Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Síða 21
21
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002_________________________________________________________________________
X>‘V _______________Tilvera
James Brown
69 ára
Soulkóngurinn James
Brown á afmæli í dag. Brown,
sem sagður hefur verið guð-
faðir allra soulsöngvara, hef-
ur ávallt átt miklum vinsældum að fagna
enda mikil óhemja á sviðinu. Hann hefur þó
verið jafn mikið í sviðsljósinu út af skraut-
legu einkalífi þar sem meðal annars eigin-
kona hans, nú nýlátin, hefúr kært hann 8ór-
um sinnum fyrir ofbeldi og frægt er þegar
hann var handtekinn eftir eltingaleik við
lögregluna í Georgíu árið 1988. Var hann í
fangelsi í rúm tvö ár í kjölfarið. Tvö ár eru
síðan hann var lagður inn á spítala vegna
ofnotkunar á lyfium. Hann rís þó ailtaf upp
og heiilar aðdáendur sína sem fyrr.
Gildir fyrir iaugardaginn 4. maí
Vatnsberinn (?0. ian.-1.8. febr.l:
Gerðu ekkert nema að
vel athugðu máU. Það
er ýmislegt sem þú
þarft að varast og því
nauðsynlegt að fara varlega.
Happatölur þinar eru 8, 17 og 24.
Fiskamir (19. febr.-20. marsl:
ÖU viðskipti ættu að
íganga einstaklega vel
og þú nýtur þess að
__________vasast í þeim. Liklegt
er að þú flytjir búferlum
á næstunni.
Hrúturinn (21. mars-19. aoríl):
. Vertu ekki of trúgjam,
'það gæti komið þér í
koU. Það er ekki öUum
_ að treysta þó að þeir
láti sem svo sé. Gamall vinur
skýtur upp kolliniun.
Nautið (20. apríi-20. mafli
Þú ert búinn að koma
þér í einhver vandræði
og enginn nema þú
sjálfur getur losað þig
út úr þeim.
Happatölur þínar eru 5, 27 og 31.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúni):
V Það ríkir glaumur og
yy^gleði 1 kringum þig og
—,X I fleira er í boði en þú
getur með góðu móti
sinnt. Ferðalag er á döfinni.
Happatölur þínar eru 2, 21 og 37.
Krabbinn (22. iúní-22. iúií):
Vinir þínir eru eitt-
| hvað að braUa sem þú
mátt ekki vita af. Það
skýrist í kvöld hvað
um er að vera.
Happatölur þínar eru 14, 17 og 26.
UÓnlð (23. iúlí- 22. ágúst);
, Einhver biður þig um
greiða og þér er Ijúft
að verða við þeirri
bón. Hugsaðu þó um
það sem þú þarft sjálfur að gera.
Happatölur þínar eru 4, 16 og 23.
Mevian (23. áeúst-22. sept.l:
a. Ástin er í aðalhlut-
-vyft verki hjá þér og fer
^^V^i*-niikill timi í að sinna
^ ' henni. Bjartir timar
eru fram undan hjá þér. Þú færð
óvæntar fréttir í kvöld.
Vpgin (23. sept.-23. okt.i:
J Morgunninn verður
P'y drýgsti timi dagsins tU
V f að sinna nauðsynieg-
inn verkefnum. Síðdeg-
is verður þér Utið úr verki vegna
truflana sem þú verður fyrir.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.l:
■Þú þarft að sinna
mörgu í einu og átt í
erfiðleikum með að
__koma öUu sem þér
finnst þú þurfa að gera á dag-
skrána hjá þér.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l:
.Gerðu ekkert sem þú
'ert ekki viss um að sé
tídK'• fj rétt. Einhver er að
V reyna að fá þig til að
taka þátt í einhverju vafasömu.
Happatöliu- þinar eru 1, 9 og 28.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
^ _ Þér gengur best að
vinna einn þar sem
* Jr\ aðrir virðast aðeins
trufla þig. Þú nýtur
aukinnar virðingar í vinnunni.
Happatölur þínar eru 12, 25 og 37.
Bíógagnrýni
Sambíóin/Háskóiabíó/Laugarásbíó - The Scorpion King +
The Scorpion King er dæmigert
ævintýri þar sem hið góða hefur sig-
ur á hinu iUa. Mörg atriði eru tU-
komumikU og leikstjórinn Chuck
RusseH (sem meðal annars leik-
stýrði Amold Schhwarzenegger í
HÁLFT í HVORU
Lokað laugard. 4. maí milli kl. 18.00-23.00
St j örnubrúðkaup
ársins hjá Schiffer?
Stór maður
með mikla vöðva
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Bix Skahill.
Bandaríkin 2001. Lengd: 97 mín. Leikar-
ar: Sarah Jessica Parker, Harry Connick,
jr. Johnny Knoxville og Teri Garr. Bönnuö
börnum innan 12 ára.
Þýska súpermódeUð Claudia Schiffer
mun ganga i það heUaga í lok næsta
mánaðar með sínum heittelskaða,
mUIjónamæringnum og kvikmynda-
framleiðandanum Matthew Vaughn.
Brúðkaupsins er beðið með mikilli eft-
irvæntingu en að margra mati verður
það stjömubrúðkaup ársins. AHa vega
verður það stjömum prýtt þar sem þau
Sir Elton John, Brad Pitt og Madonna
fara fremst í Qokki stórstjamanna en
auk þeirra mun um 300 vinum og ætt-
ingjum brúðhjónanna hafa verið boöið
tU brúðkaupsins.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvar
brúðkaupið fer iram en það mun vera
vUji þeirra beggja að það verði ósköp
hefðbundið enskt brúðkaup. Hafa stað-
ir eins og Blendheim-höUin í Englandi,
fæðingarstaöur Sir Winstons Church-
iUs og Skibo-kastali í skosku hálöndun-
um verið nefndir tU sögunnar, en á sið-
arnefnda staðnum var Matthew svara-
Claudia Schiffer
Brúökaups Claudiu Scheiffers og
Matthews Vaughns er beöiö meö mik-
illi eftirvæntingu en aö margra mati
veröur þaö stjörnubrúökaup ársins
maður vinar sins, Guy Ritchies, þegar
hann gekk í það heUaga með Madonnu
árið 2000. Einnig kemur tU greina að
halda brúðkaupið í eigin kastala
Claudiu sem hún nýlega festi kaup á í
nágrenni Lundúna fyrir litiar 4,5 mUij-
ónir punda.
Ekki er heldur vitað hverjir verða
svaramenn brúðhjónanna en nokkuð
öruggt að upphaflega meintur faðir
brúögumans, leikarinn þekkti, Robert
Vaughn, verður ekki annar þeirra. Þeg-
ar Matthew fæddist árið 1971 var Ro-
bert sambýlismaður móður hans,
leikkonimnar, Kathy Ceaton, og af öU-
um talinn faðirinn.
Seinna neitaði Robert að gangast við
faðeminu og endaði málið fyrir dóm-
stóli í Los Angeles sem úrskurðaði að
hann væri ekki faðirinn. Síðan hefur
hann engin samskipti haft við Matt-
Sumariö í fyrra var einstaklega
dapurt hvað varðar stóru „sum-
arsmetiina". Hver myndin af
annarri, með Pearl Harbor í broddi
fylkingar, stóðu varla undir öðru en
að vera „tækntiega vel geröar". Nú
hefur fyrsti stóri „sumarsmeUur-
inn“ í ár, The Scorpion King, litið
dagsins ljós og viti menn, hún er
„tæknUega vel gerð“. Að öðru leyti
má segja að hún hafi verið nákvæm-
lega það sem ég bjóst við, mikið um
stórfenglegar bardagasenur og lítið
um gáfulegan texta. Hér er sem sagt
komið framhald á sumrinu í fyrra
og nú er bara að sjá hvort Spider
Man og Star Wars: Attack of The
Clones komi í veg fyrir að um end-
urtekningu verði að ræða frá í
fyrra.
Bandaríkjamenn kcdla það „spin-
off ‘ þegar tekin er persóna sem kom
ekki mikið við sögu í einni kvik-
mynd og gerö önnur kvikmynd um.
Slík kvikmynd er The Scorpion
King. Hann kom fram í The
Mummy Retums í fyrra og nú er
búið að gera kvikmynd sem ber
hans nafn og hún er af sömu stærð-
argráðu og Mummy-myndimar en
það vantar sjarma og húmor sem
þar var tU staðar. Sá sem leikur
Sporðdrekakónginn heitir Dwayne
Johnson og kaUar sig The Rock,
mikiU glímukappi vestanhafs, og er
ég ekki frá því að hann minni mig á
ungan Amold Schwarzenegger þeg-
ar hann sló í gegn sem Conan, sami
vöxtur, sögupersónan lík og sömu
leikhæfileikamir.
The Scorpion King gerist fyrir
nokkrum þúsundum ára þegar hinn
almenni borgari kunni mun meira
fyrir sér í göldrum en nútímamað-
urinn, eða svo emm við látin halda,
tU að tæknimennimir geti sýnt
hvað í þeim býr. Heimurinn er
stríðsvettvangur þar sem þjóðUokk-
ar berjast tU síðasta blóðdropa. Sá
foringi sem hefur seiðkonu sér við
hlið sem sér fram í tímann er sá
striðsherra sem enginn ræður við.
Honum tU höfuðs er sendur Mat-
hayus og er það talið skynsamlegast
að hann drepi fyrst seiðkonuna.
Ekki tekst honum ætlunarverk sitt
enda svik í taUi auk þess sem seið-
konan reynist betri en enginn þegar
þjarmað er að Mathayus, sem síðar
á eftir að ganga undir nafninu
Sporðdrekakóngurinn.
Sporödrekakóngurinn
Dwayne „The Rock“ Johnson í hlutverki stríösmannsins Mathayus.
Eraser) leikstýrir myndinni af ör-
yggi og ekki við hann að fást að
gáfuleg getur hún aldrei talist. Sem
ævintýramynd vantar hana sálina,
nokkuð sem grípur hugann umfram
stórfengleg bardagaatriði. Klettur-
inn á örugglega bjarta framtíð fyrir
sér i HoUywood. Hann hefur sterka
útgeislun og kemst vel frá þessu
hlutverki. Ég ætla bara að vona að
hann fari ekki að taka sig of alvar-
lega og fara að leika í gamanmynd
eins og Schwarzenegger og StaUone
hafa reynt með slæmum aUeiðing-
um. Hilmar Karlsson
Leikstjóri: Chuck Russell. Handrit:
Stephen Sommers, William Osborne og
David Hayter. Kvikmyndataka: John R.
Leonetti. Tónllst: John Debney. Aöalleik-
arar: Dwayne Johnson, Michael Clarke
Duncan, Steven Brand og Kelly Hu.
Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Ross Pat-
ridge. Bandaríkin 2000. Lengd: 95 mín.
Leikarar: Kevin Dillon, John Littlefield og
Harley Gross. Bönnuð börnum innan 12 ára.
Life Without Dick *
Misheppnadur
húmor
Sarah Jessica Park-
er, sem hefur slegiö 1
gegn í sjónvarpsseri-
unni Sex and the City,
hafði tekið sér fri ffá
kvikmyndum þar tU
hún ákvað að leika að-
alhlutverkið i Life
Without Dick sem á
víst að vera svört kómedía. Eitthvað hlýt-
ur handritið að hafa haft upp á að bjóða
fyrst Parker tók að sér hlutverkiö sem og
söngvarinn og leikarinn Harry Connick
jr., og sjónvarpsstjaman Johnny Kox-
vUle, þvi útkoman er aUt annað en svört
kómedía eins og auglýst er og myndin
sönnun þess aö ekkert er vandræðalegra
en misheppnaður húmor.
Með nafni myndarinnar er vísað tU
þess að Dick er fjarri góðu gamni þegar
sagan gerist í nútímanum, en hún er á
tímaflakki meira en góðu hófi gegnir.
Þau tvö sem síðan lifa án Dicks eru ung
kona og írskur atvinnumorðingi (sem
að vísu hefur aldrei drepið neinn). 1
myndinni er síðan fengin útskýring á
því af hverju það er líf án Dicks.
Life Without Dick var uppi í htilu hjá
Columbia og sat þar í nokkra mánuði
þar tU ákveðið var að setja hana beint á
myndbandamarkaðinn. Þau örlög henn-
ar eru vel sktijanleg. -HK
Irrterstate 84 ★ *
Líkið í ánni
Interstate 84 er saka-
málamynd með
dramatískum undirtón.
Lík ungs manns finnst
í Hudson-ánni. Tveir
lögreglumenn taka að
sér rannsókn málsins
og kanna hvor sinn
angann á því. Fijótiega
kemur í Ijós að lfkið er
af manni sem aUoft sást standa á brú
einni og var eins og hann væri að bíða
eftir einhveijum. Á líkinu flnnst síma-
númer sem lögreglan kannar nánar.
Smátt og smátt skýrist myndin af mann-
inum. Ljóst er aö enginn hafði ástæðu tíl
að drepa hann og ekki viröist hann hafa
haft neina ástæðu tti að ffemja sjálfs-
morð. Inn í rannsóknina fléttast síðan
persónuleg vandamál lögreglumannanna
og þeirra sem grunaðir eru. Interstate 84
er betri eftir því sem sagan fer að taka á
sig mynd og persónumar verða áhuga-
verðari. Það vantar þó nokkuö upp á að
úr verði þétt sakamálamynd og kemur
þar tU meðal annars frekar slakur leikur
ásamt götóttu handriti.