Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Qupperneq 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002
DV
Mikill viðbúnaður fíkniefnalögreglu á Austurlandi eftir hleranir íslendinga á Spáni:
Skúta átti að koma með
hundruð kílóa af hassi
- lagði af stað frá Ibiza en komst ekki alla leið - íslendingar héldu áfram að reyna
íslenska fikniefnalögreglan átti
von á að skúta kæmi til eyðifjarðar
á Austurlandi með hundruð kilóa af
hassi, jafnvel tonn, í ágúst 1998. Lög-
reglan hafði vissu fyrir því að skút-
an lagði af stað frá Ibiza - fyrir til-
stilli íslenskra manna. Lögreglu-
menn komu sér því fyrir við strand-
lengjuna, meðal annars í Loðmund-
arfirði, og dvöldu þar svo dögum
skipti, á meðan komu skútunnar
var beðið. Reiknað var með að hún
kæmi að næturlagi, samkvæmt sim-
hlerunum. Þetta kom fram við rétt-
arhald í Héraðsdómi Reykjavíkur 1
gær.
Óttar Sveinsson
blaöamaöur
Um þetta leyti fylgdust fíkniefna-
lögreglumenn frá Reykjavík með
ferðum íslendings á Ibiza en einnig
á meginlandi Spánar. Lögreglan
hleraði síma hans í á annað ár.
Maðurinn átti í viðræðum við tvo
aðra íslendinga um mál sem fikni-
efnalögreglan taldi greinilega tengj-
ast hassinnflutningi til íslands, ekki
síst á umræddri skútu.
íslendingur átti aö fara með
Fíkniefnalögreglumaður sem
kom fyrir dóm í gær í svokölluðu
hurðamáli í Barcelona, þar sem
sömu íslendingar eru ákærðir,
sagði að skútan hefði farið af stað
frá Ibiza. Raunar liggja upplýsingar
fyrir um að fjórði íslendingurinn
fór til Ibiza og átti að vera í áhöfn
hennar til íslands. Af því varö þó
ekki því spænskir aðilar treystu
honum ekki til ferðarinnar. En
skútan lagði af stað frá Ibiza, sagði
fíkniefnalögreglumaðurinn, en síð-
an var henni snúið við. Hvers vegna
hafði lögreglumaðurinn ekki vissu
fyrir. Á skútunni var hins vegar er-
lend áhöfn að því er talið er - menn
á vegum eigenda efnanna. Eigend-
urnir voru grunaðir um að hafa ætl-
að að markaðssetja hassið hér á
landi.
Lögreglan og ríkissaksóknari
hafa undir höndum upptökur af
símtölum þar sem fram kemur að
skipstjóri skútunnar var talinn hafa
veikst er hún var á móts við norð-
anverðar Bretlandseyjar. Því hefði
rvrMt
01
^SALUR
DVJHYND HARl
Skútumáliö varð að hurðamáli
/ á annaö ár hleraöi fíkniefnalögreglan síma manna sem eru ákæröir fyrir
ýmsa aöild aö því aö reyna aö smygla hurö fullri af hassi til íslands. Áöur en
þaö geröist haföi veriö rætt um aö flytja hundruö kílóa, ef ekki tonn, til ís-
lands meö skútu.
Frá Ibiza
Lögreglan fylgdist meö meintum
fíkniefnasmyglurum á eyjunni.
þurft að sigla henni í land þar sem
maðurinn komst undir læknishend-
ur. Ekki er talið að skútunni hafi
verið siglt lengra norður á bóginn
að sinni en ekki liggur fyrir hvað
varð um hassið.
Héldu áfram að hlera
„Við héldum svo áfram að fylgjast
með,“ sagði lögreglumaðurinn.
Hleranir stóðu yfir svo mánuðum
skipti, einkum á síma mannsins
sem hafði verið fylgst með á Ibiza og
annars staðar á Spáni. í febrúar
1999 var haldinn „fundur" í Hegn-
ingarhúsinu. Lögreglan fylgdist þá
með þegar maðurinn fór að hitta
vin sinn sem þá var í afplánun en er
nú ákærður með hinum í hurðamál-
inu. Eftir að manninum var sleppt
út barst leikurinn m.a. til Frakk-
lands. Þar áttu íslendingamir tveir
í miklum samskiptum sem íslenska
lögreglan fylgdist með. Hún taldi
alltaf víst að mennimir myndu
halda áfram að reyna að smygla
miklu magni af hassi til íslands.
Hundruð kílóa eða tonn
„Það var talað um hundruð kílóa,
ef ekki tonn.“ „Þetta voru einhver
mannalæti - eitthvert bull,“ sagði
einn sakbominganna í gær. „Það
var alltaf talað um að efnin kæmu
með skútu," sagði fikniefnalögreglu-
maðurinn og vísaði í símhleranirn-
ar. Lögregumaðurinn rakti síðan
þegar hurðamálið svokallaða varð
til. Haustið 1999 stöðvaði flutnings-
miðlun í Barcelona hurðasendingu
sem stíluð var til íslands um megin-
land Evrópu. Ágalli var á tollpappír-
um. Spænsk yfirvöld höfðu sam-
band við fyrirtækið sem reikningur-
inn virtist kominn frá. Þar kannað-
ist enginn við hurðir sem áttu að
fara til íslands. Þegar spænska lög-
reglan skoðaði hurðimar kom ekk-
ert í Ijós. íslenska lögreglan hafði þá
samband við aðila í Evrópu sem sáu
til þess að hurðimar yrðu betur
skoðaðar - líklegast væri hass í
þeim. Þaö kom svo á daginn, í einni
hurðinni voru 32 kíló af hassi.
A.m.k. tveir erlendir menn em tald-
ir tengjast málinu ytra. Þeir voru
handteknir en hefur verið sleppt.
Þrir íslendingar vora svo hand-
teknir hér heima, mennimir tveir
sem höfðu fundað í Hegningarhús-
inu og þriðji maðurinn sem hafði
fengið kunningja sinn til að lána
nafn fyrirtækis sins fyrir hurðainn-
flutninginn sem aldrei varð af.
Clinton lítill í samanburði...
Maður sem nefndur hefur verið
höfuðpaur í huröamálinu, sá sem
lögreglan telur að hafi komið
meintu skútumáli á, jTnist neitar
sök í hurðamálinu eða kveðst ekki
muna eftir ýmsum símtölum sem
leikin vora fyrir dóminum. Hinir
tveir neita einnig sök. í málinu, sem
nú hefur verið frestað, verður m.a.
tekist á um það atriði hvenær brot
telst fullframið, ekki síst þegar haft
er í huga að efnin komust aldrei frá
Spáni og hefðu að óbreyttu ekki gert
það vegna ágalla pappíra.
Málið kostaði lögregluna í
Reykjavík margar milljónir króna á
meðan rannsóknin stóð, i rúmt heilt
ár.
Þegar Guðrún Sesselja Amardótt-
ir, fulltrúi ríkissaksóknara, spilaði
símtal í dóminuro í gær sagöi
meintur höfuðpaur við félaga sinn
að hann væri kominn í samband við
stórmenni þar sem hann var stadd-
ur ytra. Hann sagöi að Clinton væri
smákarl miðað við þann mann.
Allt vaðandi í hundaskít á útivistarsvæðum í Reykjavík:
Kvörtunum vegna hundahalds fjölgar
- meira en ein kvörtun á hvern hund að meðaltali á ári
1.125 kvartanir bár-
ust til Heilbrigðiseftir-
lits Reykjavíkur vegna
hundahalds í höfuö-
borginni árið 2000 og er
útlit fyrir að kvartanir
í fyrra hafi verið ná-
lægt 1.500. Útgefin
hundaleyfi i höfuðborg-
inni eru nálægt 1.300 og
því berst meira en ein
kvörtun á hvern hund
að meðaltali á ári.
Drjúgur hluti kvartana
er vegna óþrifa s.s.
hundaskíts á víðavangi
og segir Hrannar B.
Arnarsson, formaður
umhverfis- og heil-
brigðisnefndar Reykja-
víkurborgar, aö hugar-
farsbreytingu þurfi til
hjá hluta hundaeig-
enda.
„Við fáum talsvert af
kvörtunum bæði vegna
sóðaskapar og hunda-
halds að öðru leyti. Sleðamir í
hundaeigendastéttinni hafa mikil
hópur sem gerir það
að verkum að ekki er
meiri sátt um hunda-
hald,“ segir Hrann-
ar.
Geirsnefið og hluti
Öskjuhliðarinnar
eru sérstök hunda-
svæði og kannast
Hrannar við að mik-
ið álag sé á þeim
stöðum. í nýjasta
blaði Hundaræktar-
félags íslands, Sámi,
kemur fram að svo
mikill himdaskftur
sé í Öskjuhlíðinni að
ef hundur skíti þar
viti enginn hvaða
hrúgu hann eigi.
Þórdís Sigurðardótt-
ir hundaeigandi lýsir
hvemig hundaeig-
endur hafi ekki einu
sinni getað þrifið upp
eftir hundana sína
þegar farið var í
skipulagða göngu niður Laugaveg-
inn sl. haust. „Við áorkuðum engu í
Sóöaskapur í Oskjuhlíöinni
Hluti hundaeigenda kemur óoröi á stéttina alla aö sögn formanns
umhverfisnefndar Reykjavíkurborgar.
áhrif á orðspor hundaeigenda og ég
er ekki í vafa um að það er þessi
þeirri göngu nema að sýna fram á
að hundaeigendur era sóðar og þess
vegna er hundahald eðlilega bannaö
í Reykjavík," segir Þórdís í blaðinu.
Þarf hugarfarsbreytingu
„Við höfum reynt að grípa til
þeirra úrræða sem við höfum í sam-
vinnu og sátt viö fulltrúa hundaeig-
enda en til að veruleg breyting
verði hjá almenningi þarf hugar-
farsbreytingu til. Ég leyfi mér að
vona að hún muni eiga sér stað,“
segir formaður umhverfisnefndar.
149 sinnum var kvartað til lög-
reglu árið 2000 sem er svipaður
málafjöldi og árið 1999. Þá bárust
1.127 kvartanir til heilbrigðiseftir-
litsins og 160 til lögreglu. Flestar
kvartanir eru vegna lausagöngu
hunda og voru á annað hundrað
hunda færðir í geymslur. 276 kvart-
anir bárust vegna óskráðra hunda,
267 vegna ónæðis, 108 vegna óþrifa
og 43 vegna áreitni. 21 kvörtun
barst á árinu 2000 vegna illrar með-
ferðar en 11 kvartanir vegna hunds-
bita. Fjögur hundsbit voru kærð til
lögreglu. -BÞ
Komur skemmtiferðaskipa:
Hryðjuverkin
hafa áhrif
Vegna hryðjuverkaárásanna á
Bandaríkin 11. september sl. hafa
þónokkur skemmtiferðaskip afbók-
að komur sínar til íslands þetta
sumar. Að sögn Péturs Ólafssonar
hjá Akureyrarhöfn hefur verið
erfitt að fá Bandaríkjamenn til að
ferðast eftir þennan atburð. Skipa-
komum til Akureyrar fjölgar frá ár-
inu 2001 um sex en hefði fjölgað um
12 ella. Alls eru 36 skip væntanleg í
sumar.
Reikna má með að farþegar verði
um 20.000 með skemmtiferðaskipum
í sumar en í fyrra komu 17.542 far-
þegar með 28 skipum. Þjóðverjar
eru fjölmennastir en næst koma
Bretar.
Von er á fyrsta skemmtiferða-
skipinu 25. maí nk. og verða ýmsar
uppákomur vegna komu skipanna í
sumar. -BÞ
Lögleiðing ESB-reglna:
ísland í 4. sæti
í nýrri skýrslu frá Eftirlitsstofn-
un EFTA kemur fram að ísland er í
4. sæti EES-ríkjanna 18 við að lög-
leiða reglur sem koma frá ESB í
samræmi við ákvæði EES-samn-
ingsins. ESA, Eftirlitsstofnun
EFTA, gaf i gær út 10. samanburðar-
skýrsluna um lögleiðingu gerða frá
ESB sem gilda eiga á EES-svæðinu.
Þar kemur fram að EES-ríkin
standa sig að mörgu leyti betur en
ESB-ríkin sjálf. Þegar ríkin 18 era
skoðuð kemur í ljós að Noregur
stendur sig best við að lögleiða regl-
ur en síðan koma Sviþjóð, Danmörk
og tsland.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum iðnaðarins þurfa íslendingar
aðallega að bæta sig á sviði vinnu-
markaðsmála. Hins vegar standa
þeir sig best allra EES-ríkjanna 18
við að greiða úr ágreiningsmálum
um lögleiðingu þegar á upphafsstigi
og án þess að mikinn málatilbúnað
þurfi til af hálfu ESA. -BÞ
Kópavogur:
Herferð gegn
tóbakssölu
Samstarfshópur um forvarnir í
Kópavogi er að fara af stað með her-
ferð gegn því að bömum undir 18
ára aldri sé selt tóbak. Herferðin
hófst formlega í Snælandsvídeói við
Furugrund í gær þegar bæjarstjóri
og fulltrúi lögreglunnar aíbentu
fyrstu eintökin af veggspjöldum,
hilluspjöldum og límmiðum sem
setja á upp í verslanir í Kópavogi. Á
þessum veggspjöldum verða skila-
boð þess efnis að viðkomandi versl-
un hafi hreina samvisku, fari að
lögum og selji ekki unglingum yngri
en 18 ára tóbak.
í framhaldinu munu lögregla og
forvarnarfuUtrúi bæjarins fara í
þær verslanir sem vilja vera með í
þessari herferð og afhenda þeim
þessi skilaboð. -HI
Síldarvinnslan:
Hlaut hvatningar-
verðlaun Þróun-
arfélagsins
Sildarvinnslan í Neskaupstað
hlaut hvatningarverðlaun Þróunar-
félags Austurlands í ár. Verðlaunin
voru veitt á aðalfundi Þróunarfé-
lagsins sem haldinn var á Hótel
Framtíð á Djúpavogi á miövikudag.
Voru verðlaunin veitt „fyrir for-
ystuhlutverk sitt í íslenskum sjáv-
arútvegi og stórhuga verkefni á
sviði fiskeldis", eins og segir í um-
sögn dómnefndar. Þar segir einnig:
„Sildarvinnslan hf. er um þessar
mundir eitt af stærstu og öflugustu
sjávarútvegsfyrirtækjum landsins
og ein af skrautfjöðrum atvinnulífs-
ins á Austurlandi og því vel að því
komin að hljóta hvatningarverð-
laun Þróunaifélags Austurlands
árið 2002.“ -GG