Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002
Tilvera I>V
Reyklaus 8. bekkur bauð foreldrum á námskeið í að hætta að reykja:
Myndbandagagn
waasm
mm
' Unnu ferð til Munchen
I samkeppninni Reyklaus bekk-
ur tóku þátt 15 Evrópuþjóðir að
þessu sinni en þetta er þriðja árið
sem keppnin er haldin. Um 340
bekkir tóku þátt hér á íslandi og
var það 8. bekkur í Grunnskóla
Grundarfjarðar sem hlaut 1.
vinning fyrir sitt verkefni. Verð-
launin eru fimm daga ferð til
Miinchen þar sem hópar frá öll-
um þátttökulöndunum hittast.
8. bekkur Grunnskóla Grundar-
fjarðar hefur tekið virkan þátt í
baráttunni gegn reyknum. Fyrsta
markmið með þeirra framlagi var
að þau byggi sig upp og standi
saman um að byrja ekki að
reykja né neyta tóbaks á annan
hátt. Einnig vildu þau láta gott af
sér leiða og hjálpa sínum nánustu
til að hætta reykingum og tóbaks-
notkun. f ár ákváðu þau í sam-
ráði við umsjónarkennara, tölvu-
kennara og lifsleiknikennara að
bjóða foreldrum sínum á nám-
skeið i þvi að hætta að reykja.
Safnað var saman haug cif
fræðsluefni og bæklingum sem
fékkst frá bókasafni, Krabba-
J* meinsfélaginu og einnig af Net-
inu.
Voru foreldrar síðan boðaðir á
tveggja kvölda námskeið þar sem
fram fór glærusýning um skað-
semi tóbaks. Foreldrar fengu af-
Fara til Múnchen
Þetta er áttundi bekkurinn sem reykir ekki - og fékk foreldra til aö láta af þessum hvimleiöa vana.
henta bæklinga frá Hjartavernd
og Krabbameinsfélaginu og
einnig hvatningarspjald sem
krakkarnir höfðu útbúið. Auk
þessa sömdu nemendur dreifibréf
sem þau nefndu „Ekki reykja
vegna þin og annarra“, sem þau
báru i öll hús í Grundarfirði.
-SHG
Umboðsmaður óskast
á Eskifiröi frá 1. júní '02
Upplýsingar í síma 550 5740
Frá Vopnafiröi
Vesturfarasetiö á Vopnafirði veröur í Kaupvangi, gamla kaupfélagshúsinu þar
í bæ.
Blaðberi óskast
í Höfnum (233)
Upplýsingar í síma 550 5740
Austurland:
Vesturfarasetur
á Vopnafirði
>b - skemmtisfaður
'f1' Skem mtistaðu r 'T'
Laugardagskvöld
STÓRDANSLEIKUR
Danshljómsveit
Geirmundar Vatýssonar
skemmtir með nýrri hljómsveit
/ I* 3
n
SAGAKLASS ^
Árshátíðir og samkvæmi. Tökum að okkur matarveislur og skemmtanahald
_____________ Upplýsingar í síma 867 4069 og 892 5431
Odd-Vitinn • pub-skemmtistaður • Strandgata 53 • Akureyri • Sími 462 6020 • GSM 867 4069
Smáauglýsingar
vantar þig félagsskap?
550 5000
Annan í hvítasunnu verður á
Vopnafirði opnuð vesturfaramið-
stöð, þó bygging sú sem hýsa skal
miðstöðina, Kaupvangur, sé enn
ófrágengin innandyra. Þennap dag
mun einnig verða afhjúpaður minn-
isvarði, en það er stuðlabergssteinn
sem Vesturfarasetrið á Hofsósi gef-
ur Vopnfirðingum. Með því er stað-
fest með formlegum hætti náið sam-
starf aðila og kemur það í hlut
Vopnfirðingsins Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra að afhjúpa
varðann.
Mikið verður um dýrðir á Vopna-
firði þennan dag og dagskráin verð-
ur i anda tilefnisins. Auk vestur-
faramiðstöðvar sem Kaupvangi er
ætlað að hýsa veröur þar setur Jóns
Múla og Jónasar Ámasona, verslun-
arminjasafn, handverkshús og kaffi-
stofa. Þá verður uppi á Vopnafirði
vesturfarasýning nemenda Mennta-
skólans á Egilsstöðum.
Er engin tilviljun að á Ausur-
landi leggi æskan rækt við tengsl ís-
lendinga vestur um haf, enda var
afar stór hluti þeirra íslendinga sem
fluttu vestur um haf og til Kanada
fyrir um hundrað árum einmitt af
þvi landshomi. -sbs
Det Okanda ★★
Hryllingur í skóginum
Blair Witch Project
vakti fyrst og fremst
athygli fyrir einfald-
leika og snjalla úr-
vinnslu. Hún sló í
gegn og aðstandend-
ur hennar urðu
margfaldir milljóna-
mæringar. I kjölfariö
fylgdi framhald og fleiri kvikmynd-
ir í sama stíl (þetta var jú ódýr að-
ferð við að gera kvikmynd) en nýja-
brumið var farið. Sænska kvik-
myndin Det Okanda fellur í þennan
flokk og einnig er hægt að segja að
hún sé gerð samkvæmt dogme-hug-
myndinni. Hún hefur þó aðeins
meiri burði en flestar engilsaxnesk-
ar kvikmyndir af sama toga en fell-
ur í þá gildru að ofnota hreyfan-
leika handheldinnar kvikmynda-
tökuvélar.
Myndin fjallar um funm ung-
menni sem fara til rannsóknar á
skógarsvæði sem brann fyrir
nokkrum árum. Á fyrsta degi rann-
sóknarinnar rekast þau á eitthvað
sem líkist veru úr dýraríkinu, virð-
ist löngu dautt en hefur fullan lík-
amshita. Þau taka fyrirbærið með
sér í tjaldbúðimar og í geymslu,
fara á ærlegt fyllirí í spjallaðri nátt-
úrunni og sofna síðan. Daginn eftir
verður ekkert eins og það var og
eitthvað óþekkt hefur tekið völdin.
Det Okanda hefur góða uppbygg-
ingu og leikarar eru sér meðvitandi
um nálægð kvikmyndavélarinnar
og ferst vel úr hendi að túlka jafnt
með líkamanum sem orðum. Stans-
laus hræðsla þeirra verður samt í
einfaldleika sínum nokkuð þreyt-
andi til lengdar og sjálfsagt finnst
einhverjum endirinn óvæntur en
hann er sá sem undirritaður bjóst
við. -HK
Útgefandi: Góðar stundir. Leikstjóri:
Michael Hjorth. Svlþjóð 2001. Lengd: 95
mín. Leikarar: Jacob Erickson, Ann-Sofie
Rose og Ingar Sigvarsdotter. Bönnuð
börnum innan 16 ára.
CAVtMANS
VAtfcNTiNEj
The Caveman’s
Valentine ★★
Tónelskur hellisbúi
Kasi Lemmons er
leikkona sem fyrir
fáum árum sneri við
blaðinu og gerðist
leikstjóri. Hennar
fyrsta kvikmynd,
Eve’s Bayou, vakti
verðskuldaða athygli. ____________
Hún hefur ekki fylgt
frumrauninni nógu vel eftir og í
The Caveman’s Valentine hefur hún
færst of mikið í fang. Það er ekki
nóg með að í myndinni sé hún að
fást við áhugavert sakamál sem eitt
sér gæti staðið undir að vera efni í
heila kvikmynd heldur er aðalper-
sónan einnig á mörkum geðveiki,
fyrrverandi tónlistarséni, sem hefir
kosið líf umrenningsins og býr í
helli. Til viðbótar upprifjun á fortíð
hans er bætt við tengslum hans við
fjölskylduna, sem er flókið mál. Og
til að bæta gráu ofan á svart fær
umrenningurinn tormeltar sýnir
sem við fáum að fylgjast með í tíma
og ótíma.
Það er Samuel L. Jackson sem
leikur umrenninginn. Það rofar
stundum til hjá honum og þegar
hann fmnur lík ungs manns tekur
ábyrðartilfmningin völdin. Enginn
trúir honum þegar hann segist vita
hver morðinginn er. Hann fer því á
stúfana til að finna sönnunargögn.
Samuel L. Jackson hefur burði til
að takast á við þá einkennilegu sam-
setningu sem umrenningurinn er.
Hann er þó aldrei sannfærandi tón-
skáld og píanósnillingur, er mátu-
lega klaufalegur sem rannsóknar-
lögga og bestur sem hinn brjálaði
umrenningur. Þrátt fyrir mikilúð-
legt gervi og mikla fyrirferð nær
hann ekki að bjarga kvikmynd sem
ætlar sér of mikið. -HK
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Kasi
Lemmons. Bandaríkin 2001. Lengd: 105
mín. Leikarar: Samuel L. Jackson, Colm
Feore, Tamara Tunie og Ann Magnuson.
Bönnuö börnum innan 16 ára.