munu standa fyrir heljarinnar
tónlistarskemmtun eins og þeim einum
er lagið.
• K 1 a s s í k
■ Vortónloikar Þrastar
Vortónleikar Karlakórsins Þrasta kl.
20.30 í Hafnarborg I Hafnarfirði. Dag-
skrá vortónleikanna er fjölbreytt, en
hún er nokkuö þjóðleg aö þessu sinni
þar sem karlakórinn ferí tónleikaferð til
Tékklands, Ungverjalands og Austurrík-
^ is í ágústmánuöi nk. og er dagskrá vor-
tónleika uppistaöa þess sem kórinn
mun flytja í Evrópu. Stjórnandi Karla-
kórsins Þrasta er Jón Kristinn Cortez.
•Leikhús
■ Stromoleikurinn
I kvöid kl. 20 sýnir Þjóðleikhúsið leikrit-
iö Strompleikurinn eftir Halldór Lax-
ness. Verkið fjallar um mæögur sem
reyna að koma undir sig fótunum á sér-
stæðan hátt I Reykjavíkurborg. Verkið
er sérlega fyndið og hefur hlotiö góða
gagnrýni I gegnum árin og I dag hefur
enginn breyting orðiö þar á. Miða er
hægt að nálgast hjá Þjóðleikhúsinu T
síma 551 1200.
■ Gesturinn
í kvöld sýnir Borgarleikhúslð verkiö
** Gesturlnn á litla sviðinu. Á þessari vit-
firrtu en alvarlegu nóttu reynir Freud að
átta sig á hinum furðulega gesti. Leik-
stjórni er Þór Tulinius en miöapantanir
fara fram í síma 568 800.
•Fyrirlestrar
■ Fiölmiðlar og hrvðiuverk
Málþing um fjölmiðla og hryðjuverk
veröur milli kl. 16 til 18 í sal 101 í
Odda, Háskóla íslands við Suöurgötu.
Það er íslenska UNESCO-nefndin sem
heldur málþingiö. Tilefniö eru atburöirn-
ir í Bandaríkjunum 11. september sl.;
en 3. mat er tileinkaöurfjölmiðlafrelsi á
alþjóöavísu á vegum UNESCO ár hvert.
'*■ Meðal frummælenda veröa: Styrmir
Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins,
Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarps-
ins, Kári Jónasson fréttastjóri Útvarps,
og Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri
DV. Umræöum stjórnar Elín Hirst, vara-
fréttastjóri Sjónvarpsins.
»
Glitter rekinn
frá Kambódíu
Gamla rokkstjaman Gary Glitter,
sem árið 1999 var fangelsaður eftir að
hafa orðið uppvís að því að geyma
barnaklám í tölvu sinni heima í
Englandi, á nú yfir höfði sér brott-
rekstur frá Kambódíu, eftir að ljós-
myndari breska slúðurblaðsins Sun
myndaði hann með barnungu stúlku-
barni á leið inn í íbúð sína i höfuð-
borginni Phnom Penh. Glitter, eða
Paui Francis Gadd eins og hann heit-
ir réttu nafni, hefur búið í Phnom
Penh síðasta háifa árið eftir að hafa
verið vísað frá Kúbu, en þangað flutti
hann eftir að hafa afþlánað sex mán-
uði af tólf mánaða dómi.
Að sögn talsmanns útlendingaeftir-
litsins í Phnom Penh, er aðeins beðið
ákvörðunar dómsmálaráðuneytisins
sem rannsakar málið í góðri sam-
vinnu við breska sendiráðið.
Spears spjöllud?
Þá virðist það loks-
ins komið á hreint að
söngpían Britney
Spears er ekki hrein
mey, eins og hún hef-
ur alltaf haldið fram,
eða svo segir alla
vega fyrrum kærasti
hennar, Justin Timberlake sem þykist
vita betur. Spears hefur alltaf lagt á
það áherslu að hún ætlaði að halda í
meydóminn þar til eftir giftingu, en
hún er baptista-trúar og hefur stöðugt
haldið því fram að hún hafi aldrei
haft mök við fyrrum kærasta sína. En
nú hefur Timberlake kjaftað frá og
segist manna best vita það að hún
missti meydóminn fyrir nokkru síð-
an, en þau hafa verið saman af og tO
allt frá tólf ára aldri.
Britney sagði sjálf nýlega í viðtali
að hún sæi eftir því að hafa sagt opin-
berlega frá þessum ásetningi sínum en
lét jafnvel í það skína að hún hafi ein-
hvern tima prófað skemmtilegheitin.
Undirbúningur fyrir landsmót skáta:
Elduðu tyggjó-grjónagraut
Undirbúa sig fyrir Landsmót
Þaö voru hressir krakkar sem voru aö æfa sig í eldamennsku.
Skátaflokkar um allt land eru nú að
búa sig undir landsmót skáta sem
verður haldið að Hömrum við Akur-
eyri dagana 16.-23. júlí. Flokkamir
taka meðal annars þátt í flokkakeppn-
inni Búkoliu, sem er blanda af sögu,
fróðleik og skemmtilegum verkefnum.
Skátaflokkamir Strumpar og Eldfugl-
ar í skátafélaginu Garðbúum í Reykja-
vík fóru í útilegu fyrir stuttu síðan til
að leysa sjötta verkefnið í leiknum; að
elda grjónagraut á opnum eldi.
„Eldamennskan tókst mjög vel,“
segja krakkarnir stoltir. „Það vár að
vísu þykk svört brunarúst neðst í
pottunum sem var ekkert sérlega
gaman að þrífa. Grauturinn bragðað-
ist samt mjög vel. Hann var svolítið
eins og tyggjó, maður gat snúið disk-
unum við án þess að grautinn rynni
af þeim.“
Skátarnir voru sammála um að þó
grauturinn hefði verið mjög finn með
kanilsykri væri hann „ekki eins góð-
ur og hjá mömmu“, enda hefðu að-
stæður verið aðrar en í eldhúsinu
heima. „Við elduðum á hlóðum, á
stjörnueldi. Þá er steinum raðað í
kross og spýtur settar á milli fyrir bál-
ið. Við vorum með hreinan eld, enga
olíu og eiginlega engan pappa. Þetta
var rosalega gaman og nú ætlum við
alltaf að elda grjónagraut á eldi í úti-
legum til að sýna kunnáttu okkar,"
Grauturinn góði
Grauturinn var að vísu ekki alveg eins og mamma gerir hann, en góöur samt.
segja krakkamir og hlæja.
Meðal annarra verkefna í flokka-
keppninni fyrir landsmótið var stutt-
myndagerð og veðurlýsing. „Önnur
stuttmyndin okkar var um þrjá menn
sem villtust í eyðimörk og þurftu að
nota hár úr hala Búkollu til að fá
pitsu og óskarstilnefhingu. Svo höfum
við skrifað bréf til vinaflokka, gert
vandaða veðurlýsingu og margt
fleira.“
Krakkamir segjast öll ætla á Lands-
mót. „Garðbúar munu auðvitað
standa sig best og vinna allar keppn-
imar. Annars ætlum við bara að
skemmta okkur vel, fara í sólarhrings
„hike“, klífa kletta, fara í bátsferðir,
og kynnast öðrum skátum. Það væri
til dæmis gaman að kynnast skosku
skátunum sem spila á sekkjapípur og
Japönum. Kannski hittum við súmó-
glímumann! Það væri æðislegt," segja
þessir hressu skátar að lokum.
Bio^a/'nryní
Lítil saga í stórum búningi
Sambíóin - The Affair of the Neckiace:
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
The Affair of the Necklace eða
„Hálsmensvesenið" gerist í Frakk-
landi á 18. öld rétt fyrir byltingu. Hil-
ary Swank leikur Jeanne St Remy de
Valois, unga konu sem vill gera hvað
sem er til að vinna aftur ættaróðal sitt
og virðingu fyrir fjölskyldunafninu
Valois en hvort tveggja missti hún
þegar faðir hennar lenti í útistöðum
við konunginn þegar hún var barn.
Með því að giftast aðalsmanni
kemst hún að við hirðina, en þegar
óteljandi tilraunir hennar til að ná
sambandi við Maríu Antoinettu
drottningu (Richardson) bera ekki ár-
angur ákveður hún að ná sínu fram
með öðrum leiðum. Með hjálp friðils
síns (Baker) og eiginmanns (Brody)
ákveður hún að leika á drottninguna,
Rohan kardinála og konunglegu gull-
smiðina og koma höndum yfir mikið
hálsmen sem er skreytt ótrúlega mörg-
um demöntum - því það á að fjár-
magna kaup á ættaróðalinu. En það er
ekki auðvelt að plata kardinálann og
helsti ráðgjafi drottningar, Breteuil
barón (Cox), er fullur grunsemda.
Búningamir í myndinni nálgast
það að vera guðdómlegir, sérstaklega
efnismiklar skikkjumar sem aðalper-
sónurnar klæðast gjaman þegar þær
vinna sin myrkraverk. Leikmyndin er
líka einkar glæsileg enda erum við
mikið til í sölum og görðum Versala.
Þetta tvennt stendur tvímælalaust
upp úr í The Affair of the Necklace.
Að vísu em margir leikarar í auka-
hlutverkum sannfærandi. Jonathan
Pryce á ekki í vandræðum með að
sýna okkur gráðugan og lostafullan
kardinála, eins er Brian Cox valds-
mannslegur sem ráðgjafinn, Joely
Richardson er skemmtilega hrokafull
og heimskuleg drottning og
Christopher Walken frábær að vanda
í hlutverki spámanns sem Valois fær
í lið með sér til að plata kardinálann.
Hilary Swank sem fékk óskarsverð-
launin 1999 fyrir aðalhlutverkið í
Boys don’t cry er hér á afar hálum ís.
Hún nær engan veginn utan um per-
sónu Valois, þótt hún sé ávallt óvið-
jafnanlega klædd, og helstu meðleik-
arar hennar, Simon Baker í hlutverki
kærastans og Adrien Brody sem eigin-
maðurinn eru frekar litlausir og
vandræðalegir með henni. Þótt ég sé
viss um að sterkari leikkona hefði get-
að lyft myndinni töluvert þá liggur
sökin fyrst og fremst hjá leikstjóran-
um Charles Shyer sem veit ekki alveg
hvaða sögu hann er að segja. Hann
vill að við sjáum aðgerðir Valois sem
hetjudáðir.
Við eigum að hrífast af svikum
hennar lygum og prettum sem hún
iðkar einungis í eigin þágu - en það
gengur ekki, okkur er sama um afdrif
hennar. Ef hún hefði verið hreint og
beint vond og gráðug þá hefði hún ef
til vill verið áhugaverðari. Shyer hef-
ur áður getið sér gott orð sem gaman-
myndaleikari, t.d. hefur hann leik-
stýrt Steve Martin í Father of the
Bride 1 & 2 svo að sennilega hefði
hann bara átt að snúa græðgisplotti
Valois upp í grin, þá hefði maður ef til
vill farið kátari heim.
Lelkstjórl: Charles Shyer. Handrit: John
Sweet. Kvlkmyndataka: Ashley Rowe.
Tónllst: David Newman. Aöalleikarar: Hil-
ary Swank, Simon Baker, Adrien Brody,
Joely Richardson, Jonathan Pryce, Brian
Cox og Christopher Walken.