Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Síða 27
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002
27
DV
Sport
1. deild karla í knattspymu hefst á mánu-
daginn og má búast við æsispennandi keppni
í sumar. Það er áberandi hversu mörg lið
hafa hugað að heimavinnunni og byggja nú
ið sín upp á uppöldum leikmönnum. Þetta er
jákvæð þróun en hún skapar um leið mikla
óvissu og kyndir upp spennu fyrir því hvaða
lið koma tO með að standa sig best og komast
í hóp tiu bestu liða landsins á næsta ári.
Undanfarin ár hefur Lengjan staðið fyrir
spá þjálfara liðanna sem ledca í deOdinni og
var niðurstaðan geFm út í gær. DV-Sport
kannaði stöðuna á hveiju liði og eru viðtölin
í þeirri röð sem liðum þeirra er spáð.
1. Þróttur R. 75 stia
Þrótturum er spáð efsta sætinu af þjáifur-
um deddarinnar en þeir enduðu tímabdið í
fyrra með glæsibrag, fóru taplaush- í gegnum
seinni umferðina og byijuðu síðan árið í ár
með sínum fyrsta Reykjavíkurtitli í 36 ár.
„Liðið er búið að líta ágætlega út í vor og
við höfum verið að spda vel og það er ekkert
annað á dagskránni hjá okkur en að halda
áfram frá því í fyrra og steöia á það að spda
í efstu dedd á næsta ári. Það verður erfitt því
það eru mörg ágætis lið og þetta verður td-
tölulega jafnt mót,“ sagði Ásgeir Elíasson,
þjálfari Þróttar.
2. Valur 73 stia
Valsmenn fóru strax af stað í haust með þá
stefhu að fá aftur td baka uppalda Valsmenn
sem voru að spda með öðrum liðum. Valsslið-
ið hefur fengið mikið af þessum strákum td
baka og er td ads líklegt í að endumýja sæt-
ið sitt og stoppa stutt í 1. deddinni.
„Ég er nokkuö bjartsýnn. Það hefur gengið
mjög vel upp á síðkastið og þó svo að ég sé
með mjög ungt lið er ég líka að mínu mati
með gott lið. Liðið er byggt upp af Valsmönn-
num og elsti leikmaðurinn er 26 ára á þessu
ári sem sýnir hversu ungt lið þetta er. Svona
er hópurinn sem við veðjum á og svo verður
bara að koma í ljós hvort það verður í sumar
sem við springum út eða næsta sumar," sagði
Þorlákur Már Ámason, þjálfari Vals.
3. Breiðablik 69 stia
Blikar hafa farið þá leið að treysta á efhi-
við félagsins en margir leikmenn félagsins
hafa yfirgefið Smárann síðan liðið féd síðasta
haust. Jörundur Áki Sveinsson tók við liðinu
og Blikar hafa verið að gera ágætis hluti í
vormótunum.
„Það hafa verið ágætis leikir hjá okkur inn
á midi í vor en það vantar stöðugleika í liðið.
Við erum í ákveðnu uppbyggingarferli, höf-
um misst tíu leikmenn en það em leikmenn í
Breiðabliki sem lofa virkdega góðu fyrir
framtíðina. Þar fyrir utan erum við með góða
og reynslumdda menn sem vonandi hjálpa
ungu strákunum. Ég tel að ég hafi nokkuö
góða blönda af leikmönnum og ef adt gengur
upp ættum við að geta gert góða hluti. Við
ætlum okkur upp en það verður mjög erfitt
því það er hægara sagt en gert að komast upp
úr svona jafhri dedd,“ sagði Jörundur Áki
Sveinsson, þjálfari Breiðabliks.
4, Víkinaur 57 stia
Lúkas Kostic er kominn aftur í Víkina en
síðast þegar hann var þar fór hann með Vík-
ingsliðið strax upp í úrvalsdedd. Lúkas hefur
meðal annars fengið Ólaf Adolfsson í liðið td
að auka reynsiuna innan þess en líkt og áður
byggir hann liðið upp á ungum Víkingsstrák-
um.
„Ég er fyrst og fremst að reyna ná upp
meiri reynslu i liðinu því flestir leikmennim-
ir eru ungir og reynslulitlir. Við höfum verið
að fá nokkra reynda leikmenn td liðs við okk-
ur sem gætu hjálpað tO við að ná jafnvægi í
liðið. í Víkinni er td nóg af efndegum
strákum og þeir þurfa aðeins tima td að
þroskast. Þetta hefur samt verið erfiður vetur
og það gekk dla í deddabikamum en að
undanfórnu hefúr þó farið að ganga betur.
Við bindum í raun engar vonir við það að
fara upp í úrvalsdeddinni en ætlum bara að
skemmta okkur í sumar og reyna að standa
okkur sem best,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari
Víkings.
5. Stiarnan 50 stia
Stjarnan var að margra mati með nægdega
sterkt lið td að fara upp í fyrra en liðið komst
aldrei almenndega á skrið og missti af
sætinu á lokasprettinum. Síðan þá hefur lið-
ið gjörbreyst og margir reynslumddir leik-
menn hafa horfið á braut.
„Okkur hefúr gengið alveg þolanlega í vor
en það hafa orðið miklar breytingar á liðinu
frá því í fyrra, edefu leikmenn eru famir og
aðeins fjórir ledcmenn eftir sem vom fasta-
menn í byrjunarliði síðasta sumar. Við erum
samt búnir að styrkja aðeins hópinn og ætl-
um okkur að blanda okkur í toppbaráttuna.
Þetta verður mjög fróðlegt og spennandi sum-
ar fyrir okkur hér í Garðabænum. Við erum
að skera niður eins og flest önnur lið og ætl-
um að gefa ungum strákum í Stjömunni
tækifæri td þess að sanna sig,“ sagði Valdi-
mar Kristófersson, þjálfari Stjömunnar.
6. Aftureldina 34 stia
Afturelding fékk óvænt sæti í deddinni ,
þökk sé sameiningu Dalvikur og Leifturs, og
samkvæmt góðu gengi liðsins í deildabikarn-
um gætu Mosfedingar gert ágæta hluti.
„Það er mikd lyftistöng fyrir adt bæjarfé-
lagið og yngri flokkana að liðið sé komið upp
í 1. deddina. Okkur gekk vel í deddabikarn-
um og unnum þar áda okkar sjö leiki. Við
komumst í raun upp í byrjun mars og það er
mikd stemning í hópnum og við hlökkum td
að byrja að spda. Markmið okkar eru mjög
skýr og það er að halda okkur í deddinni.
Beinagrindin er sú sama og var í fyrra og
þeir menn sem hafa bæst við hafa smeUpass-
að inn í liðsandann og liðið ,“ sagði Sigurður
Þórir Þorsteinsson, þjálfari Aftureldingar.
7. Haukar 33 stia
Haukar hafa þotið upp um tvær deddir á
tveimur árum og eru nú komnir upp í 1. dedd
í fyrsta sinn síðan 1991.
„Okkur líst vel á sumarið. Liðið hefur tek-
ið stórt stökk á stuttum tíma og stefnan er
tekin á að ná stöðugleikanum í 1. deddinni
áður en við fórum að stefna hærra. Við höf-
um fengið td okkar leikmenn sem koma tU
með hjálpa okkur að ná því markmiði en
deddin verður líklega tvískipt," sagði Þor-
steinn HaUdórsson, þjálfari Hauka.
8. ÍR 32 stia
ÍR-ingar lentu í miklum vandræðum í
fyrra og rétt sluppu á lokasprettinum, eink-
um fyrir mdcinn karaktersigur á KA-mönn-
um. Líkt og fyrir tímabdið í fyrra hefur liöið
breyst mUúð og erfitt er að sjá nákvæmlega
hver staða þess er.
„Það er ómöglegt að segja hvar við verðum
í sumar því erum enn í uppbyggingarferli.
Það er aUtaf stefnan að gera betur en síðasta
ár. Það hafa orðið miklar breytingar á félag-
inu og liðinu síðustu árin, margir leikmenn
eru famir og aðrir komnir tU baka. Mótið
vinnst samt ekki á einhveijum spám heldur
á veUinum sjálfum og við hlustum ekkert á
þá spá sem setur okkur í áttunda sætið,“
sagði Guðmundur Torfason, þjálfari ÍR.
9. Dalvík/Leiftur 16 stiq
Sameiginlegt liö Dalvíkur og Leifturs hefur
gengið í gegnum erflðan vetur og það var
ekki ljóst fyrr en seinni hluta vetrar að liðin
myndu sameinast. Margir leikmenn hafa yfir-
gefið herbúðir liðanna og ólíkt því sem áður
var hjá Ledtri mun enginn erlendur leikmað-
ur spda með liðinu í sumar.
„Það hefur orðið algjör viðhorfsbreyting
hér á svæðinu og liðin hafa stigið það skref
að sameinast og við byggjum þetta núna upp
á strákum frá Dalvík og Ólafsfirði. Þetta er
mflúð af ungum strákum sem hafa ekki feng-
ið mikið af tækifærum síðustu árin og við
gerum okkur grein fyrir því að það verður á
brattann að sækja hjá okkur. T0 lengri tíma
litið tel ég hins vegar þetta vera það eina
rétta fyrir þessi tvö félög,“ sagði Gunnar Guð-
mundsson, þjálfari liðs Dalvömr og Leifturs.
10. Sindri 11 stia
Sindri er komið á ný upp í 1. deddina en
Hornfirðingar stóðu sig vel í deddinni fyrir
tveimur árum en urðu að sætta sig við faU á
lokasprettinum.
„Við höfum verið í vandræðum í vor og
menn eru að sþá okkur slæmu gengi í kjölfar
þess en ég tel að þessi spá komi okkur ekkert
Ola. Við byijum mótið í tíunda sæti en ætlum
okkur að vinna okkur upp um sæti í sumar
og ætlum að koma á óvart. Það er stefnan að
standa sig betur en fyrir tveimur árum, við
erum með mikið baráttulið og höfum trúna
og baráttuna td þess að halda okkur í dedd-
inni,“ sagði Hajrudin Cardaklija, þjálfari
Sindra. -ÓÓJ
Jens Elvar Sævarsson, fyrirliöi Þróttar, meö Reykjavíkurmeistarabikarinn sem Þróttur vann í fyrsta sinn
í 36 ár á dögunum er liöið lagði KR-inga aö velli, 1-0, í úrslitaleik. DV-mynd KÖ
Norska úrvalsdeildin í knattspyrnu í gær:
Á skotskónum
- Andri, Marel og Tryggvi skoruðu fyrir sín lið
HeO umferð fór fram í
norsku úrvalsdeOdinni i
knattspymu í gærkvöld.
Lyn, lið Helga Sigurðssonar
og Jóhanns B. Guðmundsson-
ar, er komið með sjö stiga for-
ystu í deddinni eftir sigur á
næstefsta liðinu, Bodo/Glimt,
3-1. Jóhann B. Guðmundsson
fór af veUi á 62. mínútu og
fékk fjóra í einkunn á
Nettavisen. Helgi Sigurðsson
sat á bekknum hjá Lyn aUan
ledcinn.
Andri skoraöi tvö
Andri Sigþórsson skoraði
tvö mörk fyrir Molde sem rúU-
aði yfir Bryne, 5-1, fyrir fram-
an tæplega fimm þúsund
áhorfendur en það voru fæstir
áhorfendur á Molde leikvang-
inum af öUum leikjunum sjö.
Ólafur Stígsson átti einnig
góðan leik og lagði upp tvö
mörk fyrir Molde. Ólafur spU-
aði aUan ledúnn fyrir Molde
og fékk fimm í einkunn hjá
Nettavisen. Andri Sigþórsson
fékk sjö í einkunn og var með
betri mönnum vaUarins.
Hann hefur nú skoraö fjögur
mörk í norsku deUdinni.
Bjami Þorsteinsson kom inn á
sem varamaður á 65. mínútu.
Ámi Gautur Arason stóð í
marki Rosenborg sem vann
Start, 4-2, í Þrándheimi. Ámi
Gautur fékk fimm í einkunn
hjá Nettavisen.
Lillestrom gerði jafntefli,
1-1, gegn Válerenga á heima-
velli fyrir framan tæplega
fjórtán þúsund áhorfendur.
Indriði Sigurðsson lék allan
leikinn fyrir Lillestram og
fékk fimm í einkunn hjá
Nettavisen. Gylfi Einarsson og
Davíö Þór Viðarsson sátu á
bekknum hjá LUleström og
komu ekki við sögu í leiknum.
Tryggvi skorar enn
Viking og Stabæk gerði
jafntefli, 3-3, í mUúum svipt-
ingaleik í Stavangri. Viking
komst í 2-0 en Stabæk tókst
með mikiUi baráttu að komast
yflr 3-2. Marel Baldvinsson
skoraði fyrsta mark Stabæk
eftir undirbúning frá Tryggva
Guðmundssyni. Tryggvi skor-
aði síðan annað markið og var
þaö fjórða mark í síðustu
fimm leikjum Stabæk í deild-
inni. Tryggvi spUaði aUan
leikinn og fékk sex í einkunn
hjá Nettavisen. Marel Bald-
vinsson var skipt út af á 81.
mínútu og fékk hann fimm í
einkunn. Hafnfirðingurinn
ungi Hannes Sigurðsson lék
síðustu 19 mínútumar í liði
Viking.
Lyn er í efsta sætinu með 21
stig þegar átta umferðum er
lokið í norsku úrvalsdeild-
inni, Bodo/Glimt og Molde
eru með 14 stig, Rosenborg og
Odd Grenland eru með 13 stig,
Válerenga, Viking og Stabæk
eru með 12 stig, Lillestrom og
Brann em með 10 stig, Bryne
er með 7 stig, Moss er með 6
stig, Start er með 4 stig og á
botninum situr Sogndal með 2
stig. -ósk